Morgunblaðið - 06.04.1991, Síða 60
tfgmilHUifrtfe
940/960
- Bifreiö sem þú gelnr Ireyst!
LAUGARDAGUR 6. APRIL 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Morgunblaðið/Sverrir
Rauðlitaður vorboði í Hafnarfirði
Þær Edda Sigurbjörg Jóhannsdóttir og Friðbjörg
Ragnarsdóttir voru að selja rauðmaga við Fjarðar-
götu í Hafnarfirði þegar ljósmyndara Morgunblaðs-
ins bar þar að í gær. Þær hafa staðið þarna á hveiju
vori í fjórtán ár. Edda Sigurbjörg sagði að faðir
sinn, Jói sjóari, hefði dregið þann rauða.
Kosningarnar 20. apríl:
Sjö flokkar bjóða
fram um allt land
SJÖ flokkar munu bjóða fram í ölluni kjördæmuni í alþingiskosningun-
um 20. apríl næstkomandi, en frestur til að skila inn framboðum rann
út á hádegi í gær. Flestir verða framboðslistarnir í Reykjaneskjör-
dæml, alls 11, en fæstir á Vestfjörðum, eða 7. I öðrum kjördæmum
verða 8 framboðslistar nema í Reykjavík. Þar böfðu borist 9 framboð
þegar framboðsfrestur rann út í gær, en 7 mínútum síðar skilaði full-
trúi Verkamannaflokks Islands inn 10. framboðinu. Yfirkjörstjórn úr-
skurðar í dag livort þetta framboð verður tekið gilt.
Frestur til að skila inn framboðs-
listum og meðmælendalistum vegna
alþingiskosninganna 20. apríl rann
út á hádegi í gær. Yfirkjörstjórnir
hafa nú farið yfir framboðin eða
gera það í dag og mun landskjör-
stjórn íjalla um þau eftir helgi.
Þeir flokkar, sem bjóða fram um
land allt, eru Alþýðuflokkur, Fram-
sóknarflokkui', Sjálfstæðisfiokkur,
Fijálsiyndir, Alþýðubandalag,
Kvennalisti og Þjóðarflokkur -
Flokkur mannsins. Auk þess bjóða
Heimastjórnarsamtökin fram í öllum
kjördæmum nema á Vestfjörðum.
Flestir framboðslistar komu fram
á Reykjanesi, en þar verða í fram-
boði, auk þeirra flokka sem bjóða
fram í öllum kjördæmum, Grænt
framboð, Heimastjórnarsamtökin,
Verkamannaflokkur íslands og Öfg-
asinnaðir jafnaðarmenn.
í Reykjavík höfðu 9 framboð bor-
ist þegar fresturinn rann út í gær.
Auk þeirra sjö flokka, sem alls stað-
ar bjóða fram, var skilað inn fram-
boðum frá Grænu framboði og
Heimastjórnarsamtökunum. Sjö
mínútum eftir að framboðsfrestur
rann út var skilað inn framboði frá
Verkamannaflokki íslands og mun
yfirkjörstjórn taka afstöðu til þess í
dag, hvort framboð hans verður tek-
ið gilt.
Hugbúnaðarkerfi fyrir fiskmarkaði þróað:
SameiginlegTir fiskmark-
aður fyrir allt land í augsýn
- segir Logi Þormóðsson, stjórnarformaður Fiskmarkaðar Suðurnesja
SAMEIGINLEGUR fiskmarkaður, fjarskiptatengdur í tölvunet, fyrir
öll byggðarlög landsins, útgerðir og fiskkaupendur er nú orðinn raun-
hæfur möguleiki að mati Loga Þormóðssonar, stjórnarformanns Fisk-
markaðar Suðurnesja. Þróað hefur verið hugbúnaðarkerfi hjá Fisk-
markaði Suðurnesja, þar sem fjarskiptamarkaður hefur verið rekinn
undanfarin þrjú og hálft ár, sem senn verður tilbúið til notkunar.
Logi sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gæi' að á fjarskiptamarkaðn-
um hafi verið selt frá sjö til átta
höfnum í einu, og kaupendur hafi
verið frá fjórum til sex stöðum.
„Við höfum verið með hugbúnaðar-
kerfi í notkun og í smíðum þennan
tíma og teljum okkur nánast vera
komna með kerfi sem getur þjónað
Handtekinn
fyrir ósæmi-
lega hegðun
í Laugardal
MAÐUR var handtekinn við
skautasvellið í Laugardal um
kvöldmatarleytið í gær fyrir
ósæmilega hegðun.
Lögreglan fékk tilkynningu
um það klukkan 19 að maður-
inn hefði flett sig klæðum fyrir
framan hóp barna og unglinga,
sem voru að leik við skautá-
svellið.
Að sögn lögreglu á maður
þessi við andlega vanheilsu að
stríða.
landinu þannig, að það getur verið
fiskmarkaður á hveijum stað, sem
getur verið fjarskiptatengdui' inn í
fiskmarkaðsnet og verið jafnframt
sjálfstæður í hverju byggðarlagi,
þannig að ekki þurfi að flytja til
fisk áður en hann er seldur.“
Logi sagði að hægt væri að vera
með svæðisuppboð, þar sem margar
hafnir á sama svæði bjóða upp á
sama tíma með tengingu hvert sem
er. Þá sé einnig hægt sé að vera
með sérstakt uppboð á einum stað
og tengjast kerfinu.
