Morgunblaðið - 14.06.1991, Qupperneq 27
27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1991
Þeir bestu verða betri
Útskriftarnemendur frá Kennaraháskóla íslands.
Dalvík:
33 sérkennarar út-
skrifaðir frá Kenn-
*
araháskóla Islands
Daivík.
ÚTSKRIFAÐIR voru 33 sérkennarar frá Kennaraháskóla íslands
við hátíðlega athöfn að Stórutjörnum sunnudaginn 2. júní sl. Um er
að ræða nemendur úr fyrri hluta BA-náms í sérkennslu en námið
hefur farið fram á Norðurlandi og hófst árið 1989. Ákveðið hefur
verið að bjóða upp á seinni hlutann og mun kcnnsla hefjast nú í haust.
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Eldfuglarnir („Fire Birds“).
Sýnd í Háskólabíói. Leikstjóri:
David Green. Aðalhlutverk:
Nicholas Cage, Tommy Lee
Jones, Sean Young, Bryan
Kestner, Dale Dye. Bandarík-
in. 1990.
í myndinni Eldfuglarnir leikur
Nicholas Cage þyrluflugmann í
læri hjá Tommy Lee Jones,
gamalreyndum bardagahundi,
en Sean Young er gamla kær-
asta Cage og þyrluflugmaður
líka. Cage er að sjálfsögðu betri
en sá besti af þeim bestu í þyrlu-
skólanum (slagorð myndarinnar
er: Þeir bestu geta aðeins orðið
betri) en það besta við myndina
er hvað hún er ákveðin í að halda
sínu striki sem ein stór klisja út
í gegn. Allt í henni hefur verið
notað áður. Myndin gæti þess
vegna komið frá Sölunefnd varn-
arliðseigna.
Tommy Lee fær sérstakan
áhuga á Cage vegna færni hans
í háloftunum en líka af því hann
sér í honum hina sönnu, djörfu
og framúrskarandi greindu
bandarísku hetju sem tilbúin er
að beijast fyrir frelsi og gegn
bófum hvar sem er í heiminum
(hvatningaræðan hans hittir
mann reyndar ekki í hjartastað).
Illingjamir í myndinni koma úr
einkageiranum en það eru s-
amerískir kókaínbarónar sem
búnir eru öllum nútímalegustu
stríðstólum sér til verndar, m.a.
flugvélum og þyrlum. Sá besti
af þeim verstu er þyrlufiugmað-
ur að nafni Stoller og hann drep-
ur vin þess besta af þeim bestu
í byijun myndarinnar svona til
að hafa hefndarþemað enn einu
sinni með.
Einna greindarlegustu setn-
ingarnar í handritinu lúta að
praktískum hlutum: Ég þarf að
mæta á lágflugsæfingu klukkan
núll áttahundruð. Hinn haukfrái
Stoller vekur líka foi’vitni því svo
virðist sem ljósmyndari bandar-
ísku leyniþjónustunnar hafi flog-
ið með honum margar ferðir ef
eitthvað er að marka gæði leyni-
legu njósnamyndanna úr þyrl-
unni hans.
Á meðan beðið er eftir loka-
bardaganum fáum við að fylgj-
ast með hvernig Cage nær Yo-
ung aftur á sitt band en slitnað
hafði uppúr sambandi þeirra
áður en myndin bytjaði. Einnig
fáum við að fylgjast með honum
slá í gegn í skóianum. Og við
fáum að fylgjast með hvernig
vinskapur hans og Tommy Lee
þróast þar til þeir eru orðnir
ásáttir um að Cage sé besti flug-
maðurinn en Tommy besti
flugkennarinn.
Stjörnurnar í myndum af
þessu tæi eru stríðstólin og þyrl-
urnar eru sannarlega ævintýra-
leg tæki og tignarlega myndaðar
í blóðrauðu sólarlagi (fátt nýtt
þar reyndar). Það er stundum
gaman að Cage, súpersvalur eins
og alltaf, og Tommy Lee af því
þeir fá að vera hæfílega léttir á
bárunni en Young, sem annars
er ágætis leikkona, skortir trú-
verðugleika í stöðunni. Lokabar-
daginn, þetta sem allir hafa ver-
ið að bíða eftir, bregst ekki.
