Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 43
Utúm FOLK ■ HOWARD Wilkinson er byrj- aður að styrkja lið Leeds. í gær keypti hann tvíburana Ray og Rod- ney Wallaee frá Southampton imHi fyrir um 160 millj. FráBob ÍSK Og félagið Hennessy greiddi sömu upp- lEnglandi hæð fyrir Tony Dorigo, vamar- mann og enskan landsliðsmann hjá Chelsea. ■ PETER Shilton er líkegasti eftirmaður Cris Nicholl, sem var rekinn frá Southampton í fyrra- dag. Hann viil taka að sér liðið og hefur sagt starfi sínu lausu sem markmannsþjálfari enska lands- liðsins. Shilton lék með Southamp- ton í fimm ár áður en hann fór tii Derby, þar sem hann hefur verið í fjögur ár. ■ SOUTHAMPTON hefur hald- ist vel á framkvæmdastjórum og er Nicholl þriðji stjóri liðsins frá 1955. Hann tók við félaginu 1985 og átti eitt ár eftir af samningnum er honum var sagt upp. ■ LOU Macarier nefndur sem stjóri hjá Celtic í staðinn fyrir Billy McNeill, sem var látinn taka po- kann sinn vegna slakrar uppskeru á tímabilinu. ■ OSSIE Ardiles gerði í gær fyrstu kaupin fyrir Newcastle, þeg- ar félagið greiddi Nottingham For- est tæplega 24 millj. ÍSK fyrir út- herjann Franz Carr. GOLF Opið mót í Leiru 21. opna Dunlop mótið í golfi, elsta opna mótið hjá Golfklúbbi Suðurnesja, verður haldið á Hólm- svelli í Leiru um helgina. Leiknar verða 36 holur með og án forgjaf- ar, en mótið gefur stig til landsliðs. Skráning fer fram í golfskálanum (s. 92-14100), en ræst verður út frá kl. 08 á morgun. Öldungamót hjá Keili Lekmót verður á golfvelli Keilis í Hafnarfirði í dag kl. 14. Opið mót í Grafarholti Opna Lacoste-mótið fer fram í Grafarholti á sunnudaginn og verð- ur keppt um glæsileg verðlaun. Ræst verður út frá kl. 9 en skrán- ing fer fram í Golfskálanum í Graf- arholti i síma 82815. KNATTSPYRNA VormótViðeyjar Vormót Viðeyjar fyrir 6. flokk c og 7. flokk verður haldið á Fram- vellinum á laugardaginn og hefst keppni klukkan 9:30. Sex félögtaka þátt og sendir hvert þeirra tvö lið til keppni. Víkingsmót Víkingur og Pepsi halda halda knattspyrnumót í 7. flokki á Víking- svellinum við Hæðargarð á morgun og hefst keppni kl. 9.10 félög senda tvö lið hvert til keppninnar. SUND Akranes: Fjölmennt unglingamót Um helgina verður haldið eitt fjölmennasta sundmót ársins, unglingamót ÍA/ESSÓ, í Jaðars- bakkalaug á Akranesi. Skráðir keppendur eru um 360 frá 16 félög- um víðs vegar að af landinu. Keppt verður í fjórum aldursflokkum, 10 ára og yngri, 12 ára og yngri, 14 ára og yngri og 17 ára og yngri. Þeir 10, sem fá besta tíma í hverri grein, keppa til úrslita. Mótið hefst klukkan 9 á iaugardag og sunnudag, en úrslit kl. 4. MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991 43 JUDO Bjarni Friðriksson hefur haft mikla yfírburði í júdó á íslandi, en keppir ekki-meira á árinu. íþróttamaður ársins úr leik: Bjami frá keppni út árið vegna meiðsla BJARNI Friðriksson, júdómað- ur verður frá keppni næstu sex mánuði eftir að hafa slitið krossband og innra liðband i hægra hné. Bjarni var fjarri góðu gamni á Evrópumótinu í síðustu viku og á Smáþjóðaleikunum í Andorra og hann missir einnig af Heims- meistarakeppninni í júdó sem fram fer í Barcelona í júlí. „Vissulega