Morgunblaðið - 07.08.1991, Blaðsíða 30
Stríðsárin á Akureyri og Eyjafirði:
Ljósmynda frá stríðs-
árunum leitað vegna
vegria útkomu bókar
BOK um sögu stríðsáranna á Akureyri og Eyjafirði kemur út í
nóvember næstkomandi, höfundur hennar er Jón Iijaltason sagn-
fræðingur á Akureyri, en hann skrifaði m.a. I landi Eyralands
og Nausta, sem er 1. bindi af sögu Akureyrar. Mikill fjöldi mynda
mun prýða bókina og er höfundurinn nú að leita eftir myndum
sem teknar voru á Akureyri eða í Eyjafirði á stríðsárunum.
í stríðsárasögunni verður dregin
upp mynd af dvalarstöðum her-
námsliðsins í Eyjafirði, samskipt-
um þess við Eyfirðinga og viðbún-
aði að taka á móti Þjóðverjum.
Akureyri verður í brennipunkti
frásagnarinnar, enda voru þar
höfuðstöðvar hersins á Norður-
landi. Sögusviðið nær þó innan frá
Melgerðismelum, þar sem var
flugvöllur setuliðsins og út á Siglu-
nes og Sigluíjörð. Farið verður um
Öxnadal og Hörgárdal, Dagverð-
areyri, Hjalteyri, Árskógsströnd,
Dalvík, Ólafsíjörð og endað á Si-
glufirði. Grenivík er einnig inni í
þessari mynd, en þar hlustaði lítil
hersveit Breta eftir óvinakafbát-
um. Gripið verður á ýmsum við-
kvæmum málum stríðsáranna, svo
sem nasisma, Bretavinnu og
ástandinu. Sagt verður frá eina
Eyfirðingnum sem var handtekinn
af setuliðinu og sendur utan í her-
fangabúðir, árásum Þjóðveija á
ísland og ýmsum skondnum atvik-
um er urðu vegna tortryggni Breta
í garð Eyfirðinga, svo eitthvað sé
nefnt.
Mikill ijöldi mynda verður í bók-
inni, sem margar hafa hvergi áður
birst; ófáar myndanna eru í einka-
eign breskra og bandarískra her-
manna, aðrar koma úr söfnum í
Bandaríkjunum og á Bretlandseyj-
um, þá hafa íslenskir einstaklingar
einnig lánað myndir í bókina.
Jón Hjaltason leitar nú mynda
í bók sína, en hann kvaðst þess
fullviss að myndir frá þessum tíma
væru víða til, Bretarnir hefðu tek-
ið mikið af myndum sem þeir gáfu
fólki. Þeim sem eiga myndir frá
þessum tíma er því bent á að hafa
samband við höfund bókarinnar.
Viking Brugg:
Anna varla eftirspurn
eftir alkóhóllausa ölinu
VIKING Brugg á Akureyri hef-
ur vart undan að framleiða
alkóhóllausa Löwenbrau-bjór-
inn, sem fyrirtækið setti fyrst á
markað um miðjan júlí. Sala á
öðrum framleiðsluvörum fyrir-
tækisins gengur einnig vel og
eru dæmi um 100% söluaukn-
ingu einstakra öltegunda á milli
ára.
dæmi að söluaukning á einstökum
tegundum væri 100%, en það ætti
m.a. við um Viking bjórinn. „Salan
er helmingi meiri en á sama tíma
á síðasta ári, þannig að það er
mikið að gera í verksmiðjunni
þessa stundina,“ sagði Magnús.
Vel heppnað skáta-
mót í Vaglaskógi
SKÁTAMÓTIÐ „Á grænni grein“ var haldið í
Vaglaskógi um verslunarmannahelgina, en um 400
manns voru ýmist beinir eða óbeinir þátttakendur
á mótinu. Samfelld dagskrá var frá morgni til
kvölds, en skátafélagið Klakkur á Akureyri sá um
undirbúning og framkvæmd mótsins.
Jóhannes Ámason mótstjóri sagði að mótið hefði
gengið prýðilega fyrir sig, en það stóð frá því á föstu-
dagskvöld fram á mánudag. Um það bil 230 skátar
á aldrinum 11-15 ára tóku þátt, auk þess sem um
80 skátar eldri en 15 ára störfuðu í vinnubúðum og
um 100 manns voru í fjölskyldubúðum.
Dagskrá mótsins var að stórum hluta miðuð við
umhverfið og má nefna að skátar unnu í skóginum
m.a. við að draga út tré og einnig var flokkun sorps
á dagskránni. Tjaldbúðalífið tók Iíka mikinn tíma og
voru tjaldbúðir skoðaðar á hveijum degi og verðlaun
veitt fyrir fallegustu tjaldbúðirnar. Kvöldvökur voru
haldnar, slegið upp balli sem og tívolíi og þá var einn-
ig boðið upp á um 30 atriði sem skátaflokkar skráðu
sig í að vild, m.a. var þar vatnsrennibraut, vatnasaf-
arí, skordýra- og plöntuskoðun, endurvinnsla á pappír
og margt fleira. Þá var starfandi útvarpsstöð í skógin-
um og dagblað gefið út alla mótsdagana.
„Dagskrá mótsins er miðuð við það að þátttakend-
ur hafi bæði gagn og gaman af, þeir sjá sjálfir um
að skemmta sér og það greinir skátamót frá öðrum
útihátíðum," sagði Jóhannes.
Landsmót skáta verður haldið í Kjarnaskógi á Akur-
eyri árið 1993 og sagði hann undirbúning þegar haf-
inn og skátamótið „A grænni grein“ hefði verið góður
undirbúningur fyrir landsmótið. Skátarnir sáu um
gæslu í skóginum og gátu á þann hátt stýrt því að
þar kæmu engir inn nema þeir sem ætluðu sér að
dvelja í skóginum í ró og næði.
Hótel Stefanía gjaldþrota:
Búnaðarbankínn knúði hótelið
í gjaldþrot á tæpum mánuði
- segir Stefán Sigurðsson eigandi Hótels Stefaníu
Magnús Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri Viking Brugg sagði
að viðtökur neytenda við hinu
alkóhóllausa öli hefur verið afar
góðar og frá því framleiðsla hófst
upp úr miðjum júlí hefðu þúsundir
kassa verið seldar. Greinilegt væri
að fólk kynni að meta þetta öl.
„Þetta öl hefur greinilega hitt í
mark, viðtökur almennings sanna
það,“ sagði Magnús.
Ekki hefur verið bætt við starfs-
fólki þrátt fyrir mikla framleiðslu-
aukningu, en það sem fyrir er
hefur unnið lengri vinnudag.
Magnús sagði að sala á öðrum
framleiðsluvörum fyrirtækisins
gengi einnig vel og þess væru
Tilkynnt var um eitt umferðar-
óhapp til lögreglunnar á Akureyri,
en um kl. 6.30 á sunnudagsmorgun
var fólksbíl ekið á brúarhandrið
yfir Ytri-Tunguá í Hörgárdal. Far-
þegi var fluttur á slysadeild með
HÓTEL Stefanía hf. var úrskurð-
að gjaldþrota hjá bæjarfógeta-
embættinu á Akureyri í gær, að
beiðni Búnaðarbanka Islands.
Bankinn fór fram á að félagið
yrði tekið til gjaldþrotaskipta
fyrir tíu dögum, en veittur var
nokkur frestur áður en úrskurð-
smávægileg meiðsli, að sögn varð-
stjóra.
Lögreglubílar frá Akureyri voru
á ferð víða um þjóðveginn, en
umferð gekk vel, þó eitthvað hafi
verið um hraðakstur. Að sögn
ur var kveðinn upp. Nýr rekstrar-
aðili tók við rekstri hótelsins 1.
ágúst síðastliðinn. Stefán Sig-
urðsson eigandi Hótels Stefaníu
segir að Búnaðarbankinn hafi
knúið hótelið í gjaldþrot á tæpum
mánuði og segir hann vinnubrögð
bankans forkastanleg.
varðstjóra var rólegt í miðbæ Ak-
ureyrar um helgina.
