Morgunblaðið - 07.08.1991, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1991
Alls konar leikur með kanóna og
aðra raddskipan hindraði Bach ekki
í því að búa til fallega tónlist, sem
stendur jafn vel að vígi gagnvart
þeim sem ekkert vilja vita um bygg-
ingu verkanna og þeirra sem kunna
þar á nokkur skii. Rose Kirn lék
þessi verk af mikilli kunnáttu og
trúlega hefði hún leikið meira með
raddregistur ef orgel Skálholts-
kirkju hefði leyft slíkt.
Prelúdía og fúga í f-moll en þó
sérstaklega Tokkatan fræga í C-
dúr, var glæsilega flutt. Tokkatan
hefst á glæsilegum hljómborðsleik
og pedalsóló, er- síðan snýst upp í
knúsaðan leik með tvö tónmynstur.
Á eftir þessum glæsilega leik kem-
ur undurfagur Adagio kafli en verk-
inu lýkur með einkar skemmtilegri
og áhrifamikilli fúgu, sem byggir á
nokkuð óvenjulegu en karakter-
sterku stefi, þar sem leikið er með
einfaldar endurtekningar stefsins
og þagnir. í fúgunni var leikur
Rose Kim glæsilegur enda er þetta
verk einn allsheijar „virtúósaleik-
ur“, bæði hvað varðar útfærslu tón-
hugmynda og notkun orgelsins.
Eins og fýrr er getið, stundar Hilm-
ar Örn Ágnarsson nám hjá Rose
Kirn og svo sannarlega er hann þar
í góðum höndum, sem eftir leik
hennar að dæma er vel kunnandi í
list sinni.
ÚTSAIA
MIKIÐ ÚRYAL AF GÓÐUM SKÓM
Á ALLA FJÖLSKYLDUNA.
STÓRLÆKKAÐ VERÐ!
SKÓR Á AILA FJOLSKYLDUNA...
UTSALA
Jakkaföt 29.900 - 19.900
Jakkaföt L7.400 - 9.900
Stakir jakkar Jj9r90O - 12.500
Buxur JL9Q0 - 4.900
Skyrtur JLSQO - 2.500
Peysur J5r9f>Ö - 3.900
AV\AM Laugavegi 47,
HVIilll iP símar 29122 - 17575
MEIRIVERDLÆKKUN
Orgeltónleikar
_________Tónlist______________
Jón Ásgeirsson
Orgelleikarinn Rose Kirn lék á
áttundu tónleikum sumartónleik-
anna í Skálholti og flutti eingöngu
verk eftir J.S. Bach. Einskis er
hennar getið í efnisskrá en Hilmar
Örn Agnarsson, orgelleikari í Skál-
holti mun vera nemandi hennar. Á
efnisskránni voru tólf kóralar (BWV
632-644) úr Orgelbuchlein, Fantas-
ían í G-dúr (BWV 572), Prelúdía
og fúga í f-moll (BWV 534) og
Tokkata og fúga í C-dúr (BWV
564).
Rose Kim er góður orgelleikari
og lék verk meistarans á mjög sann-
færandi máta. Tónleikamir hófust
á G-dúr fantasíunni, sem hefst á
leikandi „solfeggio" kafla en mið-
þátturinn er sérkennilegur „kóral-
leikur" byggður á gagnstígu tón-
ferli, sem hefst með fallandi G-dúr
tónstiga í efstu rödd á móti hækk-
andi tónferii í pedal. Þessi gagn-
stígi tónstigaleikur birtist síðan með
ýmsum hætti og lýkur með glæsi-
lega rísandi niðurlagi. Tónverkinu
lýkur með eins. konar kandensu og
Rose Kirn
var þessi skemmtilega fantasía
mjög vel flutt.
Kóralforspilin eru ekki aðeins
falleg tónlist, heldur og em mörg
þeirra hreinn tónfræðilegur galdur,
hvað varðar raddskipan og form.
+ 20% AF ÚTSÖLUVERÐI
3 DAGAR EFTK AF ÚTSðLUIWH
JOSS \
Kringlunni 8-12, sími 689150
Brandenborg-
arkonsertar
_________Tónlist______________
Jón Ásgeirsson
Um síðustu helgi vom þrír af sex
konsertum er Bach samdi fýrir
Christian Ludwig, markgreifa af
Brandenburg, fluttir á sumartónleik-
unum í Skálholti, nánar tiltekið
þriðji, fjórði og fimmti. Flytjendur
vom Bach-sveitin og þó ekki sé til-
greindur stjórnandi, er líklegt að
Ann Wallström konsertmeistari og
Helga Ingólfsdóttir hafi þar um gert,
sem nauðsynlegt hefur verið ritað
til samstillingar í leik og túlkun.
