Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991 Halldór Blöndal samgönguráðherra; Framlag' til jarðganga á Vestfjörðum lækki um 100 milljónir kr. Verklokum verði ekki frestað MEÐAL viðnámsaðgerða ríkisstjórnarinnar er ákvörðun um að skera niður framlag til vegamála um 350 milljónir króna á þessu ári. Halldór Blöndal samgönguráðherra segir að þegar sé farið að vinna að tillögum um niðurskurð og hefur hann ákveðið að reyna að ná samningum um greiðslutilhögun vegna jarðgangagerðar á Vesfjörð- um sem lækki framlagið á þessu ári um 100 milljónir króna, án þess þó að það hafi áhrif á verklok framkvæmdanna. Samkvæmt núgildandi vegaáætl- spara 100 milljónir,“ sagði Halldór. un er gert ráð fyrir 350 milljónum í jarðgangagerð á Vestfjörðum á þessu ári. „Það verður byijað á undirbúningi jarðgangagerðar í sumar eða haust. Ég geri mér von- ir um að hægt verði að semja þann- ig um greiðslutilhögun vegna jarð- ganganna að þar verði hægt að * Olafur Rag’n- ar við bál- för Gandhis ÓLAFUR Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalags- ins, verður við bálför Rajivs Gandhis, fyrrum forsætis- ráðherra Indlands, en hún verður gerð í Nýju Delhí í dag. Verður hann þar sem fulltrúi alþjóðlegra þing- mannasamtaka (Parlament- arian Global Action). Ólafur Ragnar kynntist Gandhi vel vegna starfa þeirra beggja í þingmannasamtökun- um en Ólafur var forseti þeirra um skeið og er nú varaforseti. Arið 1987 varð hann fyrstur til að hljóta Indiru Gandhi-verð- launin svokölluðu og tók við þeim úr hendi Rajivs Gandhis. Ari síðar féllu þau í skaut Míkhaíl Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna. Ólafur fór utan í gærmorgun en er væntanleg- ur aftur á sunnudagskvöld. Halldór sagði að auk þessa væri óhjákvæmilegt að skera niður ein- stakar vegaframkvæmdir. Sagði hann að vegna hagstæðari útboða en verkáætlanir gerðu ráð fyrir hefðu þegar sparast 50 milljónir og sparnaður vegna snjómoksturs í vetur hefði verið um 100 milljónir. „Það er verið að gera tillögur um þennan niðurskurð og þær verða síðan sendar þingmönnum kjör- dæmanna til áð þeir geti tekið af- stöðu til þess hvemig þeim verður skipt á milli einstakra framkvæmda og hnikað til fjárhæðum," sagði Halldór. Hann sagði að of snemmt væri að segja um hvort niðurskurð- urinn kæmi niður á lagningu bund- ins slitlags umfram önnur verkefni. Hreiðrað um sig Þegar starfsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafarholti ætluðu að slá golfvöllinn á dögunum sáu þeir að þrastar- hjón höfðu gert sér hreiður á sláttuvélinni. Þeir ákváðu að hrófla ekki við hreiðrinu og notast nú við gamla sláttu- vél. Þrastarungarnir fengu því að skríða úr eggjunum í ró og næði. A stóru myndinni er Kristján Agústsson, vallarstarfsmaður, við sláttuvélina og á innfelldu mynd- inni sjást þrastarungarnir í hreiðrinu. Morgunblaðið/Þorkell Ekki nauðsyn að auka vaxta- mun til að tryggja afkomuna - segir Jón Adolf Guðjónsson bankasljóri Búnaðarbankans BANKASTJÓRI Búnaðarbank- ans segfir að ekki beri nauðsyn til að auka vaxtamun inn- og útlána svo heitið geti tii að tryggja afkomu bankans á þessu ári. Aðstoðarbankastjóri Lands- bankans segir hins vegar að vaxtamunur