Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.05.1991, Blaðsíða 44
* FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Kepptá hjólum Morgunblaðið/Þorkell Börn úr 5., 6. og 7. bekk Lækjarskóla í Hafnarfirði Ijúka í dag þriggja daga keppni í reiðhjólaþrautum, sem lögreglan í bænum gengst fyrir í tengslum við árlega skoðun á reiðhjólum barna í bænum. Að sögn Valgarðs Valgarðssonar lögregluvarðstjóra er keppt í níu þrautum og fær sá árgangur sem bestum árangri nær afhentan farandbikar til varðveislu. Jóhannes Nordal formaður álviðræðunefndar: Samkomulag' liggur fyrir um endurskoðunarákvæðin Raforkusamningnr nær frágenginn o g aukin bjartsýni á niðurstöðu í álsamningum „VIÐ LUKUM samningum um endurskoðunarákvæði í raforku- samningnum á fundi í dag, en það mál hefur verið á dagskrá hjá okkur á mörgum fundum, án þess að niðurstaða fengist," sagði Jó- hannes Nordal formaður álvið- ræðunefndarinnar í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi, að afloknum samningafundum með fulltrúum Atlantsál ,í Atlanta í Bandaríkjunum. Hann kvaðst mun bjartsýnni nú en fyrir tveimur vik- um að samningar tækjust um að nýtt álver rísi á Keilisnesi. „Þetta hefur gengið mjög vel í dag ■ og við höfum gengið frá langflestum atriðum í orkusamningnum. Ég held að það sé óhætt að segja að við höf- um náð þeim áfanga hér á þessum fundum í Atlanta, sem við höfðum stefnt að,“ sagði Jóhannes. Hann sagði að eftir væri að ganga frá ákveðnum atriðum er tengjast tímasetningu orkuafhendingar, sem ekki væri hægt að ljúka endanlega fyrr en heildarsamningar lægju fyrir. Raforkuverðið verður tengt heims- markaðsverði á áli, eins og áður hef- ur komið fram. Jóhannes sagði að ákvæðið um það hvenær Landsvirkj- ‘un hæfi orkuafhendingu til Atlant- sáls væri ófrágengið, þar sem það réðist af því hvenær skrifað yrði undir heildarsamninga. „Menn þurfa að athuga byggingaráætlanir frekar, með tilliti til þess hvenær undirskrift fer fram. Það hefur áhrif á ýmsar dagsetningar í samningnum, afslátt- artímabil og fleira,“ sagði Jóhannes. ' Aðspurður sagði Jóhannes að enn væri ófrágengið í hve langan tíma Atlantsál fengi raforku á afsláttar- kjörum. Hann sagði alla samninga og vinnu langt komna. Hann taldi að fundir um umhverfismál í næstu viku og endanlegur frágangur á samningi um hafnar- og lóðarmál myndu enn skila málinu áleiðis. „Við stefnum að því að heildar- myndin liggi fyrir í lok júní,“ sagði Jóhannes, „en það er ekki þar með sagt að búið verði að skrifa undir samninga, því þá standa fyrirtækin þijú frammi fyrir lokaatrennunni, að fjármagna fyrirtækið, semja um það sín á milli og síðan yrðu niðurstöður lagðar fyrir rétt stjórnvöld og stjórn- ir fyrirtækjanna,“ sagði hann. Jóhannes var spurður hvort hann væri orðinn viss um að Atlantsál byggi nýtt álver á Keilisnesi á næst- unni: „Nei, ég er enn ekki viss um það, en ég er verulega bjartsýnni á það heldur en ég var fyrir tveimur vikum. Það sem hefur gerst að und- anfömu hefur allt bent til þess að horfurnar séu betri en virtust um tíma,“ sagði Jóhannes Nordal. ÞRÍR vísindamenn frá Belgíu, Spáni og Grikklandi eru væntan- legir til landsins í október til að gera nákvæmar mælingar á óson- laginu yfir íslandi í samvinnu evr- ópskra geimvísindastofnana og Veðurstofu Islands. Borgþór H. Jónsson veðurfræðing- ur sagði að mælingarnar væru meðal annars gerðar til að ganga úr skugga um gildi kenninga bandarískra vísindamanna um að óson geti eyðst ef frost í háloftunum fer niður fyrir 70 gráður á celsíus. Þessi skilyrði hefðu myndast yfír landinu í janúar síðastliðnum og hefði Veðurstofa Is- lands þá gert mælingar frá jörðu og sent Bandaríkjamönnunum. Mæling- arnar, sem voru ekki mjög nákvæm- ar, leiddu ekki í ljós að ósonlagið hefði þynnst. Borgþór sagði að mælingar vísindamannanna í haust yrðu gerðar með loftbelgjum og tækjabúnaði á jörðu niðri. Hann sagði þetta fyrsta sinn sem mælingar á ósonlagi væru framkvæmdar úr