Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991 Gömlu símaskrám- ar til endurvinnslu SIMASKRAIN 1991 er komin út og verður afhent á póst- og símstöðvum um land allt á næstu dögum gegn framvísun miða, sem sendir hafa verið til símnotenda. Símnotendum Byggðastofnun: Afskrifa öll lán loðdýra- ræktenda STJÓRN Byggðastofnunar samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær að af- skrifa öll þau lán, sem stofn- unin hefur veitt loðdýra- ræktendum. Samtals eru eftirstöðvar þeirra 81,4 milljónir króna. Formaður stjórnarinnar, Matthías Bjarnason, segir að með þessu sé stofnunin aðeins að viðurkenna staðreyndir. Þetta sé löngu tapað fé og ekki hefði svarað kostnaði að halda innheimtu þessara lána til streitu. Matthías Bjarnason segir, að forsendur þeirrar ákvörðunar stjórnar Byggðastofnunar, að afskrifa lánin, séu þær, að þarna sé um margra ára gömul lán að ræða, sem ekki hafi tek- ist að innheimta, vegna þess að margir lántakendur séu hættir rekstri í greininni og fjárfestingar þeirra orðnar verðlausar. „Við töldum enga ástæðu til að halda þessum lán- um lengur inni í bókhaldi stofn- unarinnar, enda er þetta í raun löngu tapað fé. Það hefði kannski tekist, með ærinni fyr- irhöfn, að innheimta einhvern sáralítinn hluta þessarar upp- hæðar, en við teljum að það myndi ekki svara kostnaði," segir Matthías. Á fundi stjómar Byggða- stofnunar var jafnframt ákveð- ið að afskrifa nokkur lán At- vinnutryggingarsjóðs upp á samtals 88,7 milljónir króna. Matthías Bjarnason segir að þar hafi verið um að ræða lán til fyrirtækja, sem nú hafi verið tekin til gjaldþrotaskipta. gefst nú kostur á að koma með gamlar símaskrár þegar þeir sækja þær nýju og mun Póstur og sími reyna að koma þeim í endurvinnslu í samráði við um- hverfisráðuneytið. Er þetta til- raun og því verður einungis tekið við gömlu skránum á póst- og símstöðvum á höfuðborgar- svæðinu og Suðurnesjum. Þann 30. maí nk. verður síma- númerum hjá nokkrum hópi not- enda í Reykjavík breytt. Þau núm- er sem byrja á stafnum 8 munu eftirleiðis byija á 81 í staðinn en verða að öðru leyti óbreytt. Uppsetning símaskrárinnar er með breyttu sniði til að auðvelda notkun. Á hverri síðu eru nú þrír dálkar í stað fjögurra og einnig hefur letrið í númerunum verið stækkað. Upplag símaskrárinnar er um 157 þúsund eintök og hefur síðuQöldinn aukist um 72 bls. Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson Minkur lagður að velli Tíkin Táta var.eldsnögg að leggja að velli mink sem varð á vegi hennar í Hafnareyjum á Breiðafirði á dögunum. Þangað var farið með Tátu að leita að mink sem þar geta gert mikinn usla í æðar- varpi og lundabyggð. Reykjavík: 10% dýrara á sundstaði BORGARRÁÐ Reykjavíkur hef- ur samþykkt 10% hækkun á gjaldskrá sundstaða I borginni. Hin nýja gjaldskrá tók gildi á miðvikudag. Samkvæmt nýju gjaldskránni hækka gjöld fullorðinna úr 100 kr. í 110 kr. og gjöld barna úr 50 kr. í 55 kr. Tíu miða kort fyrir fullorðna hækkar úr kr. 900 í kr. 1.000, tíu miða kort barna úr 290 kr. í 300 kr. og 30 miða kort fyr- ir fullorðna hækkar úr 2.200 kr. í 2.450 kr. Gjald fyrir aðgang að gufubaði á sundstöðunum hækkar úr 210 kr. í 230 kr., tiu miðar í gufubað úr 1.820 kr. i 2.000 kr. og leiga sundfata úr 150 kr. í 160. Árs- kort fullorðinna hækka úr 13.000 kr. í 14.300 kr., árskort fyrir börn úr 4.800 kr. í 5.200 kr. og fyrir- tækjakort úr 2.200 kr. í 2.450 kr. Námsmenn mótmæla fyrir- hugaðri skerðingu á lánum SAMSTARFSNEFND námsmannahreyfinganna kom saman