Morgunblaðið - 24.05.1991, Page 25
BHMR;
MORGUNBLÁÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991
25
Vaxtahækkun mótmælt
STJÓRN BHMR telur hækkun
vaxta á húsnæðislánum skerðingu
á lífskjörum þeirra launamanna
sem síst mega við því, að því er
fram kemur í ályktun sem Morg-
unblaðinu hefur borist.
Mótmælt er afturvirkri hækkun á
vöxtum á margra ára gömlum lánum.
Slík aðgerð sé siðlaus og raski mögu-
leikum almennings til að gera skyn-
samlegar áætlanir.
Þá segir að verið sé að láta þá
fjölmarga sem greitt hafi yfii-verð
fyrir íbúðir vegna hagstæðra
áhvílandi lána tvígreiða vaxtaokrið.
Byggingarsjóðirnir standa frammi
fyrir fjármögnunarvanda þar sem
ríkið hafí ekki staðið við skuldbind-
ingar sínar. Sama eigi við um marga
sjóði, t.d. LÍN og Lífeyrissjóð starfs-
manna ríkisins.
ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokk.ar
1. maí1991 Mánaðargreiðslur
Elli / örorkulífeyrir(grunnlífeyrir) 11.819
'h hjónalífeyrir 10.637
Fulltekjutrygging 21.746
Heimilisuppbót 7.392
Sérstök heimilisuppbót 5.084
Barnalífeyrirv/1 barns 7.239
Meðlag v/ 1 barns 7.239
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns 4.536
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna 11.886
Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja barna eða fleiri 21.081
Ekkjubætur / ekkilsbætur 6 mánaða 14.809
Ekkjubætur / ekkilsbætur 12 mánaða 11.104
Fullurekkjulífeyrir 11.819
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa) 14.809
Fæðingarstyrkur 24.053
Vasapeningarvistmanna 7.287
Vasapeningarv/sjúkratrygginga 6.124 Daggreiðslur
Fullirfæðingardagpeningar 1.008,00
Sjúkradagpeningareinstaklings 504,40
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri .. 136,90
Slysadagpeningareinstaklings 638,20
Slysadagpeningarfyrirhvert barn á framfæri ... 136,90
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
23. maí.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur sl. 129,00 68,00 95,76 58,107 5.564.575
Þorskur smár 76,00 76,00 76,00 0,098 7.448
Ýsa sl. 104,00 89,00 95,97 36,722 524.269
Karfi 43,00 36,00 38,62 51,271 1.980.101
Ufsi 6Q,00 46,00 51,47 16,118 829.662
Steinbítur 55,00 50,00 50,00 4,610 230.522
Langa 63,00 50,00 61,12 1,179 72.057
Lúða 260,00 100,00 157,65 0,277 43.670
Skarkoli 45,00 45,00 45,00 0,173 7.785
Keila ■ 39,00 39,00 39,00 0,171 6.669
Síld 20,00 20,00 20,00 0,023 460
Skata 110,00 110,00 110,00 0,392 43.120
Skötuselur 155,00 150,00 150,29 0,260 39.075
Blandaö 18,00 10,00 14,58 0,096 1.400
S.f. bland 80,00 80,00 80,00 0,033 2.640
Undirmál 76,00 20,00 47,73 0,632 30.168
Samtals
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur sl. 120,00 79,00 91,91 42,479 3.904.372
Ýsa (sl.) 102,00 72,00 94,04 36,850 3.465.645
Keila 30,00 30,00 30,00 0,059 1.770
Langa 54,00 25,00 50,79 0,327 16.608
Svartfugl 60,00 60,00 60,00 0,026 1.560
Langlúra 56,00 56,00 56,00 1,108 62.048
Steinbítur 51,00 43,00 48,70 0,627 30.533
Lúða 385,00 200,00 285,48 0,352 100.490
Ufsi 53,00 34,00 49,09 3,362 165.054
Skarkoli 74,00 52,00 66,94 0,997 66.738
Skata 95,00 95,00 95,00 0,189 17.955
Karfi 44,00 36,00 37,90 4,308 163.262
Sólkoli 79,00 79,00 79,00 0,105 8.295
Koli 72,00 46,00 70,55 0,215 13.168
Skötuselur 165,00 155,00 158,37 0,303 47.985
Blandað 50,00 30,00 42,43 0,692 29.360
Undirmál 71,00 71.00 71,00 0,120 8.520
Samtals 87,99 92,119 8.105.363
Selt var úr Þuríði Halldórsdóttur, Katrínu VE og dagróðrabátum.
FISKMARKAÐURtNN ÞORLÁKSHÖFN
Þorskur 97,00 85,00 91,08 5,674 516.816
Ýsa sl. 115,00 85,00 88,29 3,221 284.377
Karfi 56,00 30,00 30,00 0,446 13.380
Ufsi 56,00 52,00 52,00 0,635 53.046
Steinbítur 43,00 43,00 43,00 0,380 16.340
Langa 59,00 53,00 57,25 0,830 47.518
Lúða 210,00 210,00 210,00 0,081 17.510
Skarkoli 30,00 30,00 30,00 0,069 2.650
Sólkoli 70,00 70,00 70,00 0,348 24.360
Keila 30,00 30,00 30,00 0,724 21.720
Skata 79,00 70,81 71,07 0,067 4.762
Skötuselur 410,00 160,00 213,15 1,987 423.525
Blandaö 50,00 10,00 21,25 0,527 5.980
Undirmál 60,00 60,00 60,00 0,002 60
Samtals 94,11 14,991 1.410,921
Skólahljómsveit Mýrdalshrepps.
