Morgunblaðið - 20.06.1991, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.06.1991, Qupperneq 20
20 klOJ{GUNBL.4ÐID FlMiÍTUDÁGUR 20. JÚNÍ 1991 Morgunblaðið/Sverrir Þingmenn frá EFTA og EB íReykjavík Sameiginlegur fundur þingmannanefndar Fríversl- unarbandalags Evrópu (EFTA) og sendinefndar frá þingi Evrópubandaiagsins (EB) var haldinn í Reykjavík í gær. Helst var þar rætt um hvert yrði hlutverk þjóðþinga EFTA-ríkja og EB-þingsins í Evrópsku efnahagssvæði. Myndin er tekin á frétta- mannafundi í Alþingishúsinu í gær og má á henni sjá Vilhjálm Egilsson, nýkjörinn formann þing- mannanefndar EFTA, og Spánveijann Cano Ponti, formann sendinefndar Evrópuþingsins, ásamt túlkum. Suður-Afríka: Afríkuríki íhuga af- nám viðskiptabanns Lagos, Washington. Reuter. IBRAHIM Babangida, forseti Nígeríu og formaður Einingarsam- taka Afríku, hefur kallað saman nefnd samtakanna, sem fjallar um málefni sunnanverðrar Afríku, til að ræða hvort falla eigi frá viðskiptabanni á Suður-Afríku eftir að þing landsins afnam lög er kveða á um skráningu landsmanna eftir kynþáttum við fæðingu. Babangida sagði að Suður- Afríkustjórn hefði tekið jákvætt skref í þá átt að afnema kynþátta- aðskilnað í landinu en bætti við að stjórnin þyrfti að ganga lengra, til að mynda leysa pólitíska fanga úr haldi án skilyrða. Mangosuthu Buthelezi, leiðtogi Inkatha-frelsisflokksins og höfð- ingi zulumanna í Suður-Afríku, gagnrýndi viðskiptabannið á fundi hans með utanríkisnefnd Banda- ríkjaþings í fyrrakvöld. Suður- Afríkustjórn hefur uppfyllt fjögur af fimm skilyrðum, sem þingið hefur sett fyrir viðskiptum við Suður-Afríku. Fimmta skilyrðið varðar frelsun allra pólitískra fanga. Embættismenn í Washington sögðu að George Bush Bandaríkja- forseti hefði hug á að nema við- skiptabannið úr gildi í næsta mán- uði en þingmenn úr röðum demó- krata vöruðu hann við því að grípa til slíkra aðgerða án samþykkis þingsins. Rússar lýstu stuðningi við markaðsbúskap og lýðræði - segir Borís Jeltsín Rússlandsforseti í sjónvarpsviðtali í Bandaríkjunum Washington. Reuter. BORÍS Jeltsín, nýkjörinn forseti Rússlands, er nú á ferð í Banda- ríkjunum þar sem hann ræðir við helstu leiðtoga, m.a. George Bush forseta. Jeltsín hefur verið spurður í þaula um stefnu sína, einkum hefur sjónum verið beint að sambandi hans við Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtoga. Hann segist sjá bæði kosti og galla við Sovétleiðtogann, verst sé að hann sé oft sjálfum sér ósamkvæmur. Rússneski forsetinn segist munu styðja Gorbatsjov ef hann vinni heils hugar að umbótum og beiti ekki valdi gegn sjálfstæðistil- raunum einstakra lýðvelda en berjast gegn honum ella. Móttaka var í sovéska sendiráð- inu í Washington, Jeltsín til heið- urs, og i ávarpi hældi hann Gorb- atsjov. „Sú staðreynd að íbúar Rússlands hafa fengið tækifæri til að taka þátt í beinum kosningum og velja sér eigin forseta er fyrst og fremst að þakka því framtaki og þeirri lýðræðishreyfingu sem Gorbatsjov forseti ýtti úr vör 