sé nú of lítill til að afkoma bankans sé viðunandi. Viðskiptaráðherra segir að þær lánastofnanir sem best standi hafi ekki ástæðu til að auka vaxtamun. „Afkoma Búnaðarbankans hefur verið verri en á síðasta ári og það er ljóst að vaxtamunurinn hefur minnkað mjög verulega. Við reikn- um hins vegar með betri afkomu í maí og júní og ég tel ekki að við þurfum að auka vaxtamuninn svo heitið geti heldur getum unað nokk- Lífeyrissjóðirnir: Áætluð húsbréfakaup fyrir átta til níu milljarða á árinu Svigrúmið ekki meira vegna skuldbindinga við Húsnæðis- stofnun, segir formaður Landssambands Lífeyrissjóða FORMAÐUR Landssambands lífeyrissjóða segir að lifeyrissjóðir muni kaupa húsbréf á þessu ári fyrir 8-9 milljarða króna hið minnsta, eða sem svari til 30% af ráðstöfunarfé þeirra á árinu. Meira geti þeir ekki keypt, vegna skuldbindinga við rikissjóð um lánveitingar til Húsnæðis- stofnunar vegna gamla húsnæðiskerfisins, en þangað fari um 40-50% af ráðstöfunarfénu. Hann segir að áhrifaríkasta leiðin til að ná jafn- vægi á húsbréfamarkaði væri úr því sem komið er sú, að einstaklingar fresti þeim húsnæðiskaupum sem geta beðið. Sigurðardóttir félags- Jóhanna málaráðherra gagnrýndi lífeyrissjóð- ina á miðvikudag fyrir að kaupa lítið af húsbréfum og stuðla þannig að miklum afföllum á þeim; þeir hefðu aðeins keypt húsbréf fyrir 2,4 millj- arða á árinu af þeim 27 milljörðum sem þeir hefðu til ráðstöfunar. „Lífeyrissjóðirnir hafa hreinlega ekki svigrúm til frekari húsbréfa- kaupa, þar sem þeir eru bundnir af samningum, sem búið er að gera um lánveitingar til Húsnæðisstofn- unar á þessu ári,“ sagði Þorgeir Eyjólfsson formaður Landssam- bands lífeyrissjóða við Morgunblað- ið. „I annan stað nefnir ráðherrann að lífeyrissjóðirnir hafí keypt hús- bréf fyrir 2,4 milljarða en það eru kaup fyrstu fjögurra mánaða ársins þannig að þegar upp verður staðið mun láta nærri að kaupin verði á bilinu 8-9 milljarðar eða fyrir um 30% af ráðstöfunarfé ársins. Þegar þetta er skoðað, í Ijósi þess að lífeyrissjóðimir hafa verið að lána til Húsnæðisstofnunar 40-50% af ráðstöfunarfé sínu á fyrstu fjórum mánuðum ársins, sést að sjóðirnir hafa á þeim tíma verið að lána inn í húsnæðiskerfið eða kaupa húsbréf fyrir 75-80% af ráðstöfunarfénu, og sumir sjóðir jafnvel fyrir meira,“ sagði Þorgeir. Hann sagði einnig, að þeim til- mælum hefði verið beint til lífeyris- sjóðanna í ársbyrjun, að þeir flýttu kaupum sínum á skuldabréfum Hús- næðisstofnunar innan ársins. Sjálf- sagt hefðu fjölmargir sjóðir orðið við þeim tilmælum. „Málflutningur ráðherrans geng- ur því hreinlega ekki upp. Það er einfaldlega allt of mikið af húsbréf- um á markaðnum, við erum að kaupa allt sem við getum en við fáurn hrein- lega ekki við meira ráðið. Þarna hafa stjórnvöld einfaldlega brugðist í sinni stýringu, með því að halda við gamla húsnæðiskerfinu og hleypa jafnframt húsbréfakerfinu af stað á fullum kraftj. Þegar til viðbót- ar kemur önnur lánsfjárþörf ríkisins þarf enga sérfræðinga til að sjá að það dæmi gengur alls ekki upp. Úr því sem komið er, væri áhrifaríkasta aðferðin til að ná ávöxtunarkröfu húsbréfanna niður sú að þeir ein- staklingar, sem nú eru að huga að