Margt hefur verið ritað um Brand-
enborgarkonsertana en séðir út frá
þróun hljómsveitarinnar, er ljóst að
í þeim er lítið fengist um þau atriði
í hljómsveitarritun, sem varðar jafn-
vægi milli radda og hljóðfæra, sem
þó var á tímum Bachs, orðið mikil-
vægt atriði í hljómsveitarútfærslum
ýmissa óperutónskálda. Þeir sem
leitast við að leika hljómsveitarverk
Bachs, á sem næst uppmnaleg hljóð-
færi, með það markmið í huga, að
uppfærslan verði sem líkust því sem
ætla mætti að hún hafi verið á tím-
um meistarans, lenda oft í vandræð-
um með jafnvægi á milli radda og
hljóðfæra, auk þess sem hraðinn,
ýmsar hrynrænar útfærslur, skreyt-
ingar og leiktækniútfærslur era
vandamál, sem enn era deiluefni
sérfræðinga.
Þeir sem hafa sett sig gegn því
að reynt sé að endurvekja gamlan
leikmáta rökstyðja mál sitt með því,
að það sé í raun ómögulegt og að
tónlist lifi aðeins, að mögulegt sé
að leika hana á hljóðfæri hvers tíma.
Aðrir telja þörf nútímamannsins fyr-
ir gamla tónlist, sprottna upp úr
þeirri tilfinningalegu ófullnægju,
sem útspekúleruð nútímalistsköpun
hefur ræktað hjá listneytendum. Inn
í þessa umræðu kemur þáttur hljóð-
ritunartækninnar en nú er hægt að
hlusta á tónlist frá öllum tímum, sem
ekki var hægt áður fyrr og því var
öll gömul tónlist þá dæmd til að
gleymast.
Þrátt fyrir annmarka varðandi
hljóðfæraskipan og jafnvægi milli
hljóðfæra, sem finna má víða í
Brandenborgarkonsertum, er tón-
listin svo stórkostleg, að orð þar um
verða næsta fáfengileg, svo sem eins
og ávallt þegar menn reyna að lýsa
eða útskýra list. Ekki verður sagt
að flutningurinn á konsertunum
þremur hefí verið hnökralaus og var
það einkum óviss tónstaða (intonati-
on) sem setti oft eirrauðan lit á
hljóminn, þar sem hann átti að
glampa skær, sérstaklega í þriðja
konsertinum, sem er saminn ein-
göngu fyrir strengi. Þrátt fyrir þetta
var margt fallega gert hjá einstaka
hljóðfæraleikara helst þeim er léku
einleik. Það vom blokkflautuleikar-
amir Camilla Söderberg og Ragn-
heiður Haraldsdóttir og Ann Walls-
tröm fíðluleikari, sem lék mjög vel
í íjórða konsertinum og Ann sérstak-
lega vel „kadensuna“ í þriðja þættin-
um. Fimmti konsertinn er í raun
sembalkonsert og lék Helga Ingólfs-
dóttir „kadensuna" í fyrsta þætti
frábærlega vel.
I heild vom þetta skemmtilegir
tónleikar og ljóst að Bach-sveitin
eflist með hveiju árinu en „stand-
ard“ í flutningi verður til á löngum
tíma, þar sem leiðarljósið er ögun
og trú á farsæl ieiðarlok. Þetta hef-
ur verið takmark þeirra sem staðið
hafa fyrir sumartónleikunum í Skál-
holti og þeir hafa áorkað miklu, og
hvað varðar tónlist, endurreist Skál-
holtsstað til mikillar virðingar sem
menningarsetur.
Guðrún Y. Gísladóttir við nokkur verka sinna.
W^h\ V. \ ;7s7 Jff
Hveragerði:
Myndlistarsýning í Eden
GUÐRUN V. Gísladóttir heldur
sölusýningu á myndverkum sín-
um í Eden í Hveragerði dagana
12. til 25.ágúst nk.
Á boðstólum verða u.þ.b. 30
málverk, aðallega olía á striga, og
nokkur vatnslitaverk, öll unnin á
síðastliðnum 2 ámm. Auk þess
verða til sýnis fáein olíumálverk úr
einkaeign, sem listakonan vann á
ámnum 1979-1987.
Þetta er í fyrsta skipti sem Guð-
rún sýnir myndverk sín opinber-
lega, en hún hefur á undanfömum
árum m.a. gefíð út tvær ljóðabæk-
ur.