loftbelgjum hér, en það hefði tíðkast síðustu ár við Suð- urskautslandið. Veðurstofan hefur gert mælingar af þessu tagi af jörðu frá 1949. Viðræður við erlenda fjár- festa um kaup á húsbréfum LANDSBRÉF hf. eru í viðræðum við erlend verðbréfafyrirtæki um kaup erlendra fjárfesta á íslenskum húsbréfum. Gunnar Helgi Hálfdan- arson, forstjóri Landsbréfa, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að sala húsbréfa á erlendum verðbréfamarkaði væri raunhæfur mögu- leiki, sérstaklega þegar ávöxtunarkrafan væri jafn há og hún er nú, en það gæti tekið langan tíma að þróa þessi viðskipti. Gunnar Helgi sagði að í kjölfar þess að opnað var fyrir kaup íslend- inga á erlendum verðbréfum á síðasta ári hefðu einhveijir ijármun- ir farið úr landi. Bf mikið yrði um kaup lífeyrissjóða og annan-a íslenskra fjárfesta á verðbréfum er- lendis væri hætta á að vextir hér hækkuðu enn frekar. Því hefðu Landsbréf farið að huga að mögu- leikum þess að finna langtímakaup- endur að íslenskum verðbréfum er- lendis til mótvægis, einkum húsbréf- um. Væri fyrirtækið í viðræðum við verðbréfafyrirtæki á Norðurlöndun- um, Bretlandi og í Bandaríkjunum og taldi Gunnar Helgi að það væri raunhæfur möguleiki að af viðskipt- um gæti orðið, sérstaklega þegar litið væri til þess munar sem væri á vöxtum hér og í Evrópu til dæmis. Taldi hann að möguleikarnir væru einkum hjá svokölluðum stofnana- fjárfestum, það er verðbréfafyrir- tækjum og sjóðum á þeirra vegum. Taldi Gunnar Helgi þessi viðskipti fullkomlega eðlileg í ljósi þeirrar stefnumörkunar stjórnvalda að opna fyrir erlend verðbréfakaup íslend- inga. Gunnar Helgi sagði að talsverðar hindranir væru enn í veginum og því líklegt að það tæki nokkum tíma að koma þessum viðskiptum á. Hann sagði að erlendu íjárfestarnir þekktu ekki til viðskipta í íslenskum krónum og enn síður til lánskjaravísitölunn- ar. Þeir skynjuðu hættuna á að fjár- festa í bréfum tryggðum með lán- skjaravísitölu í ljósi þeirrar breyting- ar sem gerð hefði verið á útreikn- ingsaðferðum hennar. Gunnar sagði að framboð á verðbréfum hér væri það lítið miðað við þarfir erlendra fjárfesta að ekki væri líklegt að þeim stæði til boða að kaupa hér verðbréf nema með mun lægri ávöxtun en almennt bjóðast á íslenska markaðn- um nú. Hugsanleg kaup þeirra gætu því haft áhrif til lækkunar ávöxtun- arkröfu húsbréfa. Talið er að ávöxtunarkrafa hús- bréfa sé nálægt hámarki eftir nýleg- ar hækkanir og kemur fram í sam- tali við Gunnar Helga í Morgunblað- inu í gær að þeir sem kaupa hús- bréf nú gætu fengið verulegan geng- ishagnað þegar vextir falla aftur. Samkvæmt upplýsingum Gunnars Helga gæti maður sem kaupir hús- bréf í dag fyrir eina milljón fengið 88 þúsund króna gengishagnað ef ávöxtunarkrafan lækkaði um 1%, úr 8,8 niður í 7,8%, og 223 þúsund ef ávöxtunarkrafan færi niður í 6,5%. Reikningsdæmið er miðað við að þetta gerðist allt á einum degi. Á sama hátt myndi sá sem kaupir bréf fyrir 10 milljónir kr. hagnast um 880 þúsund á 1% lækkun ávöxt- unarkröfu og um 2,2 milljónir ef krafan færi niður í 6,5%. Svo tekið sé þriðja dæmið þá myndi maður sem kaupir húsbréf fyrir 100 milljónir kr. fá 8,8 milljónir kr. í gengishagn- að af lækkun ávöxtunarkröfu frá því sem nú er og niður í 7,8% og 22,3 milljónir ef krafan færi niður í 6,5%. Nákvæmar mælingar á ósonlagi hér 40 milljarða út- tekt á greiðslu- kort í fyrra Evrópskar geim- vísindastofnanir: ÍSLENDINGAR tóku yfir 40 millj- arða kr. út á greiðslukort í fyrra. Miðað við 1,5% þóknun kaup- manna til kortafyrirtækjanna, námu þær greiðslur um 600 millj- ónum króna. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Neytendablaðs- ins. I blaðinu er fjallað um aukna notkun greiðslukorta hérlendis og áætlað að kostnaður kaupmanna af notkun þeirra sé allt að 5% vöru- verðs í landinu. Þá hafi korthafar greitt nær 300 millj. kr. í útskriftar- og ársgjöld til kortafyrirtækja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.