Morgunblaðið - 07.08.1991, Page 26

Morgunblaðið - 07.08.1991, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1991 i Útgefandi . Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 100 kr. eintakið. Vaxtahækkun bankanna Viðskiptabankar og spari- sjóðir hækkuðu nafnvexti um síðustu mánaðamót og er það önnur vaxtahækkun á tveimur mánuðum. Sem dæmi má nefna, að fyrir nafnvaxta- hækkun í byijun júni voru for- vextir af víxlum í Landsbanka íslands 15,25% en eru nú 21%. Þetta er mikil hækkun á tveim- ur mánuðum. Þegar bankarnir hækkuðu vexti í byijun júní gagnrýndi Friðrik Sophusson, fjármála- ráðherra, þá harðlega fyrir að auka jafnframt vaxtamun. Þegar vextir voru hækkaðir nú fyrir helgina sagði Davíð Oddsson, forsætisráðherra m.a.: „Mér finnst þessi vaxta- hækkun úr takt við raunveru- leikann, því staðreyndin er sú, að verðbólga er á hraðri niður- leið og ef miðað er nákvæm- lega við þennan tíma stefnir í að raunvextir á nafnvaxtalán- um bankanna verði milli 12% og 15%. Það er auðvitað miklu hærra en eðlilegt er.“ Þessi þungu orð forsætis- ráðherra eru alvarlegt íhugun- arefni fyrir bankana. Forsæt- isráðherra og fjármálaráð- herra eru forystumenn þess flokks, sem hefur gengið harð- ast fram í því að tryggja bönk- um og sparisjóðum fullt frelsi til vaxtaákvarðana og þess vegna hlýtur gagnrýni þeirra að vekja meiri eftirtekt en ella. Forsætisráðherra sagði einnig í samtali við Morgunblaðið sl. föstudag: „Mér finnst bank- arnir hafa gengið þarna lengra en eðlilegt er og þeir séu í raun að bæta sér upp með þessum vaxtahækkunum hluti eins og töp, sem menn hafa orðið fyrir, kannski vegna óvarkárni í bankastarfsemi.“ Þetta er áþekk gagnrýni þeirri, sem Friðrik Sophusson, fjár- málaráðherra, setti fram í júní. Þegar vaxtahækkun varð í byijun júní töluðu talsmenn bankanna á þann veg, að ólík- legt væri, að frekari vaxta- hækkanir yrðu á þessu sumri. Nú telja þeir hins vegar, að sú vaxtaákvörðun hafi verið miðuð við lægra verðbólgustig en raun hafi orðið á. Forsætis- ráðherra segir hins vegar, að vaxtahækkun nú sé ekki í tengslum við veruleikann. Al- menningur á áreiðanlega erfitt með að skilja þetta mismun- andi mat ríkisstjórnar og bankanna á verðbólguútreikn- ingum. Hins vegar er ljóst, að það kerfi, sem bankarnir búa við í inn- og útlánum dugar ekki. Þar er um að ræða misgengi í rekstri bankanna vegna verð- tryggðra innlána og óverð- tryggðra útlána. Þetta tvö- falda kerfi, sem getur leitt til og hefur leitt til gífurlegs taps í rekstri bankanna veldur því að vaxtamálin eru í sjálfheldu, eins og Valur Yalsson, formað- ur Sambands íslenzkra við- skiptabanka, komst að orði í samtali við Morgunblaðið fyrir nokkrum dögum. Valur Vals- son sagði ennfremur: „Hallinn stafar af endurteknum afskipt- um stjórnvalda undanfarin ár af rekstri innlánsstofnana. Þessi afskipti hafa leitt til mun meira óöryggis í rekstri þeirra en hluthafar og sparifjáreig- endur geta sætt sig við. Við þurfum að taka á sjálfri upp- sprettu vandans, sem eru regl- ur um verðtryggingu útlána.