Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 12
 12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDÁGUR 24. MAÍ 1991 Opið bréf til Framkvæmda- stiórnar Leiklistarráðs Þ.ÞORGRÍMSSON&CO Ármúla 29, Reykjavik, sími 38640 eftir Viðar Eggertsson Eins og ykkur mun e.t.v. kunn- ugt var EGG-leikhúsið stofnað 21. júlí 1981 með sýningunni „Ekki ég ... heldur ...“ eftir Viðar Eggerts- son, sem þá var frumsýnd í Nýlista- safninu og vakti athygli fyrir sér- stöðu og þótti reyna á „þanþol leik- húsformsins". Sýningin var tilraun með samband leikanda og áhorf- anda. Sýningar urðu 32 og stóðu eina nótt. EGG-leikhúsið náði at- hygli víða um heim, þar sem það hefur sýnt sérstaka leikgerð á verk- inu undir nafninu „Not I... but...“. Leikhúsið hefur ekki getað sinnt öllum þeim boðum sem því hefur borist og má helst rekja ástæður þess hve févana það hefur verið til slíkrar kynningar á íslenskri leik- list. Þess má þó geta að 'fyrrnefnd sýning var sýnd alls 280 sinnum. Ónnur sýning leikhússins, „The Turtle Gets There Too (Skjaldbakan kemst þangað líka)“, eftir Árna Ibsen hefur einnig verið sýnd víða um heim. Hafa þessar sýningar EGG-leikhússins vakið athygli á íslenskri leiklist og jafnan fengið lofsamlega dóma fyrir nýstárleika og alvarlegt og tímabært inntak og þótt reyna á „þanþol leikhúsforms- ins_“. í þau tæp tíu ár sem EGG-leik- húsið hefur starfað, hefurþað jafn- ératórían Páll jiostull eftir Mendelssohn Frumflutningur óratóríunnar verður föstudaginn 24. maí kl. 20 í Hallgrímskirkju. Miðasala í Hallgrímskirkju kl. 12 - 18 og við innganginn. Upplýsingar í síma 11416, 11417 og 11418. an vakið athygli fyrir sýningar sín- ar, en þær eru orðnar níu talsins, en eingöngu þijár þeirra hafa hlot- ið ijárstuðning frá hinu opinbera. Ekki verða þessi verk tíunduð hér, en þó ástæða til að staldra aðeins við síðasta verk leikhússins fyrir svið. Það er „Sál mín er hirðfífl í kvöld“ sem var samþætting tveggja einþáttunga, annars vegar eftir belgíska rithöfundinn Ghelderode og hins vegar Árna Ibsen. Þessi sýning var eingöngu leikin hérlend- is, en vakti þó athygli út fyrir land- steinana (enda er þó nokkur fjöldi erlendra leihúsáhugamanna sem fylgist með sýningum leikhússins), því til sönnunar skulu tilfærð orð norska gagnrýnandans Edvard Hoem sem gerði sér ferð á sýningu leikhússins og skrifaði m.a. í blað sitt Dagbladet. „Ein kan ikkje anna enn forundra seg, over det kunstn- eriske niváet. Dersom dette er typ- isk for islandsk gruppeteatret, , er de visst mange andre teaterprosjekt i Norden som berre kan avlysast jo för jo heller. — Eit opplegg basert pá hög professjonell ambisjon og ein ravgalen visjon om kva teatret er og bör vera.“ Þetta litla dæmi verður að nægja úr þeim bunka lofsamlegra umsagna sem leikhús- inu hefur fallið í skaut og er ein- göngu til að sýna að allt fram til síðustu verka sinna hefur leikhúsið þótt framsækið meðal kunnáttu- manna, sem ekki hafa haft neinn hagnað af að hampa því. Á þessu ári verður EGG-leikhús- ið tíu ára og er því elst þeirra at- vinnuleikhópa sem nú starfa og ekki njóta reglulegra ijárveitinga. í tiléfni þessara tímamóta hugðum við sem að EGG-leikhúsinu stönd- um, minnast þeirra með veglegri sýningu á einni af fornsögum okkar Islendinga, „Bandamannasögu“. Virkja þannig bókmenntaarfinn í framsæknu leikhúsi. Enda við hæfi