1985,“ sagði Jeltsín. Hann taldi úrslit for- setakosninganna í Rússlandi gefa til kynna að almenningur vildi að komið yrði á einkaeign, markaðsbú- skap og lýðræði. Haldið yrði áfram af staðfestu á lýðræðisbrautinni, hrint í framkvæmd hröðum og rót- tækum umbótum því að fólk hefði Antofagasta. Reuter. SEXTÍU og fjórir menn létu lífið og fjörutíu og átta er saknað eftir að aurskriða hreif með sér fátækrahverfi sem stóðu í hlíðum borgarinnar Antofagasta í Chile. Úrhellisrigning hleypti aurskrið- unni af stað niður hlíðina þar sem hún hreif með sér allt sem í vegi varð, timburhús, bíla, fólk og hús- gögn. Skriðan hentist í gegnum sex fátækrahverfi þar sem alls bjuggu 30.000 manns og skildi eftir sig auðn og eyðileggingu. Að sögn inn- anríkisráðherra Chile, Enrique Krauss, er vitað til þess að 64 hafi farist, helmingur þeirra börn. Auk þess er 48 manna saknað. Skriðan eyðilagði alls 600 hús og olli skemmdum á öðrum 6.000. U.þ.b. 20.000 af 220.000 íbúum borgar- innar eru nú heimilislausir. Neyðarástandi ríkti í borginni eftir að aurskriðan féll snemma á nú beðið eftir sh'kum aðgerðum í hálft annað ár „og það getur ekki beðið lengur“. I samtali við ARC-sjónvarps- stöðina sagði Jeltsín að Gorb- atsjov hefði staðið við fyrirheit sín Borís Jelts,n um markaðsum- DOUGLAS Brand, breskur verk- fræðingur sem handtekinn var í september á síðasta ári og dæmd- ur var í lífstíðarfangelsi fyrir njósnir í írak í maí, var leystur úr haldi á þriðjudag, að sögn embættismanns íraska upplýs- ingamálaráðuneytisins. Bretar höfðu sett lausn Brands sem skil- yrði fyrir því að þeir styddu af- nám efnahagsþvingana Samein- uðu þjóðanna (SÞ) gegn írökum. Brand var sleppt fyrir tilstilli þriðjudagsmorgun. Vatnsbirgðir voru af skornum skammti, símalín- ur slitnar og hluti borgarinnar varð rafmagnslaus. „Þetta er verra en jarðskjálfti vegna þess að við höfum engin ráð til þess að losna við for- ina,“ sagði landsstjóri Antofagasta, Blas Espinoza. Flugherinn sendi vélar með tjöld, teppi, matvæli og lyf og flotinn flutti eina milljón lítra af fersku vatni til borgarinnar. Raunir borgarbúa eru þó ekki upp taldar þar sem lögreglan sagð- ist hafa orðið vör við þjófnaði og gripdeildir í yfirgefnum verslunum og heimilum. Antofagasta er við rætur Atac- ama-eyðimerkurinnar, sem er einn þeirra staða á jörðinni þar sem úr- koma er hvað minnst. Úrhellið á aðfaranótt þriðjudagsins mældist 40 mm sem er tíföld úrkoma í meðalári þar í borg. bætur en gagnrýndi Sovétleiðtog- ann fyrir ósamkvæmni, sagði að hann léti of auðveldlega undan þrýstingi og ætti til að venda sínu kvæði i kross fyrirvaralaust. Hann sagðist þó ekki hafa í hyggju að reyna að velta Gorbatsjov. „Ég hygg að samband okkar sé í jafn- vægi. Samskipti okkar eru mjög mikilvæg, við fjöllum um grundvall- aratriði en einnig dagbundin við- fangsefni. Persónuleg vandkvæði koma þar ekkert við sögu.