Morgunblaðið - 14.06.1991, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1991
29
Jensína Egilsdóttir,
Hafnarfirði — Minning
Fædd 21. september 1905
Dáin 5. júní 1991
Með nokkrum þakkarorðum vil
ég kveðja Jensínu Egilsdóttur.
Fyrst fyrir það, hversu hún var mér
alltaf blíð og góð eða allt frá
bernskudögum, þegar við Sigur-
geir, sonur hennar, lékum okkur
saman. Þá geymist í þakklátum
huga ræktarsemin, sem systir mín
varð aðnjótandi hjá Jensínu og
Guðrúnu, dóttur hennar. Einnig ber
að þakka þá minnisstæðu mann-
gæsku, sem Jensína'sýndi Sigurvin
heitnum Guðmundssyni, sem flestir
gamlir Hafnfirðingar þekktu og var
tryggur vinur minn. Hann fann sitt
skjól ungur að árum hjá þeim
hjartahlýju hjónum, Jensínu og
Gísla Sigurgeirssyni, sem lést 1980.
Átti hann síðan athvarf á heimili
þeirra allt til eliiára. Eiga eftirfar-
andi orð úr heilagri ritningu vel við
um kærleiksverkin, sem Sigurvin
fékk þar að njóta: „Sannarlega segi
ég yður, svo framarlega sem þér
hafið gjört þetta einum mínum
minnstu bræðra, þá hafið þér gjört
mér það.“
Loks verður seint fullþökkuð sú
einlægða tryggð, sem Jensína sýndi
bindindishugsjóninni allt sitt líf.
Hún lá aldrei á liði sínu með varnað-
arorð gagnvart því mikla böli og
tjóni, sem áfengið veldur, en því
miður flestir virðast loka augunum
fyrir. Hún var frá barnsaldri virk í
starfi fyrir Góðtemplararegluna og
gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum
til dauðadags.
Það var á stúkufundi 15. apríl
sl., sem fundum okkar Jensínu bar
síðast saman. Þá lék hún undir söng
á gamla orgelið í Góðtemplarahús-
inu í Hafnarfirði. Finnst mér einkar
táknrænt, að það skyldi einmitt
vera þar og í söngnum, sem bundin
er mín síðasta minning um Jensínu.
Svo sannarlega var söngurinn
hennar mesta yndi. Þannig var hún
t.d. 62 ár í kirkjukór Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði og á yngri árum við
söngnám hjá Sigurði Birkis og fleir-
um. Þá var Jensína um tíma þátt-
takandi í leiklistarstarfi í sínum
heimabæ og kom sér þá vel að
hafa góða sönghæfileika.
Hún var mikilhæf húsmóðir með
tign í fasi. Það var menningarbrag-
ur á hinu hlýlega heimili Jensínu
og Gísla á Strandgötu 19. Ógleym-
anlegar eru mér stundirnar þar við
veglegar góðgerðir, söng, tónlist og
tafl og aðra heilbrigða gleði í hópi
góðra vina.
En framar öðru var Jensína börn-
um sínum hin besta móðir, sívak-
andi yfír velferð þeirra og annarra
afkomenda. Þannig fór hún í heim-
sóknir til dætranna Jensínu, Marín-
ar og Öglu, sem búa erlendis, og
naut ríkulega þeirra mörgu ferða.
Við fráfall Jensínu Egilsdóttur hef-
ur Hafnarfjörður misst eina af sín-
um bestu dætrum, sem alla tíð hélt
tryggð við Fjörðinn og vildi hag
bæjarins og Hafnfirðinga sem
blómlegastan. Minningu hennar
verður mestur sómi sýndur með því
að efla það mannbótastarf, sem
henni var hjartfólgnast: Að vara
við áfenginu, mesta bölvaldinum í
þjóðlífínu, og beijast gegn drykkj-
utískunni í krafti trúar og kær-
leika. Megi sú barátta bera ríkuleg-
an ávöxt.
