Morgunblaðið - 24.05.1991, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991
15
Jóhann Sigurlaugs-
son - Minning
4
Fæddur 8. september 1931
Dáinn 18. maí 1991
I dag, föstudaginn 24. maí, er
ástkær afi okkar til moldar borinn
frá Viðistaðakirkju í Hafnarfirði.
Afi okkar, Jóhann Sigurlaugsson,
var fæddur 8. september 1931 á
ísafirði. Foreldrar hans eru Karitas
Rósinkarsdóttir fædd 17. september
1909 húsmóðir á ísafirði og Sigur-
laugur Þorleifur Sigurlaugsson
fæddur 20. ágúst 1908, dáinn 28.
júlí 1965, sjómaður og verkamaður
á ísafirði. Systkini afa voru: Bald-
ur, fæddur 4. ágúst 1930, dáinn
6. október 1976, bifreiðastjóri á
Isafirði, sambýliskona hans var
Soffía Ingimarsdóttir. Lydia Rósa,
fædd 12. febrúar 1933, gift Óskari
Sölusýning-
á verkum
meistaranna
KLAUSTURHÓLAR og Listhús
efna til sölusýningar á verkum
þekktra listamanna í sýningar-
salnum á Vesturgötu 17.
Meðal annars eru þar sýndar
myndir eftir Jóhannes S. Kjarval,
Ásgrím Jónsson, Svavar Guðnason,
Jón Stefánsson, Erró, Kristínu
Jónsdóttur, Þorvald Skúlason, Jó-
hann Briem, Júlíönu Sveinsdóttur
o.fl. o.fl.
Sýningin verður opnuð laugar-
daginn 25. maí kl. 14 og stendur
til sunnudagsins 9. júní. Opið er
alla daga kl. 14-18.
Jóhannssyni hafnsögumanni á
ísafirði. Trausti, fæddur 19. júlí
1934, dáinn 30. júní 1990, forstöðu-
maður í Sjálfsbjörg kvæntur Helgu
Hermannsdóttur. Erling fæddur 4.
apríl 1936, bifvélameistari á Sel-
tjarnarnesi, kvæntur Halldóru Sig-
urgeirsdóttur. Stúlka fædd 27. jan-
úar 1943, dáinn 27. janúar 1943
og Ingibjörg fædd 9.febrúar 1947,
hjúkrunarfræðingur á ísafirði. Afi
okkar fluttist til Hafnarfjarðar til
að nema bifvélavirkjun og var
meistari í þeirri iðngrein 1956.
Hann starfaði alla tíð við sitt fag,
fyrst í vinnu hjá öðrum en fljótlega
setti hann á stofn sitt eigið bifvéla-
verkstæði og rak það til dánardags.
Árið 1957 kvæntist afi ömmu okkar
Margréti J. Óskarsdóttur fædd 21.
júlí 1931. Foreldrar hennar voru
hjónin Óskar Jónsson framkvæmd-
astjóri í Hafnarfirði og Mikkalína
Sturludóttir. Börn afa og ömmu
eru: Karítas Ingibjörg fædd 8. jan-
úar 1957 gift Reyni Baldurssyni
og eiga þau 3 börn; Eva Lísa fædd
30. maí 1980, Kamilla fædd 4. apríl
1984, Sturla Snær fæddur 20. jan-
úar 1987. Lína Hildur fædd 23.
maí 1960, Þór Sigurlaugur fæddur
20. ágúst 1961 kvæntur Þórhildi
Þórðardóttur og eiga þau 2 dætur,
Þórdís Lilja fædd 27. desember
1987, Amdís Sara fædd 22. mars
1991. Jóhann Óskar fæddur 11.
maí 1973. Áður átti afi okkar dótt-
urina Maríu fædd 3. október 1955.
