Morgunblaðið - 07.08.1991, Side 7
7
Hjartalyf og
astma- og
ofnæmislyf
fást greidd
af ríkinu
Danskt rannsóknar-
skip í olíuleit við
strendur Grænlands
NÝTT, danskt eftirlits- og rannsóknarskip, Thetis, hafði viðdvöl í
Sundahöfn í Reykjavík núna í vikunni en skipið er á leið til norðaustur-
strandar Grænlands þar sem það mun m.a. rannsaka hvort olia finnist
undir hafsbotninum.
Paul Bjorn Sorensen, skipstjóri á
Thetis, sagði að skipið væri það
fyrsta í nýjum flokki rannsóknar-
skipa er verið væri að byggja til að
leysa af eldri skip sem byggð höfðu
verið í upphafi sjöunda áratugarins.
Nýju rannsóknarskipin eru mun
stærri og tæknilega fullkomnari en
eldri skipin. Gerðar voru sérstakar
breytingar á Thetis til þess að kom
þar fyrir jarðfræðirannsóknartækj-
um og verður það eina skipið með
slíkan búnað.
Lars Beksgaard hjá Nunaoil A/S
sagði að skipið væri á leið að norð-
austurströnd Grænlands til að leita
að olíu. Hann sagði að Nunaoil sæi
um framkvæmd þessarar rannsókn-
ar en Shell-olíufélagið, BP, Statoil,
Exxon, Texaco og JNOC væru öll
þátttakendur í henni. Beksgaard
sagði að jarðfræðilegar aðstæður
þarna væru svipaðar og þar sem
olía hefur fundist undan ströndum
Noregs. Aðstæður til rannsókna eru
mjög erfiðar við strönd Grænlands
vegna hafíss en bestu aðstæður til
rannsókna eru í ágúst og septem-
ber. Beksgaard sagði að þessi rann-
sókn mundi að öllum líkindum taka
langan tíma vegna hinnu erfíðu
aðstæðna.
Að sögn Sorensens skipstjóra voru
nýju skipin sérstaklega hönnuð til
þess að geta siglt um svæði með
hafís. Sérstakur hitabúnaður er um
borð í Thetis er kemur í veg fyrir
ísingu. Einnig hefur skipið fullkomin
tölvu- og radarbúnað til að fylgjast
með ferðum í lofti, á sjó og neðan-
sjávar. Thetis er vopnað sjálfvirkri
fallbyssu. Sorensen sagði að við
hönnun skipsins hefði mikið verið
gert til þess að jafnvægi þess væri
sem best vegna þess að þyrlupallur
væri á skipinu og þyrlan þyrfti að
geta tekið sig á loft við sem flestar
aðstæður. En skipið á m.a. að starfa
við hafísrannsóknir, björgunarstörf
og mengunareftirlit í kringum
Grænland og Færeyjar.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Rannsóknarskipið Thetis er 3590 tonn, um 112 m á lengd og um
14 m á breidd. Á innfelldu myndinni er skipstjórinn, Paul Bjorn
Sorensen.
HEILBRIGÐIS- og tryggingamál-
aráðuneytið hefur gefið út reglu-
gerð um breytingu á reglugerð
um greiðslu almannatrygginga á
tryggingakostnaði og tók hún
gildi í gær. Helstu breytingarnar
eru að ákveðin tegund ofnæmis-
lyfja, neflyf fyrir astma- og ofnæ-
missjúklinga, fást nú greidd að
fullu gegn lyfjakorti. Hið sama
gildir um tvo flokka af hjartalyfj-
um.
í reglugerð nr. 300 frá 1. júlí
voru öll neflyf sett í „0“-fiokk, þ.e.
í flokk með þeim lyfjum sem Trygg-
ingastofnun ríkisins tekur ekki þátt
í að greiða. Núna hafa neflyf fyrir
astma- og ofnæmislyf verið færð úr
þeim flokki í „B“-flokk og hægt er
að fá þau greidd að fullu gegn fram-
vísun lyfjakorts.
Einnig fjölgar þeim hjartalyfjum
sem fást greidd gegn lyfjakorti. I
reglugerðinni frá 1. júlí eru lyf í
ATC-flokkum C 01 og C 07 sett í
„B“-flokk en nú bætast lyf í ATC-
flokkum C 02 D E og C 02 E í þann
hóp. Hér er um svokallaða „Kalsíum-
blokkara" að ræða en það eru lyf
sem eru notuð við meðferð á háum
blóðþrýstingi.
Jafnframtþessu eru smávægileg-
ar lagfæringar gerðar á reglugerð-
inni frá 1. júlí. Einstök lyf færast
frá einum flokki til annars, þangað
sem þau eiga frekar heima. Sam-
kvæmt Eggerti Sigfússyni hjá heil-
brigðisráðuneytinu er hér ekki um
stefnubreytingu að ræða heldur
fyrst og fremst um lagfæringar sem
stafa af því að ATC-flokkun lyfja
hefur ekki verið notuð áður hér á
landi og nokkur lyf lentu því í vit-
lausum flokkum í reglugerðinni frá
1. júlí. Þannig færist lyfíð Glúkagon
nú í flokk þeirra lyfja sem eru greidd
að fullu. Það telst hormónalyf sam-
kvæmt ATC-stöðlum en er eingöngu
notað við sykursýki.
5 MANNA FÓLKSBÍLL MEÐ VÖRUPALLI
TRAUSTUR OG ENDINGARGÓÐUR
Búnaður:
■ Dieselhreyfill
■ Tengjanlegt aldrif
■ Tregðulæsing á afturdrifi
■ Framdrifslokur
Verð kr. 1.394.880.- m.vsk.
0 A
HEKLA MITSUBISHI
LAUGAVEGI 174 MOTORS
SÍMI695500
Kjörinn bíll fyrir:
■ Vinnuflokka
■ Bændur
■ Iðnaðarménn
■ Útgerðarmenn
■ Verktaka
■ Fjallamenn
ÞRIGGJA. ÁRA ÁBYRGÐ
Fæst einnig med lengdum palii
Kr. 1.534.880
vsk. 302.044
Verd kr. 1.232.836