Lögreglumenn á Dalvík og Ól-
afsfirði höfðu með sér samvinnu
um helgina og fylgdust með um-
ferðinni. Hún gekk óhappalaust
fyrir sig, en þó voru sautján öku-
mgnn teknir fyrir of hraðan akst-
ur, að sögn lögreglu í Ólafsfirði.
Mikil umferð var um Dalvík og
Ólafsfjörð, einkum á laugardag,
en þá voru margir á leið til Siglu-
ljarðar að fylgjast með síldarsölt-
un.
Ólafur Birgir Árnason lög-
fræðingur Búnaðarbanka íslands
sagði að forráðamenn bankans
hefðu verið orðnir langþreyttir
þar sem ekki hefði verið staðið í
skilum í nokkurn tíma og því
hefði verið farið fram á gjaldþro-
tið. Ólafur Birgir sagði málið afar
flókið og óljóst væri hver tengslin
milli félaganna Hótels Stefaníu og
Hafnarstrætis 83, 85 og 88, séu.
Erlingur Sigtryggsson fulltrúi
skiptaráðandans á Akureyri sagði
að kannað yrði hvaða eignir væru
til í búinu og í framhaldi af því
hvort að því yrði ráðinn bústjóri.
Þá kæmi einnig í ljós hvert fram-
haldið yrði með áframhaldandi
rekstur. Hafnarstræti 83, 85 og 88
ætti fasteign þá þar sem rekstur
hótelsins færi fram og því þyrfti að
kanna hver tengslin á milli þess og
Hótels Stefaníu hf. væru, en félagið
Hafnarstræti 83, 85 og 88 væri
ekki gjaldþrota.
Hótel Stefanía og Hafnarstræti
83, 85 og 88 voru stofnuð á sama
tíma, árið 1985, Hótel Stefanía var
rekstraraðili hótelsins, en Hafnar-
stræti 83, 85 og 88 á fasteignir þar
sem starfsemin fer fram. Hafnar-
stræti 83, 85 og 88 sagði upp
leigusamningi sínum við Hótel
Stefaníu 30. júlí síðastliðinn og
nýr rekstraraðili tók við rekstri
hótelsins 1. ágúst. Ingunn Árna-
dóttir hótelstjóri hefur rekið hót-
elið frá þeim tíma.
Stefán Sigurðsson eigandi Hótels
Stefaníu sagði að Búnaðarbankinn
hefði knúið hótelið í gjaldþrot á
tæpum mánuði, 26. júní síðastliðinn
gjaldféllu lán þau er gjaldþrotið
snýst um og strax 1. júlí hefði hann
fengið bréf frá lögfræðingi bankans
og viku síðar hefði hann verið boðað-
ur til bæjarfógeta til að vísa til
eigna. „Ég bauð upp á fasteigna-
tryggingu í Hafnarstræti 83, 85 og
88, en því var hafnað. Fæstir víxlar
Búnaðarbankans ná inn á fasteign-
irnar, Hótel Stefanía er því sem
næst eignalaust. Það hlýtur því að
vera forkastanlegt af ríkisbanka að
hafna fasteignatryggingunni,“
sagði Stefán.
Rekstur hótelsins hefur að sögn
Stefáns aldrei gengið jafn vel og
nú og hefur verið nánast fullbókað
í allt sumar, þá hefur mikil aukning
verið hvað veitingasöluna varðar.
„Þannig að hótelið verður eftir sem
áður rekið hér,“ sagði Stefán.
Lögreglan:
Mikil umferð en óhappalaus
Sautján teknir fyrir hraðakstur
LÖGREGLUMENN á Dalvík og Ólafsfirði tóku saulján ökumenn fyr-
ir of hraðan akstur um helgina, frá fimmtudagskvöldi til mánudags-
kvölds. Mikil umferð var í gegnum bæina á laugardag og greinilegt
að sögn lögreglumanna að straumurinn lá til Siglufjarðar þar sem
rifjaðar voru upp minningar síldaráranna.