Göfug kona er kvödd með virð-
ingu og einlægri þökk.
Árni Gunnlaugsson
Allt okkar líf stefnir á einn veg,
að kveðjustund við banabeð. Við
virðumst sjaldan viðbúin þessari
stund. Hún kemur okkur alltaf
að óvörum.
Einn fagran sumardag í síðustu
viku kvaddi amma mín, Jensína
Egilsdóttir, þennan heim. Hún hafði
veikst alvarlega 18. maí síðastliðinn
og var þá strax lögð inn á St. Jós-
efsspítalann í Hafnarfírði og þar lá
hún þar til yfír lauk við góða
umönnun hjúkrunarliðs og lækna.
Jensína Egilsdóttir var fædd í
Hafnarfirði 21. september 1905 og
ól þar allan sinn aldur. Hún var
elst 9 barna hjónanna Þórunnar
Einarsdóttur og Egils Guðmunds-
sonar sjómanns. Var komin af miklu
dugnaðar- og atgervisfólki.
Þegar amma mín var að alast
upp var sá hugsunarháttur ráðandi
að nóg væri að stúlkur lærðu að
matbúa og bæta bót á fat svo að
þær yrðu góðar húsmæður. Hugur
ömmu stóð hins vegar til meiri
mennta og hún þráði mjög að setj-
ast á skólabekk. Gísli, afi minn,
skildi þessa menntalöngun hennar
og þegar þau höfðu verið í hjóna-
bandi í eitt ár fór amma mín í nám
við Húsmæðraskólann á ísafirði.
Hún giftist afa mínum, Gísla Sig-
urgeirssyni, 27. september 1925.
Þau eignuðust 7 börn og eru 5
þeirra á lífi. Þau bjuggu alla tíð á
Strandgötu 19.
Það er erfítt í örfáum orðum að
lýsa jafn sterkri persónu og Strand-
götuamma var. Hún var einstök og
ógleymanleg þeim sem henni kynnt-
ust. Ávallt leit ég á heimili hennar
og afa míns sem mitt annað heim-
ili. Þar var hlýleikinn og gestrisnin
í öndvegi og í þeim efnum voru þau
afi minn og amma einkar samiýnd.
Amma var að mörgu leyti mikill
listamaður í sér. Söngelsk var hún
og hafði með afbrigðum mikla og
sterka sópranrödd. í meira en 60
ár söng hún í Fríkirkjukórnum í
Hafnarfírði og hún hafði yndi af
ljóðum. Þegar ég drakk með henni
kaffisopa í síðasta sinn 16. maí sl.,
las hún upp fyrir mig úr bókinni
um Skáld-Rósu. Hún var ákaflega
leikin í öllum sínum verkum og
hafði þann hæfileika að geta gert
bæði mikið og fallegt úr litlu efni.
Blómaskreytingar hennar þóttu
með afbrigðum. Félagslynd var hún
og dugleg að drífa sig á manna-
Egilsstaðir:
Myndlistasýning í Grunnskólanum
Egilsstöðum.
BORGFIRÐINGARNIR Elías B. Halldórsson og Eyjólfur Skúlason
verða með myndlistarsýningu í Grunnskólanum á Egilsstöðum 15.-17.
júní nk.
Báðir eru þeir Elías og Eyjólfur
fæddir á Snotrunesi í Borgarfirði
eystra en búa nú hvor á sínu lands-
hominu. Elías í Kópavogi en Eyjólf-
ur á Egilsstöðum. Elías á fjölda
sýninga að baki en Eyjólfur er að
taka þátt í sinni fyrstu sýningu og
eru myndefnin ólík.
Eyjólfur dregur drumba og reka-
lurka úr fjörum bænda í Borgar-
firði og gerir úr þeim mögnuð tré-
skurðarverk. Þessa iðju hefur Eyj-
ólfur stundað í frístundum í mörg
ár. Aldrei hefur hann sest á skóla-
bekk til að nema þennan galdur
heldur spretta verkin út úr hugar-
heimi Eyjólfs mótuð af efninu og
ómenguðum náttúrukraftinum.
