Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUUAGUR 24. MAÍ 1991 SMAÞJOÐALEIKARNIR I ANDORRA MGUÐMUNDUR Bragason tróð knettinum á glæsilegan hátt í körfu Mónakó í byijun leiksins, eftir skemmtilegt hraðupphlaup. „Þessi sókn, sem allir leikmenn okkar snertu knöttinn, virkaði sem vítamínsprauta á okkur,“ sagði Jón Kr. Gíslason. ■KÝPURMENN voru hræddir um að Islendingar myndu ekki leika á fullu gegn Mónakó, því að ef Mónakó hefði unnið, hefðu Mónak- ómenn komist í undanúrslit, en ekki Kýpurmenn, þar sem þeir gætu náð betri stigahlutfalh Þegar Kýpurmönnum var sagt að Islend- ingar léku alltaf til sigurs, brostu þeir bfeitt. MLEIKUR íslands og Mónakó var leikinn kl. 9.30 í gærmorgun, þannig að leikmenn íslenska liðs- ins þurftu að vakna fyrir allar aldir. ■ VALUR Ingimundarson, lands- liðsmaður í körfuknattleik, mun fara í hnéuppskurð fljótlega eftir Smáþjóðaleikina. „Ég verð að fá mig góðan fyrir næsta keppnistíma- bil,“ sagði Valur. MKEPPNI í kúluvarpi karla var nokkuð skrautleg. Ástæðan? Jú, v* nokkrir keppendur áttu í miklum erfiðleikum með að kasta kúlunni yfir tíu metra markið. MEINN bandarískur leikmaður og tveir Frakkar léku með lands- liði Mónakó. „Bandaríkjamaðurinn væri góður fyrir Grindvíkinga. Hann er góð skytta og hefur næmt auga fyrir samleik," sagði Axel Nikulásson um Bandaríkjamann- inn Billy Joe Williams, sem skor- aði 22 stig. MEGGERT Bogason, kringlu- kastari, glataði keppnisnúmerum sínum, sem hann átti að vera með í sleggjukastskeppninni. Eggert var skráður keppandi númer 172. Katrín Atladóttir, flokkstjóri fijálsíþróttamannanna þurfti að fara og útvega honum ný keppnis- númer. ■ KÝPURSTÚLKAN, sem deil- urnar stóðu um í körfuknattleik kvenna, er lögleg. Kýpurmenn skiluðu inn skilríkjum hennar í gærmorgun fyrir kl. 11. MJÓN Kr. Gíslason, fyrirliði landsliðsins, hefur leikið 98 lands- leiki og mun hann því leika sinn 100. landsleik í úrslitakeppninni í Andorra. ■ Gudmundur Bragason, varafyr- irliði landsliðsins, leikur sinn 50. landsleik í undanúrslitum. MVALUR Ingimundarson hefur leikið flesta landsleiki, eða 114. MLYFTUNNI á hótelinu sem íslensku íþróttamennirnir búa á í Andorra, var stöðvuð í gær vegna biluna. Lyftan tekur 375 kg, en nokkrum sinnum mátti sjá fjóra karlmenn yfir 100 kg, skáskjóta sér út úr lyftunni. MRAGNHEIÐUR Runólfsdóttir missti af gulli í 200 m bringu vegna mistaka hjá þeim manni sem ræsti keppendur. Hann ræsti sundið þeg- ar Ragnheiður var ekki viðbúin — en hún kastaði sér í laugina á eftir hinum keppendunum og með mik- .illi hörku náði hún öðru sæti. MGUNNAR Kjartansson, hagla- byssuskytta, er í fjórða sæti eftir annan keppnisdag. Gunnar hitti 66 leirdúfur af 75 mögulegum og hefur hann náð að hitta 133 dúfur af 150 mögulegum. Theódór hitti 60 dúfur og hefur hann hitt 116 leirdúfur af 150. Nicolaides frá Kýpur hefur náð bestum árangri — hitt 149 dúfur af 150. Axel IMikulásson. - segirAxel Nikulásson Það á enginn leikmaður að hætta á toppnum. Axel hefur leikið vel með landsliðinu, jafnt og með KR, og er hann lykilmaður í báðum liðunum. Það yrði sárt að horfa á eftir Axel,“ sagði Torfi Magnússon, þjálfari landsliðsins um Axel Nikulásson, sem sýndi það enn einu sinni í gær hvað hann leikur stórt hlutverk með landsliðinu. Axel er sífellt að hvetja meðspilara sína og barátta hans og dugnaður eflir landsliðið. „Ég hef lengi verið að hugsa um að hætta og var ákveðinn að gera það eftir Smáþjóðaleikana hér í Andorra. Það verður erfiðara að hætta með hveijum leik. Það er einfaldlega svo gaman að leika körfuknattleik," sagði Axel Niku- lásson, sem hefur leikið 46 lands- leiki fyrir Ísland. „Axel á mikinn