eru það vonbrigði að lenda í þessu, ég hagaði undirbún- ingi mínum í vetur með það í huga að vera í sem bestu formi á Evrópu- mótinu og á HM. Það er hins vegar lán í óláni að þetta gerðist ekki seinna og ég á ekki von á því að þessi meiðsli munu breyta néinu hvað varðar þátttöku á Ólympíu- leikunum á næsta ári,“ sagði Bjarni. „Meiðslin þýða það að ég keppi ekki meira á þessu ári. Hugsanlega verð ég orðinn góður fyrir Opna Skandinavíska mótið í lok nóvember en ég vil ekki hætta á neitt.“ Bjarni varð fyrir meiðslum á æfingu. Hann var þá að glíma við Sigurð Bergmann. í glímunni féll Sigurður á Bjarna með þeim afleið- ingum að liðbönd slitnuðu og hann gekkst undir aðgerð á Borgarspítal- anum. „Þetta var óviljaverk og það er ekkert við þessu að gera. Ég ætla mér að nota tímann til að æfa og stefni að því að vera kominn í gott úthald þegar ég get farið að glíma aftur,“ sagði Bjarni en þess má geta að Sigurður tók sæti Bjarna á Smáþjóðaleikunum í And- orra. Bjarni er þegar byrjaður að æfa léttar lyftingar og þá er verið að smíða sérstaka plastspelku sem getur flotið í vatni. Bjarni hyggst nota spelkuna ásamt flotvesti tii þess að geta stundað æfíngar í sundi. Bjarni hefur einu sinni áður lent í hnémeiðslum á fímmtán ára keppnisferli. Árið 1987 slitnaði sama liðbandið en meiðslin eru nokkuð verri nú vegna þess að fremra krossbandið slitnaði líka. Það var Gunnar Þór Jónsson lækn- ir sem framkvæmdi aðgerðina. || FATLAÐIR / NM GOLF Karen reynir fyrir sér í Bandaríkjunum ÍSLANDSMEISTARI kvenna í golfi, tvö sl. ár Karen Sævars- dóttir hyggur á nám í Lamarhá- skólanum íTexas í Banda- ríkjunum næsta haust. Karen mun þá jafnframt leika með golfliði skólans sem er eitt af sterkustu háskólaliðunum í Bandaríkjunum. ÆT Eg hef verið að bæta mig um 2-3 í forgjöf hér heima með því að leika í fjóra mánuði á ári og ég hlýt að standa betur að vígi með því að leika allt árið,“ sagði Karen sem mun verða á hálfum skólastyrk en hún ætlar sér í viðskiptanám. „Ég er búinn að vera spennt fyr- ir þessu allt frá því að Úlfar [Jóns- son] fór út og það var síðan eigin- kona John Gardners sem skrifaði Lamar háskólanum í Texas en hún stundaði nám í skólanum. Til að byija með ætla ég mér að vera í eitt ár og sjá svo til með framhald- ið,“ sagði Karen. Fleiri kylfingar hafa verið að velta fyrir sig skólavist í Banda- ríkjunum næsta haust og má þar nefna Siguijón Arnarsson og Ragn- heiði Sigurðardóttir. Karen Sævarsdóttir Tólf kepp- endur héðan Norðurlandamót fatlaðra í sundi hefst í dag og fer keppnin fram í Stavangri í Noregi. Tólf keppendur taka þátt í mótinu fyrir Islands hönd og er hópurinn skip- aður eftirtöldum; Guðrúnu Ólafsdótt- ur, Báru B. Erlingsdóttur og Sigrúnu H. Hrafnsdóttur úr ÖSP; Rut Sverris- dóttur Óðni, Lilju M. Snorradóttur Sundfélagi Hafnarfjarðar, Kristínu R. Hákonardóttur, Jóni H. Jónssyni, Ól- afí Eiríkssyni, Halldóri Guðbergssyni og Birki R. Gunnarssyni frá ÍFR og þeim Svani Ingvarssyni og Gunnari Þór Gunnarssyni, Suðra. HANDKNATTLEIKUR / HSI Yfirlýsing frá formanni HSÍ Morgunblaðinu hefur bor- ist eftirfarandi yfirlýsing frá Jóni Hjaltalín Magnússyni, formanni HSÍ: „Undirritaður óskar vinsamleg- ast