til fund- ar í gær og ræddi þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að breyta útlána- reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) þannig að draga megi úr viðbótarfjárþörf sjóðsins um 300 m.kr. á þessu ári. Enn liggur ekki fyrir hvernig útlánareglunum verður breytt. I ályktun sem samþykkt var á fundi nefndarinnar er mótmælt harðlega fyrirhug- aðri skerðingu á námslánum á næsta skólaári og lýsir nefndin yfir furðu sinni á því að fyrirhugað sé að skerða námslán um eða yfir 20% á meðan aðrir þegnar landsins vænti aukins kaupmáttar. í ályktun Samstarfsnefndarinnar segir að þessi skerðing muni valda því að hluti námsmanna verði að hverfa frá námi eða hætta við fyrir- hugað nám. Síðan segir: „Það er með öllu óþolandi að námsmenn, margir hveijir með ijölskyldur á framfæri, sem hafa hafið nokkurra ára nám hériendis eða erlendis, skuli búa við slíkt óöryggi sem raun ber vitni; að lífsviðurværi þeirra sé skert um tugi prósenta fyrirvara- laust án þess að þeir hafi möguleika á að bæta sér það upp á nokkurn hátt. Því 'munu margir þurfa að leita á náðir foreldra og ættingja sem margir hveijir eru ekki aflögu- færir og stríða aðgerðir sem þessar því gegn megintilgangi laga um námslán sem er að tryggja jafnrétt- is til náms óháð efnahag. Þann 600 mijljón króna fjárhags- vanda sem LÍN stendur frammi fyrir á þessu ári má að mestu leyti skýra á þrennan hátt. í fyrsta lagi ákvað Alþingi að flytja 200 milljón- ir króna frá LÍN í húsnæðiskerfið við þriðju umræðu fjárlaga fyrir árið 1991 og-áttu þær að skila sér á lánsljáraukalögum þessa árs. í öðru lagi er um að ræða afborgan- ir, vexti og lántökugjöld upp á um 200 milljónir vegna lána sem tekin voru en ekki var gert ráð fyrir í fjárlögum. I þriðja lagi er um að ræða meiri fjölgun námsmanna en gert var ráð fyrir og þykir Sam- starfsnefndinni óeðlilegt að lán séu Morgunblaðið/Sverrir Frá fundi Samstarfsnefndar námsmannahreyfinganna um fyrirhug- aða skerðingu námslána í gær. lækkuð vegna aukins fjölda náms- manna og má benda á að í fjárlög- um segir að útgjaldaauki vegna fjölgunar skuli bættur.“ í lok ályktunarinnar er sagt að fundurinn harmi þá breytingu sem 35 vaxtarræktarmenn stefna lækni fyrir meint ærumeiðandi ummæli: Krefjast 10,5 milljóna króna í bætur auk fangelsisvistar orðið hafi á vinnubrögðum við ráð- herraskipti í menntamálaráðuneyt- inu. Námsmenn hafi fyrst séð þess- ar breytingar í fjölrniðlum og ekki hafi enn verið haldinn fundur í stjórn Lánasjóðsins þótt þijár vikur sé síðan núverandi ríkisstjórn tók við og því ekkert samráð verið haft við_ námsmenn. í Samstarfsnefnd námsmanna- hreyfinganna eiga sæti fulltrúar frá Stúdentaráði Háskóla íslands, Sam- bandi íslenskra námsmanna erlend- is og Bandalagi íslenskra sérskóla- nema. Samtök þessi eiga hver sinn fulltrúa í stjórn LÍN. 35 vaxtarræktar- og kraftlyftingamenn, þeirra á meðal Jón Páll Sigmarsson, hafa stefnt Pétri Péturssyni lækni á Akureyri fyrir bæjarþing Ákureyrar og krefjast þess að hann verði dæmdur til að greiða þeim samtals 10,5 milljón króna miskabætur, auk þess sem hann verði dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar vegna ummæla sem hann lét falla í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins 10. apríl síðast- liðinn um vaxtarrækt og lyfjanotkun og þau ummæli verði dæmd dauð og ómerk. Málið var þingfest í gær en frestað um einn mánuð. í fréttum Ríkisútvarpsins fullyrti Lögmaðurinn segir að sá sem læknirinn að notkun hormónalyfja væri mjög algeng meðal vaxtar- ræktarmanna og kraftiyftinga- manna. Meðal annars sagði hann: „Mér skilst, að þeir sem stunda vaxtarrækt, að það heyri til undan- tekninga, ef að þeir karlmenn séu ekki á sprautum.