Morgunblaðið - 19.04.1991, Síða 4
Aðalfundur SH:
Jón Ingvarsson end-
urkjörinn formaður
Tvennar breytingar á löguni félagsins
JÓN Ingvarsson var endurkjörinn formaður stjórnar SH á Aðal-
fundi félagsins, sem lauk í gær. Stjórnarkjör fór fram eftir nýjum
reglum, en breyting á lögum félagsins þar að lútandi var samþykkt
á fundinum. Sömuleiðis var samþykkt breyting, sem heimilar félög-
um að selja eignarhlut sinn í SH öðrum félagsmönnum.
Samkvæmt breyttum reglum
um stjómarkjör var formaður kos-
inn sérstaklega í fyrsta sinn í
gær. Þá var skipan stjómar breytt
þannig, að fallið var frá 9 manna
aðalstjóm og jafnfjölmennri vara-
stjóm og alls kosnir 14 auk form-
annsins í aðalstjóm. Stjórnarmenn
skulu sitja tvö ár í senn og árlega
skal kjósa 7. Því verður að varpa
um það hlutkesti hverjir 7 sitji til
tveggja ára og hverjir 7 til eins
árs. Tveir menn gengu sjálfkrafa
úr stjóm, Ágúst Einarsson úr aðal-
stjórn og Jón Friðjónsson úr vara-
stjóm, en þeir hafa báðir látið af
störfum í hraðfrystiiðnaðinum. Þá
VEÐUR
gaf Rögnvaldur Ólafsson á Helliss-
andi ekki lengur kost á sér til setu
í aðalstjóm, en þar hefur hann
setið um árabil.
Eftirtaldir menn hlutu kosningu
nú: Jón Ingvarsson, formaður,
Guðfinnur Einarsson, Pétur Þor-
steinsson, Jón Páll Halldórsson,
Guðmundur Karlsson, Gunnar
Ragnars, Aðalsteinn Jónsson, Ól-
afur Baldur Ólafsson, Magnús
Kristinsson, Svavar B. Magnús-
son, Lárus Ægir Guðmundsson,
Finnbogi Jónsson, Rakel Olsen,
Brynjólfur Bjamason og Haraldur
Sturlaugsson.
Frá viðræðufundi íslenskra og breskra stjórnvalda í utanríkisráðuneytinu um hafsbotnsréttindi á Hat-
ton-RockalI-svæðinu.
Viðræður um Hatton-Rockall:
Stefnt á að ljúka sameig-
inlegri skýrslu í haust
FULLTRÚAR islenskra og
breskra stjórnvalda héldu í gær
fund um hafsbotnsréttindi á
Hatton-Rockall-svæðinu. Á fund-
inum var rædd sameiginleg
VEÐURHORFUR I DAG, 19. APRIL
YFIRLIT: Yfir Austur-Grænlandi, íslandi og hafinu suður undan er
víðáttumikið háþrýstisvæði. Við Hvarf er lægðardrag sem þokast
norðaustur.
SPÁ: Hæg vestlæg átt, víðast skýjað og súld suðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðan- og norðaust-
anátt og kalt. Skýjað og dálítil él um norðanvert landið, en þurrt
og víðast léttskýjað syðra.
TAKN:
Heiðskírt
s, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 1 hálfskýjaö Reykiavik 6 léttskýjað
Bergen 5 skýjaö
Helsinki 3 skýjað
Kaupmannahöfn 5 úrkoma
Narssarssuaq 3 rigning
Nuuk +2 skafrenningur
Ósló 4 úrkoma
Stokkhólmur +1 snjóél
Þórshöfn 3 snjóél
Atgarve 17 skýjað
Amsterdam 6 rigning
Barcelona 16 heiðskírt
Berlrn 5 úrk.ígrennd
Chicago 6 skýjað
Feneyjar 7 rigning
Frankfurt 6 skýjað
Glasgow 10 háifskýjað
Hamborg S úrkoma
Las Palmas vantar
London 6 rlgning
LosAngeles 11 léttskýjað
Lúxemborg '4 snjóél
Madrfd 13 léttskýjað
Malaga 19 skýjað
Mállorca 13 súld
Montreal 4 skur
NewYork 8 alskýjað
Orlando vantar
París 7 skúr
Róm 14 rigníng
Vín 8 alskýjað
Washington 13 Þokumóða
Winnipeg +5 léttskýjað
skýrsla um hafsbotnsmál á svæð-
inu og ákveðið að stefnt skyldi
að því, að Ijúka gerð skýrslunnar
í haust.
