Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 27
Stefnumótun í ferðamálum:
Oflug* móttökuskrifstofa o g auk-
ið beint flug brýnustu verkefnin
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sigtryggur Jónsson.
MEGINFORSENDA þess að
ferðaþjónusta eflist á Akureyri
er að komið verði á fót öflugri
móttökuskrifstofu sem milliliða-
laust aðstoðaði ferðamenn m.a.
við skipulagninu ferða og ráð-
stefnuhalds. Þá er mikilvægt að
efla upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn og auka beint flug til
Akureyrar frá útlöndum. Nauð-
synlegt er að sameina hagsmuna-
aðila í ferðaþjónustu. Þetta kem-
ur m.a. fram í nýrri skýrslu um
stefnumótun í ferðamálum, sem
vinnuhópur um ferðamál hefur
skilað atvinnumálanefnd Akur-
eyrar, en efni hennar var kynnt
á fundi í gær. Hópinn skipuðu Jón
Þór Gunnarsson, Sigríður Stef-
ánsdóttir og Jakob Björnsson, en
Þorleifur Þór Jónsson ferðamála-
fulltrúi starfaði með hópnum.
í skýrslunni kemur fram að áætl-
áð hefur hefur verið að ferðamenn
eyði um tveimur milljörðum á ári
og fari veltutölur vaxandi. Áætlað
er að ársverk í ferðaþjónustu séu
um 1.500 og sé rétt að málum stað-
Skjót viðbrögð viðstaddra og
góð aðhlymiing skiptu sköpum
ið megi auka þau meira en um þau
200 ársverk sem áætlað er að þeim
fjölgi á næstu 10 árum.
Þeir þættir sem byggja þarf upp
eru m.a. að auka mikilvægi bæjarins
sem þjónustumiðstöðvar fyrir Norð-
urland, það megi gera með því að
leggja áhersiu á menningu, auka
verslun og þjónustu í bænum, m.a.
með því að hafa verslanir opnar á
laugardögum. Á veturna verði að
leggja áherslu á ímynd bæjarins sem
vetraríþróttamiðstöðvar, en að vori
og hausti verði reynt að ná til bæjar-
ins fundum og ráðstefnum auk svo-
kallaðra hvataferða.
Hvað varðar framkvæmdir á sviði
ferðamála er lagt til að hagsmunaað-
ilar í ferðaþjónustu sameini krafta
sína m.a. með rekstri kynningar- og
upplýsingaskrifstofu. Þá sé nauð-
synlegt að þrýsta á ríkisvaldið að
ljúka uppbyggingu Akureyrarflug-
vallar sem millilandaflugvallar innan
tveggja ára. Einnig að tjaldstæði-
verði komið í betra horf þannig að
rými verði fyrir 350 tjöid þar og
aðstaðan verði bætt auk þess sem
afar mikilvægt sé að Sundlaug Ak-
ureyrar verði endurbætt og strax
verði hafist handa við gerð barna-
laugar á svæðinu.
Fram kom á fundinum að ekki
skorti hugmyndir, en þeim þyrfti að
koma í framkvæmd. Hópurinn taldi
hlutverk bæjarins einkum eiga að
felast í stefnumarkandi verkefnum
og þátttöku í starfsemi er lýtur að
ferðaþjónustu í heild, m.a. í kynn-
ingu og sem aðili að upplýsingamið-
stöð, en hvað beinar framkvæmdir
varðar er að bænum snúa er gerð
barnaaðstöðu við sundlaugina og
stækkun tjaldstæðis.
- segir Sigtryggur Jónsson sem bjargað var úr Sundlaug Akureyrar
SIGTRYGGUR Jónsson telur að þrennt hafi orðið til þess að giftusani-
lega tókst að bjarga lífi hans eftir að hann rotaðist og féll til botns
í Sundlaug Akureyrar á laugardaginn; skjót viðbrögð viðstaddra, góð
aðhlynning á sjúkrahúsi, auk þess sem líkamlegt ástand hans sjálfs
hafi verið gott.
