Morgunblaðið - 08.05.1991, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAI 1991
33
Sigrún Gissurar-
dóttir - Minning
Fædd 28. mars 1908
Dáin 28. apríl 1991
Vertu Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
Það er komið að kveðjustund því
hún elskulega langamma okkar
Sigrún Gissurardóttir er farin til
Guðs.
Okkur langar til að minnast
hennar því hún var svo ljúf og
gefandi kona. Langamma var fórn-
fús og vildi allt fyrir okkur gera.
Hennar lífshlaup var að gefa og
gleðja. Hún var snör og snögg í
snúningum þegar við komum í
heimsókn, langafi fór út í búð að
kaupa það sem til vantaði á meðan
langamma hrærði í pönnukökur.
Umhyggja langömmu var mikil,
alltaf passaði hún upp á að við
værum nógu vel klædd, södd og
ánægð. Hún kenndi okkur margar
bænir sem við förum ætíð með í
dag. Langamma gaf sér góðan
tíma til að kenna okkur að spila á
spil. Minnisstæðastar eru þær
stundir þegar hún spilaði við okkur
kasínu en markmiðið með því var
að kenna okkur að reikna. Alltaf
var langamma tilbúin til að koma
heim til okkar og passa okkur
hvort sem það var að nóttu eða
degi.
Sambandinu á milli okkar og
langömmu er erfitt að lýsa með
orðum. Hún tengdist okkur órjúf-
anlegum böndum og erum við
þakklát fyrir að hafa átt hana fyr-
ir langömmu. Hún passaði alltaf
upp á að við fengjum að njóta
þeirra tækifæra sem lífið hefur upp
á að bjóða. Kærleikur og hvatning-
ar hennar eiga eftir að fylgja okk-
ur það sem eftir er.
Við biðjum góðan Guð að blessa
langafa okkar sem dvelst nú á
Sólvangi. Með- þessum orðum
kveðjum við langömmu og biðjum
Guð að geyma hana og minninguna
um hana.
Nú legg'ég augun aftur,
6, guð þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfír láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. Sveinbjörn Egilsson)
Guðbjörg, Margrét Ágústa,
Sólveig Júlíana, Valgerður,
Sigrún Kristjana, Júlíus,
Viktoría, Guðbjörn og Katrín
Hill.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem) -
í dag kveðjum við hjartkæra
ömmu okkar Signínu Gissurar-
dóttur sem andaðist á Sólvangi 28.
apríl síðastliðinn. Þessi elska hefur
nú loksins öðlast frelsi frá sjúkum
líkama og líður vel hjá sínum himn-
eska föður sem hún trúði á og
treysti.
Amma fæddist 28. mars 1908
að Gljúfurholti í Ölfusi. Hún var
Fædd 9. janúar 1921
Dáin 28. apríl 1991
Mig langar til að minnast Þuríðar
Kristjánsdóttur, sem ég kallaði
ömmu mína, en hún var amma
Gunnhildar systur minnar.
Hún var mér alltaf svo góð og
mér þótti mjög vænt um hana. Oft
kom hún að heimsækja mig í sambýl-
ið í Auðarstræti og ég fór líka oft
í heimsókn til hennar og þá töluðum
við mikið saman. Á hverju vori bauð
næstyngst 17 barna þeirra hjóna
Gissurar Guðmundssonar og Mar-
grétar Jónínu Hinriksdóttur og
kveður hún síðust systkina sinna
þennan heim. Um 1920 flytur
amma til Hafnarfjarðar með for-
eldrum sínum og bjó þar til dauða-
dags. Þar kynnist hún ung að árum
æskuástinni sinni honum elskulega
afa okkar Kristjáni Steingrímssyni
bifreiðastjóra sem nú dvelst á Sól-
vangi. Afi og amma nutu samvista
í 66 kærleiksrík ár og eignuðust 4
börn. Þau eru Steingrímur, lyfsali
í Árbæjarapóteki, fæddur 21. októ-
ber 1926, maki Ingibjörg Sigur-
linnadóttir (látin); Margrét
Ágústa, fædd 3. mars 1934, maki
Júlíus Hinriksson, múrari; Kristján
Haukur, fæddur 1. júní 1942, dá-
inn 16. október sama ár, og Gissur
Vignir, lögfræðingur, fæddur 25.
júní 1944, maki Dóra L. Sigurðar-
dóttir, skrifstofumaður. Barna-
börnin eru 4 og bamabarnabörn
11.
Margar minningar sækja á þeg-
ar við hugsum um ömmu. Hún var
falleg og góð kona. Líf hennar ein-
kenndist af góðverkum og kær-
hún mér á tónleika lijá Skagfirsku
söngsveitinni, því hún vissi hvað ég
hef gaman af að hlusta á fallegan
söng. Ég vil að lokum þakka elsku
ömmu fyrir allar góðu stundirnar,
sem við áttum saman og bið Guð
að blessa minningu Þuríðar Kristj-
ánsdóttur.
