Morgunblaðið - 07.08.1991, Side 52
PC MAGAZINE UM
IBM OS/2i
„ÞETTA ER
FRAMTÍÐIN"
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Akureyri:
Hótel Stefanía
er gjaldþrota
HÓTEL Stefanía hf. á Akureyri
var úrskurðað gjaldþrota hjá bæj-
arfógetaembættinu á Akureyri í
gær, að beiðni Búnaðarbankans.
Búnaðarbankinn lagði fram beiðni
um gjaldþrot fyrir tíu dögum en veitt-
ur var frestur í nokkra daga áður
en úrskurður var kveðinn upp. Nýr
rekstraraðili tók við rekstri hótelsins
1. ágúst sl. Eignir hótelsins eru því
sem næst engar en ekki er ljóst hvetj-
ar kröfur eru í búið.
Sjá nánar á bls. 30.
Davíð Oddsson:
Tel enn að
„vaxtahækk-
unin hafi ver-
ið of mikil
„ÉG RÆDDI þetta mál við Seðla-
bankasljóra í dag, í framhaldi af
greinargerð sem hann tók saman
um þetta efni. Ég er enn þeirrar
skoðunar að vaxtahækkunin hafi
verið of mikil,“ sagði Davíð Odds-
son, forsætisráðherra, í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Hann sagði þessi mál verða rædd
íifram næstu daga.
„Ég tel allar forsendur fyrir því
að vaxtastig ætti að geta lækkað
með haustdögum," sagði Davíð.
„Verðbólguspár og veruleikinn benda
til mjög hraðrar lækkunar vísitölu á
næstunni, og það er mjög mikilvægt
að vextir á nafnvaxtaskuldbinding-
um fylgi því fast eftir og lækki hratt
aftur.
Flugleiðaþoturnar:
Gæti þurft að
breyta handfar-
angurshólfum
LÍKUR benda til að þotur Flug-
leiða séu á meðal 1.057 Boeing
757- og 737-þotna sem gera þarf
breytingar á, þar sem hólf fyrir
handfarangur, sem eru fyrir of-
an farþegasæti, standast ekki
staðla bandaríska loftferðaeftir-
litsins. Boeing-flugvélaverk-
smiðjurnar tilkynntu þessar
breytingar á mánudag, en bentu
á að gallarnir hefðu engin áhrif
á öryggi vélanna.
„Boeing hefur ekki enn haft sam-
band við Flugleiði vegna þessa, og
því vitum við ekki hversu umfangs-
mikil breyting þetta er, en reiknum
með að hún verði framkvæmd næst
þegar vélarnar fara í skoðun,“ sagði
Margrét Hauksdóttir hjá upplýs-
ingadeild Flugleiða í samtali við
Morgunblaðið. „Við bíðum nú eftir
að fá upplýsingar frá verksmiðjun-
um,“ sagði hún ennfremur. Vélar
Flugleiða eru enn í ábyrgð, og sagði
Margrét líklegt að kostnaður sem
breytingunum fylgir verði greiddur
af verksmiðjunum.
Islendingar skrifa undir viðskiptasamning við Litháa:
Fyrsta V estur-E vrópurík-
ið sem semur við Litháen
Morgunblaðið/Bjöm Valdimarsson
Síldarævintýri á Sigló
Ein sérstæðasta skemmtun verslunarmannahelgarinnar var Sfldarævintýri á Siglufirði. Þar var gamla sfldar-
stemmningin rifjuð upp við góðar undirtektir heimamanna og burtfluttra Siglfirðinga.
Sjá nánar í frétt á miðopnu.
Þetta eru mín sjónarmið í þessu
sambandi. Akvarðanir um vaxta-
breytingar eru vitanlega í höndum
bankanna, en það er sjálfsagt að
þessi sjónarmið komi ítarlega fram,“
sagði forsætisráðherra ennfremur.
Sjá einnig viðtöl á bls. 23.
Viðskiptasamningur íslands
og Litháens var undirritaður í
Vilnius síðastliðinn mánudag.
Um er að ræða almennan ramma-
samning og ekki verður strax um
nein viðskipti að ræða, að sögn
Sveins Björnssonar sendifull-
trúa, sem undirritaði samninginn
fyrir íslands hönd. Island er
fyrsta Vestur-Evrópuríkið, sem
semur um viðskipti við Litháa,
en áður hafa þeir gert viðskipta-
samning við Tékka.
„Litháar eru enn að skipuleggja
sitt stjórnarráð og taka sín mál
smám saman í eigin hendur. Ég
þori ekki að segja til um hvenær
bein viðskipti geta hafizt sam-
kvæmt samningum," sagði Sveinn
Björnsson í samtali við Morgunblað-
ið í gær. „Litháar hafa auðvitað
verið undir Sovétríkjunum og ekki
haft neina sjálfstæða utanríkisvið-
skiptastefnu. Þessir samningar eru
upphafið á henni. Það eru ekki einu
sinni til nein fyrirtæki ennþá, sem
beinlínis stunda utanríkisverzlun."
