Morgunblaðið - 14.06.1991, Side 1

Morgunblaðið - 14.06.1991, Side 1
64 SIÐUR B/C/D 132. tbl. 79. árg. FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1991 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Forsetakosningarnar í Rússlandi: Borís Jeltsín hefur þegar tryggt sér meirihlutann Sovéskur ofursti reynir að sannfæra konu í Leníngrad um að hún hafi gert mistök er hún greiddi Borís Jeltsín atkvæði í forsetakosningunum. Næstur Jeltsín að atkvæðum varð Ní- kolaj Ryzhkov, fyrrverandi for- sætisráðherra Sovétríkjanna, er hefur lagst gegn róttækum breytingum í markaðsátt sem Jeltsín boðar. Á innfelldu mynd- inni sést Jeltsín sigurviss í hópi stuðningsmanna sinna. Ibúar í Leníngrad samþykkja að borg- in verði á ný kölluð St. Pétursborg Moskvu, London, Washington. Reuter, Daily Telegraph. TALSMAÐUR kjörnefndar í Rússlandi lýsti yfir því í gær að ekki þyrfti að efna tÖ seinni umferðar milli tveggja efstu frambjóðenda í rússnesku forsetakosningunum þar sem Borís N. Jeltsín hefði þeg- ar tryggt sér hreinan meirihluta, um 60%. Borgarsljórar tveggja stærstu borga landsins, Moskvu og Leníngrads, þeir Gavríl Popov og Anatólíj Sobtsjak, eru eins og Jeltsín utan kommúnistaflokksins og sigruðu báðir frambjóðanda flokksins með yfirburðum, fengu um 65% atkvæða. Marlin Fitzwater, talsmaður George Bush Bandaríkja- forseta, fagnaði fijálsum kosningum í Rússlandi og sagði þær stað- festa að Sovétmenn hygðust halda áfram stjórnmálaumbótum sem Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétforseti hefði „ýtt úr vör og koma á fjöl- flokkalýðræði". Hann skýrði frá því að Jeltsín myndi ræða við Bush í Washington 20. júní. Það kom á óvart að meirihluti íbúa Len- íngrad var hlynntur því að borgin fengi á ný sitt gamla nafn, St. Pétursborg. „AHt þetta sýnir að tilraunin sem við hófum 1917 hefur mistekist og þjóðin veit það,“ sagði Sergej, sonur Níkíta S. Khrústsjovs sem var Sovétleiðtogi 1954-1964, er ljóst var hvert stefndi. Lokatölur í for- setakjörinu munu liggja fyrir eftir helgi. Jeltsín er sextugur að aldri, var lengi frammámaður í kommúnista- flokknum en var settur út í kuldann 1989 er hann krafðist hraðari um- bóta en Gorbatsjov mælti með. Einnig vildi Jeltsín afnema ýmis Gorbatsjov tíl Lundúna Lundúnum. Reuter. JOHN Major, forsætisráð- herra Bretlands, kvaðst í gær hafa boðið Míkhaíl Gorbatsj- ov, forseta Sovétríkjanna, í heimsókn til Lundúna til að ræða við leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims eftir árlegan fund þeirra í borginni 15.-17. júlí. Forsætisráðherrann skýrði frá þessu á breska þinginu og talsmaður hans sagði að Gorb- atsjov kæmi að öllum líkindum til borgarinnar 17. júlí. Major kvaðst hafa rætt við forseta sovéska þingsins, Ana- tolíj Lúkjanov, sem hefði afhent honum bréf frá Gorbatsjov þar sem Sovétforsetinn „ítrekaði þann ásetning sinn að koma á stjórnmála- og efnahagsumbót- um“. forréttindi flokksleiðtoganna. Hann sagði sig úr flokknum á sl. ári, nýtur mikillar alþýðuhylli og ýmsir markaðshyggjumenn úr röðum menntamanna hafa undanfarna mánuði yfirgefið Gorbatsjov, sem aldrei hefur boðið sig fram í frjáls- um kosningum, og gengið til liðs við Jeltsín. Meirihluti sovéskra kjósenda, 105 milljónir manna, býr í Rúss- landi og tveir þriðju hlutar sovéska landflæmisins eru innan landamæra þess. Rússar hafa ekki fengið að kjósa sér forystumenn í fijálsum kosningum í valdatíð kommúnista. Embætti forseta lýðveldisins. er vaidamikið en óljóst er hvemig leystur verður ágreiningur um vald- svið þess og alríkisstjómar Sov- étríkjanna sem Gorbatsjov fer fyrir. Hann hét því fyrir kosningarnar að eiga samstarf við sigurvegarann, hver sem hann yrði. „Of mikið er í húfi tii þess að hægt sé að láta persónulegar deilur hafa áhrif á stjórnmálin," sagði Gorbatsjov og vísaði augljóslega til rígs sem lengi hefur verið milli hans og Jeltsíns. Flestir höfðu búist við sigri Jelts- íns í