Morgunblaðið - 07.08.1991, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1991
Utanríkisráðherra
hefur leynt upplýs-
ingum um frílista
Ráðherrann segir ásakanir Ólafs
á misskilningi byggðar
„OLLUM lykilstofnunum sljórnkerfisins hefur verið sagt ósatt og
mjólkurvörum smyglað inn í samninga á síðustu vikum viðræðn-
anna í Brussel," segir Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins. Ilann sakar utanríkisráðherra um að hafa brugðist
lagaskyldu með því að leyna upplýsingum um mjólkurafurðir á
frílista í viðræðum EFTA og EB. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra segir engu hafa verið leynt, þessar upplýsingar hafi
legið fyrir í ráðuneytum landbúnaðar og iðnaðar frá febrúarbyij-
un. Bréfleg viðbrögð ráðuneytanna sýni að mönnum hafi verið ljóst
að þessar tegundir væru á umræddum lista.
Búferlaflutningar vestur um haf
. Svisslendingarnir Jiirg Sommerauer, námuverkfræðingur og flug-
vélasmiður, t.h. og Sven Girsperger, jarðfræðingur, við Glasair
flugfél Sommerauers á Reykjavíkurflugvelli.
Ólafur Ragnar kveðst munu
krefja Jón Baldvin skýringa um
málið á fundi utanríkismálanefnd-
ar í vikunni. „Hafi aðalsamninga-
maður Islands ákveðið að láta það
viðgangast að mjólkurafurðir færu
inn á listann ber honum að víkja,“
segir Ólafur. „Ef ákvörðunin er
utanríkisráðherra hefur hann lejmt
mikilvægum upplýsingum og ég
tel ástæðu til að Alþingi komi sam-
an til sérstaks fundar um málið í
águst.“
Forseti Alþingis, Salóme Þor-
kelsdóttir, kveðst ekki hafa heyrt
að þetta mál þætti næg ástæða til
að kalla saman aukaþing. Úr því
hljóti að mega greiða í ríkisstjórn
og utanríkismálanefnd.
Jón Baldvin Hannibalsson segir
ákvarðanir í viðræðunum í Brussel
teknar í samráði við sig. „Ábyrgð
á þeim hvílir vitanlega á mér,“
segir hann. „Við tókum ekki þátt
í viðræðum um listann í vetur en
sögðum í júlí: Ef leyfður verður
tollfijáls aðgangur fýrir sjávaraf-
urðir föllumst við á þennan sam-
ræmda lista. Við stóðum frammi
fyrir því að hafna EES samningun-
um í heild eða taka því að smjör-
líki og ísefni séu með á lista yfir
iðnaðarvörur úr landbúnaðarhrá-
efnum.“
Ólafur Ragnar segir það bera
vott um vankunnáttu samninga-
manna íslands í Brussel, að telja
unnt að leggja jöfnunargjald á inn-
flutt smjörlíki. Það verði ekki hægt
þar sem jurtaolía sé ekki framleidd
hérlendis. Jón Baldvin vísar þess-
ari fullyrðingu á bug og segir hana
dæmigerða fyrir misskilninginn í
málflutningi Ólafs.
Jón segir jöfnunargjald gegna
þeim tilgangi að vega upp á mun
á verði innflutnings og innlendum
framleiðslukostnaði, með álagn-
ingu þess sé hægt að mæta niður-
greiddu hráefnisverði erlendis.
Fyrir mjólkurfituna í smjörlíki sé
auðvitað hægt að setja á jöfnunar-
gjald til að vega upp lágt mjólkur-
verð í EB-löndum. En hvað jurta-
olíu varði þurfi ekkert að jafna,
hún sé keypt á heimsmarkaðsverði.
Gunnar Snorri Gunnarsson
skrifstofustjóri í utanríkisráðu-
neyti segir að á viðræðulistum
EFTA og EB sem sendir voru hlut-
aðeigandi ráðuneytum í febrúar,
sé tollflokkur 2106 og undir hann
falli vörur eins og Létt og laggott
og Smjörvi með meira en 15%
mjólkurfítu. Á lokalista sem geng-
ið hafí verið frá í júlí sé einnig
flokkur 1507, að ósk iðnaðarráðu-
neytis, en undir hann falli smjörlíki
með minna en 15% mjólkurfítu.
Það sé misskilningur Ólafs Ragn-
ars að smjörlíkið hafi bæst á list-
ann í sumar óg rangt að einhveiju
hafí verið smyglað þar inn.
ÞEGAR fólk flytur búferlum
milli heimsálfa fylgja oft miklir
búslóðaflutningar. Það þarf að
huga að mörgu og dýrðargripir
þurfa sérstaka umönnun. Sviss-
neski námuverkfræðingurinn
Jiirg Sommerauer fékk nýverið
kostaboð um atvinnu í sinni
grein vestur í Utah-fylki í
Bandaríkjunum sem hann og
þáði. Meðal þess sem fylgdi bú-
slóð Sommerauers var flugvél
sem hann og eiginkonan smíð-
uðu í sameiningu áður en þau
hjónin tóku sig til við að stækka
fjölskylduna. Flugvélina, sem er
af gerðinni Glasair, gátu þau
ekki hugsað sér að selja eða
skilja eftir í geymslu heima í
Sviss því þeim finnst hún vera
hluti fjölskyldunnar.
