Morgunblaðið - 07.08.1991, Síða 27

Morgunblaðið - 07.08.1991, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. AGUST 1991 27 ' Morgunblaðið/KGA altalæk Morgunblaðið/Kári Jonsson Síldarævintýri á Siglufirði: Stemmningin eins og í gamla daga UM verslunarmannahelgina þrefaldaðist íbúatala Siglufjarðar þeg- ar síldarævintýrið var rifjað upp í bænum. Fjölmargir burtfluttir Siglfirðingar og aðrir sem unnu við síldina hér áður fyrr heim- sóttu bæinn. Allt gistirými var fullbókað, tjaldstæðið fylltist, fólk tjaldaði suður um allan fjörð og gestir voru í flestum húsum í bænum. Að auki komu margir íbúar úr nágrenni Siglufjarðar til að fylgjast með söltuninni og öðrum dagskrárliðum hátíðarinnar. Að sögn lögreglunnar voru um 4-5.000 manns í bænum þegar mest var og fór ævintýrið einstaklega vel fram. Söltunarplani var slegið upp og ýmsum munum sem tengjast síldarárunum var komið fyrir í miðbænum. Þar mátti sjá „Sigur- vin“ bát Gústa guðsmanns, gamla bíla frá síldarárunum, t.d. rútu frá Siglufjarðarleið, síldartunnur og net auk þess sem strigatjöldum var slegið upp. Ymis atriði voru til skemmtunar og komu þar fjöl- margir við sögu. Leikfélagið söng lög úr „Síldin kemur, síldin fer“, Danshljómsveit Sigluijarðar lék lög frá síldarárunum, Fílapensla- kórinn brá sér í líki Gautanna og karlakórsins Vísis og hljómsveitin Miðaldamenn lék fyrir dansi á landleguballi og síldarballi. Sr. Bragi J. Ingibergsson messaði í Hvanneyrarskál að viðstöddum fjölda manns. Gengið var upp í „Skál“ með hestamenn í farar- broddi. Boðið var upp á sætaferðir um Siglufjarðarskarð og bátsferðir um fjörðinn og sjóstangaveiðimót- ið Sjósigl var haldið í þriðja sinn. Hið nýja síldarminjasafn var svo að sjálfsögðu opið alla helgina. Veðrið lék við bæjargesti þessa daga og var sól og blíða á meðan á hátíðinni stóð. taka langt fram úr björtustu von- um aðstandenda. „Allir sem leitað var til lögðust á eitt um að gera ævintýrið að veruleika. Bæjarbúar tóku höndum saman um að hátíð- in tækist sem best. Hugmyndin fæddist fyrir aðeins einum mánuði og því varð að láta hendur standa fram úr ermum við undirbúninginn rétt eins og í síldinni hér áður fyrr. Veðurguðirnir lögðu okkur einnig lið og hér var einmuna blíða. Betra gat það ekki verið“. Síldar- ævintýrið var haldið að frumkvæði bæjaiyfirvalda og stefnt er að því að gera það að árvissum viðburði í bæjarlífinu um verslunarmanna- helgar. —M.J. Vestmaimaeyjar: Mikil stemmning var í rigningunni á þjóðhátíð V estmannaeyj u m. ÞJÓÐHÁTIÐIN í Vestmannaeyjum tókst með ágætum þrátt fyrir að veðurguðirnir sýndu ekki sínar bestu hliðar. Talið er að um 8.000 manns hafi verið á Þjóðhátíðinni og skemmtu flestir sér vel þrátt fyrir rigningu og austan stinningskalda bæði föstudag og laugardag. Hápunktur gleðinnar var svo þegar ræst var í síldarsöltun á Drafnarplaninu á laugardagseft- irmiðdag. Þrælvanar síldarstúlkur sýndu réttu handbrögðin og bryggjuformaðurinn, verkstjórinn, frákeyrar og spekúlantinn vor allir á sínum stað. Að lokinni söltun- inni var dansað og sungið á plan- inu alveg eins og í gamla daga og tóku áhorfendurnir virkan þátt í söngnum. Stemmningin var alveg eins og áður og mátti sjá síldarg- lampá í augum viðstaddra þegar hvað mest var um að vera á plan- inu. Að sögn Theódórs Júlíussonar framkvæmdastjóra Síldarævin- týrsins fóru undirtektir og þátt- Það blés ekki byrlega við upphaf hátíðarinnar á föstudagsmorgun. Slagveðursrigning og austan stinn- ingskaldi. Eyjamenn