Morgunblaðið - 14.06.1991, Qupperneq 41
MORGÚNBLAÐÍÐ FÖSTUDAGÚR 14. JÚNÍ1991
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
,ur
Þessir hringdu ...
Óþarfir aðstoðarmenn?
Sigurður Grímsson hringdi:
„í tilefni af spamaðarhjali ríkis-
stjórnarinnar eru margir að furða
sig á ráðningum ráðherra á að-
stoðarmönnum, sem er ekkert
annað en pólitískur bitlingur að
mínu mati. Ráðherrar ættu að
nýta þann starfskraft sem fyrir
er í ráðuneytunum. Ég veit ekki
betur en að það séu tveir eða fleiri
stjórar í hveiju ráðuneyti sem
aettu að geta sagt ráðherranum
eitthvað til ef með þarf.“
Páfagaukur
Blár páfagaukur fannst 11. júní
í Vesturbænum. Upplýsingar í
síma 14968.
Gleraugu
Gleraugu fundust við Lauga-
rásveg þriðjudaginn 11 júní. Upp-
lýsingar í síma 39414.
Hálsmen
Hálsmen með bogmannsmerki,
merkt „Guðni“, fannst fyrir utan
Hótel ísland. Upplýsingar í
síma 667665.
Næla
Næla úr silfri, kopar og mess-
ing tapaðist fyrir u. þ. b. mánuði.
Finnandi er vinsamlegast .beðinn
að hringja í síma 666200 og biðja
um síma 189.
Úr
Armbándsúr með svartri ól tap-
aðist fyrir skömmu, sennilega við
göngugötuna við Kleppsveg 152
til 134. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 818961.
Páfagaukur
Hvítur og spakur páfagaukur
flaug út um glugga í Ásbúð í
Garðabæ. Vinsamlegast hringið í
síma 44709 ef hann hefur ein-
hvers staðar komið fram.
Gleraugu
Gleraugu í svörtu hulstri fund-
ust fyrir nokkru á túninu fyrir
fráman Fáksheimilið. Upplýsingar
í síma 688119.
Skór
Fótboltatakkaskór nr. 34 tap-
aðist í nágenni við Þróttheima við
Holtaveg. Upplýsingar í síma
33461.
Kettlingar
Tveir átta vikna kassavandir
kettlingar fást gefíns. Upplýsing-
ar í síma 612274 eða síma
611082.
Húrrafyrir
Flugferðum
Mig langar að koma á framfæri
þökkum til ferðaskrifstofunnar
„Flugferðir — Sólarflug" fyrir að
gefa íslendingum kost á ódýru flugi
til útlanda. Eg fór nýlega á þeirra
vegum til London, kostaði farið
14.800 kr., mjög þægileg ferð með
afbragðs þjónustu.
Þar sem þessi ferð varð mér ódýr
og ótrúlega mikil upplyfting, þótt
stutt væri, ákvað ég þegar heim kom
að eyða því sem eftir er af sumarfrí-
inu í Danmörku, ef ég fengi ódýrt
far. Það tókst og hlakka ég nú til
að skreppa til Kaupmannahafnar í
haust. Mér fínnst ástæða til að benda
fólki á þessa ódýru ferðamöguleika
hjá Flugferðum — Sólarflugi.
Þ.B.
Týndur köttur
Fullvaxinn fressköttur, gulur á
bakinu, með gult skott, hvítar fæt-
ur og kvið, fór á flakk í Breiðholti
fyrir skömmu. Vinsamlegast hring-
ið í síma 30677 ef hann hefur ein-
hvers staðar komið fram.
Ofremdarástand á vegum úti
8. júní sl., nokkru eftir hádegi,
var sá sem þetta ritar í bíl sínum á
leiðinni í Hveragerði. Er komið var
að brekkunni í Hveradölum, mátti
sjá þar viðvaranir um vegavinnu og
hættu á steinkasti. Þar voru skýr
fyrirmæli um 35 km hámarkshraða
á klukkustund. Ég var nú svo einfald-
ur, að ég dró úr hraðanum niður í
35 km hraða í samræmi við hin skýru
fyrirmæli, enda mátti annars búast
við steinkast. En viti menn. Brátt
bar að marga bíla, er fóru miklu
hraðar en ég, og voru ökumenn lík-
lega á 60-70 km hraða. Þeir geyst-
ust framhjá og jusu steinum yfir bif-
reið mína. Sama var að segja um
bfla, sem á móti komu. Þetta var
eins og að lenda í stöðugri skothríð,
sem buldi á bílnum.