Þegar Jiirg Sommerauer og
kona hans, Beate, fyrst kynntust
kom það á daginn að þau höfðu
bæði áhuga á flugi og varð það
þeirra fyrsta verk í sameiningu að
smiða sér flugvél. Flugvélasmíðin
tók um tvö og hálft ár og urðu
heildarvinnustundir þeirra hjóna
við smíðina um 4.000 alls. Yængir
vélarinnar voru smíðaðir í stofu
þeirra hjóna en skrokkurinn var
smíðaður í bílskúrnum. Það leynir
sér ekki við skoðun vélarinnar, sem
þau skírðu „Bleiki baróninn", að
þau hafa vandað vel til smíðinnar,
enda hlutu hjónin fyrstu verðlaun
fyrir smíðina á flugsýningu heima-
smiða í Frakklandi á sl. ári.
Þegar að flutningnum kom var
ákveðið að sonurinn skyldi taka
sér far til vesturheims með áætl-
unarflugvél, en eiginmaðurinn
fékk það verkefni að flytja flugvél-
ina milli heimsálfa. Þar sem það
er ekki fyrir óvana að fljúga smá-
flugvél einn síns liðs yfír Norður-
Atlantshafi fékk Sommerauer vin
sinn einn, Sven Girsperger, sem
er jarðfræðingur og reyndur flug-
maður, til að koma með. Girsper-
ger hefur áður farið fram og til
baka yfir Atlantshafíð á smáflug-
vél og er með töluverða reynslu í
blindfiugi. Hingað til íslands komu
þeir ferðafélagar í byijun síðustu
viku, en vegna óhagstæðra veður-
skilyrða á flugleið þeirra héðan
þurftu þeir að bíða færis til að
komast áfram. En ekki sátu þeir
aðgerðarlausir á meðan á bið
þeirra stóð heldur notuðu félagam-
ir tækifærið til að skoða landið úr
flugvél Sommerauers enda námu-
verkfræðingur og jarðfræðingur
væntanlega vel færir um að meta
landslag og fegurð íslands okkar
án leiðsögumanns. Þeir fóru vítt
og breitt um landið félagamir í
nokkmm ferðum og kváðust mjög
hrifnir af öllu, að undanskildu
verðlaginu hér.
Eru
þeir að
fá 'ann
ROÐ efstu laxveiðiánna er óbreytt eftir hina löngu helgi. Þverá
ásamt Kjarrá hefur enn vinninginn, en á hæla hennar koma Laxá
í Kjós og Norðurá og þar á eftir Langá á Mýrum og Laxá í
Aðaldal, en í síðastnefndu ánni þykir veiðin þó afar dauf. Breyt-
ing kann að verða á lokaröð ánna, því veiði lýkur í Þverá um
næstu mánaðamót og í efri hlutanum, Kjarrá, 3. september. Veiði
í Norðurá lýkur 31. ágúst, en í Laxá í Kjós verður veitt til 9.
september og í Langá til 12. september á neðsta svæðinu, en til
20. september á miðsvæðinu og á Fjallinu. Laxá og Langá gætu
því skákað Borgarfjarðaránum tveimur um einhver sæti áður en
yfir lýkur og svo er slatti af ám sem hefur gefið eitthvað minna,
en gætu tekið mikinn kipp ef skilyrði gerast hagstæð áður en
yfir lýkur.
Þverá sækir sig á ný
Andrés Eyjólfsson frá Síðum-
úla, leiðsögumaður við Þverá,
sagði í samtali við Morgunblaðið
í gær, að milli 1.230 og 1.240
laxar væru komnir á land úr ánni
allri, Þverá og Kjarrá. Veiðin hafí
dottið mikið niður í eina fimm
daga, en væri nú að koma upp á
ný. I fyrradag komu svo miklir
hitaskúrir, að áin óx og litaðist
og í kjölfarið fór að veiðast betur
og í aflanum voru meira að segja
grálúsugir fískar, þannig að enn
er lax að ganga á svæðinu.
Norðurá nálgast þúsund
„Við vorum að taka þetta saman
og fengum út að Norðuráin er
komin í svona 910 til 920 laxa,
Norðurá 1 með um 850 laxa þar,
af, en Stekkurinn utan Norðurár
1 um 40 stykki og Munaðarnesið
og efri dalurinn með swona. 30
fiska,“ sagði Ingólfur Ásgeirsson
veiðimaður í Norðurá í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hann hafði
verið ásamt föður sínum í ánni í
ijóra daga og lágu 8 flugufiskar
í valnum eftir þá. Ingólfur sagði
að öll áin væri „virk“, þ.e.a.s. að
lax veiddist um allt. Áin er frem-
ur vatnslítil, en skúrimir að und-
anfömu hafa sett mark sitt á
veiðiskapinn, þannig litaðist áin
grængul á dögunum, er það kom
þrumuskúr í Bauluna þannig að
líparítdmlla fossaði í ána. Er hún
skolaðist úr kom skot í veiðina,
en annars er hún jöfn og þokka-
leg.
