Morgunblaðið - 24.05.1991, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991
31
Minning:
Alex Moore
Alex Moore lést 89 ára að aldri á
sjúkrahúsi í Surrey í Englandi 26.
febrúar 1991. Alex var sonur dans-
kennara sem kenndi syni sínum
snemma að meta dansinn. Hann
dansaði fyrst með systur sinni Avis
og hrepptu þau annað sætið í heims-
meistarakeppninni árið 1926. Þau
systkinin stofnuðu svo dansskóla í
Richmond og hjá þeim starfaði Pat
Kilpatric sem Alex kvæntist árið
1947.
Alex gat sér heimsfrægðar sem
„ambassador" dansins því hann
ferðaðist um alla veröld til að kynna
hinn svokallaða enska eða inter-
national stíl í dansi. Hann gaf út
bókina Ballroom Dancing 1936,
sjálfsagt best þekktu bókina sem
ijallar um samkvæmisdansa í ver-
öldinni.
Árið 1933 hóf hann útgáfu á The
Alex Moore Monthly Letter Service
sem hefur flutt fróðleik um það sem
gerist í heimi dansins um víða ver-
öld. Hann ásamt Viktor Silvester
stóð fyrir stofnun samkvæmisdans-
deildar við Imperial Society of Te-
achers of Dancing sem nú er
stærsta danskennarasmband
heims. Stofnun þeirrar deildar hafði
gífurleg áhrif á þróun samkvæmis-
Kveðjuorð til Bald-
vinsogBjarna
Mig langar til að skrifa nokkur
orð um tvo Akureyringa sem ég
þekkti. Þeir heita Bjarni B.
Víglundsson og Baldvin Ólafsson.
Báðir dóu þeir af slysförum.
Hann Beggi var oft heima hjá
okkur í Lundargötu 17. Hann var
sérstakur vinur fjölskyldu okkar
sem þótti vænt um hann. Oft var
gaman að honum, þótt hann stríddi
okkur. Eigum við eftir að sakna
þess. Hann gaf svo mikið af sér og
hjálpaði öðrum. Ég man eftir góðu
minningunum, er hann hjálpaði
mér. Það var vegna systur minnar.
Þá sagði hann við mig: „Þótt það
sé sárt að missa, þá er dauðinn
ekki sem verstur."
Þegar við minnumst þess, minn-
inganna sem við ávallt geymum,
þá lifa þau sem deyja í hjörtum
okkar. Þetta var mikil hjálp í mínu
lífi. Og lærði ég mikið af honum
Begga. Um leið og ég þakka honum
fyrir góð kynni sendi ég ástvinum
hans samúðarkveðju.
í símanum er vinkona mín að
segja mér frá hræðilegu slysi af
Bjarna sem er bróðir hennar. Það
féll tár á símann, allt var svo hljótt.
Og tilfinningar grípa um mann við
slíka frétt, sorgin er mikil.
Didda er vinkona mín og kynnt-
umst við 14 til 15 ára. Þá sá ég
Bjarna fyrst og kynntist honum.
Hann var indæll persónuleiki,
skemmtilegur og sífellt gamansam-
ur.
Við töluðum við Bjarna í síma
eftir jólin. Þá var hann gamansam-
ur og lífsgleðin var svo mikil. Hann
hafði alltaf gaman að tala um Akur-
eyri við okkur. Við förum til Vest-
mannaeyja í sumar og þótti honum
verst að hafa ekki hitt okkur, því
vinir systur hans voru líka vinir
hans. Hann hefur líka alltaf sýnt
okkur það. Virti hann skoðanir ann-
arra og hlustaði á rök þeirra. Aldr-
ei heyrði ég hann segja styggðar-
yrði um nokkurn mann.
Að lokum viljum við hjónin þakka
Bjarna fyrir allt sem hann gaf og
biðjum Guð að styrkja og styðja
Hafdísi, börnin og aðstandendur
hans.
Kveðjustundir eru alltaf sárar.
Góðu minningarnar eru það sem
maður geymir með sér og kallar
fram þegar manni líður vel eðaeitt-
hvað bjátar á. Þá eru vinirnir hjá
okkur og lifa í hjörtum okkar.
Guð geymi þá Begga og Bjarna.
Með samúðarkveðju.
Herborg Harðardóttir
og íjölskylda.
dansanna um heim allan, því á þess-
um tímum voru menn með marga
stíla í gangi en nú voru sporin t.d.
Quickstep, Foxtrot og Tango
„standardiseruð" og starfið sem
þeir unnu þá er enn í fullu gildi.
Ekki má heldur gleyma því að
það var Alex sem hafði forgöngu
um stofnun International Council
of Ballroom Dancing og hann ásamt
Gerd Hadrich lagði grundvöllinn að
Heimsprógramminu.
