Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 9
Breiðhyltingar Almennur hreingerningardagur verður í Breiðholti 1,2 og 3 laugarðaginn 25. maí. Bílamarkaöurinn v/Reykjanesbraut Peugout 405 GR '88, hvítur, 5 g., ek. 52 þ. km., upphituð sæti, o.fl. V. tilboð. (sk. á Cherokee eða Wagoner ’85-’86). AMC Comanche Pisk Up (langur) 4x4 '89, grásans, 41 vél, sjálfsk., ek. 29 þ. km., upp- hækkaður, 33“ dekk, krómfelgur, o.fl. V. til- boð. Toyota Corolla Liftback '88, svartur, 5 dyra, ek. 40 þ. km., sjálfsk., 2 dekkja gangur, o.fl. aukahl. V. 880 þús. Dodge Aries '87, hvítur, sjálfsk., ek. 62 þ. km. V. 750 þús. (sk. á ód.) Nissan Sunny Sedan 1.6. SLX '89, svartur, 5 g., ek. 24 þ. km., vökvast., sportfelgur, o.fl. „Topp eintak".V. 870 þús. Saab 900i ’89, grásans, sjálfsk., ek. 20 þ. km., vökvastýri, rafm. í öllu. V. 1320 þús. Wagoneer LTD ’87, brúnn m/viðarkl., sjálfsk., ek. 42 þ. km., 4I vél, álfelgur, rafm. í öllu, o.fl. V. 2.1 millj. Daihatsu Rocky '87, rauður og grár, 5 g., ek. 41 þ. km., vökvast., dekk á felgum fylgja. V. 980 þús. sans, 5 g., ek. 52 þ. km., vökvast., rafm. rúður, centrall., o.fl. V. 790 þús. TANNRÉTTINGAFÉLAG ÍSLANDS Tilkynning Nú er svo komið i langri togstreitu um flokkun tannréttingameðferð- ar og endurgreiðslur frá Tryggingastofnun, að heilbrigðisyfirvöld hafa viljandi eða óviljandi hrakið alla sérfræðinga í greininni út úr kerfinu. Þetta ástand veldur sjúklingum okkar og fjölskyldum þeirra miklum óþægindum og auknum útgjöldum. Við munum þvi ótrauð berjast áfram gegn ósanngjörnum reglum, sem mismuna þeim, er þurfa tann- réttingameðferð, en þeir unglingar, sem byrja í tannréttingum ár hvert, eru á annað þúsund. Heilbrigðisráðherra gerir sér fulla grein fyrir skyldum almannatrygg- inga, því hann segir í bréfi til Tannlæknafélags íslands dags. 14.5.1991: „Til að firra þá einstaklinga og fjölskyldur fjárhagslegu tjóni, sem þegar hafa byrjað tannréttingar, verður áfram greiddur 50% kostn- aðar við tannréttingar þeirra þangað til þeim tannréttingum er lokið, enda hafi þær sannanlega hafist fyrir 1. febrúar 1991.“ Á sama hátt getur ráðherra leyst þennan vanda til frambúðar. Við hörmum að þessi staða er komin upp og lýsum ábyrgð á hendur - embættismönnum, sem gáfu Alþingi rangar upplýsingar við laga- breytinguna í desember 1989, - heilbrigðisráðherra, sem afþakkaði faglegar ráðleggingar okkar við setningu reglna um flokkun í janúar 1991, og - tryggingayfirtannlækni, sem daginn eftir að samningar voru undir- ritaðir í mars sl. hafði endaskipti á bókuðu samkomulagi um að Tryggingastofnun flokki tannréttingasjúklinga. Árni Þórðarson, Miðstræti, 12 Reykjavík Gísli Vilhjálmsson, Laugavegi 162, Reykjavík Guðrún Ólafsdóttir, Snorrabraut 29, Reykjavík Helgi Einarsson, Faxafeni 11, Reykjavík Ketill Högnason, Snorrabraut 29, Reykjavík Ólafur Björgúlfsson, Miðstræti 12, Reykajvik Ólöf Helga Brekkan, Miðstræti 12, Reykjavík Pétur H. Ólafsson, Domus Medica, Reykjavik Ragnar M. Traustason, Grensásvegi 16, Reykjavik Sæmundur Pálsson, Álfabakka 14, Reykjavík Teitur Jónsson, Glerárgötu 34, Akureyri Þórður Eydal Magnússon, Domus Medica, Reykjavik Lánsfjárþörf- in tvöfaldast Sighvatur Björgvins- son, heilbrigðisráðherra, sagði m.a. í eldhúss- ræðu: „Lánsfjárþörf ríkisins er við viðskilnað fyrrver- andi fjárinálaráðherra orðin 10 milljörðurn meiri en hún var fyrir fjórum árum. Lánsfjár- þörf rikissjóðs i hlutfalli af landsframleiðslu hefur tvöfaldast i valdatíð hans. Þetta er ástæðan fyrir því að ríkisstjórnin komst ekki hjá þvi að gripa til þess úrræðis að viðurkenna það sem orð- ið var í hans eigin vald- atíð. Sé um tilræði við þjóð- arsátt að ræða, þá er til- ræðismaðurinn fyrrver- andi Qármálaráðherra Ólafur Ragnar Grimsson, sem skildi þannig við ráðuneyti sitt ... að standa i háværum deilum við sitt eigið starfsfólk síðustu dagana i ráðu- neytinu um viðskilnað- inn...