Kjósin komin í 1.000 stykki
Ásgeir Heiðar staðarleiðsögu-
maður við Laxá í Kjós sagði við
Morgunblaðið í gær að tölumar
úr Kjósinni hefðu verið svo á reiki
að undanfömu að hann vissi varla
lengur hvort hann segði sjálfur
satt eða ekki! Helst hefði verið
að. heyra á fjölmiðlum að veiðin
væri komin vel á tólfta hundrað-
ið.„Það er ekki rétt. Rétt er að
veiðin er að skríða í 1.000 laxa.
Það var mjög góð veiði um tíma
eftir rigningarnar, en þótt mikið
hafi gengið af laxi þá og síðan
hafa tökur ekki verið sem skyldi.
Áin er nefnilega það lítil að laxinn
bunkar sig á fáum stöðum og tek-
ur þá illa. Það er hrikalegt magn
af físki á neðsta svæðinu. Það
minnir á mergðina sem var á
svæðinu metveiðisumarið 1988.
Það verður fjör er hrúgan fer að
dreifa sér um ána,“ sagði Ásgeir
Heiðar.
Langá stendur vel
Jóhannes Stefánsson leiðsögu-
maður og veiðivörður við Langá
•sagði í gær að tveir síðustu dag-
arnir hefðu verið fremur daufir,
enda mjög heitt og bjart í veðri.
En veiðin hefði verið allgóð og
mjög viðunandi það sem af væri,
vel á áttunda hundrað laxar væm
komnir á land úr ánni allri og
góður tími eftir á ýmsum af svæð-
unum, eins og til dæmis á Fjall-
inu. „Það gæti verið gott hér neðst
áfram, því við emm enn að fá
nýmnna físka og það vantar ekki
lax í ána, af honum er nóg,“ sagði
Jóhannes. Síðustu daga veiddust
tveir boltafískar á Langárvísu,
báðir í Glanna, annar 16 pund og
hinn 15 pund. í hylnum Iiggja
nokkrir sem eru augsýnilega ekki
minni og jafn vel heldur stærri.
Laxá í Þing. dauf
Stefanía starfsstúlka í eldhús-
inu í Vökuholti gluggaði í veiði-
bókina fyrir Morgunblaðið í gær-
dag og sagði um 600 laxa komna
á land. Hún hafði ekki spurnir af
efri svæðum árinnar, en Morgun-
blaðið hefur eftir góðum leiðum
að heildaraflinn sé eitthvað yfir
700 fískar. Menn em ekkert of
hressir með veiðina, því lítill físk-
ur er talinn í ánni og helst að
menn fái smáskot fyrir neðan
Æðarfossa annað slagið. Nýlega
veiddist 25 punda hængur, rosa-
legur en draugleginn risi, í Vitaðs-
gjafa. á Nesveiðunum. Er það
stærsti lax sem frést hefur af hér
á landi í sumar. Óvenjulítið hefur
veiðst af 20 punda löxum og
stærri það sem af er hér á landi.
Þannig hefur t.d. enginn slíkur lax
veiðst enn á svæðum Laxárfélags-
ins í Laxá í Aðaldal. gg
Patreksfj örður:
Eldur í rækjuveiðiskipi
LITLAR skemmdir urðu af eldi sem kom upp um borð í rækju-
veiðiskipinu Erlingi KE er það var á leið til hafnar á Patreksfirði
á mánudag. Slökkvilið bæjarins réði niðurlögum eldsins þegar
komið var að bryggju um tveimur klukkustundum síðar.
bragðist hárrétt við. Skipið lagði
síðan að bryggju um klukkan 20,
og var eldurinn slökktur undireins.
Að sögn lögreglunnar á Patreks-
firði barst tilkynning frá skipveij-
um um reyk framantil í skipinu
laust fyrir klukkan 18, og hafði
áhöfnin þá lokað og þétt rýmið þar
sem eldur logaði. Þannig var kom-
ið í veg fyrir að aukið súrefni
næði að auka logann, og tók lög-
reglan fram að skipveijar hefðu
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu kviknaði eldurinn útfrá
rafmagni. Erlingur fór síðan frá
Patreksfirði um miðnætti á mánu-
dag áleiðis til Keflavíkur.
„Bleiki baróninn“, heimasmíðuð Glasair I flugvél svisslendingsins Jiirg Sommerauer í Reykjavík á
leið til nýrra heimkynna í vesturheimi.
Ólafur Ragnar Grímsson: