Morgunblaðið - 18.05.1991, Qupperneq 25
MORGÚNBLAÐÍÐ1 LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1991
25
Eleseus fékk ekki munn-
legt leyfi til að fara á sjó
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu
mig á.einn eða annan hátt á 80 ára afmœli
minu þann 2. maí sl.
Astríd S. Hannesson.
- segir Páll Guðmundsson hjá Siglingamálastofnun
SKIPSTJÓRINN á Eleseusi BA 328, sem færður var til hafnar á
þriðjudag að beiðni Siglingamálastofnunar, fékk aldrei munnlegt
leyfi frá stofnuninni eins og hann hélt fram í samtali við Morgun-
blaðið. Páll Guðmundsson segir stofnunina aldrei gefa munnleg leyfi
og slíkt hafi aldrei komið til greina.
„Þessi ummæli koma mér mjög
á óvart. Níels Adólf fékk aldrei leyfi
frá mér. Við gefum aldrei munnleg
leyfí, en hins vegar er hægt að
senda haffærisskírteinið með tele-
faxi þannig að skip geti komist á
sjó, en það var ekki um neitt slíkt
að ræða í þessu tilfelli," sagði Páll
Guðmundsson, deildarstjóri hjá
Siglingamálastofnun, í samtali við
Morgunblaðið í gær, en hann er nú
staddur í Portúgal.
„Níels bað um skoðun á skipinu
föstudaginn 3. maí til að fá haffær-
isskírteini. Við skoðun, miðvikudag-
inn 8. maí, kom í ljós að mjög
margt var að, þannig að ég sendi
honum lista yfir það sem gera þurfti
og sagði honum að klára það áður
en hann fengi haffæri.
Að kvöldi uppstigningardags, 9.
maí, hringdi hann til mín og sagði
að búið væri að gera við allt sem
við höfðum sett útá hjá honum og
spurði hvort hann mætti þá fara á
sjó. Ég sagði honum að hann fengi
ekkert haffærisskírteini hjá mér
fyrr en búið væri að taka það út
sem að var við skoðunina.
Hann sagðist ætla á sjó, en kæmi
inn aftur á föstudagskvöldið eða
laugardagsmorgun. Ég sagði hon-
um að það yrði þá á hans ábyrgð.
Annað fór okkur ekki á milli. Hann
kom ekki inn á þeim tíma sem hann
tilgreindi, hann hafði ekkert haff-
færi og hafði alls ekki munnlegt
loforð frá mér,“ sagði Páll.
„Þegar hann var á miðunum
þriðjudaginn 14. maí, og sá varð-
skipið á leið til sín til að færa hann
til hafnar, hringdi hann í mig og
spurði hvað hann gæti gert. Ég
sagði honum að hann gæti ekkert
gert annað en fara í land og láta
taka skipið út. Ef það væri rétt að
búið væri að gera við allt sem sett
var útá við skoðunina þá væri fljót-
gert að senda honum haffæriskír-
teini. Hvort hann var búinn að því
veit ég ekki, enda fór ég í frí til
útlanda á miðvikudagsmorgun og
veit því ekki hvemig málið hefur
þróast,“ sagði Páll.
Morgunblaöiö/KGA
Aðstandendur útgáfunnar skoða hér fyrstu heftin í Lífríki sjávar.
Nýtt námsefni um
lífríki sjávarins
Námsgagnastofnun og Haf-
rannsóknastofnun hafa gefið út
fyrstu fjóra bæklingana af nýju
námsefni sem þeir kalla Lífríki
sjávar.
Ný stj órn tek-
ur við í Frama
Krafist niðurfellingar aðflutningsgjalda
SIGFÚS Bjarnason leigubílsstjóri á Hreyfli var kjörinn formaður
Frama, stéttarfélags leigubílsstjóra á aðalfundi félagsins á fimmtu-
dagskvöld. í stjórnarkjöri bar framboðslisti Sigfúsar sigurorð af lista
sem stjórn félagsins bar fram en þrír framboðslistar komu fram.
í stjómarkjöri fékk A-listi fráfar-
andi stjómar 194 atkvæði, B-listi
Róberts Geirssonar 62 atkvæði og
C-listi Sigfúsar Bjarnasonar 245
atkvæði. Fráfarandi formaður, Ing-
ólfur Ingólfsson, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs, en Þórir Guð-
mundsson leiddi A-listann.
„Við vorum fyrst og fremst
óánægðir með árangur fyrri stjóm-
ar. Við viljum vinna öðruvísi að
málunum en þetta fór allt fram í
mestu friðsemd og það eru allir
sáttir,“ sagði Sigfús Bjarnason þeg-
ar Moranblaðið spurði hann um
ástæður framboðs hans.
Hann sagði að þau mál semhelst
lægju fyrir núna væru að fá felld
niður eða lækkuð innflutningsgjöld
af leigubílum, en leigubílstjórar
væru nánast eina stétt atvinnurek-
enda sem þyrfti að greiða lúxus-
tolla af atvinnutækjum. Þá myndi
stjórnin reyna að leysa það vanda-
mál sem oft skapaðist í miðbænum
um helgar þegar öll veitingahús
lokuðu á sama tíma. Sigfús sagði
að reynt yrði að hafa samráð við
lögreglu og veitingahús en lausn
gæti byggst á því að veitingahús
hefðu mismunandi lokunartíma eða
að fleiri bílar yrðu fengnir til að
aka á þessum tíma. Þá sagði Sig-
fús, að stjómin myndi leggja sig
fram við að leysa deilumál sem
hefðu komið upp vegna fólksflutn-
inga greiðabíla.
Þegar Sigfús var spurður, hvort
taxtar leigubíla myndu lækka ef
niðurfelling aðflutningsgjalda og
tolla fengist fram, sagði hann að
kaupverð á leigubílum væri reiknað
inn í gjaldskrárgrunn þeirra, og
eðli málsins samkvæmt myndu
taxtamir því lækka eitthvað.
Ætlunin er að gefa út allt að 40
slíka bæklinga, en þeir eru 4-12
síður hver, og á útgáfunni að vera
lokið árið 1993.
Efni bæklinganna er ætlað efstu
bekkjum grannskóla og getur jafn-
vel hentað í framhaldsskólum. Von-
ast aðstandendur útgáfunnar til að
bæklingarnir mæti brýnni þörf á
aðgengilegu fræðsluefni um sjóinn
og lífríki hans. Það era sérfræðing-
ar Hafrannsóknastofnunar sem
semja efnið en Námsgagnastofnun
annast útgáfuna.
Bæklingamir sem eru komnir út
eru Lúða og Steinbítur, báðir eftir
Gunnar Jónsson, Klóþang eftir Karl
Gunnarsson og Dýrasvif eftir Ólaf
Astþórsson. Myndir í bæklingunum
eru eftir Jón Baldur Hlíðberg.
Námsgagnastofnun undirbýr
einnig útgáfu 15 mínútna mynd-
bands og nemendaheftis um veiðar,
vinnslu og sölu sjávarfangs fyrir
sama aldursstig. Að þessu verkefni
vinnur samstarfsnefnd atvinnurek-
enda í sjávarútvegi með Náms-
gagnastofnun.
Morgunblaðið/KGA
gær.
Nemendur Öskjuhlíðarskóla um boð í HMS York
Herskip í heimsókn
Breska herskipið HMS York er statt í Reykjavík í kurteisisheim-
sókn. I gær var boð haldið í skipinu fyrir nemendur Öskjuhlíðarskóla.
í dag, Iaugardag kl. 14 til 16,
verður skipið almenningi til sýnis í
Sundahöfn, þar sem það liggur í
Sundahöfn.
I fréttatilkynningu, sem send var
út vegna komu skipsins, var sú villa
að skipið yrði til sýnis almenningi
á hvítasunnudag. í fréttatilkynn-
ingu frá Samtökum herstöðvaand-
stæðinga, þar sem komu skipsins
er mótmælt, kemur fram að efnt
verði til mótmæla við herskipið kl.
14 á hvítasunnudag.
NOTAÐAR VINNUVÉLAR
TIL SÖLU
HJÓLASKÓFLUR BELTAGRÖFUR
CAT 980 B ’75 CAT 225B ’88
CAT 966D ’82 CAT 225 ’80
CAT 966D ’82 CAT 215D ’90
CAT 966C ’75 Fiat FE20HD ’88
CAT 950B ’84 Komatsu PW150 ’85
Michican 175 '73 Libherr 920 ’84
JARÐÝTUR TRAKTORSGRÖFUR
CAT D6C ’71 CAT 438/428 ’89 -’87
CAT DC6B '65 CAT 426 '87
CAT D9L ’82 JCB 3DX ’82
Komatsu D65E ’81 Case 580 ’81
HEKLA
LAUGAVEGI 174
SÍMI 695500
Barbour
Hjá okkur fœrðu hinn þœgilega og
smekklega Barbour fatnað sem er
eins ogsniðinn fyrir íslenska veðráttu.
Sendum í póstkröfu.
Sumaropnunartími:
Mánud.-fimmtud. opið til kl. 19.00
Föstud. opið til kl. 20.00
Laugard. og sunnud.
opið frá kl. 10.00-16.00
Hafnarstræti 5, Reykjavík Símar 16760 og 14800