þar sem langflest verkefni Ieikhúss- ins hafa verið frumflutningur ís- lenskra leikverka. Við hófumst þeg- ar handa við undirbúning síðasta sumar. Þá starfrækti leikhúsið leik- smiðju með völdu leikhúslistafólki: Ingridi Jónsdóttur, Baltasar Korm- áki, Stefáni Sturlu Siguijónssyni og Kristjáni Franklín Magnús lei- kurum, Guðna Franssyni tónskáldi, Viðari Eggertssyni leikstjóra, Sveini Einarssyni handritshöfundi, Sigrúnu Guðmundsdóttur búninga- hönnuði og Birni Jónssyni leik- myndahönnuði. Þessir listamenn störfuðu meira og minna saman í einn mánuð 6-8 tíma á dag. í leik- smiðju þessari var grunnur lagður að nýstárlegri sýningu á „Banda- mannasögu“. Áhugi ýmissa kvikn- aði þegar á sýningunni, þar sem um forvitnilegt verkefni var að ræða. Tvö boð bárust erlendis frá þegar á leiksmiðjutímanum og fleiri voru í farvatninu. Eins og nærri má geta þóttumst við vera vel undir- búin til að sækja um styrk af íjár- veitingu þessa árs, til að hrinda sýningunni af stað og myndi þá Borgar Garðarsson leikari bætast í hópinn. Einnig var sótt um styrk til að sviðsetja nýstárlegan einleik „Strategie eines Schweines" til sýn- ingar í upphafi 11. starfsárs leik- hússins og þannig tengjast því sem leikhúsið hefur verið þekktast fyrir, þ.e. óvenjulega einleiki. Vert er að taka fram áður en lengra er haldið, að vegna Ijárhags- stöðu hefur leikhúsið einbeitt sér að fámennum sýningum sem kostað hafa lítinn umbúnað. Fremur látið reyna á þanþol þeirra aðstæðna sem það hefur búið við. Enda hefur það engan skuldahala nema við lista- mennina sem hafa þegið lítil sem engin laun. Við sem stöndum að leikhúsinu töldum ekki rétt að sækja um af fjárveitingu til atvinnuleikhópa til að greiða þær launaskuldir, enda álitið að henni væri ætlað að hrinda af stað sýningum atvinnuleikhópa. Hver leikhópur er sjálfstæður og í sjálfsvald sett hvort hann ræðst í verkefni eða ekki, hvort sem er með tvær hendur tómar eða létta pyngju frá menntamálaráðuneytinu. Enda sér hver maður í hendi sér hvernig ástandið yrði, ef allir atvinnuleik- hópar réðust í þær sýningar sem hugur þeirra stendur til og með þeim tilkostnaði sem þeir vildu leggja í sýningarnar og gætu síðan sent bakreikningana til mennta- málaráðuneytisins. Sú stefna virðist þó ætla að verða ofaná ef litið er til hvernig fjárveitingu þessa árs Viðar Eggertsson „Hver er ástæða þess að ekki er rúm fyrir EGG-leikhúsið í björt- ustu framtíðardraum- um um aukna fjárveit- ingu til atvinnuleik- hópa?“ og þess síðasta til atvinnuleikhópa hefur verið varið. Mánudaginn 22. apríl sl. var boð- ið til fundar með fulltrúum þeirra atvinnuleikhópa sem sóttu um ijár- stuðning á þessu ári og blaðamönn- um. Þar gerði Kolbrún Halldórs- dóttir formaður framkvæmda- stjórnar Leiklistarráðs grein fyrir fjárveitingum til atvinnuleikhópa. Tillaga framkvæmdastjórnar í um- boði menntamálaráðueytisins var, að þrír leikhópar fengju styrki að þessu sinni, m.a. til að rétta af ijár- hagsstöðu þeirra. EGG-Ieikhúsið er ekki í þessum hópi og lítið við því að segja, þar sem það getur tæpast verið áskrifandi að fjárveitingu og eflaust brýnni verkefni sem lágu fyrir frá þessum þremur hópum en EGG-leikhúsinu. Þá kom fram í máli Kolbrúnar að framkvæmda- SmáMál ERU HIN BESTU MÁL Taktu þau fyrir um helgina - með fjölskyldunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.