kraft eftir,“ sagði Torfi. Valur Ingimundarson átti mjög góðan leik gegn Mónakó í gærmorgun — var frábær á lokasprettinum. Valur fór á kostum gegn Mónakó „Ég var viss um að hann myndi klára dæmið," sagðiTorfi Magnússon, landsliðsþjálfari VALUR Ingimundarson var nær óstöðvandi á lokamínútunum þegaríslenska landsliðið vann Mónakó, 101:91, í gær á Smá- þjóðaleikunum í Andorra. Þar með eru strákarnir komnir í undanúrslit gegn Möltu og ef allt fer á eðlilegan hátt leika þeir til úrslita gegn Lúxemborg eða Kýpurá laugardaginn. Þetta var köflóttur leikur, en ég er ánægður með margt sem strákarnir gerðu,“ sagði Torfí Magnússon, landsliðsþjálfari. „Ég setti Val inná til að klára dærnið, sem hann gerði. Ástæð- an fyrir því hvað ég hef notað Val lítið í undanförnum leikjum, er að hann er meiddur á hné og er hann spraut- aður verkjasprautum fyrir hvern leik.“ „Ég vissi að Valur, sem er mikill keppnismaður, myndi leggja sig allan fram um að ljúka leiknum snöggt," sagði Toifi, sem setti Va! SigmundurÓ. Steinarsson skrifar fráAndorra inná þegar staðan var, 76:72, fyrir ísland. Valur byijaði á því að skora þriggja stiga körfu og þegar staðan var, 85:82, skoraði hann tvær þriggja stiga körfur á stuttum tíma og var maðurinn á bak við að Is- land náði 93:84, en Valur skoraði þrettán stig á lokakafla leiksins. Ég var ekki að svekkja mig yfir því hvað ég fékk að leika lítið með. Ég hef verið meiddur og átti von á því að ég myndi ekki leika mikið með í byijun,“ sagði Valur Ingi- mundarson. „Við lékum oft vel. Þó að Mónakó- menn hefðu náð að minnka muninn ig komast yfir í seinni hálfleik, var ég aldrei hræddur um að við mynd- um tapa fyrir þeim. Það var gaman að sjá hvað Valur var sterkur á lokasprettinum,“ sagði Jón Kr. Gíslason, fyrirliði íslenska landsliðs- ins. „Við höfum tekið stefnuna á að vinna gull hér í Andorra," sagði Jón Kr., sem lék vel eins og Valur, Guðmundur Bragason og Teitur Örlygsson. Jón Kr. Gíslason fyrirliði íslands stjórnaði sínum möpnum eins og her- foringi. Karl fékk brons Karl J. Eiríksson tryggði sér bronsverðlaun í loft- skammbyssuskotfimi. Karl fékk 555 stig, en Mónkómaðurinn Commeau var annar með 556 stig, en, sigurvegarinn Wagner frá Lúxemborg fékk 567 stig. Hann fékk flest stig í annarri umferð, eða 97. Karl J. fékk 96 stig í sjöttu umferð, en aðeins tveir aðrir skotmenn, fyrir utan Karl og sigurvegarann, fengu 96 stig. „Erfiðara aðhætta með hverj- um leik“ Sundmennimir fengu tólf verðlaunapeninga Sundmennirnir héldu sigur- göngu sinni áfram í Andorra í gær, þar sem þeir unnu sér inn tólf verðlaunapeninga, - fimm gull, þijú silfur og fjögur brons. Ragnheiður varð sigurvegari í 100 m. baksundi á nýju íslands- meti, 1:07,94 mín., en Elín Sig- urðardóttir varð þriðja á tímanum 1:11.86 mín. Eðvarð Þór Eðvarðsson varð sigurvegari í 100 m baksundi á nýju Smáþjóðameti 59,49 sek., en Ævar Örn Jónsson varð þriðji á 1:02,28 mín. Ingibjörg Arnardóttir setti Smáþjóðamet í 400 m skriðsundi á 4:36,90 mín. Helga Sigurðardóttir varð sig- urvegari í 50 m skriðsundi á 27,90 sek. en Elín Sigurðardóttir varð fjórða á 29,03 sek. Magnús Már Ólafsson varð annar í 50 m skriðsundi. Hann synti á tímanum 24,48 sek. og Eðvarð Þór varð sjötti á 25,56 sek. Hörður Guðmundsson varð annar í 400 m skriðsundi á 4:32,17 mín. Arnar Freyr Ólafsson varð sjö- undi í 100 m flugsundi á 1:02,40 mín. Arna Þóra Sveinbjörnsdóttir varð önnur í 100 m fiugsundi á 1:08,32 mín. og Bryndís Ólafs- dóttir varð þriðja á 1:08,47 sek. Mikil hitamolla er í sundiaug- inni, sem keppnin fer fram, 27-30 stiga hiti, og líkist sundlaugin gufubaði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.