Morgunblaðið - 07.08.1991, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C
175. tbl. 79. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1991_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gíslamálið í Líbanon:
Mannræningjar boða
mikilvæg skilaboð
til Perez de Cuellars
Beirut, SÞ. Reuter.
JAVIER Perez de Cuellar, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, sagðist í gær ekki enn hafa fengið nein skilaboð frá samtök-
unum íslamska Jihad sem hafa í haldi flesta vestræna gísla í Líban-
on. Talsmenn Jihad höfðu áður sagt að þau myndu innan 48
klukkustunda senda „sérstakan sendiboða“ á fund hans til að
ræða lausn gíslanna.
Liðsmaður einnar hreyfingar
múslimskra bókstafstrúarmanna í
Líbanon sagði að sendiboðinn yrði
að líkindum einn af vestrænu gíslun-
um og hefur verið giskað á að um
sé að ræða fréttamanninn Terry
Anderson. Jihad hefur ávallt krafist
þess að ísraelar slepptu úr fangelsi
flölda palestínskra skæruliða gegn
Sovétríkin:
Svarthúfur
skakka leikinn
vegna ítalskra
íþróttaskóa
Moskvu. Reuter.
TÓLF þúsund pör af íþrótta-
skóm, sem fluttir höfðu verið
inn frá Italíu, ollu miklum
usla í borginni Nizhníj Tagil,
sem er um þúsund kílómetra
austur af Moskvu.
Sovéska dagblaðið Trud
skýrði frá því í gær að slík
hefði ásóknin verið í ítalska
skófatnaðinn að til þriggja
daga óeirða hefði komið í stál-
veri í borginni. Vildu verka-
mennimir ólmir festa kaup á
vestrænum íþróttaskóm og
gerðu aðsúg að manni sem einn
síns liðs sá um að afgreiða þá.
Lauk kaupæðinu með því að
afgreiðslumaðurinn sá sig til-
neyddan að kalla til hinar ill-
ræmdu „svarthúfur", sem eru
sérsveitir innanríkisráðuneytis-
ins, til að halda aftur af við-
skiptavinunum.
því að^ vestrænu gíslarnir fengju
frelsi. Iranskt dagblað, Teheran Ti-
mes, fullyrti að Israelar hefðu með
„grimmdarverkum sínum í Líbanon
og á hernumdu svæðunum" komið
i veg fyrir að gislarnir yrðu leystir
úr haldi fyrir tveim mánuðum er
blaðið sagði að hreyfing væri komin
á málið. Það telur sig nú hafa traust-
ar heimildir fyrir því að breskir og
bandarískir gíslar verði látnir lausir
fyrir helgi.
Jihad, sem er hliðhollt klerka-
stjórninni í íran, er talið hafa á valdi
sínu sex Bandaríkjamenn, þijá
Breta, tvo Þjóðveija og einn Itala
en fáeinir eru auk þess í haldi hjá
öðrum hópum. Sumir gíslanna,
þ. á. m. Anderson, hafa verið í haldi
frá 1985. írönsk stjórnvöld segjast
geta haft áhrif á stefnu mannræn-
ingjanna en þau geti ekki stjórnað
gerðum þeirra. Hashemi Rafsanjani
forseti hefur oft hvatt til þess að
gíslamir verði látnir iausir af mann-
úðarástæðum.
Reuter
Hermaður úr júgóslavneska sambandshernum, sem gætir brúar yfir Dóná, er skilur að Króatíu og
Serbíu, notar tækifærið er hlé varð á bardögum til að glugga í dagblað.
Forsætisráð Júgóslavíu lýs-
ir yfir vopnahléi í Króatíu
• •
Evrópubandalagið vill að SÞ og ROSE láti deiluna til sín taka
Belgrad, Haag, Moskvu. Reuter.
FORSÆTISRÁÐ Júgóslavíu
lýsti í gærkvöldi yfir vopnahléi
í Króatíu sem tók gildi klukkan
fjögur í morgun að íslenskum
tíma. Áður höfðu júgóslavnesk-
ir embættismenn hitt fulltrúa
Króata og serbneskra skæruliða
að máli en þeir hafa háð blóðug
Buthelezi ver sig:
Segir ANC hafa þegið fé af KGB
Telur einnig að fjármunir frá Norðurlönd-
um hafi runnið til hryðjuverkastarfsemi
Hong Kong, Brasilíuborg. Reuter.
MANGOSUTHU Buthelezi, leiðtogi Inkathaflokks zúlumanna í Suður-
Afríku, vísaði því á bug í gær að uppljóstranir um leynilegan fjárstuðn-
ing ríkisstjórnar hvíta minnihlutans við Inkatha hefðu skaðað álit leið-
togans. Hann sagði umrædda fjárhæð, um sex miiljónir ISK árlega
undanfarin fjögur ár, vera smáræði og auk þess hefði honum ekki
verið kunnugt um greiðslurnar. Buthelezi segir Afríska þjóðarráðið
(ANC), hreyfingu Nelsons Mandela, hafa lengi þegið fé frá útlöndum
til hryðjuverkastarfsemi, m.a. frá sovésku öryggislögreglunni, KGB,
og Norðurlöndum.
