Morgunblaðið - 05.05.1991, Page 39
xeet iam .s flupi
MORGUNBLAÐIÐ
.ayy-tf MUTT3OT I XJOR GiaAJSMUOMOM
FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 5. MAI 199l"
39
Guðbjörg Lillý afliendir Guðnýju Gunnsteinsdóttur ávísunina. Einnig eru á myndinni tveir af helstu
máttarstólpum Stjörnuliðsins, Margrét Theodórsdóttir t.v. og Erla Rafnsdóttir t.h.
STJ ÖRNU STÚLKUR
Þökkuðu pent fyrir sig
Stjórn Kvenfélags Garðabæjar
tók þá ákvörðun fyrir nokkru
að heiðra handknattleikslið
kvennadeildar Stjörnunnar í
Garðabæ fyrir frábæran árangur
og afhenti fyrrverandi formaður
kvenfélagsins Guðbjörg Lillý Vil-
hjálmsdóttir fyrirliða liðsins
Guðnýju Gunnsteinsdóttur ávísun
upp á 100.000 krónur.
Þess má geta, að þegar Kvenfé-
lagið tók umrædda ákvörðun stóð
einvígi Fram ög Stjörnunnar á
toppi 1. deildar kvenna sem hæst,
en Fram hafði sigrað Stjörnuna í
úrslitaleik bikarkeppninnar.
Svona eins og til að þakka fyrir
tiltrúna og stuðninginn snéru
Stjörnustúlkurnar taflinu við og
sigruðu Fram í hreinum úrslitaleik
um sigurinn í deildinni og urðu
fýrsta lið Stjörnunnar til þess að
vinna 1. deildar titil í flokkaíþrótt-
um.
NÁMSKEIÐ
Ahugi á starfsleikninámi kennara
Undanfarna tvo vetur hefur
Kennaraháskóli íslands staðið
fyrir starfsleikninámskeiði meðal
kennara og leiðbeinenda á íslandi.
Pétur Bjarnason fræðslustjóri Vest-
fjarða eggjaði mjög vestfirska
kennara til þátttöku á fyrsta nám-
skeiðinu og fór það svo að af 250
kennurum á landinu sem tóku þátt
voru 60 af Vestfjörðum.
Upphaflega sóttu stjórnendur
námskeiðanna nám í Kennarahá-
skóla íslands og fóru þrír Vestfirð-
ingar suður. Námið sjálft fór svo
fram á Isafirði og Patreksfirði og
útskrifuðust ísfírsku nemendurnir
síðasta vetrardag. Um var að ræða
33 kennara og leiðbeinendur frá
Grunnskóla ísafjarðar og 3 kennara
og leiðbeinendur frá Grunnskóla
Súðavíkur. Það er álit nemendanna
að námið hafi haft mikið gildi fyrir
þá til kennslu og stjórnunar, en
fram kom að þeim þætti lítið metið
í launum tveggja vetra nám. Það
kom fram í ræðum manna á skóla-
slitunum að þátttakendur skildu
varla eitt orð í námslýsingunum í
upphafi vegna nýyrða og að bekkj-
ardeildir með yfir 20 nemendum á
námskeiði voru svo erfiðar að deild-
um var fjölgað og bætti það námið
að mun. Það var augljós áhugi
meðal þátttakenda og voru þeir á
einu máli um að námið myndi bæta
mjög starfemi þeirra í kennslunni
og vonandi efla innra starf vestfir-
skra skóla. Stjómandi verkefnisins
var Þorsteinn Sigurðsson og honum
til aðstoðar Eyrún Gísladóttir, en á
ísafirði var starfsemin í höndum
Jónínu Ó. Emilsdóttur og Sigrúnar
Guðmundsdóttur.
