Morgunblaðið - 14.06.1991, Síða 34

Morgunblaðið - 14.06.1991, Síða 34
11 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 14. JUNI 1991 fclk í fréttum Morgunblaðið/Sverrir Bubbi og Rúnar Júl á fullri ferð á æfingu í Lídó í vikunni. nætoruSð Aherslubreyting í Lídó Nýir eigendur hafa yfirtekið skemmtistaðinn Lídó í Lækj- argötu og að sögn talsmanns þeirra, Jóhanns Kristjánssonar, verður mikil áherslubreyting á því sem boðið verður upp á framvegis. „Við ætlum alveg að láta þetta hipphopp fyrirbæri lönd og leið, reyna að höfða til yfir tvítugra með góðri dansmúsík og rokki. Þá ætlum við að reyna að keyra á lifandi tónlist á föstudagskvöldum," sagði Jóhann í samtali við Morgunblaðið og orð- um sínum til áréttingar gat hann þess, að í kvöld myndu þeir spila saman í fyrsta sinn opinberlega Bubbi Morthens og Rúnar Júlíus- son. Um helgina kemur hljómsveit þeirra félaga GCD fram í fyrsta sinn fram á Krikarokkhátíðinni. Þeir Bubbi og Rúnar byija um klukkan 23 í Lídó. Jóhann sagði að slíkt atriði á opn- unarkvöldi væri forsmekkurinn af því sem koma skyldi. Reynt yrði að halda áfram á sömu braut. „Það er mikið á dágskrá hjá okkur, þann- ig verðum við með tískusýningu annað kvöld þar sem hópur fólks frá Módelsamtökunum sýnir vörur frá Flex,- Adam og Plexígleri," bætti Jóhann við. Morgunblaðið/Þorkell Steingrímur (Pálmi Gestsson) Hermannsson vígir hinn nýja skemmtistað að viðstöddum fjölda gesta. NÆTURLIFIÐ Ingólfskaffi endurvakið Vasadiskó m/heyrnatóli, án útvarps kr. 1.990,-, með útvarpi kr. 2.790,- Elta stereo ferðatæki m/kasettu kr. 4.990,- Fuji myndavél FZ-5 ' kr. 2.949,- Fuji myndavél dI-25 kr. 3.990,- Nýr skemmtistaður hefur verið opnaður, Ingólfskaffi heitir hann og má segja að hann sé bæði nýr og gamall, því nákvæm- lega þar sem Ingólfskaffi er nú, var Ingólfskaffi árið 1936, þekktur skemmtistaður í þá tíð. Og meira og minna allar götur síðan hefur verið þarna skemmti- eða veitinga- rekstur, nú síðast Óperukjallarinn og Arnarhóll. Eigandi Ingólfskaffís hins nýja er best þekktur undir nafninu Guffí á Gauknum þótt hann sé ekki lengur bendlaður við Gaukinn, heldur veitingastaðinn Jónatan Livingston Máf. „Við tókum húsnæðið allt til end- urnýjunar, breyttum og byltum. Nú er þarna notalegt rými með sérstæðum veggskreytingum eftir kólombíska myndlistanmanninn Cheo Cruz. Hugmyndin er að hafa skemmtistað fyrir aldurshópinn 25 til 45 ára, en það er alls ekki ald- urstakmarkið og markaðurinn verður að ráða sínu um það hvað verður. Ætlunin er að það verði klassi yfir þessum stað. I því skini er m.a. píanóbar á efri hæðinni," segir Guffi. En er hann ósmeykur að steypa sér út í hinn harða sleg skemmtistaðareksturs í Reykjavík: jjÉg segi það ekki. Ég held því ekki fram að það sé ekki beygur í manni. Þarna hafa hins vegar verið vel sóttir staðir á undan okk- ur og ef okkur heppnast að ná þarna upp kiassa og góðu and- rúmslofti óttast ég ekki að dæmið gangi upp,“ svarar Guffi. Elta hljómtækjasamstæða Goldstar sími og símsvari m/geislaspilara kr. 32.987,- kr. 10.900,- TOLUULÆIND Borgarkringlunni, sími 688819 LDE IPER mm 2 Opnunartíiboé Við bjóðum þennan fróbæra poka ó aðeins 8.990 kr. Borgarkringlunni, sími 679955

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.