og aðrir há- tíðargestir létu veðrið þó ekki aftra sér og fjölmenntu með tjöld sín í Ilerjólfsdal. Hátíðin hófst með setn- ingu eftir hádegi á föstudag og var upp frá því nánast sleitulaus dag- skrá til mánudagsmorguns. Fjöldi skemmtikrafta kom fram á há- tíðinni og virtist fólk skemmta sér vel þrátt fyrir óhagstætt veður. Klætt regnfatnaði fjölmennti það í brekkur Heijólfsdals og fylgdist með dagskránni og dansaði síðan fram undir morgun á pöllunum tveim. Brenna og flugeldasýning voru á miðnætti á föstudags- og laugardagskvöld að venju og þótti hvort tveggja tilkomumikið. Á sunnudag stytti upp og var stemmningin í brekkusöngnum; við varðeldinn undir stjórn Árna Johnsens mikil. Að sögn lögreglunnar í Eyjum var mjög erilsamt hjá þeim um helgina. Mun erilsamara en undan- farnar Þjóðhátíðar og töldu þeir ástæðu þess fyrst og fremst vera veðrið. Það væri reynslan áð þegar veður væri gott vær mun minna að gera hjá lögreglunni. Þeir sögðu að ölvun hefði verið mjög mikil og fangageymslur hefðu verið marg- setna yfir helgina. Talsvert var um skemmdir og þjófnaði úr tjöldum sem kært var til lögreglunnar. 4 fíkniefnamál komu til kasta lögregl- unnar og var þar eingöngu um neyslu að ræða. Ein kæra barst vegna nauðgunar og er það mál í rannsókn og fjöldi kæra vegna líkamsárása barst. Vel gekk að flytja aðkomufólk til síns heima eftir hátíðina á mánu- dag. Veður var mjög gott og var loftbrú milli lands og Eyja auk þess sem Heijólfur var í stanslausum ferðum. Grímur Meiri fíkniefnaneysla en á fyrri hátíðum Blönduósi. UM ÞAÐ BIL 2.400 ungmenni voru á rokkhátíð í Hunaveri um verslunar- mannahelgina, að sögn mótshaldara. Hátíðin tókst vel og lítið var um slys og óhöpp og veðrið lék við mótsgesti. Lögregla á Blönduósi segir að ölvun hafi verið almenn en ekki mikil en neysla fíkniefna var meiri á þessari útihátíð í ár en áður hefur verið og hafði lögreglan afskipti a.m.k tólf einstaklingum vegna þessa. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi þá fór útihátíðin í Húnaveri vel fram og þakkar hún það góðu skipulagi. Kristján Þorbjörnsson aðalvarðstjóri lögreglunnar á Blönduósi sagði að ölvun hefði verið almenn en ekki mikil, en fíkniefnaneysla hefði aukist frá fyrri útihátíðum og hefði þurft að hafa nokkur afskipti vegna þess. Engin alvarleg slys urðu en nokkuð um smá skrámur, sem fyrst og fremst voru af völdum glerbrota. Öll aðstaða til hátíðahalda var góð. Mótsgestir gátu fengið heitan mat allan sólarhringinn meðan á hátíðinni stóð, slysavarnadeildir Slysavarnafé- lags íslands og Flugbjörgunarsveitir á Norðurlandi höfðu með hendi allt eftirlit inni á mótsvæðinu og lækna- vakt var alla helgina. Þrátt fyrir þennan viðbúnað eru aðstandendur svolítið hissa á því hversu fáir lögðu leið sína í Húnaver um helgina. Ingi Hans mótstjóri sagði að þetta væri talsvert áfall fyrir þá hugsjónamenn sem hefðu reynt að koma_ á fót ár- vissri rokktónlistarhátíð á íslandi, en kunni engar skýringar á því hvers vegna svo fáir hefðu komið sem raun ber vitni. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar gekk umferð um Húnavatns- sýslur vel um þessa rniklu ferða- helgi. Þó var 21 ökumaður tekinn vegna gruns um ölvunarakstur og 26 ökumenn voru teknir fyrir hrað- akstur en það mun vera minna en gerist um venjulega helgi. - Jón Sig. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Krakkarnir skemmtu sér vel á barnaballinu,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.