Og nú spyr ég: Hvers vegna í
ósköpunum er þetta svona? Hver er
réttur þeirra einfeldninga, sem virða
fyrirmæli um hraða, en lenda þá í
þessu? Eða eiga þeir kannski engan
rétt? Af hveiju virða margir ökumenn
ekki reglurnar, setja líf og limi
manna í hættu, svo og annarra eig-
ur? Þetta spillir og fyrir vegavinn-
unni, því að steinamir þeytast burt.
Af hveiju er ekki strangara eftirlit
með því, að farið sé eftir reglum um
hámarkshraða? Af hveiju er ekki
unnt að tiikynna í fjölmiðlum með
nokkrum fyrirvara um slíkar „steink-
asts“-viðgerðir á vegum úti? Þá væri
unnt að velja aðrar leiðir. Og ef fram
hefðu komið upplýsingar um þessa
vegavinnu, t.d. nokkru fyrir vegamót
við Þrengslaveg, hefði ég hiklaust
valið þá leið, þótt hún sé nokkm
lengri. Það er betra en að lenda í
þessu.
Það er eins og eitthvað skorti á
í þjóðarappeldi í umferðarmálum.
Allt of margir virða ekki reglurnar,
m.a. reglur um hámarkshraða. Okk-
ar ágætu löggæslumenn vinna oft
gott starf í hraðaeftirlitinu. En eru
þeir nógu margir, og eru sektimar
hæfilegar þungar, þannig að menn
læri nú vel af þessu? Er ekki unnt
að kenna mönnum að aka á tillits-
saman hátt? Ýmislegt hefur vissu-
lega verið reynt á þessu sviði, en er
árangurinn nógu góður? Er eitthvert
vit í því, að þeir, sem virða reglum-
ar, verði fyrir hörðu aðkasti eða öllu
heldur steinkasti í bókstaflegri merk-
ingu? Ég hallast að því, að í umferð-
armálum þurfum við meira af hald-
góðum upplýsingum og jákvæða
hvatningu til fjöldans — og einnig
strangari aga og aðgerðir fyrir þá
sem skilja ekki annað.
Allreyndur ökumaður
iH
LEITSAPA
jyrirviðkvœtna húð -
Ungbörn hafa viðkvæma húð sem verður fyrir mik
illi ertingu, t.d. á bleiusvæði. Þvottur með
Lactacyd léttsápunni dregur verulega úr kláða
og sviða ■ Lactacyd léttsápan hefur lágt pH-
gildi (3,5) eins og húðin sjálf
jgft ílfp og styrkir því eðlilegar varn-
ir hennar ■
Lactacyd léttsápan fæst í
helstu stórmörkuðum og
að sjálfsögðu í næsta
apóteki ■
é b' ' '
' SNÆFEUSNÉS^
VM HEIGIM?
- Einstœö náttúrufegurö - Falleg strandlengja -
- Fjölbreytt fuglalif - Sigling um Breiöafjarðareyjar
- Sigling út i Flatev - Snjósleöaferöir á Snœfellsjökul
- Veiöi fyrir alla jjölskylduna - Hestaleigur -
- Gönguferöir - Golfvellir - Sundlaugar - Söfn -
- Skemmtilegar dagleiöir m.a. fyrir Jökul,
í Borgarfjörð, í Dalina og á Baröaslrönd -
-17. júni hátiöarhöld á öllum þétlbýlisstööum -
- Daglegar rúluferöir
- Góður matur og gisting á öllu Nesinu
VELKOMIN VESTVR
Ferðaþjónustuaðilar á Snæfellsnesi
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Strigaskór
Litir: Bláirog vínrauðir.
Stærðir: 36-41.
Verð: 1.995,-
Ath.: Mikið úrval
annarra tegunda
af strigaskóm.
5% staðgreiðsluafsláttur.
Póstsendum samdægurs.
Kringlunni, Toppskórinn,
sími 689212. Veltusundi, sími 21212.
‘Jriiim/ili
VORLINAN
MADAM
GLÆSIBÆ