Morgunblaðið - 07.08.1991, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1991
Tveir menn frá Selfossi voru í
vélinni, sem var á leið frá Selfossi
að Múlakoti þegar fór að bera á
gangtruflunum og mótorinn missti
VEÐUR
Flugvél nauðlenti á veginum
við Breiðabólsstað:
Slapp við raflínu
og fór lágt yfír bíl
Flugvélin var dregin út af veg-
inum á meðan sótt var bensín
á Hellu. Þegar tankarnir höfðu
verið hreinsaðir og skipt um
bensín hóf flugmaðurinn vél-
ina aftur á loft.
VEÐURHORFUR í DAG, 8. ÁGÚST
YFIRLIT: Skammt norðaustur af landinu er 994 mb lægð sem
þokast norður.
SPÁ Norðvestlæg átt á landinu víðast kaldi. Skúrir norðanlands
en þurrt og víða bjart syðra. Hiti verður á bilinu 8-17 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG:Það verðurfremur hæg
breytileg átt á landinu og víða dálítíl rigning eða skúrir, einkum
sunnanlands. Hiti breytist Iftið.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TAKN:
O Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
10 Hrtastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
9, 9 Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
[7 Þrumuveður
Ekki mælt með reglum
um skoðanakannanir
NEFND um skoðanakannanir sem nýlega lauk störfum leggur til í
álitsgerð sinni að ekki verði sett lög eða reglur um skoðanakannanir
á íslandi. Hins vegar mælir nefndin með því að þeir aðilar sem
gera spurningakannanir vinni saman að mótun siðareglna og fram-
kvæmd þeirra og er sú vinna þegar hafin.
í álitsgerð nefndarinnar segir:
„Fjölmörg rök mæla gegn lagasetn-
ingu. Slík lög eru ekki í gildi á
Norðurlöndum, í Bretlandi eða
Bandaríkjunum. Framkvæmd
spurningakannanna virðist hafa
tekist vel á íslandi og engin vand-
kvæði komið upp sem réttlættu
lagasetningu. Með aukinni þekk-
ingu á framkvæmd og túlkun skoð-
anakannanna mun samkeppni milli
þeirra sem gera þær auka líkurnar
á að til þeirra verði vandað. Þá ber
að vara við því að banna fólki að-
gang að upplýsingum, sem það
kann að vilja nýta sér til ákvarðana-
töku, enda sé ekki um að ræða
rangar upplýsingar sem ógni al-
mannaheill.“
Nefndin var skipuð af mennta-
málaráðuneytinu vorið 1990 í kjölf-
ar þingsályktunar sem samþykkl
var á Alþingi 11. maí 1988. For-
maður nefndarinnar var skipaðui
Olafur Harðarson lektor en vegm
fjarveru hans erlendis gegndi Þor-
lákur Karlsson lektor formennski
í nefndinni. Aðrir í nefndinni vori
Elías Héðinsson félagsfræðingur
Elías Snæland Jónsson aðstoðarrit-
stjóri, Gunnar Maack framkvæmda-
stjóri, Hiljnar Þór Hafsteinssor
kennari, Ólafur Örn Haraldssor
framkvæmdastjóri og Páll Skúlasor
prófessor.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Flugvél nauðlenti á þjóðveginum við Breiðabólsstað í Fljótshlíð á
sunnudag vegna gangtruflana. Lendingin tókst vel og engan sakaði
en vélin slapp naumlega við raflínu í lendingunni að sögn sjónarvotts.
Strandir:
Grút rekur enn að landi
.
' ' '
Pétur Guðmundsson æðarbóndi í Ófeigsfirði.
PÉTUR Guðmunds-
son, æðarbóndi í
Ófeigsfirði, segir
að grút haldi áfram
að reka að landi á
Ströndum. Ef geri
snarpa vinda fyllist
víkur og vogar af
grút en I stillum
dreifist grúturinn.
Hann segir að lítið
beri á æðarfugli en
nokkrar æðarkoll-
ur hafi komið sér
fyrir við lækjarós
ásamt fáeinum ung-
um.
