Morgunblaðið - 14.06.1991, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1991
INNKA UPA S TJÖRAR. 1
Eigum á lager mjög góða og ódýra
íþróttaskó á börn og fullorðna
Teg: 1009 Sv. Teg: 920 Teg: 976-H Teg: LT-7769
Teg: 1009 Gr. Stærðir: 24-35 Stærðir: 36-45 Stærðir: 37-46
Stærðir: 24-31
ÍSLEHZKA VERZLUnARrÉLAGlÐ HF
SKÚTUVOGI 12C, SÍMI 687550
-
enn meirí háttar
0STATILB0Ð
Nú eru það smurostarnir: pakki með 3 dðsum
af rækjuosti eða 3 mismunandi tegundum.
Áður kostuðu 3 dósir umj^ kr., nú 372 kr.*
Einnig léttostur, 3 dósir í pakka, sem kostaði áður
um^ö^kr., nú 349 kr.*
Um 25% lækkun.
* leiðbeinandi smásöluverð.
Tilvalið í ferðalagið o§ sumarbústaðinn!
„Ó að lífið væri ljóð“
Bækur
Dagný Kristjánsdóttir
Ingibjörg Haraldsdóttir: LJÓÐ.
Mál og menning 1991.
í bókinni Ljóð eftir Ingibjörgu
Haraldsdóttur eru birtar ljóðabæk-
ur hennar, endurskoðaðar, auk
nokkurra nýrra ljóða og ljóðaþýð-
inga.
Ljóðaunnendur ættu að gleðjast
yfír þessari bók því að eldri bækur
Ingibjargar voru orðnar illfáanlegar
og ný.ljóð frá henni eru bókmennta-
viðburður. Þegar bækur hennar eru
komnar saman á einn stað má líka
glöggt sjá höfundareinkenni Ingi-
bjargar og listræna þróun.
Einfaldleiki?
Það er ákaflega erfitt að þýða
ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur á
önnur mál. Eg hef kennt nokkur
af ljóðum hennar í útlöndum og það
er mín reynsla að fólk byijar fyrst
að skilja töfra þeirra ef farið er á
bak við þýðingarnar, til frummáls-.
ins, íslenskunnar. Einhver kynni að
segja að þetta gilti um öll ljóð. En
maður á einhvern veginn ekki von
á þýðingarvandkvæðum í sambandi
við ljóð Ingibjargar. Þau virðast svo
einföld, svo skrautlaus og lágmælt.
Það er svo lítið af hefðbundnum
stílbrögðum, lítið af myndhverfing-
um, lítið af leik eða leikaraskap í
umgengni við hefð og mál. Þetta
virðast bara einföld ljóð. Ljóð sem
ætti að vera auðvelt að snara. Það
er það hins vegar ekki - vegna
þess að ljóð Ingibjargar Haralds-
dóttur eru ekki einföld.
Útlendingur
Eitt af ljóðunum í fyrstu ljóða-
bókinni Þangað vil ég fljúga (1974)
heitir „Að vera útlendingur". Ljóð-
mælandinn er íslensk kona á Kúbu,
útlendingur sem þráir landið sitt:
ég teygi hendur mínar
til þín mitt hvíta land
(Á meðan borgin sefur, 1974)
En heimkoman hefur vonbrigði
í för með sér. Ljóðmælandinn í
næstu ljóðabók: Orðspor daganna
(1983) hefur mótast af Kúbu og
þó, hún sé komin heim heldur hún
áfram að vera „útlendingur“.
Nú rís ég upp einbeitt og vakna
af aldarlöngum svefni
- eða er ég að fæðast?
Núna. Hér. Með tvær hendur tómar
- hreinar og tómar.
Einhver hefur sagt mér
ég eigi hér heima.
(Þyrnirós, 1983)
„Útlendingurinn" á ekki heima í
þeirri menningu sem hann býr í,
hann er framandi, öðru vísi en heim-
amenn, með önnur viðmið en þeir.
Hann horfír undrandi á ýmislegt
sem hinum fínnst sjálfsagt og finnst
sjálfsagt það sem öðrum fínnst
furðulegt. Málið, orðin, geta aldrei
orðið tóm eða orðræðan sjálfvirk
hjá honum af því að þau vísa til
veruleika sem er aldrei sjálfsagður.
Þrátt fyrir orðin
„Að vera útlendingur" er
endurtekið stef í öllum ljóðabókum
Ingibjargar Haraldsdóttur;
ljóðmælandinn er á ekki heima þar
sem hann býr, það er sterk þrá í
ljóðunum, leit að einhvers konar
heimkynnum en þau eru ekki hér
- ekki þar. Og þau eru ekki í
orðunum, vegna þess að
merkingarmyndun þessara ljóða
felst svo oft í því sem kemur til
lesandans til hliðar við eða í
kringum orðin; í kíminni
framsetningu, í (sjálfs)íroníu - í
„ískalclri örvæntingu" eins og Pétur
Már Olafsson orðar það.
Hvítur heimur
harður heimur
ljós sem sker
loft sem skellur
öskur
líf
sem fæðist.
Hvítur heimur
harður heimur
glampandi málmur blóð
og bam sem kemur
bam sem ryðst
inní grimman heim
og grætur
bam sem grætur.
Blóð og sviti
bómull og skæri
bros og tár.
Barn
sem lifir.
(Veraldarundur, 1983)
í þessu ljóði „Veraldarundri" er
BOSCH
BORGARNESI
Með samningum við Bræðurna Ormsson hf.,
hefur Bifreiða og trésmiðja Borgarness hf.
tekið við söluumboði fyrir Robert Bosch
GmbH. á Vesturlandi.
Robert Bosch GmbH., Þýskalandi, hefurfram-
leitt varahluti í bíla, vélar og tæki frá árinu
1886 og selur til yfir 130 landa.
Velgengni BOSCH er fyrst og fremst að þakka
ströngu gæðaeftirliti og markvissri þróun og
tilraunum.
Með samningum hefur vöruverð lækkað veru-
lega og þannig er hægt að bjóða góða vöru
á betra verði.
Við óskum B.T.B. og Borgnesingum til ham-
ingju með nýtt umboð í Borgarnesi.
Með tilkomu þess er hægt að þjóna Vestur-
landi enn betur.
Til hamingjul
r
BRÆÐURNIR
ORMSSONHF
Lágmúla 8 — a
BOSCH
Stuttgart — Þýskalandi