Missir okkar barnabarnanna er
mikill því afí var í raun og veru
leikfélagi og vinur. Ætíð var það
hann sem fór með okur í langar
gönguferðir á leikvöllinn, fjöruferð-
ir og að skoða skipin. Oftast end-
uðu gönguferðirnar með glaðningu
í munni. Efst í minningunni er
þeirra nána samband afa og Sturlu.
Minnisstætt atvik á afmælisdegi
mömmu var þegar Sturla 4 ára tók
frá sæti fyrir sig og afa. Sturlu
þótti sjálfsagt að hann tæki á móti
afmælisgjöfum mömmu sinnar og
kom með þær til afa og sagði: „Afi,
nú tökum við upp gjafirnar fyrir
mömmu."
Nu við leiðarlok viljum við barna-
börnin þakka fyrir yndislegar
stundir og bjart er yfir minningu
hans í hugum okkar.
Þótt hverfi sérhver heimsins kæti
og hamingjunnar snúist hjól,
þótt harmadaggir hvarm minn væti,
mig huggar þinnar líknar sót,
þótt allt sé mitt á reiki ráð,
þín raskast aldrei fóðumáð.
(Jens Zetlitz - V. Briem)
Eva Lísa, Kamilla, Sturla Snær,
Þórdís Lilja og Arndís Sara.
Minning
Guðmundur M. Kristjáns
son frá Ytri-Hjarðardal
Þriðjudaginn 14. maí sl. lést á
sjúkradeild Hrafnistu í Reykjavík,
frændi minn, Guðmundur Matthías
Kristjánsson frá Ytri-Hjarðardal í
Önundarfírði.
Á Hrafnistu hafði hann dvalið
síðastliðin 13 ár, og notið þar góðr-
ar umönnunar sem hann var þakk-
látur fyrir. Síðustu vikuna var hann
mikið veikur og hvíldin því honum
kærkomin.
Guðmundur var fæddur 26. sept-
ember 1907 á Hesti í Önundar-
firði, sonur hjónanna Helgu Guð-
mundsdóttur og Kristjáns Jóhann-
essonar. Bróðir Guðmundar, Jó-
hannes, fyrrum bóndi í Ytri-Hjarð-
ardal, er nú búsettur á ísafirði.
Hálfbróðir þeiiTa , Steinþór, sonur
Maríu, seinni komu Kristjáns, lést
fyrir mörgum árum af völdu hörm-
ulegs bílslyss á Breiðadalsheiði.
Guðmundur ól mestan sinn aldur í
Hjarðardai og vann þar þau störf
er til féliu við búskap og sjóróðra,
tvo vetur var hann við nám í Flens-
borgarskóla í Hafnarfirði og bjó
hann þar hjá Bjarna föðurbróður
okkar, frá þeim tíma átti hann
góðar minningar.
Sæmundur faðir minn bjó í
Hjarðardal í tvíbýli við Kristján
bróður sinn, svo það má segja að
við Mummi höfum alist upp saman
þó aldursmunur hafi verið nokkur.
Minningar frá þeim fagra stað,
Hjarðardal, voru okkur kærar, þó
vissulega hafi lífsbaráttan oft verið
hörð. Þá geymir hugurinn sólskins-
daga og gleðistundir sem oft voru.
til upprifjunar hjá okkur.
Guðmundur var einkar hæglátur
og hlédrægur maður sem ekki bar
tilfinningar sínar í torg. Hann
verður fyrir þeirri miklu sorg að
missa móður sírth barn að aldri,
og það held ég að hafi markað
djúp spor í hans sálarlíf.
Við Mummi frændi urðum góð-
ir vinir, og fyrir það er ég þakk-
lát og nú þegar hann hefur kvatt
og fer sína hinstu för vestur í
okkar fagra Önundarfjörð bið ég
honum Guðs blessunar, og þakka
samfylgdina.
Jóhannesi frænda mínum sendi
ég innilegar samúðarkveðjur.
Eirný Sæmundsdóttir
BYKO
I B R E I D D
S I M I 4 10 0 0