Morgunblaðið - 24.05.1991, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991
IKBAAfm
*
Ast er ...
\
.. .að sjá til þess að hann
borði heilnæman mat.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
© 1991 Los Angeles Times Syndicate
C=3 Cj?
Með
morgimkafftnu
Hún kemur eftir svolitla
stund. Hún er að skipta um
trúlofunarhring.
HOGNI HREKKVISI
„ /yiéft /yi£iN/LL# i/ie, þ#e> þ£<s/R hann
FINNUR EITrHM&'A ÚTSÖLU/"
Hundafár
Maður hringdi:
„Ég vil vekja athygli á miklu
hundafári sem er í Brekkuskógi
í Aratungu.
Þarna eru
að jafnaði
um 10 stórir
hundar sem
fara um allt
óheftir.
Margir eru
hræddir við
hundana og
sumt eldra fólk þorir ekki einu
sinni að fara út úr bflunum. Ég
tel þetta ástand óviðunandi.“
Hjol
BMX hjól, hvítt með rauðum
dekkjum, rauðum stýrishöldum
og brúsahaldara, var tekið frá
Daltúni 31, Kópavogi. Vinsam-
legast hringið í síma 46533 ef
það hefur komið í leitirnar.
Bakpoki
Svartur bakpoki (Kvik silver)
með teppi , gúmmískóm og
svörtum trefli tapaðist við Loga-
land um hvítasunnuna. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 92-68502.
Týnd læða
Fíngerð grábröndótt læða
tapaðist frá Bergstaðastræti
sunnudaginn 5. maí. Hún var
með fjólubláa ól, merkt Ásdís.
Ef einhver hefur séð til hennar
eða getur gefið upplýsingar, vin-
samlegast hafið samband í síma
16263.
Högni
Svartur 4-6 mánaða högni,
mjög gæfur, hefur verið á þvæl-
ingi við Seilugranda að undanf-
örnu. Upplýsingar í síma 22231
eftir kl. 18.
Kettlingur
Kassavanin tíu vikna læða
fæst gefins. Upplýsingar í síma
12176 eftir kl. 17.
Skuldasúpa ríkissjóðs
Það mun vera hlutverk útvarps-
ins og dagblaðanna að flytja okkur
fróðleik og fréttir, sem gefst ætíð
svo vel að yndi er að. En stundum
vill samrt bera út af því þá fluttar
eru óstaðfestar fréttir, mér finnst
að útvarpið ætti að leggja slíkar
fréttir niður, því við viljum aðeins
heyra það sem hefur skeð, og er
rétt.
Nú hefur það verið margendur-
tekið í útvarpi og blöðum að skulda-
súpa ríkissjóðs sé ýmist 6 milljarð-
ar, 8 milljarðar og það uppí 12
milljarða, og nú síðast uppí 30 millj-
arða fjárþörf.
Nú, leyfist mér að spyrja? Hvað
á almenningur í landinu að hugsa
og skynja þegar við heyrum slíkar
tölur. Svo er talað um fals, blekk-
ingar og kosningavíxla með mörg-
um tölum sem ekki er vert að hafa
eftir hér.
Hefur alveg gleymst að kenna
mönnum að leggja saman tölur á
þessari vélaöld, eða viljið þið ekki
láta okkur vita hvernig okkar ríkis-
reikningur stendur, sem við, börnin
okkar og barnaböm eiga og verða
að greiða?
Hinn almenni borgari óskar eftir
að fá að vita rétta niðurstöðu, þar
sem hún væri færð út í einskonar
tölur, sem hinum eldri var kennt í
gamla daga, margföldun, frádrátt-
ur og samlagning, þá með réttri
niðurstöðu.
Eldri borgari
Oeðlileg fjármögmm?
Nokkur orð um Perluna í Öskju-
hlíð. Ég vil taka undir það að þetta
er og verður falle_g bygging og
borginni til sóma.' Eg var því hins
vegar aldrei sammála að Hitaveitan
stæði straum af byggingarkostnaði
þessa húss enda hefur það reynst
dýrara en áætiað var og hefur trú-
lega þegar hækkað verð á heitu
vatni á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Ég tel að fyrirtæki í eigu borgarinn-
ar eins og Hitaveitan eigi að ein-
beita sér að því að selja heitt vatn
til borgarbúa á svo lágu verði sem
kostur er, en ekki íþyngja sér með
kostnaðarsömum byggingum sem
einkafamtakið getur hæglega séð
um. Margir aðilar hafa farið út í
veitingarekstur af ýmsu tagi hin
síðari ár en gengið misvel. Sumir
segja að alltof mörg veitingahús séu
í borginni og sé það borin von að
þau nái öll að bera sig. í ljós hefur
líka komið að veitingareksturinn
gengur ekki of vel hjá mörgum og
nokkuð hefur verið um að þessi
fyrirtæki hafi skipt um eigendur
að undanförnu og sum jafnvel orðið
gjaldþrota. Þegar ástandið er þann-
ig er ekki rétt að fjársterk fyrir-
tæki í eigu borgarinnar kaupi sig
inn á veitingamarkaðinn með pen-
ingum sem þau fá fyrir að veita
nauðsynlega þjónustu af allt öðru
tagi. Ég vona því að þetta dæmi
verði ekki endurtekið.