Elías hefur getið sér gott orð sem
listmálari. Hann hefur haldið fjölda
einkasýninga auk þess að vera með
verk á samsýningum. Um tíma var
hann eini atvinnumálarinn sem bjó
og starfaði úti á landi. Á sumrin
skreppur Elías gjarnan í sumarbú-
stað sinn í Borgarfirði og gætir
þess gjarnan í myndefnum hans.
Annars eru málverk Elíasar oft af-
strakt eða fígúratíf þótt landslag
sé einnig myndefni hjá honum.
Einnig hefur Elías lagt rækt við
grafískar myndir og verða þær all-
margar á þessari sýningu. Elías
lærði myndlist og verða þær all-
margar á þessari sýningu.
Sýning Elíasar og Eyjólfs verður
opnuð í Grunnskólanum á Egils-
stöðum dagana 15., 16. og 17. júní.
- Björn
Elías B. Halldórsson
Eyjólfur Skúlason
mót. Yndi hafði hún af ferðalögum
og mikla ánægju og gleði höfðu þau
afí af að heimsækja dætur sínar í
Austurríki og Bandaríkjunum. Síð-
astliðinn vetur dvalái hún í sex
mánuði hjá dætrum sínum sem
búsettar eru í Rhode Island. Að
lokum vil ég þakka allt það sem
hún amma mín var mér og mínum.
Ég kveð hana með þessu erindi
eftir Magnús Ásgeirsson skáld:
En minning þín er mjúk og hlý
og mun oss standa nærri.
Með hveiju vori hún vex á ný
og verður ávallt kærri.
Ef lífsins gáta á lausn er til,
þær ljóma bak við dauðans þil.
Og því er gröfin þeim í vil
sem þráðu útsýn stærri.
Halla Snorradóttir
í dag verður elskuleg mágkona
mín, Jensína Egilsdóttir, jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Hún
lést 5. júní sl. eftir stutta sjúkdóms-
legu.
Jensína fæddist í Hafnarfirði 21.
september 1905. Hún var elst í níu
barna hópi hjónanna Egils Guð-
mundssonar sjómanns frá Hellu og
Þórunnar Einarsdóttur. Áður voru
látin 5 systkini: Sigríður, Guðmund-
ur, Nanna, Gísli Jón og Ingólfur,
en 3 eru á lífi: Einar, Gunnþórunn
og Svanhvít.
Jensína giftist Gísla Sigurgeirs-
syni, verkstjóra, í september 1925.
Varð þeim 7 barna auðið, en þau
urðu fyrir þeirri sáru sorg að missa
2 þeirra á fyrsta ári.
Hin börnin eru: Sigurgeir, skrif-
stofumaður í Hafnarfriði, kvæntur
Sigríði Ben Sigurðardóttur; Jens-
ína, gift Pat Olivo, sölumanni, bú-
sett í Bandaríkjunum; Guðrún, var
gift Snorra Jónssyni, kennara; Mar-
in, gift Helmut Neumann, deild-
arstjóra í menntamálaráðumeytinu
í Vín; Þórunn Agla, var gift David
Goff, búsett í Bandaríkjunum.
Barnabörnin era 24, langömmu-
börnin 37 og langalangömmubörnin
6, svo alls átti Jensína 72 afkom-
endur á lífi. Er þetta allt hinn mann-
vænlegasti hópur og hefur Jensína
borið einstaka umhyggju fyrir öllum
afkomendum sínu og þau fyrir
henni, þannig að samskipti þeirra
hafa verið mjög náin og einkennst
af einstakri hlýju.