forsetakjörinu. Leníngrad var á hinn bóginn vagga valdaráns og byltingar kommúnista 1917 og er afstaða íbúanna til nafnbreyting- arinnar því flokksmönnum mikið áfall. Rússneska þingið, þar sem harðlínumenn em mjög öflugir, þarf að staðfesta breytinguna til að hún öðlist lagagildi og kommún- istar segja að Æðsta ráð Sovétríkj- anna þurfí einnig að fjaila um málið. Sjá ennfremur frétt á bls. 20. Svíþjóð-EB: Aðildarumsókn ákveðin Brussel. Reutcr. SVÍAR ætla að sækja formlega um aðild að Evrópubandalaginu, EB, um næstu mánaðamót. Er þetta haft eftir embættismönnum EB í Brussel en þeir segja, að Henning Christophersen, sem fer með efnahagsmál innan fram- kvæmdastjórnar EB, hafi skýrt dönskum fulltrúum á Evrópu- þinginu frá þessu á miðvikudag. Christophersen sagði, að Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóð- ar, ætlaði að afhenda umsóknina í Haag 1. júlí nk. að loknum fundi framkvæmdastjórnarinnar og hol- lenskra stjómvalda en Hollendingar taka þá við formennsku í ráðherra- ráði EB. Var búist við, að sænska stjómin gæfi út sérstaka yfirlýsingu í dag um aðildarumsóknina og var það haft eftir Carlsson, að hún yrði „mikilvægasta yfírlýsing sænskrar ríkisstjómar á þessari öld“. ísraelsstjóm seglr enn von um friðarráðstefnu Washington. Reuter. DAVID Levy, utanríkisráðherra Israels, átti í gær fundi með bandarískum starfsbróður sínum, James Baker, í Washington. Levy útskýrði þá ákvörðun Israela að hafna nýjustu tillögu Bandaríkja- stjórnar til að koma í kring frið- arráðstefnu fyrir Miðausturlönd. Levy hélt því fram að tilraunir til að kalla saman friðar- ráðstefnu væiu ekki komnar í sjálfheldu þó ísra- elar hefðu hafnað tillögu stjórnar George Bush Bandaríkjaforseta um að Samein- uðu þjóðimar gætu sent áheyrnar- fulltrúa án málfrelsis til ráðstefn- unnar. ísraelar hafa lagst gegn þátttöku SÞ og vilja að ráðstefnan standi einungis yfir í einn dag en síðan hefjist tvíhliða viðræður þeirra við umrædd ríki. Afstaða þeirra annars vegar og hins vegar Sýrlend- inga og fleiri arabaþjóða, sem vilja fulla aðild SÞ, hefur dregið málið á langinn. Sömuleiðis hefur nýtt land- nám gyðinga, einkum innflytjenda frá Sovétríkjunum og Eþíópíu, á hernumdu svæðunum hleypt illu blóði í deilurnar. Egyptar og Sýrlendingar segja Bandaríkjastjórn vinna af einlægni að lausn málsins en ísraelar tefji fyrir með afstöðu sinni. í fyrradag gaf Bush í skyn að stjórn hans kynni að hætta að veita ísraelum lánafyr- irgreiðslur vegna landnámsins á hernumdu svæðunum sem hann sagði stangast á við fyrri skuldbind- ingar ísraelsstjórnar. Flak kjarnorkukafbáts við Bjarnarey: Hætta á að geisla- virk efni leki í hafíð Moskvu. Reuter. HÆTTA er á að geislavirk efni leki úr sovéskum kjarnorkukaf- báti, sem sökk við strendur Norður-Noregs, jafnvel á næsta ári, að því er sovéskur vísindamaður sagði í gær. Kafbáturinn sökk um 200 km vegna hættu á að öryggisskjöldur vest-súðvestur af Bjamarey, sem er á milli Noregs og Svalbarða, 7. apríl 1989. 42 úr áhöfninni fór- ust. Ráðgert var að bjarga kaf- bátnum af sjávarbotni í ágúst á næsta ári en því hefur verið frestað til ársins 1993 vegna fjárskorts en áætlað er að verk- efnið kosti 12.4 milljarða ÍSK. Báturinn er á 1.700 m dýpi og í honum era tvö tundurskeyti með kjamahleðslum. Vísindamaðurinn, ígor Spasskíj, sagði í viðtali við dag- blaðið Rossískaja Gazeta að vara- samt væri að fresta björguninni um kjarnakljúf bátsins væri að gefa sig. „Sérfræðingar telja fræðilega mögulegt að skjöldurinn molni utan af kjaraakljúfnum eftir að báturinn hefur legið í þrjú ár á hafsbotni," sagði Spasskíj. „Þótt áhöfnin hafi slökkt á kljúfnum og tundurskeytin geti ekki sprungið telja sérfræðingarnir að aukin geislavirkni sé óhjákvæmileg með tímanum." Spasskíj sagði mikla ógn stafa af bátnum vegna þess að hann væri á gjöfulum fiskimiðum og á alþjóðasiglingaleið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.