Morgunblaðið - 14.06.1991, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1991
O* tí NORRÆN UMHVERFISMENNTUNARRÁÐSTEFNA
Skólarnir og vist-
vænt heimilishald
Morgunblaðið/Sverrir.
Umhverfismennt á sýningu
Tvær sýningar í tengslum við ráðstefnuna um umhverfismenntun „Miljö 91“ eru opnar almenningi í Hagaskóla
og Melaskóla í dag og á morgun. Sýnendur eru sjötíu talsins, flestir frá íslandi en einnig eru sýningardeildir
frá Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku og hefur hvert land 2-3 skólastofur til umráða. Á sýningunni
eru leikskólar fjölmennastir en einnig eru þar margir grunnskólar, framhaldsskólar, stofnanir og félög. Allt
sem sýnt er í skólunum tengist umhverfismenntun og fræðslu. í Melaskóla voru þessi sjö og átta ára böm búin
að koma upp sýningu í einni kennslustofu. Þau heita Ásthildur Erlingsdóttir, Úlfar Gauti Haraldsson, Hjörtur
Hjartarson, Stefanía Ólafsdóttir og Benedikt Einarsson.
LENGI hefur það viðhorf verið ríkjandi að einkaneysla fólks
væri þess einkamál sem enginn hefði leyfi til að skipta sér af.
Umhverfisverndarmenn hafa þó að undanförnu beint athugunum
sínum að heimilishaldi almennings og þeim miklu breytingum er
orðið hafa á neyslu. Riitta Nykanen frá Finnlandi hélt fyrirlestur
í tengslum við þessa umræðu á Norrænu umhverfismenntunarráð-
stefnunni í gær. Fjallaði fyrirlestur hennar um mikilvægi þess að
skólar væru fyrirmyndir heimila í vistvænu skipulagi.
þeir nota til hreingeminga og
hvernig unnið er úr sorpi frá skó-
lanum. Hægt væri að láta nemend-
ur skólanna taka þátt í endurskip-
ulagningunni og gera þá þannig
meðvitaða um áhrif allrar neyslu
á umhverfið. Reynslan sem nem-
endur fá við þessa vinnu mundi
síðan nýtast þeim þegar þeir at-
huguðu sitt eigið heimilishald.
Einnig kom fram í máli Riittu
Nykanen að ekki er nóg að ræða
umhverfismennt í greinum eins og
náttúrufræði heldur er einnig
nauðsynlegt að fjalla um umhverf-
ismál ísamfélagsfræði og heimilis-
fræði. í þessum greinum þarf ekki
flókin dæmi til þess að gera nem-
endur meðvitaða um áhrif þeirra
sem einstaklinga á umhverfið. I
heimilisfræði beinist athyglin að
matargerð, hreingerningum og
þvotti en þetta eru þættir sem
fléttast inn í líf allra og hafa áhrif
á umhverfið. Með því að kenna
nemendum að velja umhverfisvæn
efni og vinnuaðferðir er hægt að
leggja grunnin að neyslu sem nýt-
ir betur alla framleiðslu og auð-
lindir jarðar.
Reykjavík:
Mengirn minni en í öðrum höfuðborgnm
GERT er ráð fyrir að bílaumferð á höfuðborgarsvæðinu muni auk-
ast um u.þ.b. 40% fram til ársins 2010. Á tímabilinu 1985-1990 hefur
fjöldi ferða í fólksbíl aukist um 33% og ætla má að farnar séu 435.000
ferðir í fólksbíl á hverjum sólarhring. Meirihluti aukningarinnar
hefur átt sér stað í Reykjavík. Þessar upplýsingar komu fram í er-
indi sem Þórarinn Hjaltason yfirverkfræðingur Umferðardeildar
Reykjavíkur, hélt á ráðstefnunni í gær.
Þórarinn talaði um að uppbygg- ástand umferðarmála hefði því
ing stofnbrautarkerfisins hefði ekki versnað á undanfömum ámm. Víða
verið í takt við þróun umferðar og væri ekið í gegnum íbúðarhverfi
vegna þess að stofnbrautakerfið
annaði ekki þeirri umferð, sem fara
vildi um það. Þrátt fyrir hina miklu
bílaumferð sagði Þórarinn hins veg-
ar að ætla mætti að loft- og hávaða-
mengun væri minni í Reykjavík en
t.d. í höfuðborgum hinna Norður-
landanna.
