Morgunblaðið - 06.04.1991, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.04.1991, Blaðsíða 13
7TTr'\ A rjr Samvinna skilar sjúklingnum bestum árangri Á hverju ári greinast nokkur börn á ísiandi með sykursýki sem er efnaskiptasjúkdómur og ólækn- andi enn sem komið er. Langflestir ná þó að hafa stjórn yfir þessum sjúkdómi en það krefst góðrar sam- vinnu sjúklings og fjölskyldu hans við lækna og hjúkrunarfólk. Árni V. Þórsson, læknir á barna- deildinni, er sérfræðingur í efna- skipta- og innkirtlasjúkdómum barna og .hann fær til meðferðar ásamt hjúkrunarfólki deildarinnar flestöll sykursjúk börn á Islandi.“ Þegar barn greinist með sykursýki hefur það óhjákvæmilega í för með sér breytingu fyrir alla fjölskylduna/ en mestar eru auðvitað breyting- arnar á lífi hins sykursjúka barns. Börnin leggjast hingað inn eftir að sjúkdómurinn hefur verið greindur til rannsókna. Það þarf að kenna krökkunum og oft foreldrunum að gefa insúlín og gefa nákvæmar upplýsingar um mataræði og ótal- margt fleira. Enn sem komið er kunna lækna- vísindin engin ráð til að lækna þenn- an sjúkdóm en framtíðarhorfur þeirra sem hafa sjúkdóminn, sem eru mjög bjartar, ráðast alfarið af að ákveðnar reglur séu haldnar. Eftir útskrift af deildinni koma börnin í reglulegt eftirlit á stofu á þriggja mánaða fresti þar sem fylgst er með vexti þeirra og þroska og breytingar gerðar á lyfjagjöf og mataræði ef með þarf. Þjónusta við sykursjúk börn hefur smám saman verið að aukast að umfangi og verða markvissari. Okkar markmið er að halda áfram að bæta hana, meðal annars með því að fylgjast með öll- um nýjum rannsóknum á sjúkdómn- um og nýjungum í meðferð sykur- sjúkra,"-sagði Árni að lokum. Elísabet Konráðsdóttir, hjúkr- unarfræðingur, starfar í áhugahóp hjúkrunarfólks um sykursýki: „Mitt starf er bæði inni á barnadeildinni þar sem ég hjúkra sykursjúkum börnum, og auðvitað fleirum, en ég vinn líka með þessi börn og fjöl- skyldur þeirra þegar þau koma í sitt eftirlit. Mjög oft koma upp spurningar og vandamál sem leysa þarf úr og samfelld fræðsla er mjög nauðsynleg þar sem þessi hópur á í hlut. Ný vandamál skjóta upp kollinum, oft í tengslum við að börn- in eru að stækka og þroskast og góð tengsl yið þetta fólk geta oft komið í veg fyrir vandamál. Þau auðvelda líka fjölskyldunni að að- lagast þeim breytingum sem fylgja í kjölfar þessa sjúkdóms," sagði Elísabet. Að velja sér lífsstarf Einn af læknum barnadeildarinn- ar, Ólafur Gísli Jónsson, er sérfræð- ingur í blóðsjúkdómum og krabba- meinslækningum barna. Mörgum stendur ógn af krabbameini og blaðamaður Morgunblaðsins spurði Ólaf hvað lægi að baki hans vali á ævistarfi og sérgrein. „Mín áform í upphafi voru að leggja stund á lyflækningar. Síðan átti ég kost á að vinna um tíma á barnadeild. Segja má að þá hafi mín framtíð verið ráðin. Börn eru gædd svo miklum lífskrafti. Þau eiga allt lífið framundan. Alvarleg- um veikindum barna fylgir svo mik- il sorg en gleðin yfir batanum er líka þeim mun meiri. Hvað varðar krabbamein og börn hafa lífslíkur barna gjörbreyst á undanförnum árum og batahorfur nú mjög góð- ar. Þannig læknast meira en helm- ingur þeirra barna sem fá krabba- mein og í mörgum tegundum sjúk- dómsins er lækning reglan en ekki undantekning. Við stefnum að því að öll börn með krabbamein lækn- ist, ekki eingöngu af sjúkdómnum, heldur geti haldið áfram að vaxa og þroskast þrátt fyrir sjúkdóminn og meðferðina. Börn takast á við slíka sjúkdóma með miklu hugrekki og æðruleysi og það er mikil