Morgunblaðið - 20.06.1991, Síða 4
MÖllGUNBIiAÐÍÐ FMm¥ÚÍDAGÚR 20, 'jÚNÍ féfl
VEÐUR
Norðmenn hefja hrefnuveiðar í sumar:
Geti Norðmenn veitt
í friði gætum við það
- segir formaður Félags hrefnuveiðimanna
ÍSLENSKIR hrefnuveiðimenn ætla ekki í bráð að fylgja dæmi nor-
skra starfsbræðra sinna og hefja hrefnuveiðar í trássi við bann
stjórnvalda og Alþjóðahvalveiðiráðsins.
„íslensk stjórnvöld vilja leyfa
hrefnuveiðar og þau eru að reyna
að vinna að því að það náist fram
með sem friðsamlegustum hætti.
Við viljum gefa þeim frið til að vinna
frekar að þessum málum, en gangi
það hjá Norðmönnum að hefja veið-
ar er auðvitað ekkert því til fyrir-
stöðu að það gangi hjá okkur einn-
ig. Við styðjum Norðmennina heils-
hugar og vonum innilega að allir
góðir vættir leggist á sveif með
þeim,“ sagði Konráð Eggertsson
formaður Félags hrefnuveiðimanna
við Morgunblaðið.
Norskir hrefnuveiðimenn hafa
lýst því yfir, að þeir muni hefja
hrefnuveiðar í atvinnuskyni 4. júlí
næstkomandi á 15-20 bátum, þótt
norsk stjórnvöld hafi ekki gefið út
veiðileyfi. Alþjóðahvalveiðiráðið
hefur friðlýst hrefnustofninn við
Noreg, og ekki viljað breyta þeirri
flokkun þótt nýjar rannsóknir bendi
til að stofninn sé mun stærri en
áður var talið.
íslensk stjórnvöld ætla að skipa
nefnd, til að fjalla um afstöðu Is-
lands til Alþjóðahvalveiðiráðsins.
' íslenska sendinefndin á ársfundi
ráðsins í Reykjavík í maí lagði til
að ísland segði sig úr ráðinu eftir
að. það neitaði að fjalla um tillögur
íslendinga um veiðikvóta fyrir
hrefnu. Konráð Eggertsson sagði
að íslenskir hrefnuveiðimenn
hyggðust bíða eftir áliti nefndarinn-
ar áður en þeir ákvæðu einhveijar
aðgerðir.
VEÐUR IfÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að fsl. tíim
hW veður
Akureyri 13 léttskýjað
Reykjavík 12 léttskýjað
Bergen 11 rigningogsúld
Helsinki 16 léttskýjað
Kaupmannahöfn 12 skúr á síð. klst.
Narssarssuaq 14 skýjað
Nuuk 6 þoka á sfð. klst.
Ósló 13 rigning
Stokkhólmur 15 skýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Algarve 24 léttskýjað
Amsterdam 11 rigning og súld
Barcelona 21 léttskýjað
Berlín 17 hálfskýjað
Chicago 20 heiðskírt
Feneyjar 18 hálfskýjað
Frankfurt 11 skúr
Glasgow 13 skýjað
Hamborg 12 skúr
London 15 skýjað
Los Angeles 18 alskýjað
Lúxemborg 11 skýjað
Madrfd 23 hálfskýjað
Malaga 22 alskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Montreal 21 léttskýjað
NewYork 17 þokumóða
Orlando 26 léttskýjað
Parfs 16 skýjað
Madeira 19 skýjað
Róm 22 hálfskýjað
Vfn 14 rlgning
Washlngton 19 þokumóða
Winnipeg 13 helðskfrt
Borgarráð úthlutar
32 fjölbýlishúsalóðum
BORGARRÁÐ ákvað á fundi
sínum á þriðjudag að veita 27
aðilum leyfi til að byggja fjölbýl-
Maður rænd-
ur á Arnarhóli
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri
var rændur og honum veittir
áverkar á Arnarhóli síðastliðið
þriðjudagskvöld. Tveir - menn
veittust að manninum og rændu
af honum áfengisflösku og veski
með 7 þúsund kr. og persónu-
skilríkjum. Annar mannanna var
handtekinn af óeinkennisklædd-
um lögreglumönnum á Hlemmi
síðar sama kvöld.
Sjónarvottur að árásinni gerði
lögreglu viðvart og voru árásar-
mennirnir á bak og burt þegar hún
kom á vettvang. Maðurinn var flutt-
ur á slysadeild þar sem gert var
að áverkum hans. Hann kvaðst
hafa kannast við annan árásar-
manninn. Báðir hafa árásarmenn-
irnir, sem eru á þrítugsaldri, ítrekað
komið við sögu lögreglunnar.
ishús á 32 lóðum í Borgarholti
II. Alls er gert ráð fyrir rúmlega
300 íbúðum í húsunum.
Lóðirnar, sem hér um ræðir, eru
við Fróðengi, Gullengi, Laufengi og
Reyrengi. Gert er ráð fyrir að á
hverri lóð verði byggðar á bilinu 6
til 14 íbúðir.