2 dætur Jensínu era búsettar í
Bandaríkjunum og 1 í Austurríki
og dvaldi hun oft hjá þeim í lengri
eða skemmri tíma, nú síðast hjá
dætram sínum í Bandaríkjunum um
nokkrra mánaða skeið. Var hún
nýkomin þaðan, að því er virtist
glöð og hress, þegar hún fékk heila-
blóðfall og hné niður. Rúmum hálf-
um mánuði síðar var hún látin.
En það var ekki eingöngu nán-
asta fjölskylda, sem Jensína lét sér
annt um. Gísli og Jensína bjuggu
allan sinn búskap á Strandgötu 19
í hjarta Ilafnarfjarðar og var alltaf
opið hús fyrir gesti og gangandi.
Ég og mín fjölskylda minnumst
sérstaklega jólaboðanna hennar
Jensínu, þar sem allir ættliðir komu
saman. Þar var rausnarlega veitt,
farið í jólaleiki og óspart tekið lag-
ið, eins og reyndar alltaf, þegar
þessi söngelska fjölskylda kom
saman. Ég hef hvergi vitað meira
sungið en í Strandgötunni. Þá sett-
ist Gísli við hljóðfærið og allir tóku
undir.
En Jensína stóð samt ekki ein í
þessu, því Gísli heitinn maður henn-
ar stóð við hlið hennar og voru þau
einstaklega samhent í því að taka
á móti gestum og svo að sjálfsögðu
börnin, þegar þau uxu úr grasi.
Aðalstarf Jensínu var húsmóður-
starfið, sem hún rækti svo til fyrir-
myndar var, enda bera börnin henn-
ar þess glöggt vitni með sínu alúð-
lega viðmóti, hve mikillar umhyggju
þau hafa notið í uppvextinum.
Jensínu var margt til lista lagt.
Hún hafði mikla söngrödd, sem hún
hafði þjálfað í söngnámi hjá Sigurði
Birkis. Söng hún alla tíð í Fríkirkj-
unni í Hafnarfriði og einnig í Tón-
listafélagskórnum undir stjorn Vict-
ors Urbancics.
Einnig lagði hún stund á leiklist
og lék m.a. með Leikfélagi Hafnar-
íjarðar. Um tíma rak hún blóma-
verslun og voru blómaskreytingar
hennar annálaðar fyrir smekkvísi.
Jensína var einnig mjög félags-
lynd og gegndi mörgum trúnaðar-
störfum í Góðtemplarareglunni í
Hafnarfírði og var í stjóm Kvenfé-
lags Fríkirkjunnar. Var hún afburða
duglega og lét sig ekki muna um
að Ieysa af sem matráðskona hjá
Hafnarfjarðarbæ þar til hún var 84
ára gömul.
Það sem mest var áberandi í fari
Jensínu var hinn óbilandi kraftur,
sem hún bjó yfir. Hún var ákaflega
hispurslaus og ákveðin og lét í ljósi
skoðanir sínar umbúðalaust jafnt
við háa sem lága. Samt var hún
einstaklega hlý og einlæg og mátti
ekkert aumt sjá, enda hafa margir
minni máttar í þjóðfélaginu leitað
skjóls hjá henni.
Ég vil að lokum þakka Jensínu,
mágkonu minni, þann hlýhug og
þá velvild, sem hún hefur ávallt
sýnt okkur Einari og börnum okk-
ar. Við vottum bömum hennar og
öðrum nákomnum ættingjum inni-
lega samúð og megi þau geyma
minningu um heilsteypta konu og
góða móður. Blessuð sé' minning
hennar.
Margrét Thoroddsen
philips Whirlpool
KÆLISKÁPUR
• 198 lítra kælirými
• 58 lítra frystirými (****)
• Sjálfvirk afþýðing
• Stór grænmetisskúffa
• 4 stillanlegar hillur
• Hægt er að velja á milli
hægri eða vinstri handar
opnun á hurð
• HxBxD: 159x55x60 sm
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNI SI'MI 6915 20
C samun^uMt