Aðalskipulag Reykjavíkur er nú
í endurskoðun. Að sögn Þórarins
eru meginmarkmiðin í umferðar-
skipulagi þau að greiða fyrir um-
ferð á stofnbrautum, fækka um-
ferðarslysum, minnka gegnakstur
um íbúðarhverfi, minnka loft- og
hávaðamengun, fullnægja eftir-
spurn eftir bílastæðum, bæta al-
menningsvagnaþjónustu og bæta
aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi
farþega.
Vistvænt skipulag skóla er að
mati Riittu Nykanen góður út-
gangspunktur í kennslu nemenda
í umhverfismennt. Það þýðir lítið
að kenna börnunum að taka upp
vistvænar neysluvenjur ef kennar-
ar og skólakerfið eru léleg fyrir-
mynd. Það er því mikilvægt að
skólarnir endurskoði skipulag sitt.
Þeir þurfa að athuga öll innkaup
og nýtingu á gögnum eins og bók-
um og pappír. Jafnframt þurfa
skólarnir að athuga efnin sem
Rit um Jón Signrðs-
son og Geirunga
— eftir Lúðvík Kristjánsson
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs hefur gefið út ritið Jón Sigurðsson
og Geirungar með undirtitlinum Neistar úr sögu þjóðhátíðaráratugar.
Höfundur er dr. Lúðvík Kristjánsson, rithöfundur og fræðimaður, sem
á liðnum árum hefur með margvíslegum hætti fjallað um Jón forseta.
Frá síðustu árum minnast menn hinnar miklu sjávarútvegssögu
Lúðvíks „íslenskir sjávarhættir“ í fimm bindum. Ritið Jón Sigurðsson
og Geirungar kemur út á 180 ára afmæli JÓns forseta 17. júní.
Útgefandi kynnir Jón Sigurðsson
og Geirunga með eftirfarandi orðum
á bókarkápu: „Á 180 ára afmæli
Jóns Sigurðssonar forseta, 17. júní
1991, sendir dr. Lúðvík Kristjánsson
frá sér nýtt rit um Jón Sigurðsson
og samtíð hans. Þar beinir hann sjón-
um að ungum samheijum Jóns for-
seta, sem stofnuðu leynilegt félag í
Kaupmannahöfn árið 1872 undir
nafninu Atgeirinn og kölluðu félags-
menn sig oft Geirunga. Var hlutverk
þess að halda uppi vörn fyrir landi
voru og réttindum þess ... einkum
í blöðum og öðrum tímaritum, bæði
heima á Islandi og sérílagi erlendis."
Rekur höfundur þessa viðleitni Geir-
unga á þjóðhátíðaráratugnum
1870-80 og bregður ljósi á fram-
göngu fjölda landskunnra manna
þetta tímaskeið."
Um höfundinn segir svo á bóka-
kápu: „Lúðvík Kristjánsson (f. 1911)
er þjóðkunnur fræðimaður og rithöf-
undur, sem verið hefur afkastamik-
ill í rannsóknum á sögu Islendinga
á 19. öld. Hann hefur m.a. samið
Yestlendinga, 3 bindi (1953-60), og
Á slóðum Jóns Sigurðssonar (1961).
Á árunum 1980-86 kom frá hendi
hans íslenskir sjávarhættir, 5 bindi,
einstætt stórvirki um sjávarútvegs-
sögu íslendinga. Fyrir það hlaut
hann heiðursdoktorsnafnbót frá Há-
skóla íslands."
Jón Sigurðsson og Geirungar
skiptist í fjóra aðalkafla sem bera
þessi heiti: Aðfararorð, Umhverfi
Geirunga, Ritgerðir Geirunga og
Geirungar stefna að blaðaútgáfu.
Þá er fjöldi undirkafla, þar sem höf-
undur vitnar til prentaðra og óprent-
aðra heimilda, einkum bréfa og
greina. I umfjöllun sinni um baráttu
Geirunga á þjóðhátíðaráratugnum
sýnir hann hvemig þeir leituðust við
að halda uppi vörn fyrir réttindum
íslands á grundvelli stefnu Jóns Sig-
urðssonar forseta, sem var driffjöður
aðgerða Atgeirsins. Kemur þar
margt forvitniiegt fram, sem snertir
framgöngu ýmissa kunnra persóna
í íslensku þjóðlífi á þessu tímabili
og síðar. Hinir ungu ryðjast fram
af ofurkappi, en hinir eldri og var-
færnari hneykslast á framferði
þeirra.