eftir að grein þessi birtist í blaði ykkar vegna mjög níðings- legrar greinar í „Pressunni“ um störf undirritaðs sem formanns HSI undanfarin ár. Grein þessi í „Pressunni" kemur mér ekki á óvart, eftir að blaðamaður sá er undir greininni stendur tjáði mér fyrir nokkrum dögum í kaffistofu ÍSÍ, að hann hefði fengið það verkefni af ritstjórn „Pressunnar" að „finna fram allt neikvætt um formann HSÍ“ og að hann mundi sennilega lítið hafa að segja um endanlegt útlit greinarinnar. Við höfðum þá rætt saman urti mál- efni HSÍ góða stund. Hann sagð- ist því miður ekki geta birt mikið af því sem ég upplýsti hann, senni- lega ekkert, því ekki hafi verið markmið að taka fram það já- kvæða í starfi HSÍ. Á síðastliðnu ári samþykkti sambandsstjórn HSÍ að formaður og gjaldkeri skyldu þiggja þóknun fyrir störf sín í þágu HSÍ eftir umfangi starfsins. Stjórn HSÍ taldi sig ekki hafa efni á áð ráða framkvæmdastjóra í fullt starf á þeim tíma. Því tók formaður að sér mest af þeim störfum, sem framkvæmdastjóri hefði tekið annars að sér. Um síðastliðin ára- mót réð HSÍ framkvæmdastjóra í fullt starf og hefur formaður HSÍ, að sjálfsögðu, ekki þegið þóknun síðan. Á síðasta sambandsstjórnar- fundi HSI var gengið frá greiðsl- um til formanns fyrir störf á þessu starfstímabili samtals að upphæð kr. 1.470.000 + 260.000 í VSK eða samtals kr. 1.730.000 sem verktakagreiðslu, þar af kr. 430.000 í bílastyrk og símakostn- að. Innifalið í þessari greiðslu var einnig vinnuframlag við gerð aug- lýsingasamninga fyrir HSI að upphæð um 50 milljónir króna við nokkur innlend og erlend fyrir- tæki til næstu fimm ára eða fram yfir HM 95. Fyrir alla þá ómældu vinnu fór formaður fram á 0,8% þóknun eða kr. 400.000 auk VSK. Launagreiðslur einkum vegna HM 95 verkefnisins voru því kr. 640.000 auk kr. 160.000 í VSK. Að sjálfsögðu má deila um slíkar greiðslur til forystumanns í íþróttahreyfingunni eða sérsam- bandi sem veltir tugum milijóna króna. Aðalatriðið er að sam- bandsstjórn HSI hafði fyrirfram samþykkt að formaður skyldi þiggja þóknun fyrir beint vinnu- framlag fyrir utan hefðbundna stjórnun HSI. Framundan er ársþing HSÍ. Að áskorun margra áhugaaðila um eflingu handboltans á íslandi og HM 95, þá hefur undirritaður ákveðið að bjóða sig áfram til embættis formanns HSÍ. Það eru síðan fulltrúar á ársþingi HSÍ sem velja sér formann HSI.“ Virðingarfyllst, Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ. KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Tilkeppní Keflavík Um land og þjóð: Stærð: 27.398 ferkilómetrar Ibúar. 3.200.000 (1989) Stjórnarfar Stjórn Kommúnista- flokks frá stríðslokum 1945 ■njngumál: Albanska, nokkrar mállýskur Trúarbrögð: Öll trúarbrögð voru bönnuð til skamms tíma. Áður var Múhameðstrú algengust, nokkuð um rómversk katólska trú í norðurhluta landsins, en grísk katólsk i suðurhlutanum. Atvinnulíf: Um 52% Albana starfa við landbúnað. Önnur aðal atvinnu- greinin er iðnaður sem byggist á stórum framleiðslueiningum. ,í Albaníu JUGOSLAVIA Landsliðið í knatt- spymu keppir i Tírana á sunnudag, og landslið 21 árs og yngri keppir í Elbasan á laugardag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.