Sigtryggur, sem er Reykvíkingur,
var á ferðalagi á Akureyri um hvíta-
sunnuna og sagðist hafa brugðið sér
í sund á laugardaginn, en hann syndi
að jafnaði mikið auk þess að stunda
líkamsrækt. Hann sagði að atvikið
hefði orðið með þeim hætti að hann
hefði í fyrstu farið í heita pottinn
til að hita sig upp fyrir sundið, en
síðan væri vani hans að fara ofan í
laugina þar sem grynnri endi hennar
er.
„Ég fer þannig ofan í, að ég held
í laugarbarminn, stekk út í, fóta
mig, sný mér við og spymi frá. Það
sem þarna gerist er að ég áttaði
mig ekki á því að grynnri endi laug-
arinnar snýr öfugt við það sem vani
er til í flestum sundlaugum, þ.e.
dýpið er þeim megin sem snýr að
búningsklefanum. Ég næ því ekki
að botna er ég stekk út í og þegar
það gerist rek ég höfuðið í laugar-
brúnina og rotast,“ sagði Sigtrygg-
ur, en hann sagðist aldrei áður hafá
komið í sundlaugina á Akureyri.
Sigtryggur taldi að þijú atriði
hefðu einkum orðið til þess að svo
giftusamlega tókst að bjarga honum,
en hann lá meðvitundarlaus á botni
laugarinnar um stund. „Það sem ég
BRYNDÍS Pálsdóttir fiðluleikari
og Sólveig Anna Jónsdóttir
píanóleikari halda tvenna tón-
leika á Norðurlandi um helgina.
Hinir fyrri verða haldnir á Akur-
eyri á morgun, laugardag, á sal
Tónlistarskólans á Akureyri og
hefjast þeir kl. 17, en hinir síðari
verða á Sauðárkróki á sunnudag. Á
tel að skipt hafi sköpum eru skjót
og hárrétt viðbrögð Jóhanns Jóns-
sonar sem gestur var í sundlauginni
er þetta átti sér stað og Þorsteins
Þorsteinssonar sundlaugarvarðar,
góð viðbrögð og aðhlynning á gjör-
gæsludeild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri og í þriðja lagi er ég í
góðu líkamlegu formi,“ sagði Sig-
tryggur, en hann vildi að lokum
koma á framfæri þökkum til Jó-
hanns, Þorsteins og starfsfólks gjör-
gæsludeildar FSA.
efnisskránni eru verk eftir Bach,
Beethoven, Prokofiev, Áma Bjöms-
son og fleiri.
Bryndís hefur síðustu tvö ár ver-
ið fastráðinn fiðluleikari hjá Sin-
fóníuhljómsveit íslands og kénnari
við Tónlistarskólann í Reykjavík,
en Sólveig Anna starfar sem píanó-
kennari og píanóleikari á höfuð-
borgarsvæðinu.
Tvennir tónleikar
e. nortæna binglO um umferðarlækningar
7.-9. ágúst 1991 - Hútel KEA, Akureyri
Sjötta norræna þingið um umferðarlækningar verður
haldið á Akureyri dagana 7.-9. ágúst 1991.
Efni: Umferðarslys á landi, á sjó og í lofti og björgun-
araðgerðir, sem taka.til þessara tegunda slysa.
Þingið er ætlað heilbrigðisstarfsfólki, skipuleggjendum
umferðar, flugmála- og siglingafélögum, áhugamanna-
félögum, björgunarsveitum, sjúkraflutningamönnum,
faraldsfræðingum, vísindamönnum og öllum, sem
áhuga hafa á umferðarmálum.
Vinsamlegast athugið að senda staðfestingu um þátt-
töku eigi síðar en 1. júní til:
Ferðaskrifstofunnar Nonna h/f, Brekkugötu 3, pósth.
926, 602 Akureyri (sími 96-27922, fax 96-26649).
Nánari upplýsingar eru veittar hjá undirrituðum.
HÉRAÐSLÆKNIRINN
Á NORÐURLANDI EYSTRA
Ólafur Hergill Oddsson,
héraðslæknir.
Sími 96-24052.
KENNSLA
Vélritunarnámskeið
Notið sumarið og lærið vélritun.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
FÉLAGSLÍF
í
Hreinsunardagur í Hamragili
verður nk. laugardag 25. maí.