Árið 1973 fór undirritaður til
Alex Moore ásamt Eddu Pálsdóttur
og Svanhildi Sigurðardóttur og
fengum við þjálfun hjá honum og
hans kennurum fyrir Membership-
próf í Ballroom Dancing.sem við
öll lukum með einkunninni Highly
Commanded. Sá árangur var ekki
hvað síst því að þakka hvað Alex
sýndi okkur mikinn áhuga og það
var æði oft sem hann ræddi við
okkur um tæknina í dansi án þess
að þiggja nokkurt gjald fyrir.
Það er sjálfsagt ekki ofsögum
sagt að með Alex Moore sé genginn
sá danskennari sem mest áhrif hef-
ur haft á þróun samkvæmisdansa
um víða veröld.
Fyrir hönd Dansráðs íslands
votta ég eftirlifandi konu hans og
dóttur samúð allra íslenskra dans-
kennara.
Heiðar Ástvaldsson
Þorgerður Guðmunds-
dóttir - Minning
Þegar ég eignaðist mitt fyrsta
barn eftir tíu ára hjónaband var ég
dálítið hjátrúarfull og þorði ekki að
undirbúa neitt. Gunnar Hólmsteinn
fæddist heilbrigður og yndislegur
og þann dag tók Gerða til sinna
ráða: Útbjó í vögguna, saumaði,
skúraði og skrúbbaði (og pússaði)
og lét síðan hina nýbökuðu foreldra
í friði.
Ætíð hafa amma Gerða og afi
Hólmsteinn verið einn af helstu
miðpunktum í lífi Gunnars Hólm-
steins. „Hvenær má ég aftur sofa
hjá afa og ömmu?“ Það var alltaf
ævintýri að fá að gista hjá þeim,
stöðug athygli og ástúð. Oftast sat
amma eða afi á gólfinu hjá Gunn-
ari og þau byggðu og byggðu úr
legókubbum, íásu bækur eða hlust-
uðu og ræddu málin.
Það er erfitt að segja 5 ára barni
að amma sé dáin. Það sem barnið
skynjar er tap og tár. Áður hefur
verið hægt að fá skýringar á tilver-
unni, en ekki nú. „Hvers vegna vill
amma frekar vera hjá guði en hjá
okkur?“
Gunnar Hólmsteinn hefur misst
mikið en það sem amma Gerða gaf
honum, á hann alltaf.
Gunnar Hólmsteinn og
María Kristín Thoroddsen.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna.
t Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför bróður míns og mágs, ARENTS H. ARNKELSSONAR, Buðlungu, Grindavík. Ingey Arnkelsdóttir, Kristján Sigurðsson.
t Ástkær systir mín og móðursystir, GEIRÞRÚÐUR J. ÁSGEIRSDÓTTIR KÚLD hjúkrunarkona, Aflagranda 40, áður Litlagerði 5, Reykjavík, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudaginn 23. maí. Margrét Ásgeirsdóttir, Aðalbjörg Björnsdóttir.
t Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, JÓHANN SIGURLAUGSSON bifvélavirki, Klettagötu 4, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í dag, föstudaginn 24. maí, kl. 13.30. Margrét Óskarsdóttir, Karitas Rósinkarsdóttir, Karitas Jóhannsdóttir, Reynir Baldursson, Lína Hildur Jóhannsdóttir, Þór S. Jóhannsson, Þórhildur Þórðardóttir, Jóhann Óskar Jóhannsson, María Sigurlaugsdóttir og barnabörn.
t Hjartkær móðir mín og amma, RAGNHEIÐUR JÓNASDÓTTIR, áður til heimilis á Hrannargötu 1, ísafirði, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 22. maí. Jarðarförin fer fr'am frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 28. maí kl. 10.30. Jónasina Þ. Guðnadóttir og synir.
t Ástkær faðir minn, föstursonur og sonur, JÓN STEINAR GUÐBJÖRNSSON frá Borg í Garði, lést að morgni 22. maí. Anna Steinarsdóttir, Anna Margrét Sumarliðadóttir, Birna Jónsdóttir.
t Þökkum auðsýnda vináttu og hlýhug við andlát og útför INGIMARS SIGVALDASONAR, Hróarsstöðum, Skagaströnd. Auður Sigurðardóttir, börn, tengdabörn, og barnabörn.
t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HELGA INGÓLFS SIGURGEIRSSONAR, Hólagötu 39, Njarðvík. Ólöf Bjarnadóttir, Valgerður Helgadóttir, Einar Th. Hallgrímsson, Helga Sigrún Helgadóttir, Rafn M. Skarphéðinsson, Bjarni Heiðar Helgason, Inga Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað í dag frá kl. 9.00-14.00 vegna jarðarfarar. Ásbjörn Ólafsson hf., heildverslun.