Reykvíkingur
Víkverji skrifar
*
Islandsmótið í knattspyrnu fór af
stað með glæsibrag. Leikir 1.
umferðar voru skemmtilegir og
spennandi og áhorfendur fengu að
sjá mörg mörk. Það er meiri ljómi
yfir Islandsmótinu í knattspyrnu en
öðrum íþróttamótum. Enda er knatt-
spyrnan æðst íþrótta að mati
Víkveija og reyndar má segja að vel
leikin knattspyrna sé fremur í ætt
við listir en íþróttir. En það er önnur
saga.
Víkveiji fór að sjá tvo leiki um
helgina, báða í Hafnarfirði. Opnunar-
leikur FH og Víkings var bráð-
skemmtilegur og lofar góðu fyrir
sumarið. Leikur Hauka og Akurnes-
inga var einnig mjög skemmtilegur.
Sér í lagi voru Skagamennirnir
frískir og er Víkverji efins um að
önnur íslenzk lið eigi jafn flinka og
fríska framlínumenn og Skagamenn.
Þar fer fremstur í flokki fyrirliðinn
Karl Þórðarson, sem nú er að hefja
sitt 20. tímabil sem leikmaður í
meistaraflokki. Hvað eftir annað
splundraði hann vörn Haukanna með
nákvæmum sendingum eða einleiks-
sólóum. Menn eins og Karl Þórðarson
á að heiðra sérstaklega fyrir þá
skemmtun sem þeir hafa veitt knatt-
spyrnuáhugamönnum.
XXX
Umræður um stefnuræðu forsæt-
isráðherra fóru fram síðastlið-
ið þriðjudagskvöld og var þeim bæði
útvarpað og sjónvarpað. Víkveija
finnst afar sérkennilegt að besta
útsendingartíma bæði ríkisútvarps
og sjónvarps sé ráðstafað með þess-
um hætti. Löng hefð er fyrir því að
útvarpa umræðum á Alþingi við
tækifæri sem þetta og skal ekki gerð
athugasemd við það, en er ekki
óþarfi að sjónvarpa þeim líka? Þótt
umræðunum væri bara útvarpað
gætu áhugamenn um stjórnmál um
allt land eftir sem áður hlustað á
umræðurnar og varla er það sálu-
hjálparatriði að horfa á þær líka.
Auk þess á helmingur þjóðarinnar
þess kost að fara niður á þingpalla
án mikillar fyrirhafnar og fylgjast
þar með.
Fyrir marga sjónvarpsáhorfendur
skiptir litlu þótt útsendingartíma
ríkissjónvarpsins sé varið til að sýna
margra klukkustunda langar um-
ræður frá Alþingi, því stór hluti
þeirra getur í staðinn horft á dag-
skrá Stöðvar 2, leigt sér myndband
eða jafnvel fylgst með erlendum
gervihnattastöðvum. Það hlýtur hins
vegar að vera umhugsunarefni fyrir
forráðamenn sjónvarpsins, hvort þeir
gætu ekki nýtt þennan útsending-
artíma betur.
xxx
íkveiji er mikill golfáhugamaður
og kann sér ekki læti yfir því
að sumarið skuli komið og búið að
opna golfvellina. Og ekki spillir fyrir
að golfvellir sunnanlands hafa aldrei
komið jafn vel undan vetri og eru
nú orðnir álíka grónir og þeir eru
jafnan um miðjan júní.
Að mati Víkveija sameinar golfið
marga bráðnauðsynlega þætti, þ.e.
skemmtilegan leik, góðan félags-
skap, holla útivera og líkamlega
áreynslu. Vegna þess hve íþróttin er
skemmtileg gleyma golfarar því
gjarnan hve langt þeir labba á eftir
hvítu kúlunni. Sé leikinn heill hringur
á Grafarholtsvellinum, þar sem
Víkveiji þekkir bezt til, gengur golf-
leikarinn 7-8 km og enn lengra ef
hann týnir oft boltum!
Á þetta er minnst hér vegna þess
að í ensku golfblaði var fyrir skömmu
skýrt frá atvinnumanni í golfi að
nafni Fijian Vijay Singh, sem tók
þátt í 33 golfmótum í fyrra, sem
reyndar var nýtt met á Evróputúm-
um svonefnda. Reiknað hafði verið
út að Singh hefði í mótum og í æf-
ingahringjum í fyrra gengið rúma
1200 kílómetra eða næstum hring-
veginn, ef tekin er íslenzk viðmiðun.
Ef golfmaður væri beðinn að
ganga þessa vegalengd myndi hann
strax harðneita en ef honum væri
boðið að leika þessa vegalengd á
golfvelli myndi hann eflaust hugsa
sig um!