S-Afríkustjóm hefur einnig viður-
kennt að hafa greitt verkalýðssam-
tökum sem hlynnt eru Inkatha um
30 milljónir ÍSK á ári. Buthelezi seg-
ist einnig álíta að það sé hræsni að
fjargviðrast yfír fénu til Inkatha þeg-
ar vitað sé að ANC hafi fengið 1,3
milljónir Bandaríkjadollara (nær 80
milljónir ÍSK) frá suður-afrískum
stjómvöldum til að að hjálpa pólitísk-
um flóttamönnum að koma sér fyrir
á ný í landinu. „Þetta lítilræði,
250.000 rönd, var greitt aðstoðar-
manni án vitundar minnar og við
höfum endurgreitt féð,“ sagði But-
helezi í viðtali við útvarpsstöð í Hong
Kong þar sem hann er í heimsókn.
„ANC fær háar greiðslur frá KGB,
frá Norðurlöndunum og annars stað-
ar að til að stunda hryðjuverk. Mér
þykir furðulegt að umheimurinn skuli
hneykslast vegna þessara 250.000
randa.“
Nelson Mandela er á ferðalagi í
Rómönsku Ameríku og sagði á
mánudag að ráðamenn í Brasilíu
hefðu heitið því að aflétta ekki efna-
hagslegum refsiaðgerðum gegn Suð-
ur-Afríkustjórn fyrr en allri mismun-
un kynþátta þar í landi hefði verið
hætt. Um 45% Brasilíumanna eru
blökkumenn eða múlattar og þótt
þeir njóti að nafninu til jafnréttis við
hvíta er reyndin önnur. Enginn ráð-
herranna er svartur og eignamenn
eru nær allir hvítir.
átök í Króatíu undanfarnar vik-
ur. Lýstu þá báðir aðilar því
yfir að þeir myndu virða vopna-
hléssamkomulag.
Utanríkisráðherrar Evrópuband-
alagsins (EB) funduðu í Haag í gær
til að reyna að finna lausn sem
komið gæti í veg fyrir borgarastyij-
öld í Júgóslavíu. Fyrir fundinum
lágu ýmsar tillögur frá aðildarríkj-
um EB m.a. um viðskiptaþvinganir
gagnvart Serbíu og að sendar yrðu
hersveitir til að stilla til friðar í
landinu.
Frakkar leggja mesta áherslu á
að sendar verði sveitir til Júgóslav-
íu og sagði Roland Dumas, utanrík-
isráðherra Frakklands, í gær, að
Frakkar vildu að Vestur-Evrópu-
sambandið sendi lið til Júgóslavíu
sem myndi skilja hinar stríðandi
fylkingar að án þess að taka þátt
í átökunum. Gerhard Stoltenberg,
varnarmálaráðherra Þýskalands,
sagði Þjóðveija ekki geta tekið þátt
í slíkum aðgerðum vegna ákvæðis
í stjórnarskrá landsins sem einnig
kom í veg fyrir að Þjóðveijar tóku
þátt í aðgerðum fjölþjóðaliðsins við
Persaflóa.
Ráðherrar EB tóku ekki afstöðu
til þessara tillagna á fundi sínum í
gær en sögðust vera því hlynntir
að Sameinuðu þjóðirnar og Ráð-
stefnan um öryggi og samvinnu í
Evrópu (RÖSE), sem kemur saman
til fundar í Prag á fimmtudag, létu
málið til sín taka. Þá hvöttu þeir
forsætisráð Júgóslavíu til að kalla
fulltrúa allra deiluaðila til fundar
til að ræða um framtíð Júgóslavíu.
Sögðu þeir EB vera reiðubúið að
standa að slíkum fundi ef þörf
krefði.
Um helgina voru þrír af utanrík-
isráðherrum bandalagsins í Júgó-
slavíu og ræddu þar við fulltrúa
deiluaðila. Umleitanir þeirra við að
koma á friði fóru hins vegar út um
þúfur eftir að fulltrúar Serba mættu
ekki á fund sem ráðherramir höfðu
boðað til.
Sovétmenn vöruðu í gær Vestur-
lönd við að senda herlið til Júgóslav-
íu. I opinberri yfírlýsingu, sem birt
var af sovésku TASS-fréttastof-
unni, segir að þeir sem leggi til að
sent verði alþjóðlegt herlið til Júgó-
slavíu hafí greinilega ekki gert sér
fyllilega grein fyrir hvaða afleiðing-
ar slíkt gæti haft. Hemaðaríhlutun
gæti orðið til þess að deilurnar í
Júgóslavíu breiddust út um alla
Evrópu. Sagði einnig í yfírlýsing-
unni að ekki væri til sú deila sem
ekki væri hægt að fínna lausn á
með samningum og gagnkvæmum