„Ef gerir snarpa vinda fyllast
víkur og vogar af grút en um leið
og lægir dreifíst grúturinn út um
allan sjó. Hann er í sama formi og
hann hefur verið. í sjónum er hann
í yijum en veðrátta ræður því hvem-
ig hann lítur út uppi á landi,“ sagði
Pétur í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði að lítið væri um fugl á
svæðinu en nokkrar kollur hefðu
komið sér fyrir við lækjarós. Fáein-
ir ungar fylgdu þeim.
Pétur sagðist þeirrar skoðunar
að ekki tæki því að þvo ungana til
þess að bjarga þeim. Vatn væri lít-
ið til þvotta og sápan hefði slæm
áhrif á lífíð í sjónum. Hann sagðist
nýlega hafa verið á ferð í Reykja-
fírði þar sem hann hefði komið auga
á nokkrar hvítar þykkar straumrák-
ir. Að sögn Péturs bráðnar grútur-
inn i fjörunni þegar sólin skín.
- segir Ragnhildur Sveinbjörnsdóttir
sem horfði á nauðlendinguna
„ÉG VARÐ nyög undrandi þegar ég sá flugvélina koma mjög
hratt niður og lenda á þjóðveginum. Hún þurfti að fara mjög
lágt yfir bíl sem var á veginum og hún ruggaði talsvert. Hér
austan við er raflína sem hún fór annað hvort undir eða rétt
yfir. Það stóð tæpt þar,“ segir Ragnhildur Sveinbjörnsdóttir í
Lambey í Fljótshlíð sem varð vitni að því er eins hreyfils flugél
af gerðinni Cessna Cardinal 177 nauðlenti á þjóðveginum skammt
frá Breiðabólsstað á sunnudag vegna gangtruflana. Tveir menn
voru um borð og sakaði hvorugan. Eftir að eldsneytistankarnir
höfðu verið hreinsaðir og nýtt bensín verið sett á vélina flaug
flugmaðurinn vélinni einn á brott.
og Breiðabólsstað.
„Það var vatn í bensíngeymun-
um. Þeir hreinsuðu tankana og
fengu nýtt bensín á vélina á Hellu
og flugu svo aftur af stað. Það
gekk allt vel fyrir sig. Flest bendir
til að vatnið hafi komist inn með
eldsneytislokum í geymana í mikl-
um rigningardembum. Við munum
gera ráðstafanir til að kanna elds-
neytislokin en að öðru leyti verður
ekki frekar aðhafst vegna þessa
atviks," segir Skúli.
afl. Ákváðu flugmennimir að lenda
á þjóðveginum neðan við Breiða-
bólsstað þar sem hann var auður
og sléttur, að sögn Skúla Jóns Sig-
urðarsonar hjá loftferðaeftirlitinu.
Vélin stöðvaðist við afleggjarann
að Ámagerði skammt frá Ásvöllum
t VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl, 12:00 í gær að ísl. tima hiti veður Akureyri 13 alskýjaö Reykjavik 12 rigning og súld
Bergen 18 skýjað
Helsinki 25 skýjað
Kaupmannahöfn 20 alskýjað
Narssarssuaq 8 alskýjað
Nuuk 5 rigning á s. kist.
Osló 17 rignlngás.klst.
Stokkhólmur 21 rigning
Þórshöfn 14 skýjað
Algarve 29 heiðskírt
Amsterdam 20 skýjað
Barcelona 28 heiðskfrt
Berlfn 30 skýjað
Chicago 21 skýjað
Feneyjar 29 þokumóða
Frankfurt 30 hálfskýjað
Glasgow 15 rigning á s. klst.
Hamborg 28 skýjað
London 22 skýjað
LosAngeles 18 skýjað
Uixemborg 28 léttskýjað
Madrid 37 léttskýjað
Malaga 29 heiðsklrt
Maliorca 30 helðskírt
Montreal 16 i s
NewYork vantar
Orlando vantar
Parfs 31 léttskýjað
Madelra 25 skýjað
Róm 28 láttskýjað
Vín 26 léttskýjað
Washington 22 léttskýjað
Winnlpeg 16 skúrás. klst.