Við afgreiðslu borgarráðs á um-
sóknunum óskaði Kristín A. Ólafs-
dóttir, Nýjum vettvangi, bókað, að
þrátt fýrir fyrirheit við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar Reykjavíkur í vor
um mikið framboð á fjölbýlishúsa-
lóðum, væri ekki orðið við umsókn-
um 20 til 30 aðila um slíkar lóðir.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í
borgarráði lögðu einnig fram bókun
vegna afgreiðslu málsins. Segir þar
að rétt sé að vekja athygli á því,
að framboð á lóðum undir fjölbýlis-
hús hafi sjaldan verið meira en nú.
Búið sé að úthluta lóðum undir um
það bii 500 íbúðir í fjölbýli og nægt
framboð sé af lóðum undir sérbýli.
Einnig sé rétt að benda á, að tals-
vert framboð sé af óseldum íbúðum
í nýbyggðum fjölbýlishúsum.
0,87% fjölgnn landsmanna
SAMKVÆMT endanlegum íbúa-
tölum var mannfjöldi á landinu
1. desember í fyrra 255.708. End-
anleg íbúatala 1. desember 1989
var 253.500, og fjölgaði því á
árinu til 1. desember 1990 um
2.208 eða 0,87%. Á árinu 1990
fækkaði sveitarfélögum um 9, og
voru þau alls 204 talsins 1. des-
ember það ár. Þar af voru kaup-
staðir og bæir 30 talsins og
hreppar 174.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu íslands um mannfjölda
1. desember 1990, sem birtar voru
í desember, voru íbúar taldir
255.855. í fréttatilkynningu frá
Hagstofunni segir að mismunur
þeirra talna og endanlegra íbúa-
talna felist í því að í endanlegu
tölunum hafi verið tekið tillit til
fólksflutninga hingað til lands og
héðan, sem tilkynningar hafí borist
of seint um, svo og flutninga milli
sveitarfélaga. Því hafi íbúatölur ein-
stakra sveitarfélaga ýmist breyst
til hækkunar eða lækkunar frá
bráðabirgðatölunum.
Smygl fannst
í Hofsjökli
TOLLGÆSLAN gerði upptæka
267 lítra af áfengi um síðustu
helgi sem smyglað var til landsins
í Hofsjökli. Tíu skipveijar hafa
játað á sig smyglið og er málið
að fullu upplýst.
Skipið kom til Hafnarfjarðar frá
Bandaríkjunum 9. júní sl. og hélt
þaðan austur um land til Iosunar.
Þegar skipið var statt í Ólafsvík
stöðvaði tollgæslan tvær bifreiðar
sem voru á leið frá skipinu og fannst
áfengið í þeim.
Harður arekstur 1 Kópavogi
HARÐUR árekstur varð á milli
tveggja bíla á Digranesvegi í
Kópavogi sl. þriðjudagskvöld.
Ökumenn beggja bílanna og tveir
farþegar úr öðrum þeirra voru
fluttir á slysadeild en meiðsli
þeirra voru ekki talin alvarleg.
Bílarnir eru mikið skemmdir.
Áreksturinn varð með þeim hætti
að ökumaður bfls sem ekið var aust-
ur Digranesveg ætlaði að snúa við
á veginum og taka u-beygju. Bíll
sem ekið var vestur Digranesveg
kom aðvífandi í sama mund og hinn
hugðist beygja og skullu bflarnir
harkalega saman. Lögreglan í
Kopavogi telur hugsanlegt að öku-
mennirnir hafi blindast í kvöldsól-
inni. Blindhæð er skammt frá slys-
staðnum. Að sögn lögreglu er Di-
granesvegur fjölfarin gata og
árekstrar þar nokkuð tíðir. Lögregl-
an hefur lagt áherslu á hraðamæl-
ingar þar, en þegar aðstæður eru
með þeim hætti að kvöldsólin skín
beint í augu ökumanna er aldrei
of varlega farið.
VEÐURHORFUR í DAG, 20. JÚNÍ
YFIRLIT: Um 300 km suðaustur af Hvarfi er minnkandi 995 mb
lægð sem þokast vestur en dálítill hæðarhryggur milli (slands og
Grænlands. Yfir Suðausturlandi er 1.009 mb smálægð.
SPÁ: Fremur hæg vestlæg átt vestanlands en breytileg átt annars-
staður og bjart veður. Hiti verður víðast á bilinu 12-20 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Hæg breytileg átt og
bjart veður um allt land. Áfram verður hlýtt.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind-
* stefnu og fjaðrirnar
'(jjjjj)’ Heiöskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.
a Léttsk^a4 / / / / / / / Rigning
ZZtfk Hálfskýjað / / / * / *
/ * / * Slydda
'ðmSkýjaft / * /
Alskýjað # # * # # # # Snjókoma # # *
10 Hitastig:
10 gráður á Celslus
ý Skúrír
♦
V E'
— Þoka
== Þokumóða
’, ’ Súld
CO Mistur
- |* Skafrenningur
[7 Þrumuveður
Fra slysstað a Digranesvegi.
Morgunblaðið/Jón Stefánsson