í Jóni Sigurðssyni og Geirungum
eru heimildaskrár yfir prentuð rit
Dr. Lúðvík Kristjánsson
og handrit, mannanafnaskrá og eft-
irmáli höfundar. Alls er bókin 293
bls. að stærð og prýdd fjölda mynda
af þeim er við sögu koma. Kápu og
skreytingu á bókarspjöld gerði
Margrét E. Laxness. Jón Sigurðsson
og Geirungar er unnin í Prentsmiðju
Hafnarfjarðar.
(Fréttatilkynning)
frá
Breyting síðasta
V estmannaeyjar:
336 sjómenn lokið námi
frá Björgunarskólanum
Vestmannaeyjum.
SÆBJÖRG, skip Björgunarskóla sjómanna, hefur verið í Eyjum und-
anfarið þar sem Eyjasjómenn hafa sótt skólann. Tvö námskeið voru
haldin í Eyjum að þessu sinni og sóttu 109 sjómenn námskeiðin.
Seinna námskeiðinu var slitið fyr-
ir skömmu og kom þá fram að alls
hafa 336 sjómenn frá Eyjum lokið
námi við skólann. Skólinn hefur
komið til Eyja á hverjum vetri og
haldið námskeið með nemendum
Stýrimannaskólans og Vélskólans
en einnig hafa verið haldin almenn
námskeið fyrir sjómenn.
Þórir Gunnarsson, skólastjóri,
sagði við skólaslitin að forráðamenn
skólans hefðu alltaf átt gott sam-
starf við Eyjamenn sem hefðu ávallt
sýnt það í verki að þeir skildu vel
þann tilgang skólans að auka öryggi
sjómanna við störf á hafi úti. Af-
henti Þórir fulltrúum Sjómannafé-
lagsins Jötuns, Útvegsbændafélags-
ins, Björgunarfélags Vestmanna-
eyja, Slysavarnadeildarinnar Ey-
kyndils, Skipstjóra- og stýrimanna-
félagsins Verðandi og Vélstjórafé-
lags Vestmannaeyja áletraða skildi
sem þakklætisvott fyrir gott sam-
starf.
Nemendur sem útskrifuðust af
námskeiðinu voru mjög ánægðir með
það og töldu sig hafa bætt mikið
við þekkinguna. Þeir töldu að engu
væri ofaukið í kennsluefni skólans
og helst þyrfti að lengja námskeiðin
um einn dag til þess að tími gæfist
til að taka fyrir skipið og búnað
þess því þrátt fyrir öll björgunartæki
þá væri skipið og búnaður þess allt-
af besta öryggistækið ef rétt væri
með farið.
Heilu áhafnir nokkurra báta tóku
þátt í námskeiðinu nú og sagði Þór-
ir að það væri mjög gott að fá heilu
áhafnirnar á námskeiðin.
Sæbjörg er nú á hringferð um
landið og verða námskeið haldin á
nokkrum stöðum. í áhöfn skipsins á
hringsiglingunni eru níu manns en
fimm kennarar starfa við skólann
allt árið.
Grímur
Verðbólgan komin 1
12,8% í þessum mánuði
VERÐBÓLGAN hefur verið í örum vexti undanfarna tvo mánuði
og þriggja mánaða hækkun hennar umreiknað til eins árs hefur
vaxið úr innan við 5% í apríl í 12,8% nú i júní.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar segir að það sé
ákveðinn kúfur á verðbólgunni nú
og ráði tvennt þar mestu um, ann-
ars vegar hækkun bifreiðatrygg-
inga sem kom inn í vísitöluna í maí
og hækkun húsnæðisvaxta sem
kom inn í vísitöluna í júní. Því sé
ekki ástæða til að ætla annað en
það dragi ört úr verðbólgunni næstu
mánuðina. Meðfylgjandi er línurit
yfir verðbólguþróunina frá því þjóð-
arsattarsamningarnir voru gerðir í
febrúar 1990. Á línuritinu er að
finna mánaðarlega breytingu verð-
bólgunnar umreiknaða til árshækk-
unar, hækkun síðustu þriggja mán-
aða umreiknað til árshækkunar og
verðbólguna síðustu 12 mánuði.