Slíkur fjarskiptamarkaður sagði
Logi að bjóði ennfremur upp á að
menn selji fiskinn á meðan skip er
ennþá í hafi, jafnvel óveiddan fisk,
og því sé hægt að velja löndunar-
höfn eftir því hvernig kaupandi og
seljandi semji sín á milli. Þess vegna
sé hægt að ákveða löndunarhöfn
hvar sem er á landinu, jafnvel er-
lendis. Hann sagði að slíkur íjar-
skiptamarkaður gæti rofið . þau
tengsl sem eru nú á milli veiða og
vinnslu og auðveldað sérhæfingu
vinnslunnar og verkaskiptingu.
Hann sagði að fyrst og fremst
þurfi vilja til að koma þessum fjar-
skiptamarkaði á. „Þetta er ekki
mjög dýrt. Það þarf aðstöðu í hverri
höfn og tölvubúnað sem er tengdur
þessu hugbúnaðarkerfi.
Þessi fjarskiptamarkaður er þró-
aður hjá Fiskmarkaði Suðurnesja
eftir okkar reynslu og við vitum
ekki til þess að annar svona mark-
aður sé til í heiminum. Við teljum
okkur vera komna með lausn á því
að selja fisk í fjarskiptum hvar á
landi sem menn vilja. Markmiðið
með kerfinu er að færa alls ekki til
verstöðvar og hafnir eða fisk til
milli hafna, heldur að nýta heima-
miðin og fjárfestingarnar sem eru
úti í byggðuni landsins með því að
opna leið kaupendanna að fiskinum
þar sem langt er til næstu byggða,“
sagði Logi Þormóðsson.
Þormóður rammi:
Sala hluta-
bréfa hafin
SALA hlutaibréfa í Þormóði
raninia hf. meðal Siglfirð-
inga hófst fyrir tveimur vik-
um. Að sögn Róberts Guð-
finnssonar, framkvæmda-
stjóra, hefur hún gengið að
óskum og á þriðja tug aðila
þegar skráð sig fyrir hluta-
fé, þó ekki væri um stórar
upphæðir að ræða.
í kjölfar kaupanna á Þor-
móði ramma á síðasta ári var
ákveðið að auka hlutafé í hinu
nýja hlutafélagi og eiga Sigl-
firðingar forkaupsrétt að
fyrstu 40 milljónunum að
nafnvirði. Bréfin eru seld á
genginu 1,25, sem er sama
gengi og Drafnar hf. og Egils-
síld hf. keyptu sinn hluta á
af ríkissjóði. Að sögn Róberts
hyggjast eigendurnir bjóða út
hlutafé utan Siglufjarðar inn-
an skamms.
Uppsagnir lijúkrunarfræðinga á Landspítalanum:
Kröfur um að dreifa
álagi jafnt á deildimar
TUTTUGU hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á lyfjadeild Landspít-
alans hafa sagt upp störfum og tekur uppsögn þeirra gildi 1. maí
næstkomandi. Að sögn starfsfólks á deildinni, er ástæða uppsagn-
anna óheyrilegt álag á starfsfólkið. Með uppsögnunum vilja starfs-
mennirnir knýja á um að álaginu verði dreift jafnt á allar deildir
spítalans.
Allir hjúkrunarfræðingar og
sjúkraliðar á deild 14 G, lyfjadeiid
Landspítalans, sögðu upp störfum
1. febrúat' síðastliðinn. Þetta er
stærsta lyfjadeildin á Landspítalan-
um, alls 22 rúm. Óheyrilegt álag
hefði verið síðan í maí á síðasta
ári, mörg rúm verið á gangi og
starfsfólk tekið endalausar auka-
vaktir. Þetta ylli því að ekki væri
unnt að veita þá þjónustu sem
starfsfólkið vildi veita skjólstæðing-
um sínum.
Starfsmenn segja að orsök þessa
álags sé ónóg öldrunarþjónusta í
Reykjavík. Stór hluti sjúklinga á
deildinni sé aldrað fólk sem þarf
að leggja inn á hjúkrunarheimili
þegar sjúkradvöl lýkur, en mun
vei'r hafi gengið að koma þessum
sjúklingum fyrir á slíkum stofnun-
um en öldruðum sjúklingum frá
öðrum sveitarfélögum. Vistunar-
vandamál að lokinni sjúkradvöl hafa
verið vegna allt að 16 plássa á deild-
inni af þeim 22 sem þar eru. Þetta
hefði einnig leitt til þess að ekki
hafi verið hægt að taka inn sjúkl-
inga af biðlistum og þeir lengst.
Þá vilja starfsmenn deildarinnar
að álaginu verði dreift jafnt á allar
deildir spítalans og hefðu þau mál
verið rædd við sjúkrahússyfirvöld.
Jákvæð viðbrögð hefðu borist frá
stjórn spítalans á sínum tíma en
lítið sem ekkert hefði gerst í þessum
málum.