Morgunblaðið - 20.06.1991, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1991
'9
j
iwϪ
VEITA AUKNA ÁNÆGJU VIÐ RÆKTUN
GUTMAN gróðurhúsin eru þekkt fyrir góðan frágang.
Þau eru byggð úr sverum prófílum, glerið er 4 mm eða
allt að 10 mm plast, engin samskeyti, þannig að þau
þola vel mikið veðurálag. Hægterað fá ýmsa fylgihluti,
svo sem hitastýrða gluggaopnara, vökvunarbúnað,
borð, hillur o.þ!h. GUTMAN gróðurhúsin er hægt að fá
í ýmsum stærðum, allt frá 5 - 38m2 og býður það upp á
marga möguleika. Komið og kynnið ykkur GUTMAN
g'óðurhúsin og pantið tímalega.
SOLUFELAG
GARÐYRKJUMANNA
SMIÐJUVEGI 5, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 43211
Skiptar skoðanir
Sennilega eru a.m.k. jafn margir fiskifræðingar á íslandi og
nemur fjölda starfsmanna Hafrannsóknastofnunar og þeirra,
sem sækja sjóinn. Þeir, sem koma nálægt útgerð og fiskvinnslu
hafa flestir sínar skoðanir á ástandi fiskistofna á íslandsmiðum
og eigin kenningar um þessi mikilsverðu málefni. í Staksteinum
í dag er vitnað til sjónarmiða, sem fram komu hjá Jóni Kristjáns-
syni, fiskifræðingi í Úr verinu, í gær og hjá Halldóri Hermanns-
syni, fiskverkanda á ísafirði í Fiskifréttum fyrir nokkrum dögum.
Hendum mód-
elunum!
Jón Kristjánsson, fiski-
fræðingnr, segir m.a. í
samtali við sérblað Morg-
unblaðsins um sjávarút-
veg, Ur Verinu, í gser:
„Á árunum 1930-1965
var meðalveiði á þorski
hér um 450 þúsund tomi
á ári. Á þessu tímabili fór
veiðin einu súmi undir
400 þúsund toim en hún
fór upp fyrir 500 þúsund
tomi. Nú erum við liins
vegar með aflakvóta,
sem er helmingurinn af
þessu magni^Fiskifræð-
ingarnir hjá Hafrann-
sóknastofnun athuga það
ekki, að ef um stóra ár-
ganga er að ræða, eins
og frá 1984 og 1985 og
mikið er af smáfiski er
ekkert pláss fyrir nýja
árganga, ef hinir eru
ekki veiddir til að gefa
öndunarrými. Það þarf
að henda módelununi,
seni til eru í þessu fagi.“
Að setja meira
á hagann
Siðan segir Jón Krist-
jánsson: „Þegar íslend-
ingar, Kanadamemi og
Norðmeim, færðu fisk-
veiðilögsögu sína út i 200
mílur og ráku útlending-
ana burt, fóm þessar
þjóðir út í fiskvemd.
Möskvinn var stækkaður
til að minna væri veitt
af smáfiski og svæðum
lokað, þar sem hami
veiddist. Sú ákvörðun
var því tekin að setja
meira á hagann. For-
sendan fyrir öllu sliku
hlýtur að vera sú, að til
sé nóg æti fyrir þennan
aukna stofn. Hér við land
fór að draga úr vexti
þorsks og ég og fleiri
gagnrýndum það þegar
kvótakerfið var tekið
upp árið 1983.
Þá sáum við samlik-
ingu við silung í vötnum
og aðra dýrastofna, þar
sem dregur úr vexti og
það þýddi, að okkar mati
ekkert annað en að ekki
væri til æti. Hafrann-
sóknastofnun sýndi fram
á, að við friðunina
minnkaði sóknin um 70%
■ þriggja ára þorsk og svo
framvegis, en afliim
mimikaði og liaim helzt
lítill. Það sama gerðist
við Kanada og í Barents-
hafi. Eg spyr þá, hvort
það sé röng stefna að
veiða einungis stærstu
fiskana? Þegar einungis
þeir stóm em teknir
verður minna af þeim
smáu. Það kemur fram,
sem aukinn afli af smá-
fiski og þá er haldið
áfram að friða hann.“
Friðunarbylgj-
ur
Halldór Hermannsson,
fiskverkandi á ísafirði,
segir í grein í Fiskifrétt-
um fyrir skömmu: „I tvo
áratugi hafa áköf fisk-
vemdunarsjónarmið ver-
ið ríkjandi hér á landi.
Segja má, að þau hafi
byrjað með útfærslu
landhelginnar í 200
mílur. Þegar slikar frið-
unarbylgjur skella á
þjóðiimi, þá hættir mönn-
um til að fara offari og
leita öfgaima, sem
stórskaða okkur sjálfa.
Það er að vísu bil á milli
hvalavina og öfgashm-
aðra fiskvemdunar-
manna en báðum aðilum
svipar til í ýmsum skoð-
unum. Það em t.d. sögu-
legar staðreyndir fyrir
því, að landgrunnið okk-
ar virðist þola, sem svar-
ar 350-400 þús. tonna
árlegan þorskafla. Slíkar
staðreyndir ber okkur að
virða og fara aldrei fram
úr því veiðimagni. Sú
stefna hefur hins vegar
orðið ofan á að fcera
leyfilegt veiðimagn niður
í 250-300 þús. lestir ár-
lega til þess m.a. að
byggja þorskstofninn
upp í það að geta þolað
allt að 750 þúsund lesta
ársafla. Þetta er borin
von, þrátt fyrir að slikar
hugmyndir Iiafi verið
ráðandi um all langt
skeið. Við höfum þegar
fengið næga reynslu fyr-
ir þessu undanfarin ár
og höfum því ekki efni á
að skaða okkur meira á
þeim.“
„Ekki æski-
legt?“
I frétt í DV í gær um þá
ákvörðun forseta Islands
að gefa kost á sér til
endurkjörs er Vitnað til
umræðna mn hugsanleg-
an eftirmami núverandi
forseta og síðan segir: „I
kjölfar umræðu þessarar
segja heimildir DV að
þrýst hafi verið á Vigdísi
af þeim, sem næst henni
standa að gefa út yfirlýs-
ingu um, hvort liún hygð-
ist gefa kost á sér áfram
eða ekki. Þá þótti um-
ræöan um inögulega eft-
irmenn hennar í embætti
„ekki æskileg fyrir virð-
ingu embættisins" eins
og heimildarmaður orð-
aði það“.
I Ætlarðu að byggja?
IÆtlarðu að kaupa?
s Eftir að nauðsynleg gögn liggja fyrir metum
\ við greiðslugetu þína í húsbréfakerfinu á
§ tveimur dögum.
11 Ertu búinn að kaupa?
Ertu búinn að selja?
IVið sjáum um að skipta fasteignaveðbréfinu
þínu í búsbréf bjá Húsnæðisstofnun. Við
seljum húsbréf fyrir þig á markaði eða tökum
húsbréf í vörslu fyrir þig og fylgjumst vel með
ársfjórðungslegum útdrætti.
Leitaðu nánari upplýsinga hjá ráðgjöfum
okkar.
Gengi Einingabréfa 20. júní 1991.
Einingabréf 1 5.677
Einingabréf2 3.046
Einingabréf 3 3.721
Skammtímabréf 1,896
KAUPÞING HF
Kringlunni 5, stmi 689080