“ Þessar reglur eru á þann veg, að ekki er heimilt að verð- tryggja útlán til skemmri tíma en þriggja ára. Hins vegar er heimilt að verðtryggja inni- stæður í sex mánuði eða leng- ur. Verðtryggð innlán eru um helmingur af innlánum banka og stærstu sparisjóða en verð- tryggð útlán eru hins vegar aðeins um þriðjungur af útlán- um þeirra. Það er engum í hag, að bankarnir breyti vöxtum ann- an hvern mánuð. Það skapar óróa í efnahagslífi, þar sem reynt hefur verið misserum saman að koma á stöðugleika. Það er öllum í hag, að bank- amir hafi frelsi til þess að haga inn- og útlánum eins og markaðsaðstæður leyfa hveiju sinni. Þá eru líka forsendur fyrir hendi til þess að gera margfalt harðari kröfur til þeirra um aðhald og hagræð- ingu í eigin rekstri. Slíkar kröf- ur er erfitt að gera nú, þegar þeir geta borið fyrir sig tap- rekstur vegna afskipta stjórn- valda. Jafnframt er nauðsyn- legt að opna landið í enn ríkara mæli fyrir erlendri bankastarf- semi, svo að hér skapist raun- veruleg samkeppni. Eins og staðan er nú á fjármálamark- aðnum með fækkun banka og yfirtöku þeirra á verðbréfafyr- irtækjum er hægt að færa sterk rök fyrir því, að sam- keppnin á þessu sviði sé á hröðu undanhaldi. Séð yfir mótssvæðið í Galtalæk. Hátt í 10 þúsund gestir 1G Laugarvatni. ^ MILLI níu og tíuþúsund manns voru saman komin í Galtalækjar- skógi um helgina. Svipað eða held- ur fleira en í fyrra. Samkoman tókst í alla staði mjög vel. Engin slys á fólki og veður hlýtt þó nokk- uð rigndi föstudag og laugardag. Samkoman er ætluð fyrir alla fjöl- skylduna og virðist uppfylla þarfir hennar mjög vel því fólk var allt mjög afslappað og ánægt, jafn eldri sem yngri. Að sögn mótsstjórans Ingibergs Jóhannssonar voru milli níu og tíu- þúsund manns á Bindindismótinu í Galtalækjarskógi um þessa helgi. Flest af því fólki sem kemur í Galta- lækjarskóg kemur þar árvisst með fjölskyldur sínar. Þetta fólk á sér jafnvel ákveðin tjaldstæði þar sem það tjaldar ár frá ári, það kemur í vikunni fyrir helgina og fer í lengri útilegu til að ná stæðunum sínum. Fyrir helgina voru til dæmis komin um tvö til þijú þúsund manns inná svæðið strax á fimmtudagskvöld. Gæsla á svæðinu var í höndum sjálfboðaliða og var áfengi leitað uppi og því hellt niður enda var und- antekning að vín sæist á nokkrum manni innan svæðisins. Skemmtiatriði voru fjölbreytt, dansleikir, danssýning, barna- skemmtanir með Bjössa bollu og Spaugsstofunni og fleirum, kvöld- vökur, hæfnisakstur, hjólreiðakeppni ofl. Aðalhljómsveitir helgarinnar voru hljómsveit Ingimars Eydal sem lék á aðlballi en í kúlunni voru Bus- arnir aðalsveitin, fleiri sveitir tróðu upp eins og Timburmenn, Sororicide, Sánkti blár og Sjáumst í sundi. Á miðnætti laugardagskvöld var hafin flugeldasýning og varðeldur þar sem flestir samkomugesta söfnuðust saman. Hjálparsveit skáta í Hveragerði sá um bráðaþjónustu og slysavakt á svæðinu. Ossur Friðgeirsson hjá HSS-Hveragerði sagði að slys hefðu ekki orðið alvarleg á fólki og mun minni en í fyrra væri það einkum því að þakka að betur væri nú geng- ið frá leiktækjum en áður. Aðeins einn þurfti að flytja af svæðinu en það var vegna blóðeitrunar sem hann fékk áður en hann kom á svæðið. Mótsgestir sem rætt var við voru allir sammála um að aðbúnaður hefði stórbatnað með tilkomu nýrra sal- erna sem bætt var við á svæðinu. Eins sagði fólk að skipulag mótsins færi batnandi, tímasetningar á skemmtiatriðum hefðu allar staðist. - Kári Mannfjöldinn fylgist með Spaugstofunni. Morgunblaðið/Jón Sig. Hlýtt á tónleika.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.