“ Ríkissjóðshall- inn, lánsfjár- þörfin og skuldin við Seðlabankann Friðrik Sophusson fjármálaráðlierra sagði i sömu umræðu: „Þegar fjárlög voru afgreidd var gert ráð fyrir að rekstrarhalli rikissjóðs, það er útgjöld umfram teigur, yrðu rúmlega 4 milljarðar ki’óna. Nú er ljóst að hallinn stefnir að óbreyttu i 9 milljarða... Samkvæmt fjárlögum var gert ráð fyrir að ríkissjóður þyrfti að taka tæplega 6 milljarða króna að láni innanlands til eigin fjármögnunar. Nú bendir flest til þess að lánsfjárþörf ríkisins verði tvöfalt meiri eða Lánsfjárhungur og vaxtaþróun Staksteinar glugga í dag í eldhúss-ræður Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra og Sighvatar Björgvinssonar heilbrigðis- ráðherra. í máli þeirra kom fram að láns- fjárþörf ríkissjóðs og húsnæðiskerfisins 1991 er að óbreyttu 33-34 milljarðar króna. Fjárlagahallinn og lánsfjárhungur hins opinbera er meginástæða hárra vaxta í landinu. yfir 13 miHjarðar á árinu, ef ekki verður gripið til sérstakra aðgerða. Til viðbótar lánsfjárþörf ríkisins þarf opinbera húsnæðiskerfið á 20 miljjarða Iántöku að halda að óbreyttu. Sam- anlagt má því gera ráð fyrir að lánsfjárþörf hins opmbera sé 33-34 miljj- arðar króna í ár... Þetta hefur leitt til þess að við stjómarskipt- in um sl. mánaðamót var yfirdráttur í Seðlabanka yfir 9 milljarðar-, sem er þrefalt hærri upphæð en á sama tíma árið áður. Slík skuldasöfnun jafn- gildir i raun erlendri lán- töku og hefur nákvæm- lega sömu þensluáhrif í efnaliagskerfinu." „Alþýðu- bandalagið á ekkert veð í Alþýðuflokkn- um“ Sighvatur Björgvins- son heilbrigðisráðherra sagði í ræðu sinni: „Forráðamenn Al- þýðubandalagsins og þá ekki sízt formaður þess hafa farið hamfömm gegn Alþýðuflokknum eftir stjómarskiptin. Þessi hæstvirti fyrrv. ráðherra, sem allir vita að stóð sjálfur í viðræð- um við forystumenn Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar um möguleika á samstarfi þessara flokka eftir kosningar... Var það samehiing jafnaðarmanna sem vakti fyrir þessum fyrr- verandi ráðherra þegar hann fyrir kosningar reyndi að þvælast fyrir fótum iðnaðarráðherra Alþýðuflokksms í álmál- inu, gera lítið úr ráðstöf- unum félagsmálaráð- hcrra Alþýðuflokksins í húsnæðismálum og koma landi'áðastimpli á for- mami Alþýðuflokksins í Evrópumálum... Alþýðubandalagið á ekkert veð í Alþýðu- flokknum. Alþýðuflokk- urinn var ekki stofnaður og er ekki starfræktur til þess að þjóna því sem Alþýðubandalagið vill. Við eigum skyldur við okkar flokk, við okkar stefnu og við okkar fólk..." „Flokkar hins óbreytta ástands“ Heilbrigðisráðherra rakti stefnumið nýrrar ríkisstjórnar og sagði síðan: „Það kemur í hlut ríkisstjórnarinnar að hafa forustu um og tak- ast á um þessi viðfangs- efni framtíðarinnar og vonandi ber hún gæfu til þess að ná samstöðu um, hvemig það verður gert... Hitt bið ég menn að íhuga í ljósi reynslunnar að ef ekki tekst með sam- starfl Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins að ryðja úr vegi gömlum fordómum, að opna fyrir nýjum straumum frelsis og framfara, ef ekki tekst í samstarfi þessara flokka að ryðja nýjar brautir i atvinnumálum, í utanríkisviðskipta- og gjaldeyrismálum, í pen- inga- og lánamálum, með auknu fijálsræði og sam- keppni með hag neytend- anna fyrir augum, hveij- ir eiga þá að vinna það verk. Em það Framsókn- arflokkurinn og Alþýðu- bandalagið, sem báðir em flokkar hins óbreytta ástands Ráðherrann sagði það meginviðfangsefni ríkis- stjómar Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks „að lýsa Islandi og Islending- um veghin til nýrrar ald- ar með því að I júka þeim viðfangsefnum nýsköp- unar í atvinnumálum, efnahagsmálum, ut- amíkisviðskiptamálum og peninga- og lánamál- um, sem samstarf þess- ara tveggja flokka á að geta skilað“. SlMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ KRINGLUNNI FÖSTUDAGUR TIL FJÁR KAFFIVEL Tilvalin fyrir sumarbústaðinn Í DAG Á KOSTNAÐARVERÐI byggtÖbUið I KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.