“ Edwards Heaths, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Heath sagði að Saddam Hussein hefði skrifað sér bréf og sagt að hann væri reiðubúinn að láta Brand lausan ef farið yrði fram á það. Brand var handtekinn í september þegar hann reyndi að flýja frá írak. Bretar höfðu lýst því yfír að þeir myndu krefjast þess að efnahags- þvingunum SÞ yrði ekki aflétt með- an Brand og annar Breti, Ian Richter, sem dæmdur var í lífstíðar- fangelsi í írak árið 1986, væru enn í haldi. Utanríkisráðherra Bret- lands, Douglas Hurd, sagði á þriðju- dag að ákvörðun íraka um að leysa Brand úr haldi væri ekki nóg til að efnahagsþvingunum yrði aflétt. írakar yrðu einnig að gefa Richter frelsi, samþykkja að eyðileggja vopn sín og greiða skaðabætur fyr- ir tjónið sem þeir hefðu valdið í Kúveit meðan á hernámi þeirra stóð þar frá því í ágúst á síðasta ári þar til í janúar á þessu ári. írakar kosti eyðingu vopna Öryggisráð SÞ gerði á mánudag samþykkt þess efnis að þess yrði krafist af Irökum að þeir stæðu undir kostnaði við eyðileggingu ír- askra vopna þótt enn sé með öllu óljóst hvernig þeir eigi að fara að því. Aætlaður kostnaður við að fjar- lægja og eyðileggja meðallang- drægar eldflaugar Iraka, efna- og lífefnavopn þeirra og aðstöðu þeirra til framleiðslu kjarnorkuvopna er talinn vera á bilinu 200-800 milljón- ir Bandaríkjadala eða 12-50 millj- arðar ÍSK og fer m.a. eftir því hvort smíða þarf nýjan útbúnað til að eyða efnavopnum. í samþykktinni eru ríki heims beðin um að leggja Jeltsín var lítið um að lýsa sjálf- um sér en sagðist í samtali við sjón- varpsmanninn Ted Koppel vera hranalegur, einstrengingslegur maður og mjög uppstökkur. Hann sagðist þó hafa mildast nokkuð með aldrinum. Bandaríkjamenn skyldu ekki ímynda sér að hann væri ein- feldningur. „Ég ætla mér að beijast gegn því kerfi sem hefur á 70 árum sökkt landinu okkar í kviksyndi vesaldar og niðurlægingar.“ fram fjármagn eða tækjabúnað til eyðingar vopnunum þar til írakar geti borgað sjálfir. Til íraks í kjarnorkuleit Sérfræðingar úr nefnd þeirri sem eftirlit hefur með kjarnorku á veg- um Sameinuðu þjóðanna komu til íraks í gær til að kanna hvort þeim hafi hugsanlega yfirsést mannvirki tengd kjarnorkuframleiðslu á ferð sinni til landsins í síðasta mánuði. Talið er að sérfræðingarnir hafi verið sendir aftur til Iraks til að athuga hvort eitthvað væri hæft í yfirlýsingum háttsetts vísinda- manns, sem flýði frá írak, um að írakar hefðu yfir að ráða kjarnorku- stöðvum sem bandamenn hefðu aldrei vitað um. Sjálfstjórnarsvæði Kúrda í sjónmáli Talsmenn Baaths-flokksins, sem fer með völd í írak, tilkynntu í gær að ríkisstjórn Saddams Husseins forseta myndi í næstu viku kynna samkomulag um sjálfstjórnarsvæði Kúrda í Norður-Irak. Samningavið- ræður hófust í apríl eftir að stjórn- arhermenn brutu uppreisn Kúrda á bak aftur og tvær milljónir Kúrda flýðu til írans og Tyrklands. AI- Thawra, dagblað Baath-flokksins, hefur fjallað um málið. „Samkomu- lag náðist vegna þess hve forysta landsins leggur mikla áherslu á að að styrkja lýðræði í írak og styðja við hina jákvæðu sjálfsstjórnartil- raun," sagði