Sigfús S. Svanbergsson
Grein þessi mislagðist. Hún átti að
birtast í gær ásamt öðrum greinum
um hina látnu. Beðist er velvirðingar
á því.
leika. Henni fannst mikilvægast
að allir væru ánægðir en oftast
gleymdi hún sjálfri sér. Margir
nutu fórnfýsi hennar, ekki sist við
og fjölskyldur okkar. Á milli okkar
og ömmu var sérstakt samband -
og veganestið sem hún gaf okkur
er dýrmætara en gull.
Nú á kveðjustund er söknuður
sækir að, er gott að minnast með
þakklæti allra þeirra stunda er við
fengum að eiga með ömmu. Amma
mun alltaf eiga stað í hjörtum
okkar og við vitum að hún heldur
áfram verndarhendi yfir okkur.
Megi góður Guð styrkja og
styðja afa og alla þá er henni unnu.
Amma naut frábærrar umönnunar
starfsfólks 4. hæðar Sólvangs sem
vert er að þakka af alhug.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Sigrún, Katrín Gerður og
Valgerður Júlíusdætur.
Þuríður Krisijáns-
dóttir - Kveðjuorð
BMXTeam 16" og Highlander 16" fjallahjól
frá V-Þýskalandi.
Frá 5 ára, kr. 13.400, stgr. 12.730.
Giant 2B Ijallahjól, frábær hjól frá heimsþekktum
framleiðanda. Shimano og Suntour aukahlutir.
Giant Stonebraker, 18 gíra, kr. 29.900, stgr. 28.409.
Giant Coldrock, 21 girs, kr. 49.200, stgr. 42.940.
BMX Team 20" v-þýsk gæðahjól
i mörgum gerðum og litum.
Verð frá kr. 13.300, stgr. 12.634. Með brettum,
bögglabera og Ijósum kr. 16.790, stgr. 19.912.
Gitane Safari 26” vönduð frönsk fjallahjól,
18 gira, kr. 26.900, stgr. 28.989.
fíreditkort og greiðslusamningar, sendum í póstkröfu
Varahlutir og viðgerðir, vandið valið og verslið i Markinu.
Highlander 26* v-þýsk fjallahjól með brettum, Ijósum
og bögglabera. Án gira, kr. 20.990, stgr. 19.900.
3 gira, kr. 29.990, stgr. 24.271.
10 gira, kr. 20.990, stgr. 19.900.
18 gira, kr. 28.900, stgr. 27.499.
Highlander fjallahjól frá V-Þýskalandi
20", án gira, kr. 17.900, stgr. 17.000.
20". 3 gira, kt. 21.900, stgr. 20.808.
24", án gira, kr. 18.800, stgr. 17.860.
24", 3 gira, kr. 22.990, stgr. 21.1
Highlander 24’ fjallahjól, 10 gira með brettum, Ijós-
um og bögglabera. Verð frá kr. 19.900, stgr. 18.904.
Highlander 20' - 24* v-þýsk dömu Ijallahjól með
brettum, bögglabera og Ijósum.
20’. án gira, kr. 18.200, stgr. 17.290.
24‘, 3 gira, kr. 23.100, stgr. 21.944.
Simar 35320
68-88-60
Highlander 26' v-þýsk dömu fjallahjól með brettum,
bögglabera og Ijósum.
3 gira, kr. 24.900, stgr. 23.699.
10 gira, kr. 27.900, stgr. 26.909.
18 gira, kr. 30.990, stgr. 29.402.
IIIIIIII11II11IIIII |l)
Ármúla 40
llferslunin
/144RIOD
Itaitrike þrihjól, 3 litir.
Verð 10" kr. 4.400 og 12" kr. 4.600.
Italtrike þríhjól m/skúffu 10"
kr. 4.600. Fjallaþríhjól m/skúffu kr. 4.000.
Vivi BMX og Vnri fjallahjól með hjalpard., 2 litir.
Fri 3 ára, 12'//, verð frá kr. 9.900, stgr. 9.409.
Fró 4 ára, 14", verð frá kr. 11.900, stgr. 10.929.
Vivi Uno barnahjól m/hjálpard., 2 litir.
Frá 3 ára, 12'//, kr. 9.400, stgr. 8.930.
Frá 4 ára, 14", kr. 10.400, stgr. 9.880.
Eurostar v-þýsk bamahjól, 2 litir. Eurostar v-þýsk stúlkuhjól, 2 litir.
Frá 5 ára, 16" og 18", kr. 12.400, stgr. 11.780. Frá 6 ára, 20", kr. 16.300, stgr. 15.488.
Frá 8 ára, 24", kr. 16.900, stgr. 16.054.
Eurostar v-þýsk dömuhjól, 2 litir,
26" og 28". án gira, verð frá kr. 18.900, stgr. 16.094
26" og 28", 3 gira. verð frá kr. 21.700, stgr. 20.615