Morgunblaðið - 07.08.1991, Side 44

Morgunblaðið - 07.08.1991, Side 44
'44 - MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1991 fólk f fréttum MÓNAKÓ Hjarta furstans farið að gefa sig Furstafjölskyldan í Mónakó hefur mátt þola ýmislegt að undanf- ömu. Það var gífurlegt áfali fyrir hana þegar Grace furstafrú lést í bílslysi fyrir um tíu árum en einkum tók Rainer fursti dauða hennar nærri sér. Hann hefur einnig átt í miklum vandræðum með að hafa stjórn á börnunum þremur en þau hafa lent í ófáum hneykslismálum eftir að þau urðu fullveðja. Það sér samt ekki fyrir endann á vandræð- um fjölskyldunnar því að nú berast þær fregnir að hjarta furstans sé að gefa sig og segja læknar hans að eina vonin sé að skipta um hjarta. Heyrst hefur að furstinn hafi þegar gefíð samþykki sitt fyrir slíkri aðgerð og nú sé einungis beð- ið eftir því að heppilegur gefandi finnist. Gefandinn þarf að vera á svipuðum aldri og furstinn og fall- ast á að hjartað sé tekið úr honum eftir andlátið. Síðan er bara að bíða eftir því að einhver deyi sem hægt er að nota hjartað úr og þá getur aðgerðin farið fram. Furstinn, sem er 68 ára gamall, ku taka öllu þessu umstangi með stóískri ró enda hefur honum verið ráðlagt að æsa sig ekki að óþörfu. Öll þau hneykslismál sem fursta- börnin hafa lent í hafa oft komið hjarta hans til að slá örar. Nú verð- ur bara að koma í ljós hvort að umhyggja þeirra fyrir karli föður sínum knýi þau til að haga sér bet- ur á næstunni. Rainer fursti af Mónakó. KÍNA Islenskir jarðfræði- og landafræðinemar á ferð Ijúní fór hópur jarðfræði- og land- afræðinema í náms- og skemmt- iferð til Kína. Þar í landi voru þeir gestir Nanjing-háskóla og meðan á dvölinni stóð, ferðuðust þeir vítt og breitt um iandið. Meðal annars fóru þeir upp á Emei-fjall sem er um 3000 metrar á hæð og eitt af helg- um fjöllum búddatrúarmanna. I Kína sýndi hópurinn þjóðrækni sína í verki með því að halda þjóð- hátíðardaginn, 17. júní, hátíðlegan en þá var farið í skrúðgöngu og blys tendruð. Að sögn eins Kínafar- ans, Victors Kr. Helgasonar, tókst förin í flesta staði mjög vel og urðu þeir jarðfræði- og landafræðinemar margs vísari í henni. Frá hátíðarhöldunum að kvöldi hins 17. júní. ■m íslendingarnir ásamt kínverskum fararstjórum á Emei-fjalli. PARÍS 17T Stjör n uspekistöói n gunnlaugur guðmundsson ^ miðbæjarmarkaðnum sendum í póstkröfu aðalstræti 9, sími 10 3 77 Myndlistarnámskeið fyrir börn Getum bætt við nemendum á síðasta námskeið sumarsins, 12.-23. ágúst. Farið verður í eftirfarandi: Leirmótun — málun — blandaöa tækni — teikningu og fleira Námskeiðið stendur yfir í 2 klst. á dag. Leiðbeinendur verða: Guðlaug Halldórsdóttir, grafískur hönnuður, og Helga Jóhannesdóttir, leirlistakona. - Báðar hafa veitt barnastarfi forstöðu. - Innritun verður alla virka daga frá kl. 9-16 í hús- næði Tónlistarskóla Eddu Borg í Hólmaseli 4-6. Ennfremur er að hefjast innritun á vetrarnámskeið. Upplýsingar í símum 73452, 673395 og 667228. David Bowie flottur á því í þessu lífi? líf Þrátt fyrir að tónlistarmaðurinn David Bowie sé orðinn 43 ára slær hann ekki slöku við í vinnu eða kvennamálum. Um þessar mundir er hann með stúlku að nafni Iman en hún er vinsæl fyrirsæta í tískuheiminum. Fyrir nokkrum árum var Bowie þekktur fyrir að lifa hátt en eitt- hvað hefur hann lækkað flugið að undanförnu, Hann reynir eftir megni að forðast ágang blaða- manna og ljósmyndara en er þó ekki mótfallinn því að auglýsa sig öðru hvoru. Nýlega kom hann elsk- unni sinni á óvart með því að bjóða henni í stutt frí til Parísar. Vöktu þau mikla athygli á gönguferðum sínum um borgina, hvort sem þau leiddust um þröngar götur Latínu- hverfisins eða eftir Signubökkum. Bowie var augljóslega stoltur af hinni glæsilegu Iman enda var hún ávallt klædd eftir nýjustu tísku. Hún er af sómölskum ættum og hafa þau Bowie verið allt að því óaðskiljanleg í sjö mánuði. hvaðan kemur þú? hver er tilgangur þinn David Bowie og Iman leiðast eftir Signubökkum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.