fasteignakaupum, fresti þeim ef þau geta beðið. Þannig myndi draga úr framboði húsbréfanna, markaðurinn jafnaði sig og jafnvægi kæmist á framboð og eftirspurn húsbréfa," sagði Þorgeir Eyjólfsson. Fékk saltpéturssýru í auga STARFSMAÐUR á rannsóknarstofu lyfjafræðideildar lyfsala í Há- skóla íslands fékk saltpéturssýru í auga þegar ílát með efninu sprakk vegna leynds galla í gærmorgun. Meiðsli hans voru ekki talin alvar- legs eðlis, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Atburðurinn átti sér stað um klukkan ellefu í rannsóknarstofu á 2. hæð í byggingu íþróttahúss Há- skólans við Suðurgötu og var mað- urinn þá einn á staðnum. Talið er að leyndur galli í ílátinu hafi valdið því að það sprakk með þeim afleið- ingum að sýra skvettist á manninn. Félagar mannsins, sem er 26 ára, komu að, veittu honum fyrstu hjálp og óku á sjúkrahús. Slökkviklið var kvatt til hálftíma eftir atburðinn og fóru slökkviliðs- menn í sérstökum búningum og með útbúnað reykkafara inn á rann- sóknarstofuna, loftræstu hana og hreinsuðu upp sýruna, sem slettst hafði á gólf og innréttingar. Að sögn slökkviliðs voru starfsmenn aldrei í hættu vegna gufu frá sýr- unni en innöndun hennar getur meðal annars skaðað lungu. urn veginn við þann vaxtamun sem nú er,“ sagði Jón Adolf Guðjónsson bankastjóri Búnaðarbankans. Brynjólfur Helgason aðstoðar- bankastjóri Landsbankans sagði að vaxtamunur hefði verið of lítill á þessu ári og hann væri of lítill til að rekstrarafkoma bankans væri viðunandi, þ.e. ofan við núllið. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra sagði á miðvikudag að nokkur hætta væri á að bankarnir ykju vaxtamun til að auka eigin tekjur í kjölfar vaxtahækkana ríkisins. Valur Valsson bankastjóri íslands- banka sagði hins vegar í Morgun- blaðinu í gær, að vaxtamunur í bankakerfinu væri óeðlilega lítill og það yrði að breytast því bankar væru nú reknir með halla. Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra sagði við Morgunblaðið í gær, að það væri æskilegt og nauð- synlegt að bankakerfið hefði aðhald frá innbyrðis samkeppni og hugsan- lega samkeppni lánastofnana frá öðrum löndum. „Það er nú fram- undan að erlendum lánastofnunum verði heimilt að opna hér útibú frá næstu áramótum. Það er reyndar einnig þannig, að innlend fyrirtæki eiga auðveldara að taka lán frá öðrum löndum á eigin ábyrgð en verið hefur. Ég veit líka, að þær lánastofnanir sem standa best, hafa ekki mikla ástæðu til þess að auka sinn vaxtamun. Allt þetta saman vona ég að veiti bönkunum öflugt aðhald, og þannig á það að vera. Þetta á ekki að vera nein sjálfsaf- greiðsla hjá þeim,“ sagði viðskipta- ráðherra. Hann bætti við að þetta væri þáttur í þeirri þrþun sem hefði haf- ist árið 1989, þegar þrír bankar keyptu Úfyegsbankann hf. og mynduðu íslandsbanka. Þá hefði aðhald að kostnaði hafist og sam- keppni komið til skjalanna og á því þyrfti að vera framhald. Þegar við- skiptaráðherra var spurður hvernig ætti að líta á yfirlýsingu banka- stjóra Isiandsbanka um þörf á auknum vaxtamun í því samhengi, sagðist hann ekki vera að halda því fram, að rekstur bankans væri án erfiðleika.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.