Morgunblaðið - 14.06.1991, Qupperneq 13
MOÍÍGl®ÉMÍ)ÍÐrPÖST:ÚbÁéuií'sÍ^/Æl^ íöéí-
Ingibjörg Haraldsdóttir
lýst fæðingu bams. Það er engin
tilfinningasemi í þessu ljóði, engar
lýsingar á líðan hinnar fæðandi
konu eða barns enda sagt að ekki
sé hægt að lýsa því. Ljóðlínumar
eru stuttar, óreglulegar: tveir
tvíliðir/ þríliður, tvíliður, stúfur/
tveir tvíliðir/ tvíliður/ stúfur o.s.frv.
Takturinn í ljóðinu er eins og ákafur
andardráttur. Lýsingarorðin em
„hvítur", „harður", „glampandi“ og
sagnirnar undirstrika sársaukann,
miskunnarleysið, lífsháskann en
það er barnið sem er að koma sem
öllu máli skiptir. Þegar það grætur
færist sjónarhornið yfir til líkama
móðurinnar (blóð og sviti), tækni
sjúkrahússins (bómull og skæri) og
loks tilfínninganna (bros og tár)
sem brjótast út í fagnandi
lokaorðunum: Barn - sem lifír.
Ég held að sé ekki hægt að fara
öllu nær því að segja „hið
ósegjanlega".
Ný yóð
Ljóðabókin Nú eru aðrir tímar
(1989) var af mörgum talin besta
ljóðabók Ingibjargar. Þroskinn
leynir sér heldur ekki í nýju
ljóðunum sem birtast í þessari bók.
Oróleikinn, leitin og trúin á að
hamingjuna, merkinguna, sé
kannski að finna í nýju fólki, nýjum
löndum, annars staðar - er ekki
þema nýju ljóðanna. Það er í þessum
ljóðum einhvers konar vissa um að
leitin hafí tilgang í sjálfri sér, sé
óumflýjanleg og að nýjar
spurningar skipti rrieira máli en
svörin sem þær kunna að fá.
„Útópíumar“ eru að baki eða eins
og segir annars staðar: „Ég trúi
ekki á fegurð fortíðarinnar":
Lít um öxl
á borgirnar
við veginn
nem þaðan
rökkurtóna staka
nær mér standa brýr
í björtum loga
framundan
óvissuklungur
og efa.
(Borgir, 1991)
En þó að efínn sé orðinn sterkari
en trúin í ljóðum Ingibjargar er hún
engjnn heimsendaspámaður og
bölsýn verða ljóð hennar ekki. Þau
eru blessunarlega laus við það
ofsóknarbrjálæði sem fylgir
tortímingarhyggju og
tortímingarótta. Og það vantar líka
hæfíleikann til að taka orðin sem
búa til sjálfsmynd okkar of
hátíðlega. Þó að „ótryggar gerist
nú stundirnar" eru brosið í
augunum og gleðin yfir lífinu það
sem ríkir eftir lestur þessa
fjölbreytta og framúrskarandi
ljóðasafns.
Tveir íslenskir læknar kosn-
ir í virt samtök sérfræðinga
18. apríl sl. voru tveir islenskir
læknar, þeir John E. G. Benedikz
og Birgir Guðjónsson, kosnir
„Fellows" í Royal College of
Physicians í London.
Royal College of Physicians í
London var stofnað 1518 og eru
ein -elstu samtök sérfræðinga í
læknisfræði í heiminum. Samtökin
vom stofnuð til að stuðla að hærri
staðli í lyflæknisfræði og hefur það
síðan verið meginmarkmið þeirra.
Læknar fá inngöngu eftir að taka
inntökupróf „Membership Examin-
ation“ í tveimur þrepum sem aðeins
um það bil 12% þátttakenda stand-
ast og verða þá „Members", þ.e.
MRCP“. Mörgum árum síðar geta
læknar náð því að verða kosnir
„Fellow“ þ.e. FRCP“ eftir strangt
mat Royal College of Physicians á
starfsferli og vísindaferli.
„Mernbership" að „Fellowship" í
Royal College of Physicians er skil-
yrði fyrir breska lækna til að fá
stöður sérfræðinga í lyflæknisfræði
innan breska sjúkrahúskerfísins.
John E.G. Benedikz er fæddur
1934 og útskrifaðist frá læknadeild
HÍ 1961. John stundaði nám í lyf-
læknisfræði og taugasjúkdómum
við Háskólasjúkrahús Manchester.
Hann lauk inntökuprófí í Royal
College 1967. John E.G. Benedikz
er viðurkenndur sérfræðingur í
taugasjúkdómafræði í Bretlandi og
starfar nú sem slíkur við Landspít-
alann og Landakotsspítala.
Birgir Guðjónsson er fæddur
1938 og útskrifaðist frá læknadeild
HÍ 1965. Birgir stundaði nám í lyf-
læknisfræði og meltingarsjúkdóm-
Birgir Guðjónsson, FACP, FRCP. John E.G. Benedikz, FRCP.
um við Yale-háskólann í New Hav-
en í Bandaríkjunum og var aðstoð-
arprófessor þar í nokkur ár. Hann
lauk inntökuprófí í Royal College
1979. Birgir hefur lokið bandarísk-
um sérfræðiprófum í lyflæknisfræði
H DAGSKRA verður í Norræna
húsinu föstudaginn 14. júní kl.
20.30 með gestum frá Suðurmann-
alandi (Sörmland) í Svíþjóð. Sagt
verður frá mannlífí og menningu
héraðsins og þjóðlagahópurinn
Simmings leikur gömul sænsk
þjóðlög og dansa. Meðlimir hópsins
eru Marianne Skagerlind-Furám
og meltingarsjúkdómum og er einn-
ig „Fellow“ í American College of
Physicians, þ.e. FACP, og er jafn-
framt fullgildur félagi í bresku og
bandarísku meltingarlæknafélög-
Um. (Fréttatilkynning)
Par Furám, Sören og Bernt Ols-
son og Arne Blomber. Hljóðfærin
sem þau leika á eru sekkjapípa,
fiðla, harmónika, munngígja og
cittra. Þau taka öll þátt í starfí
samtaka spilamanna í heimahérað
sínu Suðurmannalandi. Aðgangur
að tónleikunum er ókeypis.
Macintosh Classic
„Síðan ég fékk mér Macintosh Classic-tölvu hef
ég getað nýtt mér þetta sjálfsagða heimilistæki til
að geta unnið heima ef ég vil. Maður er nefni-
lega oft frjórri heima ená vinnustaðnum.
Konan mín notar Macintosh-tölvuna við ýmis
verkefni, s.s. ritvinnslu, bókhald o.fl. auk þess
sem tölvukunnáttan kom henni að góðum notum
þegar hún fór aftur út á vinnumarkaðinn.
Svo nýtist tölvan einnig vel fyrir börnin. Mun
algengara er nú að skólaverkefni og ritgerðir séu
unnar á tölvu og einkunnir barnanna eru nú
hærri en áður.“
Verð á Macintosh Classic-tölvu er aðeins
89-900,- kr. eða 85-405,- kr. stgr.
Hún fæst einng með Munaláni og þá eru til
dæmis greidd 25% við afhendingu: 22.475,- kr. og
3.025, - kr. á mánuði í 30 mán.
L