Morgunblaðið/Reynir Ragnarsson
Leikið á hljóðfæri í einn sólarhring
Vík.
TO'
JNLISTARLÍF í Mýrdal hefur verið ineð miklum blóma í vet-
ur. Tónskólinn verður 10 ára næsta haust en í honum voru 53
nemendur í vetur, á aldrinum 7 ára til fimmtugs. Kennt var á
ýmiss hljóðfæri.
Skólastjóri tónskólans er Kristj-
án Ólafsson og samkennari Krist-
ín Bjömsdóttir. Skólanum var slit-
ið 14. apríl með hljómleikum nem-
endanna og var það hin besta
skemmtun.
Fyrir tveim árum stofnaði
Kristján skólahljómsveit Mýrdals-
hrepps. 1 hljómsveitinni eru nú
30 börn á aldrinum 9-15 ára.
Fyrir skömmu léku nemendurn-
ir stanslaust á hljóðfærin í einn
sólarhring, að vísu ekki öll í einu
þann tíma. Tilgangurinn með
þessum hljómflutningi var að
safna fé til þess að fara á lands-
mót skólalúðrasveita sem verður
24.-26. maí nk. í Stykkishólmi.
Safnaðist til ferðarinnar um
100.000 kr. Skólahljómsveitin
hefur náð ótrúlegum árangri und-
ir leiðsögn og stjórn Kristjáns á
ekki lengri tíma. - R.R.
Kristín Schmidhauser
sýnir í Stöðlakoti
KRISTÍN Schmidhauser Jónsdóttir opnar á morgun laugardaginn
25. maí kl. 15.00 sýningu sem hún nefndir Kniplað úr togi í Gallerí
Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6, Reykjavík. Öll verkin á sýningunni eru
knipluð úr handspunnum togþræði.
Kristín hefur um árabil gert til-
raunir með íslenska ull, þráðagerð
og hönnun og sýnt bæði hérlendis
og erlendis.
Verkin á sýningunni er knipluð
úr togþræði sem hún spann og lit-
aði síðastliðinn vetur. Togið á ís-
lensku ullinni er einstakt efni. Fal-
leg tog líkist helst hör eða jafnvel
silki.
Knipl er gamalt handverk, upp-
runalega komið frá Ítalíu á 15.
öld. Kniplingar voru eftirsóttir af
yfirstéttinni til skreytinga á fatn-
aði bæði karla og kvenna. Kniplið
þróaðist og fékk sín séreinkenni í
hveiju landi fyrir sig og varð á 16.
og 17. öld að háþróuðum listiðnaði.
í Þjóðminjasafni Islands er varð-
veitt talsvert af ullarkniplingum,
knipluðum úr togþræði.
1 dag útfæra margar listakonur
verk sín í knipli á frjálsan hátt en
styðjast við gamlar hefðir og hand-
verk.
Barnaheill:
Málþing um slys á börnum
SAMTÖKIN Barnaheill gangast fyrir málþingi um slys á börnum á
íslandi í menningarmiðstöðinni Gerðubergi í dag, föstudag. Ræddar
verða staðreyndir varðandi slysatíðni barna við leik og störf, í um-
ferðinni og á heimilum og hvernig hægt sé að koma í veg fyrir
þessi slys, en í fréttatilkynningu frá Barnaheill segir að sú stað-
reynd að slysatíðni barna hér á landi sé mjög há miðað við önnur ríki
i Evrópu, hljóti að vekja ugg í brjósti flestra.
Á málþinginu, sem hefst klukkan
13 og er öllum opið, flytja ýmsir
sérfræðingar fyrirlestra og að þeim
loknum fara fram umræður. Auk
þess sem kynnt verður útgáfa vegg-
spjalds, þar sem varað er við helstu
slysagildrum í umhverfi barna en
það má einnig nota sem hæðar-
kvarða fyrir börn. Þá verður sýnt
nýtt myndband um slysagildrur í
umhverfinu.
Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur, 13. mars - 22. maí, dollarar hvert tonn
200-
175“
150-
125"
100-
75-
50-
25"
SVARTOLIA
"71/
70
-\h-\—\ I I I l I—M-
. 15M. 22. .29..5A 12. -19- 26. 3M. 10. J7.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, ásamt listamanninum
Jónda.
Hvolsvöllur:
Forsetinn
heimsæk-
ir sýningu
Jónda
Hvolsvelli.
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, heimsótti sl.
þriðjudag sýningu listamannsins
og bóndans Jónda eða Jóns Krist-
inssonar í Lambey, en hann sýnir
um þessar mundir í Kirkjuhvoli,
dvalarheimili aldraðra á Hvols-
velli.
Jóndi tók á móti forsetanum og
gekk með henni um sýninguna.
Henni leist vel á myndverkin en hún
á sjálf verk eftir listamanninn. Hún
heilsaði einnig upp á íbúa dvalar-
heimilisins.
Sýningin, sem haldin er í tilefni
M-hátíðar á Suðurlandi, er yfirlits-
sýning á 84 verkum Jónda frá
ýmsum tímum. Aðallega er um
landslags- og portrettmyndir að
ræða. Þær eru unnar með bland-
aðri tækni, vatnslitum og tússi, olíu,
akríl og pastel. Nú eru 10 ár liðin
frá því Jóndi hélt síðast svo viða-
mikla sýningu sem hér um ræðir
og er þetta því kærkomið tækifæri
fyrir listunnendur að sjá myndir
Jónda, en margar þeirra eru í einka-
eign. Sýningin mun standa fram í
næstu viku.
........................- S.Ó.K.