Morgunblaðið - 24.05.1991, Síða 7

Morgunblaðið - 24.05.1991, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 24. MAI 1991 Fjölgun hrossa þykir stefna beitarmálum í óefni: Hross frekari á beit en sauðfé ÁÆTLAÐ er að hér á landi séu nú að minnsta kosti 74 þúsund hross, sem jafnvel eru talin þurfa meiri beit en sauðfjárstofninn í landinu. Gífurleg fjölgun hrossa á undanförnum árum veldur þeim aðilum sem sinna gróðurverndarmálum áhyggjum, og hefur samstarf verið tekið upp milli Landgræðslu ríkisins, Búnaðarfélags Islands og Landssam- bands hestamannafélaga til að vekja athygli hestamanna á gróðurvernd. Á kynningarfundi þessara aðila um samstarfíð sagði Sveinn Runólfs- son, landgræðslustjóri, að það hefði verið áhyggjuefni gróðurverndarað- ila hve hrossum hefði ijölgað jafnt og þétt á undanförnum árum, og Landgræðslan teldi að í talsvert óefrii stefndi. „Það er veruleg offram- leiðsla í þessari búgrein, og sú of- framleiðsla er geymd á landinu. Þetta getur gengið í sumum sérstaklega grasgefnum sveitum, en annars stað- ar skapar þetta veruleg beitarvanda- mál. Við teljum hins vegar að það sé fjölmargt sem gera megi til að fyrirbyggja að upp komi ofbeitar- vandamál af völdum hrossa, en því miður hefur örlað á verulegum vandamálum í einstaka beitarhólf- um,“ sagði hann. Sveinn sagði að ljóst væri að mið- að við gífurlegan fjölda hrossa í landinu væri markaðurinn eins og er afar takmarkaður fyrir þau bæði innanlands og utan. Ef ekíri næðist samstaða til að draga úr þessari öru fjölgun væri ljóst að stefndi í gífur- legt óefni, og Landgræðslan legði áherslu á að vinna í samkomulagi við hagsmunaaðila og hvetja til bættrar umgengni í landinu. Kári Arnórsson, formaður Lands- sambands hestamannafélaga, sagði að áhersla væri lögð á að koma því til félagsmanna í hestamannafélög- um að þeir skipulegðu beitarmálin, t. d. með því að bera á þau hólf sem notuð væru til hrossabeitar og skipta þeim niður með girðingum. Vafðandi þau vandamál sem fylgdu ferðalög- um á hestum sagði hann að átak hefði verið gert í fyrra í samráði við beitarfélög og upprekstrarfélög um að koma upp fóðursölu víða á hálend- inu, en meiningin væri að halda því áfram í sumar. Ólafur R. Dýrmundsson, landnýt- ingarráðunautur Búnaðarfélags ís- lands, sagði að auðveldasta leiðin til að hægja á beitinni væri að setja á færri folöld. Talið er að 6-10 þúsund folöld séu nú sett á árlega, og sagði Ólafur að sá ásetningur gengi úr hófi fram. Ljóst væri að sums staðar væri gengið of nærri landinu í beit, en hins það væri það útbreiddur misskilningur að það væri allt á veg- um þéttbýlisbúa. „Við viljum benda á það nú á vor- dögum, að þó vel líti út með gróður þá er hægt að skemma landið mikið með því að sleppa of snemma á það. Hægt er að fá hey á hagkvæmu verði, og réttast væri að flýta sér ekki um of að sleppa hrossunum. Ljóst er að víða er hægt að skipu- leggja beit á afmörkuðum svæðu betur en gert er, til dæmis með því að hólfa landið niður og beita á hólf- in til skiptis. Þá er er hægt að nota áburð með góðum árangri og auka þannig mikið sprettuna og beitarþo- lið. Ef hins vegar er beitt miskunnar- laust á landið, þannig að það verði meira og minna snoðið allt sumarið, þá verður gróðurinn vesæll með tímanum og sprettan að sama skapi minnkandi eftir því sem árin líða,“ sagði Ólafur. * Atakgegn áfengi: Bjartmar Guðlaugsson Fj ölskylduskemmtun í Vinabæ SAMTÖKIN Átak gegn áfengi halda fjölskylduskemmtun í Vinabæ, Skipholti 33 (áður Tónabíó), laugardaginn 25. maí kl. 2-5. Bjartmar Guðlaugsson leiðir skemmtunina og tekur lagið með gestum, nemendur úr Fimleikadeild Ármanns sýna listir sínar, sigurveg- arar úr Free-style keppninni ’91 sýna dans, galdrakarl leikur listir sínar og Tóti trúður kemur í heim- sókn. Yngstu gestirnir verða leystir út með gjöfum. Enginn aðgangseyrir verður inn- heimtur og allar veitingar eru ókeypis bæði fyrir börn og full- orðna. Skemmtunin er styrkt af Ábyrgð og Mjólkursamsölunni. ■ m — MHR m kjötborð.Nautakioi oy ^ — luii.ilMMHIiinflB Mikið úrval af S'Wvb'um og ahoiaum ÍNautahambórgararsUL l|5. '%rauðfy|gb jvínarpyísur Ipylsubrauð [stó^pizM H KAUPSTAÐUR ÍMJÓDD kg. 6 stk. 75ð- 75. iGasgrill [GriHkoÍ ODÍð á sunnudögum kl. 11-18 í Miklagarði Wliövangt, Garðabæ og JL- husmu. jyx AIIKLIOIRDUR ALLAR BUÐIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.