En þessi mynd staðfestir því
miður ótta manns um að útilokað
sé að gera vitrænar bíómyndir
um flugskólahetjur í flottum
samfestingum og með skæsleg
sólgleraugu.
Fyrri hluti sérkennslunámsins er
metinn til 30 námseininga og hefur
náminu verið dreift í 2 ár. Námið
hefur verið skipulagt með fjar-
kennslusniði en nemendur hafa
mætt til nokkurra tveggja vikna
námskeiða sem haldin hafa verið í
heimavistarskólum á Norðurlandi.
Þess á milli hafa nemendur unnið
verkefni undir leiðsögn kennara.
Að sögn umsjónarmanna námsins,
Kristínar Aðalsteinsdóttur og Þóru
Kristinsdóttur, hefur þetta fyrir-
komulag reynst vel og var námsár-
angur nemenda mjög góður. Góð
reynsla fékkst af þessu námsfyrir-
komulagi í sérkennslu á Austur-
landi sem lauk 1989 en ráðgert er
að hefja í haust kennslu til fyrri
hluta náms á Vesturlandi og Vest-
fjörðum með sama hætti.
Við útskrift nemenda flutti Krist-
ín Aðalsteinsdóttur umsjónarmaður
með náminu ræðu og rifjaði upp
það helsta sem gerst hafði á náms-
tímanum. Kom fram hjá henni að
alls hefðu 36 nemendur hafið nám-
ið en fjórir hætt á námstímanum
og einn nemandi bæst í hópinn
þannig að alls urður nemendur 33
sem útskrifuðust. Flestir nemend-
anna voru af Norðurlandi, 19 kenn-
arar af Norðurlandi eystra, 3 af
Norðurlandi vestra og 11 nemendur
úr öðrum fræðsluumdæmum af
Suðurlandi, Vesturlandi og úr
Reykjavík. Sýndi þetta allvel áhuga
nemenda og þörf fyrir auknum
möguleikum kennara til framhalds-
menntunar. Kristín greindi frá því
að Kennaraháskóli islands hafði
ákveðið að bjóða upp á síðari hluta
sérkennslunáms til BA-prófs, 30
námseiningar, og yrði námsfyrir-
komulag með sama móti. Kennsla
færi fram á Norðurlandi og hef|t
námið í haust. 27 nemendur af þeim
hópi sem nú útskrifaðist hefur skráð
sig í síðari hlutann.
Við útskriftina afhenti Hjalti
Hugason rektor Kennaraháskóla
íslands nemendum prófvottorð og
ávarpaði þá. Gerði hann kennara-
menntunina að umræðuefni og kvað
mikilvægt að efla öll stig kennara-
menntunar, grunnmenntun, sí-
menntun og framhaldsmenntun.
Hingað til hefðu íslenskir kennarar
átt lítinn valkost í framhaldsnámi
innanlands og þurft að sækja alla
viðbótarmenntun til annarra landa.
Með nýjum lögum um Kennarahá-
skóla væri ákveðið að lengja kenn-
aranám í fjögur ár og jafnfravöt.
hefði skólinn í fyrsta skipti öðlast
heimild til að bjóða upp á nám í
uppeldis- og kennslufræðum til
mastersgráðu. Hvenær af því gæti
orðið réðist af fjárveitingum til skól-
ans en unnið væri í skólanum að
undirbúningi þess.
Auk Kristínar og Hjalta fluttu
ávörp við útskriftina Trausti Þor-
steinsson fræðslustjóri, Kolbrún
Gunnarsdóttir sérkennslufulltrúi
ríkisins ásamt nemendunum Ás-
gerði Ólafsdóttur kennara úr
Reykjavík og Rósu Eggertsdóttur
kennara úr Eyjafirði.
- Fréttaritari
• Urval verkfæra - garðtækja, agrýl- og plastdúka
•Jurtalyf.
• Upplýsingar og ráðgjöf sérfræðinga á staðnum
REYNSLA - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA
sss.
Jl IPjf ;/ li 3- J
% > k < '■f , ^
Jb