Morgunblaðið - 24.05.1991, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991
19
Dr. Elisabeth Stengárd, listfræðingur og Sigrún Jónsdóttir, textíl-
listakona.
Kirkjulist í safnaðar-
heimili Dómkirkjunnar
YFIRLITSSÝNING á verkum Sigrúnar Jónsdóttur textíllistakonu,
stendur yfir í safnaðarheimili Dómkirkjunnar við Lækjargötu.
Sýningin er haldin í tilefni Kirkjulistíihátiðar ’9I og er opin frá
kl. 10 til 13 og 16 til 19 daglega. Laugardaginn 25. maí verður
málstofa í safnaðarheimilinu um Kriststúlkanir og myndlist samt-
ímans. Frummælandi verður Dr. Elisabeth Stengárd listfræðingur.
Á sýningu Sigrúnar eru tæplega
30 verk, sem fengin hafa verið að
‘láni úr kirkjum víða um land. .Elsta
verkið er hökull úr Borgarneskirkju
frá árinu 1959. „Ég hef reynt að
haga því þannig til að þeir höklar
sem ég hef unnið beri svipmót af
nánasta umhverfi og nágrenni
kirknanna,“ sagði Sigrún. „Fyrir
mér er myndsköpun og myndbygg-
ing eins og tónlist, það verður að
hitta á rétta tóna annars gengur
verkið ekki upp og sker í eyru. í
verkum mínum reyni ég einnig að
vera þjóðleg. Skálholtshökull, sem
ég vann og er á sýningunni, er til
dæmis eins þjóðlegur og hægt er.
Þar hef ég fléttað inn í munstrið
upphafsstafi allra kaþólskra bisk-
upa í höfðaletri á annarri hliðinni
og á hinni eru upphafsstafir allra
lúterskra biskupa sem hafa þjónað
Skálholti. Höfðaletrið er eitt af því
rammíslenskasta sem við eigum.
Nú svo er það nýjasta sem ég hef
gert en það er biskupsskrúði sem
ég gerði mér til ánægju og til þess
að sýna að íslenskar hendur geta
unnið biskupsskrúða. En það sem
ég hef aðallega fengist við er að
skreyta hökla með útsaumi á hand-
ofið efni og á yfirlitssýningunni eru
valin verk sem fengin hafa verið
að láni og er ég ákaflega þakklát
fyrir hversu vel gekk að fá þá til
sýningar.“
1 '-r1 r\ r'-r^rV'
Morgunblaðið/Þorkell
Fyrsta skóflustunga tekin að kirkju í Grafarvogi
Fyrsta skóflustungan að kirkju fyrir Grafarvogssókn
var tekin á sunnudag á lóð neðan við götuna Fjörg-
yn skammt frá Gullinbrú. Var það Vigfús Þór Árna-
son, sóknarprestur, sem tók skóflustunguna. Kirkjan
sem rísa mun á næstunni er teiknuð af arkitektunum
Finni Björgvinssyni og Hilmari Þór Björnssyni en
tillaga þeirra var hlutskörpust í samkeppni sem
haldin var um kirkjubygginguna.
Verðum að ná jafnvægi milli
tekna ríkisins og útgjalda
segir Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra
FRIÐRIK Sophusson, fjármálaráðherra, sagði á fundi með sjálfstæðis-
mönnum á Hótel Borg á fimmtudag, að til þess að tryggja áframhald-
andi stöðugleika í efnahagslífinu væri afar mikilvægt að vinna að
því, að jafnvægi milli tekna ríkisins og útgjalda náist. Auk Friðriks
töluðu á fundinum þeir Einar Oddur Kristjánsson og Karl Steinar
Guðnason. í máli þeirra kom einnig fram vilji til að viðhalda stöðug-
leika í efnahagslífinu og að haldá verðbólgu í skefjum.
Fundurinn á Hótel Borg var hald- grundvöll fyrir því að stöðugleiki
inn af Málfundafélaginu Öðni og
Landsmálafélaginu Verði og var
fundarefnið framhald þjóðarsáttar.
Friðrik Sophusson, fjármálaráðum
ríkisstjórnarinnar í ríkisíjármálum
og sagði hann meðal annars, að
með þeim væri stjórnin að skapa
héldist í efnahagslífinu. Ef ekki
næðist jafnvægi væri hætta á að
verðbólgan færi af stað á ný. I
þessu sambandi þyrfti að ná því
marki, að útgjöld ríkisins yrðu ekki
áfram meiri en tekjur þess.
