Morgunblaðið - 06.04.1991, Blaðsíða 50
WÖtidUt^LÁbS)1 ÁMlD'töíÚ
50
fclk í
fréttum
SKEMMTANIR:
Tíska í Hvíta húsinu
Skemmtistaðimir í Reykjavík keppa nú hver um
annan þver- an um athygli náttfaranna um
hvetja helgi. Sumir þeirra efna til frumsaminna
skemmtiatriða vikulega og er einn þeirra Casablan-
ca. Fyrir skömmu var það atriði á boðstólum sem
hér má sjá á meðfylgjandi myndum. Það eru Módel
’79 sem sýna fot frá Centrum og var sýningin á
öðrum þræðinum danssýning sem hét því jarð-
bundna nafni „Down to earth“. Syndi sýningarfólk-
ið lofsverð tilþrif að mati áhorfenda og var þeim
klappað lof í lófa.
Nú um helgina verður enn efnt til frumsamins
atriðis sem reyndar verður flutt í annað sinn. Það
er dansatriði sem heitir „An officer and a gentle-
man“ og höfðar að einhveiju leyti m.a. til kvikmynd-
ar sem hét svipuðu nafni fyrir nokkrum árum og
bauð upp á Richard Gere og Debru Winger í aðal-
hiutverkum.
Mest seldu rúmin
í Bandaríkjunum.
Hágæða dýnur
í mörgum
verðflokkum.
Marco
hí. Langholtsvegi 111, sími 680690.
Opið virka daga frá kl. 10—18,
laugardaga frá kl. 11—14.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Krakkarnir á Vigdísarkletti. Þau buðu frú Vigdísi velkomna á Sel-
foss einum rómi.
M-HATIÐ A SUÐURLANDI:
Hver í ósköpunum
fann upp á þessu
hortuga stríði?
Við opnun M-hátíðar á Suður-
landi var lesið frumort ljóð
eftir Tinnu Lind Gunnarsdóttur,
nemanda í 6. bekk Kirkjubæjar-
skóla. Fréttaritari Mbl. náði tali af
henni þar serruhún var önnum kaf-
in við að undirbúa næstu M-hátíð.
Ljóðið þitt heitir Stríð-Friður, var
einhver sérstök ástæða fyrir því að
þú valdir þetta yrkisefni?
„Ætli það hafi bara ekki verið
vegna þess að Persaflóastríðið var
nýbúið að vera svo mikið í fréttun-
um.“
Hvers konar samkeppni tókstu
þátt í þar sem þetta ljóð kom fram?
„í skólanum var efnt til ljóða-
og smásagnasamkeppni og ég setti
þetta þar með.“
Gerirðu mikið af því að yrkja?
„Á tímabili gerði ég dálítið af
því, núna fyrr í vetur, en svo er ég
eiginlega hætt því núna.“
Þú ert ekki með fulla körfu af
frumortum ljóðum heima?
„Ekki alveg! En ég geymi dálítið
af ljóðum sem ég hef gert.“
Ætlarðu kannski að verða Ijóð-
skáld?
„Nei, ég held ekki, ég bý bara
til ljóð þegar mig langar til þess.“
Við setningu M-hátíðar á' Sel-
fossi las Brynhildur Birgisdóttir ljóð
Tinnu. Ljóð Tinnu fer hér á eftir.
Stríð
Hver stakk upp á þessum leik
þessu stríði
hveijum datt í hug að nota
byssur, riffla, sprengjur
og hveijum datt í hug að
særa
eða hveijum datt í hug að
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Richard Kursch þjálfari og Hjalti Þór Hannesson úr sundfélaginu
Ægi.