í frétt frá utanríkisráðuneytinu
segir, að fundurinn hafi verið hald-
inn í samræmi við ákvörðun á fundi
Jóns Baldvins Hannibalssonar utan-
ríkisráðherra og Williams Walde-
grave varautanríkisráðherra Bret-
lands í fyrrasumar.
í frétt ráðuneytisins segir að á
fundinum í gær hafi verið gerð
grein fyrir þeirri vinnu sem unnin
hefur verið við að semja sameigin-
lega skýrslu um hafsbotnsmál á
Hatton-Rockall-svæðinu, sem geti
verið grundvöllur pólitískrar lausn-
ar á deilu um þessi hafsbotnsrétt-
indi. Þá segir að á þessum fundi
hafi í fyrsta sinn verið kallaðir til
jarðfræðingar af hálfu beggja
landa.
Þá segir að stefnt sé að því að
Ijúka sameiginlegu skýrslunni á
hausti komanda.
Af íslands hálfu sátu fundinn Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra, Guðmundur Eiríksson þjóð-
réttarfræðingur, Eyjólfur Konráð
Jónsson alþingismaður, Þröstur
Ólafsson ráðgjafi utanríkisráð-
herra, Þorsteinn Ingólfsson ráðu-
neytisstjóri og sérfræðingarnir dr.
Manik Talwani, dr. Guðmundur
Pálmason og Karl Gunnarsson:
Af hálfu Breta sátu fundinn
David Anderson þjóðréttarfræðing-
ur, jarðfræðingarnir John V. Brooks
og James H. Aitken og Alper
Mehmet staðgengill breska sendi-
herrans í Reykjavík.
Fjórði áfanffi við Ar-
bæjarskóla boðinn út
Gengið frá lóð við Foldaskóla
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að taka tilboði lægstbjóðanda,
Alvcrks hf., sem bauð 48,3 millj-
ónir í byggingu 4. áfanga Árbæj-
arskóla. Jafnframt er samþykkt
að taka tilboði Garðaprýði hf.,
15,6 milljónir, í frágang skólalóð-
ar við Foldaskóla.
í fjórða áfanga Árbæjarskóla eru
samtals 866 fermetrar, átta kennsl-
ustofur og tvö hópkennsluherbergi
á tveimur hæðum. Miðað er við að
gengið verði frá annarri hæðinni í
þessum áfanga og á verkinu að
vera lokið í september. Þorvaldur
Kristmundsson arkitekt er hönnuð-
ur hússins. Nítján tilboð bárust í
verkið og var tilboð Alverks hf.
lægst eða 89% af kostnaðaráætlun.
Við Foldaskóla verður gengið frá
lóðinni að sunnanverðu og þá aðal-
lega á leiksvæði. Hönnuðir eru
Reynir Vilhjálmsson og Þráinn
Hauksson landslagsarkitektar. Til-
boð Garðaprýði hf. var lægst af
ellefu tilboðum, sem bárust eða 74%
af kostnaðaráætlun.
Áróður úr
úðabrúsum
SLAGORÐ annars stjórnmála-
flokks voru sprautuð með úða-
brúsa á hús Sjálfstæðisflokksins,
Valhöll, í fyrrinótt.
Síðar um nóttina, klukkan 4.05,
kom í ljós að sama var uppi á ten-
ingnum á húsi við Ingólfsstræti,
sem Sjálfstæðisflokkurinn rekur
kosningaskrifstofu í. Ekki er vitað
hveijir voru að verki.
Lést í bifhjólaslysi
Maðurinn, sem lést í bifþjóla-
slysi á Laugaveginum á miðviku-
dag, hét Jón Sigurður Halldórs-
son, til heimilis á Austurströnd 10
á Seltjarnarnesi.
Jón var á 33. aldursári, fæddur
27. júlí 1958. Hann var sonur Önnu
Einarsdóttur, verslunarstjóra hjá
Máli og menningu, og Halldórs Jóns-
sonar ökukennara frá ísafírði. Eldri
bróðir Jóns er Einar, en yngri systk-
ini Gunnar Þorsteinn og Fríður.
Jón gaf út um tíma blaðið Mótor-
sport og rak bílasöluna Bílamiðstöð-
ina, Skeifunni 8. Þar var einnig til
húsa umboð hans fyrir Porsche-bíla
á íslandi. Hann tók þátt í mörgum
akstursíþróttakeppnum.
Sambýliskona Jóns S. Halldórs-
sonar var Louise Dahl og áttu þau
eina dóttur, Caroline Dahl Jónsdótt-
ur, sem er Vh árs. Auk þess átti Jón
tvær dætnr, 1
_ Jón S. Halldórsson