Kari Steinar Guðnason, alþingis-
maður Alþýðuflokksins og vara-
formaður Verkamannasambands
íslands, var einnig frummælandi á
fundinum. Hann sagði að verka-
lýðsforystan og fólkið í verkalýðsfé-
lögunum væri tilbúið að gera sitt
ítrasta til að viðhalda stöðugleikan-
um. Hins vegar gætti nú óróleika
vegna væntinga, sem skapaðar
hefðu verið hjá almenningi ’ um
bætt kjör og það væri augljóst, að
sá mikli hagnaður, sem kæmi fram
hjá fyrirtækjunum í landinum, yrði
að skila sér til launafólks.
Þriðji frummælandinn á fundin-
um var Einar Oddur Kristjánsson,
formaður Vinnuveitendasambands
íslands. Hann sagði meðal annars
að vinnuveitendur væru afar
hræddir um að verið væri að of-
keyra efnahagslífið með greiðslu til
launþega vegna batnandi viðskipta-
kjara. Hann lagði mikla áherslu á
að ná þyrfti verðbólgu niður á það
stig, sem væri ríkjandi í ríkjum
OECD og kjarasamningar yrðu að
taka mið af því. Hann talaði um
nauðsyn þess að viðhalda stöðug-
leika í efnahagslífinu og að í þeim
tilgangi væri mikilvægt að draga
úr eyðslu ríkisins.
Vorþing-
Kvennalista
í Skálholti
VORÞING Kvennalistans
verður haldið í Skálholti
um helgina. A þinginu verð-
ur rætt um stöðu samtak-
anna að loknum kosningum
og fjallað um framtíðar-
stefnu þeirra.
Þingið hefst í Skálholti
klukkan 13 á laugardaginn og
verður þá rætt um úrslit kosn-
inganna í vor og stöðu
Kvennalistans í ljósi þeirra.
Þá verður fjallað um starfsemi
samtakanna í framtíðinni.
Meðal ræðumanna verða þær
Anna Ólafsdóttir Björnsson,
alþingismaður, sem fjallar um
Kvennalistann í stjórnarand-
stöðu, Guðrún Halldórsdóttir,
skólastjóri, sem fjallai- um
tengsl Islands við Evrópulönd-
in og Guðrún Agnarsdóttir,
læknir, sem fjallar um sam-
stöðu kvenna.
Síðdegis á laugardag og
fyrri hluta sunnudags verður
fjallað um spurninguna. „Hvar
stöndum við árið 2020?“, en
þinginu verður slitið síðdegis
á sunnudag.
Stúdentakollarnir komnir á höfuð nýstúdenta.
Grindavík:
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Fjölbrautaskóla Suðurnesja slitið
Grindavik.
F J ÖLBR AUT ASKÓL A Suður-
nesja var slitið við hátíðlega at-
höfn í Grindavíkurkirkju sl. laug-
ardag.
Skólanum1 var slitið að þessu
sinni í Grindavík en hann er rekinn
af öllum sveitarfélögunum á Suður-
nesjum. AIls voru 69 nemendur sem
luku burtfararprófi frá skólanum
þar af 32 sem luku stúdentsprófi,
28 af tæknisviði, 7 af 2ja ára braut-
um, 1 af atvinnulífsbraut og 1
skiptinemi.
Ægir Sigurðsson aðstoðarskóla-
meistari rakti það helsta sem ein-
kenndi vorönn í skólanum og Jón
Páll Eyjólfsson formaður NFS rakti
það sem gerst hafði í félagsmálum
nemenda á önninni. Síðan tók
Hjálmar Árnason skólameistari við
og afhenti brautskráðum nemend-
um skírteini sín.
Að venju voru veittar viðurkenn-
ingar fyrir góðan námsárangur.
Hilma Hólm sem lauk stúdentsprófi
á aðeins þremur árum hlaut ís-
lenskubikarinn sem Sparisjóður
Suðurnesja gaf. Þetta var ekki eina
viðurkenningin sem Hilma hlaut því
hún hlaut einnig viðurkenningu fyr-
ir góðan árangur í þýsku, sögu,
ensku, raungreinum og íslensku frá
skólanum þannig að í lokin þurfti
hún hjálp við að halda á þeim fjöl-
mörgu bókum sem hún fékk. Fleiri
viðurkenningar voru veittar og alls
voru það 16 nemendur sem hlutu
viðurkenningu.
Hjálmar Árnason skólameistari
kvaddi síðan nemendur og vitnaði
í Islandsklukku Halldórs Laxness
og líkti nemendum við Jón Hregg-
viðsson er hann var að halda út í
heim og stæðu nemendur í svipuð-
um sporum og hann. Þá sagði
Hjálmar að mikilvægt væri á þess-
um tíma hraðans að missa ekki
sjónar á manngildinu og hlusta á
eigin rödd sem er sönn.
Sigurður Jóhannsson úr hópi
nýstúdenta kvaddi síðan skólann
fyrir hönd nemenda á eftirminnileg-
an hátt og höfðu viðstaddir gaman
af tilburðum hans og orðum.
FÓ