Mæting eftir hádegi og takið
pylsurnar með þvi við grillum
seinni partinn.
Félagar fjölmennið, því nú
hreinsum við allt svæðið léttir i
lund.
Stjórr|in.
FERÐAFELAG
# ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3S 11798 195?
Göngudagur
Ferðafélagsins
sunnud. 26. maíkl. 13.00
Nú ættu allir, ungir sem
aldnir, að koma í göngu-
ferð. Trjásýnisreiturinn í
Vífilsstaðahlíð skoðaður.
Nú er komið að 13. göngudegi
Ferðafélagsins. Gengið verður
um fallega skógarstíga i Vffils-
staðahlíðini (Heiðmörk) og áð i
trjásýnisreitnum (opnaður
1990). Farin verður um 2 klst.
auðveld ganga um hlíðina, sér-
staklega hentug fyrir fjölskyld-
ur með börn. Að lokinni göngu
og skoðun á trjásýnireitnum
verður pylsugrill (hafiþ pylsur
með). Sungið við harmóniku- og
gítarundirleik. Appelsínusafi og
góðgæti í boði FÍ.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, kl. 13.00.
Hægt að taka rúturnar á leiðinni
t.d. á Kópavogshálsi, í Garðabæ
og við kirkjug. Hafnarfirði. Verð
500,- kr., frítt fyrri börn 15. ára
og yngri með foreldrum sínum.
Hægt að koma á eigin bílum
að trjásýnisreitnum, sem er í
miðri Vífilsstaðahliö. Ekiö um
Vífilsstaði eöa Flóttaveginn úr
Hafnarfirði. Leitið uppl. á skrifst.
Búrfellsgjá - Vífils-
staðahlíð kl. 10.30
Þeir, sem vilja lengri göngu, geta
mætt kl. 10.30 við BSÍ, austan-
megin. Gengið um gjána frá
Hjallasniði, þar sem vegurinn
beygir fyrir Vifilsstaöahlíöina.
Þar er einnig hægt að mæta á
eigin bíium.
Allir með Ferðafélaginu á
göngudaginn. Kynnist góðum
félagsskap og skemmtilegu úti-
vistarsvæði. Á göngudeginum
getið þið skráð ykkur í Ferðafé-
lagið. Ath. ferðir félagsins eru
öllum opnar, jafnt félögum sem
öðrum. Nánari uppl. á skrifst.,
Öldugötu 3, opið kl. 9.00-17.00
alla virka daga.
Á laugardaginn 25. maí verðum
við á islandsdeginum i upplýs-
ingamiðstöð Ferðamála. Banka-
stræti 2, kl. 10.00-18.00. Munið
ókeypis skoðunarferðir þaðan
um Reykjavíkkl. 14.00 og 16.00.
Feröafélag íslands.
ÚTIVIST
GRÓFIHH11 • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARI14606
Kvöldganga
Þar eð margir misstu af kvöld-
göngunni i fyrrakvöld vegna
slæmrar veðurspár, verður
gangan endurtekin í kvöld,
föstudagskvöld 24. mai kl.
20.00. Gengið verður frá Stef-
ánsvörðu eftir hluta gömlu þjóð-
leiðarinnar suður með sjó og
siðan niður i Nausthólsvík og
austur með ströndinni að
Hrafnagjá. Forn skjólgarður,
krossgarður og rúnaristur skoð-
aöar í leiðinni. Farið í leiki vestan
við Klukku undir dynjandi harm-
ónikuleik. Við göngum í hvaða
veðri sem er!
Básar - Goðaland
2 dagar, 25.-26. maí
I tilefni þess að nú er farið að
vora i Básum og trén tekinn að
laufgast, býður Útivist upp á
tveggja daga ferð á þennan vin-
sæla stað á sérstaklega hag-
stæöu verði. 3.400 fyrir félags-
menn og 3.800 fyrir utanfélags-
menn. Að venju verða skipulagö-
ar gönguferðir um Goðaland og
Þórsmörk þar sem allir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Brottför á laugardags-
morgun kl. 08.00. Komið heim á
sunnudag um kl. 19.00. Miða
veröur að panta á skrifstofu Úti-
vistar í síðasta lagi fyrir lokun á
föstudag, 24. mai.