lífsfyll- ing að hjálpa þeim að ná bata,“ sagði Ólafur. Grein: Ragnheiður Gunnarsdóttir C\CT-A T'tT A 'MTTn<TOM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRIL 1991 Patreksfi örður: Sænsk ungmenni í heimsókn Patreksfirði. I V-Bardastrandarsýslu hefur um nokkurt skeið verið starfandi deild úr Norræna félaginu. Einn hlutinn í starfi hennar er að halda uppi vinabæjatengslum. Það tók nokkurn tíma fyrir Patreksfjörð að komast inn í vinabæjakeðju, þar sem jafnræði væri, hvað snertir stærð bæjanna. En það gerðist þó fyrir um fimm árum, að Patreksfjörður tengdist bæjunum fjórum: Vadstena í Svíþjóð, 7.000 manns, Svelvik í Noregi, álíka margir, Bogense í Danmörku, um 4.000 manns og Naan- tali í Finnlandi, sem er fjölmennastur með 25.000 manns. Patreksfirð- ingar fylla reyndar varla þúsundið. Samstarfið felst meðal annars í heimsóknum milli bæjanna og fyrir skömmu var tíundi bekkur Grunn- skóla Patreksfjarðar all samnorr- ænn. Tvö ungmenni frá Vadstena voru hér að endurgjalda heimsókn tveggja ungra Patreksfirðinga sem heimsóttu Vadstena síðastliðið sum- ar. Fyrir er í bekknum dönsk stúlka, sem hér hefur verið í vetur sem skiptinemi. Skandinavarnir féllu vel að hópnum og var ekki að sjá að tungumálaörðugleikar yllu nokkrum vandræðum. Svíarnir sýndust vera mjög ánægðir með dvölina. Þeir voru sjáanlega fyrirmyndarfólk og voru þó valin tvö, piltur og stúlka, af handahófi úr hópi fjörutíu og tveggja, sem sóttu um að fá að fara. Reynt var að gera gestunum sem mest til góða og var þeim sýnd bæði útgerðin og fiskvinnslan. Auk þess fóru níundi og tíundi bekkur með þá í sundlaugarferð til Tálkna- fjarðar þar sem einnig var kíkt á laxeldi. Raunar er ekki óvanalegt að út- lendingar séu hér við skólann. Þeir hafa þó flestir verið í kennaraliðinu. Það á vísu ekkert skylt við vinabæja- tengsl né heldur norrænt samstarf að hér hafa starfað norskur, danskur og finnskur kennari. Einnig var hér hollenskur kennari og ekki má gleyma þeim sem kom lengst að, en það var kona af ættstofni maoría, frumbyggja Nýja-Sjálands. - Hilmar. ■ VEGNA slyss sem varð við köf- un á Þingvöllum í janúar sl. vill Siglingamálastofnun taka eftirfar- andi fram. Við köfun við lágt um- hverfishitastig er alltaf nokkur hætta á að öndunarbúnaður kafara vinni ekki eðlilega, vegna eðlislægrar virkni hans og oft lttið hægt að gera til þess að koma í veg fyrir slíkt. Það leiðir til þess að þeim mun mikil- vægara er að grunnþjálfun kafarans sé góð og kafarinn æfi reglulega neyðarviðbrögð. Vatnið í gjám á Þingvöllum og í Þingvallavatni hefur lágt hitastig, 3-4 gráður, og þó nokk- urs straums gætir. Er því meiri hætta á að öndunarbúnaður kafara vinni þar ekki eðlilega. Með hliðsjón af framansögðu vilja þjóðgarðsvörður á Þingvöllum og Siglingamálastofnun minna á þá hættu sem því fylgir að kafa í gjám þjóðgarðsins og jafn- framt að óheimilt er að stunda köfun í gjám innan þjóðgarðsins á Þingvöll- um og í vatninu fyrir landi þjóðgarðs- ins. NISSAN og SUBARU STÓRBÍLASÝNINGAR UM LANDIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG 14°°-1700 Subaru Legacy 1,8 Gl 4WD skutbíll kr. 1.397.000.- stgr. Nissan Primera 2,0 SLX stallbakur kr. 1.275.000.- stgr. • AKUREYRI: Bifr.verkst. Siguröar Valdimarss, Óseyri 5 • ÍSAFIRÐI: ísafjarðarflugvelli • KEFLAVÍK: B.G. Bílasalan, Grófinni 7-8 • REYÐARFIRÐI: Lykill, Búðareyri 25 • REYKJAVÍK: Ingvar Helgason hf., Sævarhöfða 2 Ingvar Helgason hf. Sævarhöföa 2 sími 91-674000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.