Að sögn Sveins er ráð fyrir því
gert í samningnum að viðskipti
landanna fari fram eftir reglum um
svokölluð beztu kjara viðskipti,
samkvæmt Almenna samkomulag-
inu um tolla og viðskipti (GATT).
I því felst að Litháum verða veittar
allar þær viðskiptaívilnanir, sem
önnur ríki njóta hjá íslendingum,
að undanteknum þeim Iöndum, sem
gert hafa fríverzlunarsamninga við
Island.
Með samningnum er einnig hvatt
til aukinnar tæknisamvinnu land-
anna og samstarfs einstaklinga og
fyrirtækja í Litháen og á íslandi.
Að sögn Sveins verður fljótlega
sett á laggirnar sameiginleg nefnd,
sem sjá mun um framkvæmd samn-
ingsins. Gert er ráð fyrir nefndum
af þessu tagi í viðskiptasamningum
við Pólvetja og Tékka og eru þær
skipaðar fulltrúum út- og innflytj-
enda í báðum löndum, ásamt full-
trúum utanríkisráðuneyta þeirra.
Sveinn Bjömsson og Ramutis
Grizas, aðstoðaratanríkisráðherra
Litháens, undirrituðu samninginn.
Meðal þeirra, sem viðstaddir voru,
var Algirdas Saudargas, utanríkis-
ráðherra Litháens. Samningurinn
tók gildi við undirritun.
Togvindubúnaður flutt-
Fá umferðaróhöpp um helgina:
Umferð til og frá höfuð-
borginni aldrei verið meiri
TÆPLEGA 98 þúsund bifreiðir fóru um helstu vegi til og frá
Reykjavík um verslunarmannahelgina, samkvæmt talningu
Vegagerðar ríkisins fyrir Umferðarráð og hefur umferðin aldr-
ei verið meiri. Sömu helgi í fyrra fóru rúmlega 94 þúsund bílar
um sömu vegi. Að sögn lögreglu víða um land var helgin ein
sú rólegasta í manna minnum.
Talning Vegagerðarinnar
leiddi í ljós að fleiri bifreiðir fóru
um Vesturlandsveg en undanfar-
in ár, eða rúmlega 35 þúsund
bílar samanborið við tæplega 30
þúsund í fyrra. Minni umferð var
hins vegar um Suðurlandsveg en
undanfarin ár.
Hjá lögreglu voru skráð 50
umferðaróhöpp, flest minnihátt-
ar árekstrar og í þeim meiddust
átta manns lítillega. Lögregla
hafði afskipti af 83 ökumönnum
vegna meintrar ölvunar við akst-
ur.
Sjá fréttir af skemmtunum
um verslunarmannahelgina
á miðopnu, bls. 30,31 og 50.
ur út á alþjóðamarkað
Rafboði hf. býst við milljarða sölu innan nokkurra ára
RAFBOÐI hf. í Garðabæ, eitt stærsta raftæknifyrirtæki hér á landi,
gekk nú í vor frá markaðssetningar- og samvinnusamningi við stórfyr-
irtækið Asea Brown Boveri, ABB, í Hamborg en samkvæmt honum
tekur ABB að sér alþjóðlega markaðssetningu sjálfvirka togvindubún-
aðarins, Autotrawl, frá Rafboða. Gert er ráð fyrir, að árleg sala
verði komin í hálfan milljarð eftir tvö ár.
Ásgeir Erling Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Rafboða, segir, að
samningurinn við ABB sé tvíþætt-
ur. Annars vegar legði fyrirtækið
fram 300.000 mörk, rúmlega 10
milljónir ísl. kr., sem þróunarstyrk
og sem greiðslu fyrir þá tækniþekk-
ingu, sem það fengi með samningn-
um, en hinn hlutinn væri sölu- og
markaðssamningur. Samkvæmt
honum tekur ABB að sér að mark-
aðssetja og selja búnaðinn á alþjóða-
markaði en Rafboði mun áfram
annast íslenska heimamarkaðinn.
ABB ætlar að auglýsa sjálfvirka
togvindukerfið frá Rafboða og ann-
an búnað fyrir um þtjár milljónir
marka, rúmar 106 millj. ísl. kr., og
verður megináherslan til að bytja
með lögð á Þýskaland og1 Sovétrík-
in. Sovésku fiski- og verksmiðju-
skipin voru flest smíðuð í Austur-
Þýskalandi sem var og nú er verða
mikil samvinna með Þjóðvetjum og
Sovétmönnum í sjávarútvegsmál-
um. Þá ætlar ABB einnig að ein-
beita sér að spánska markaðinum
en fyrirtækið er með útibú mjög
víða.
Rafboði hf. veltir nú um 100
milljónum kr. en Ásgeir Erling
sagði, að salan á þessu ári yrði
væntanlega um 160-180 millj. kr.
og hann taldi, að hún færi í hálfan
milljarð á næsta ári. Þá sagði hann,
að ef þeir samningar, sem nú væri
verið að vinna að, gengju upp mætti
jafnvel tala um sölu upp á nokkra
milljarða eftir npkkur ár.
Sjá nánar í Úr verinu bls. Cl.