Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 42
42 PRjESSAN Jón Hjaltalín Magnússon LÉT HSÍ GREIDA SÉR TVÆR MILLJÓNIR í ÞOKNUN FYRIR ÓLAUNAD STARF eigin fegurðar- samkeppni GÓDGERBAR- MALEFNINOTUÐ SEMAGNI FJAROFLUN TIL ALLT ANNARRA HLUTA Sigurður Örn í Hagskiptum Þetta er ekki föndur frá níu til fimnr Sólarferðir fyrr og nú Drukkiö, dancsað, eytt ‘Ög spennt Fullt blað af slúðrí MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991 HANDKNATTLEIKUR / SPANN Atletico býður Sigurði samning með fyrirvara FORSVARSMENN spænska handknattleiksliðsins Atletico Madríd sögð á fundi með Sig- urði Sveinssyni í gær að þeir væru tilbúnir að gera við hann nýjan samning til eins árs, ef þeim tekst ekki að fá örvhentu skyttuna Garalda hjá Granoll- ers, en það skýrist innan tveggja vikna. Garalda er einn eftirsóttasti leikmaður Spánar og hafa mörg félög gert honum tilboð. At- letico hefur að sögn boðið best, um 57 millj. ÍSK fyrir þriggja ára samn- ing, en Teka telur sig engu að síður vera með pálmann í höndunum samkvæmt spænskum fréttum. Pilturinn, sem er aðeins 21s árs, ætlar ekki að taka ákvörðun um framhaldið fyrr en að loknu yfir- standandi keppnistímabili, en Gran- ollers mætir Atletico í Madrid í síðustu umferð um aðra helgi. Samningur Sigurðar við Atletico rennur út 30. júní, en hann er tilbúr inn að vera áfram. BORÐTENNIS SUND Einokun KR-inga íflokka- keppni órofin Keppni í flokkakeppni á Islands- móti karla í borðtennis lauk fyrir nokkru. Er óhætt að segja að keppnin hafi aldrei verið jafnari og skemmtilegri en í ár. Tvö lið, KR og Víkingur, börðust um titilinn, sem KR-ingar höfðu einokað síðustu 15 árin. Bæði liðin unnu jafnmarga leiki í keppninni og voru því jöfn að stig- um. Var þá reiknað hlutfall unninna og tapaðra leikja liðanna í allri keppninni. í ljós kom að KR sigraði 16. árið í röð og er það einsdæmi að lið í keppni sem þessari nái slíkum árangri. í liði KR léku Hjálmtýr Haf- steinsson, Kjartan Briem, Tómas Guðjónsson og Jóhannes Hauksson. Þeir Hjálmtýr, Kjartan og Tómas hafa sem kunnugt er allir orðið Is- landsmeistarar í meistaraflokki karla og gefur það nokkra skýringu á velgengni liðsins í ár sem og und- anfarin ár. Amþór settimet Arnþór Ragnarsson sund- kappi úr Hafnarfirði setti um helgina nýtt glæsilegt Is- landsmet í 400 metra ijórsundi. Arnþór setti metið á móti í Randers í Danmörku þar sem hann dvelur við æfingar. Hann synti 400 metrana á 4 mínútum 48,8 sekúndum en gamla ís- landsmetið, 4 mínútur 50,7 sek- úndur, átti Eðvarð Þór Eðvarðs- son. IÞROTTASKOLAR Pétur kennir körfubolta PÉTUR Guðmundsson mun kenna körfubolta í körfuknattleiksskóla Breiðabliks frá 11.-15. júní. Stelpur og strákar sem fædd eru á árunum 1973 til 1980 mega vera með í skólanum. Allir þátttekendur fá körfuboltaboli og fleira auk veg- legra verðlauna sem verða veitt fyrir frammistöðu í æfingum og í leikjum. Upplýsingar í síma 27053. Handbolta- skóli hjá Fram í golfi ferfram á Hólmsvelli í Leiru, laugardaginn 25. og sunnudaginn 26. maí. Leiknar veröa 36 holur meö og án forgjafar. Glœsileg verölaun - m.a. Maxfii golfsett o.m.fl. Skráning í golfskálanum í Leiru, sími 92-14100. Rcest frá kl. 08.00 Austurbakki hf. Meistarar í 16 ár Sigurvegararnir úr KR með verðlaunagripinn. Frá vinstri Tómas Guðjónsson, Hjálmtýr Hafsteinsson og Kjartan Briem. Ekkert annað félag hef- 'ur skráð nafn sitt á bikarinn. FRAM gengst fyrir fjórum nám- skeiðum fyrir stelpur og stráka í handbolta í sumar. Allir sem fædd- ir eru á árunum 1978-1985 hafa rétt til þátttöku á námskeiðunum sem standa frá 3.-14. júní og 18.-28. júní. Umsjón með skólanum hefur Guðríður Guðjónsdóttir. Inn- ritun er á skrifstofu Fram og í síma 680344 milli klukkan 16 og 18. Samstarfssamningur við Eystrasaltslöndin Eystrasaltslöndin hafa að undanfömu mjög sóst eftir samstarfi á sviði íþrótta- mála við Vestur-Evrójm og ekki síst Evrópu. Fyrir skömmu var gengið frá samstarfssamningi ÍSI við Eystrasaltslöndin og er myndin frá undirritun samn- ingsins. Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ, til vinstri skrifar undir fyrir hönd ÍSÍ en við hlið hans situr Algudas Raslanas. Standandi frá vinstri eru Sigurður Magn- ússon, Edda Jónsdóttir, Hannes Þ. Sigurðsson og Vaidotas Verba.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.