- Úlfar
LEIKLIST
Það brennur á
mínu hjarta
Mér þykir leiðinlegt hvernig
verið er að fara með leikri-
tið Pétur Gaut. Það er ekki
skortur á aðsókn sem veldur því
að sýningum er senn að ljúka, iield-
ur peningasjónarmið. Það er alls
ekki slæm aðsókn að verkinu eins
og látið hefur verið í veðri vaka í
dagblöðum að undanförnu, en það
er að sjá að þær fréttir liafi borist
frá Þjóðleikhúsinu. Ég tel mig vera
í aðstöðu til að dæma um það, því
ég leik sjálfur Pétur Gaut ungan
og sé út í sal. Það var slæm aðsókn
á tvær sýningar, sitt hvoru megin
við kosningadaginn. Ég er einnig I
leikritinu „Ég er meistarinn“ í
Borgarieikhúsinu og það var slök
aðsókn á það um svipað leyti. Ann-
ars hefur alltaf vel skipaður salur
mætt manni á Pétri Gaut,“ segir
Ingvar Sigurðsson, ungur og upp-
rennandi leikari sem eins og fram
kemur, leikur Pétur Gaut á unga
aldri í uppfærslu Þjóðleikhússins á
hinu fræga verki Ibsens.
En hvað á Ingvar við með því að
tala um að peningar séu í spilinu?
„Jú, Söngvaseiður er feykivinsæll
og síst ætla ég að lasta það verk.
Það er vel flutt, en leikmyndin og
búningarnir og allt það eru leigð
eriendis frá og Þjóðleikhúsið þarf
að skila öllu dótinu út fyrir júlí. í
ljósi eftirspurnar er því reynt að
koma á sem flestum sýningum og
m.a. er verkinu skellt á allar helg-
ar. Þetta kemur niður á Pétri Gaut
og það brennur á mínu hjarta, því
Pétur Gautur er svo miklu betri
sýning í alla staði,“ segir Ingvar.
En getur ekki fleira spilað inn í?
„Pétur Gautur er rnjög dýr og hefur
tekið mikinn tíma í undirbúningi.
Það er afar dýrt að geyma hann í
sumar og því skýtur það nokkuð
skökku við að frumsýna slíkt verk
er svo stutt er eftir af sýningarver-
tíðinni. Nú svo eru stjóraskipti að
fara fram í Leikhúsinu og Pétur
Gautur er verk sem Gísli Alfreðsson
vildi að sett yrði upp. Stefán Bald-
ursson hefur aðrar áherslur og er
ekkert nema gott um það að segja,“
svarar Ingvar. En hvað um þær
raddir sem segja að ýmsir vilji ekki
á Pétur Gaut vegna þess að tónlist
griegs er ekki flutt?
„Mér finnst það frekar einkennileg
afstaða, því sú tónlist hefur ekki
verið notuð við Pétur Gaut í árarað-
ir. Sú tónlist var notuð svo ég viti'
á orginal-uppsetningu í Osló á 100
ára afmæli Ibsens. Tónlist Griegs
getur átt við einhvetjar sýningar á
Pétri Gaut, en í þessu tilviki var
ekki svo,“ segir Ingvar og hann
endurtekur að sig svíði undan því
að sjá Pétur Gaut tekinn af dag-
skrá eftir að hafa fundið fyrir geysi-
lega góðri svörun hjá mörgum þeim
sem séð hafa verkið...
Morgunblaðið/EInar Falur
Ingvar Sigurðsson í hlutverki hins unga Péturs Gauts.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Þátttakendur í starfsleikninámi Kennaraháskóla íslands frá ísafirði og Súðavík ásanit stjórnendum
námsins við útskriftina í stjórnsýsluhúsinu á ísafirði síðasta vetrardag.
TILBOÐ ÓSKAST
í Chevrolet Blazer K-5 Silverado 4x4, árgerð ’86,
GMC tankbifreið 2000 gal. JM-7670A, árgerð ’67,
og aðrar bifreiðar, er verða sýndar á Grensásvegi
9, þriðjudaginn 7. maí kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
Sala varnarliðseigna