í m.a. í blaðinu. Upp- reisnarmenn hafa sakað stjórnvöld í írak um að hafa svikið samkomu- lag um sjálfsstjórn sem gert var árið 1970 og krefjast alþjóðlegra ábyrgða að þessu sinni. Aurskriða veldur hörmungum í Chile Breskum verkfræðingi sleppt úr fangelsi í írak Bagdad, Vínarborg, Sameinuðu þjóðunum. Reuter. ■ OSLO - Norðmenn tilkynntu í gær að þeir ætluðu að opna sendi- ráð í Pretoríu í Suður-Afríku en sögðust enn ekki tilbúnir til að af- létta viðskiptaþvingunum gegn landinu þrátt fyrir að suður-afrísk stjórnvöld víki nú í æ ríkari mæli frá aðskilnaðarstefnunni. „Við höfum hafið undirbúning að opnun sendiráðs í Suður-Afríku," sagði Björn Blokhus, talsmaður norska utanríkisráðuneytisins. Hann sagði afnám kynþáttaaðskilnaðar í S- Afríku væri ástæða norskra stjórn- valda fyrir ákvörðuninni. ■ BELFAST - Talsmenn mót- mælenda á Norður-írlandi vöruðu Norður-írlandsmálaráðherra Bret- lands, Peter Brooke, í gær við því að hann gæti stefnt friðarviðræðun- um í Belfast í hættu ef hann hitti utanríkisráðherra Irlands, Gerry Collins, að máli í miðju kafi. Brooke fyrirhugar að hitta Collins að máli 16. júlí og er fundurinn haldinn samkvæmt samkomulagi sem Bret- ar og írar gerðu árið 1985 og felur í sér að írar hafi umsagnar- og til- lögurétt í málefnum Norður- írlands. Sir Ninian Stephen, fyrr- verandi fylkisstjóri frá Ástralíu, sem fenginn hefur verið til að stýra viðræðunum í Belfast, sagðist í gær vera algjörlega hlutlaus gagnvart því hvort stjórnmálahreyfing írska lýðveldishersins, Sinn Fein, fengi að taka þátt í viðræðunum eða ekki. Það væri ekki hans að taka ákvörð- un um slíkt. ■ FRANKFURT - í skýrslu þýska seðlabankans, Bundesbank, fyrir júnímánuð kemur fram að bankinn sé reiðubúinn til að herða á peningastefnu sinni og hækka vexti til að styrkja þýska markið og hafa hemil á verðbólgu ef nauð- syn krefur. í skýrslunni sagði að með peningastefnu ætti að gera allt sem hægt væri til að viðhalda kaupmætti. ■ RÓM - ítalir sendu fleiri alb- anska flóttamenn til baka til Al- baníu í gær þrátt fyrir mótmæli Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og ábendingar um að flóttamönnunum ætti að leyfast að sækja um hæli. „Við erum hvorki með eða á móti því að þeim verði veitt hæli, við viljum aðeins veija rétt þeirra til að sækja um,“ sagði Waldo Villalp- ando, sendimaður Flóttamanna- hjálpar SÞ á Ítalíu. Flóttamanna- hjálpin hefur farið fram á það við ítölsk stjórnvöld að mál hvers flótta- manns verði tekið fyrir sérstaklega. ■ PARÍS - Serge Klarsfeld, Iögfræðingur sem leitar uppi stríðsglæpamenn, hefur farið fram á það við bandarísk stjórnvöld að þau sendi Jacques Correze úr landi. Correze, sem er 79 ára, er fyrrverandi yfirmaður Cosmair, dótturfyrirtækis franska snyrti- vörufyrirtækisins l’Oreal í Banda- ríkjunum. Klarsfeld heldur því fram að Correze hafi áðstoðað nasista við að flytja franska gyðinga nauð- uga frá heimilum sínum í París árið 1941.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.