“ í stefnu lög- manns vaxtarræktarmannanna, Ólafs Sigurgeirssonar, hdl., er kraf- ist ómerkingar þessara ummæla og einnig segir að ýmis önnur um- mæli hafi verið höfð eftir lækninum um vaxtarræktar- og kraftlyftinga- menn og síðan hafi hann ítrekað bendlað íslenska vaxtarræktar- menn við ólögleg hormónalyf. beri það á ákveðinn afmarkaðan hóp íþróttamanna að þeir noti þessi lyf sé í raun að kalla þá dópista. Slíkt sé meiðandi fyrir æru þeirra, sem fyrir verði, og sé málið mun alvarlegra þar sem aðdróttunin hafi komið fram opinberlega. Þá séu eftirtalin ummæli læknisins í Ríkisútvarpinu: „Eistun á þessum ræflumjýma og verða ræfilsleg", og opinber framsetning þessara orða ærumeiðandi fyrir stefnendur. Þá segir að stefnendurnir séu allir vaxtarræktarmenn og framan- greindar aðdróttanir hafi valdið þeim miklum miska og óþægindum, ekki síst þar sem læknir hafi við- haft þær. Áburður um lyfjamisnotk- un og dóp sé litinn alvarlegum aug- um en vart sé neitt meir meiðandi fyrir karimann en fullyrðing um getuleysi eða ófijósemi. Fyrir vaxtarræktarmann sé þetta enn alvarlegri áburður þar sem markmið æfinga hans sé „að full- komna karlmannsímyndina. Vel þjálfaður líkami vaxtarræktar- manns á að þeirra mati að vera imynd^ hreysti, heilbrigði og kyn- orku. í meðförum stefnda er slíkur líkami sönnun um dóp, getuleysi og óheilbrigði. Þeir sem taka stefnda trúanlegan munu hugsa sig tvisvar um áður en þeir t.d. ráði vaxtarræktarmann í vinnu vegna þeirra alvarlegu sjúkdóma er fylgi lyfjamisnotkun þeirra," segir í stefnu Ólafs Sigurgeirssonar. Þá segir lögmaðurinn að stefnendur vilji ekki ofbjóða greiðslugetu lækn- isins og geri því kröfu um 300 þús- und króna bætur á mann. Pétur Pétursson læknir sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að engar sáttatilraunir væru í gangi vegna þessa máls og að hann hygð- ist halda uppi vörnum. Hann kvaðst standa við allar yfirlýsingar sínar. „Það vita allir sem eitthvað leggja eyrun við hvernig þessum málum er háttað og það er ljóst hver hefur hag af því að ljúga í þessu efni.. Það eru þeir sem eru að veija hina ímynduðu karlmennsku sína,“ sagði Pétur Pétursson. Hann sagði að frumkvæði lögmanns vaxtarrækt- armannanna að opinberri umfjöilun um þetta mál hefði mjög auðveldað sér að halda uppi vörnum í málinu þar sem fjöldi fólks hefði hringt í sig með hvatningarorð og upplýs- ingar, sem styrktu enn frekar sann- leiksgildi fullyrðinga sinna. Hann kvaðst telja að stefnan væri tilraun til að þagga niður í sér og gera sér erfitt fyrir þar og kvaðst telja að lögmaðurinn treysti á að erfitt yrði að fá sjúklinga til að bera vitni fyr- ir rétti. Flugleiðir fá þriðju Boeing 757 vélina FLUGLEIÐIR tóku í gær við þriðju Boeing 757 flugvélinni hjá Boeing verksmiðjunum í Seattle. Vélin var strax leigð til breska flugfélagsins Britannia Airways, þar sem hún verður í tvö ár. Að þeim tíma loknum er gert ráð fyrir að vélarinnar verði þörf í flugrekstri Flugleiða. Nýja þotan er sömu gerðar og Boeing 757 þoturnar, sem Flugleið- ir nota í flugi yfir Norður-Atlants- haf. Flugleiðir hafa keypt sjö nýjar farþegaþotur á tveimur árum. Á næsta ári verður innanlandsflug- floti félagsins endurnýjaður. Þá fær félagið fjórar nýjar Fokker 50 skrúfuþotur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.