Esja
Sunnudagur 26/5 kl. 13.00.
Nú er aftur kominn tími til þess
að ganga á fjöll! Boðlð verður
upp á tvær mismunandi erfiðar
göngur:
Hópur A: Gengið upp Lág-Esj-
una, sem er ein auðveldasta
uppgönguleiðin en býður jafn-
framt upp á frébært útsýni, og
upp á Kerhólakamb. Farið verð-
ur niður Esjubergið.
Hópur B: Hraöferð, fer upp Esju-
bergið og upp á Kerhólakamb
og niður Gunnlaugsskarð. Áætl-
að er að hóparnir hittist á Ker-
hólakambi. Brottför ki. 13.00 frá
BSÍ-bensínsölu. Stansað and-
spænis Mætti, við Árbæjarsafn
og við Kaupfélagið í Mosfellsbæ.
Sérstakt tilboðsverð kr. 600.
Ath.: Ef þú hefur ekki enn geng-
ið á Esjuna, gefst hér lokkandi
tækifæri til þess að ráða bót á
því og kynnast þessu föngu-
lega fjalli sem við höfum fyrir
augum daglega - og það í góð-
um hóp og i fylgd kunnugra
manna.
Sjáumst i Esjugöngunni!
Útivist.
H ÚTIVIST
GROFIKHi 1 • REYKJAVÍK • SÍMl/SÍMSVARI 14606
Básar- Goðaland
2 dagar, 25.-26. mai.
Nú gefst tækifæri til þess að
eyða helginni á þessum einstaka
stað fyrir gjafverð. Kr. 3.400 fyr-'
ir félagsmenn, 3.800 fyrir utan-
félagsmenn. Brottför á laugar-
dagsmorgun kl. 08. Komiö heim
á sunnudag kl. 19.
Munið Esjugönguna á sunnu-
daginn 26. maí.
Sjáumst. Otivist.
Qútivist
öRÓFIHHI I • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARI14606
Með Útivist um ísland
Laugardagur 25. mai
Ferðakynning í Upplýsingamið-
stöð ferðamála, Bankastræti
2. Kynnt verður ferðaáætlun
Útivistar 1991. Hér gefst gott
tækifæri til þess að kynnast
starfsemi Útivistar og þeim teg-
undum feröa sem félagið þýður’
upp á: Dagsferðum, þar á meðal
raðgöngum og fjallgöngum,
helgarferðum, jöklaferðum, hjól-
reiðaferöum, sumarleyfisferðum
(bakpokaferðum og ferðum sem
eru sambland af rútu- og göngu-
ferðum). Boðið verður upp á
gönguferðir út frá Upplýsinga-
miðstöðinni í fylgd með farar-
stjórum Útivstar á eftirtöldum
tímum: Kl. 13.30, 14.30, 15.30
og 16.30. Ekkert þátttökugjald.
Sjáumst!
Útivist.
FERÐAFÉLmu
ÍSLANDS
ÖLDHGÖTIf 3 - S:11798-1P”33
24.-26. maí: Helgarferð
til Vestmannaeyja
Ferðast með Herjólfi eða flugi
til Eyja. Gist í svefnpokaplássi.
Skoöunarferðir um nýja hraunið.
Gengið á Eldfell. Á siglingu um-
hverfis eyjarnar gefur að lita ið-
andi fuglalíf, stórbrotna hamra-
veggi og hella. Leitið upplýsinga
á skrifstofu Fi.
Laugardaginn 25. maí verður
ferðakynning í Upplýsingamið-
stöð ferðamála, Bankastræti
2. Ókeypis skoðunarferð um
Reykjavík meö leiðsögn kl.
14.00 og 16.00.
Hinn árlegi Göngudagur Ferða-
félagsins er á sunnudaginn 26.
maí. Gengið verður um skóg-
arstiga í Vffilsstaðahlíöinni og
áð í trjásýnireitnum (opnaður
1990). Skipulagning öll miðast
við að fjölskyldan geti öll verið
með á Göngudegi F.í.
Ferðafélag islands.