Morgunblaðið - 07.08.1991, Page 31

Morgunblaðið - 07.08.1991, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. AGUST 1991 31 Dýrafjörður: Stærsta hestamót sem hald- ið hefur verið á Vestfjörðum Þingeyri.^ Þingeyri. STÓRMÓT hestamanna var að Söndum í Dýrafirði um verslun- armannahelgina. Hestamannafé- Iagið Stormur á Vestfjörðum bauð til þessa móts í tilefni 20 ára afmælis sins og mættu helstu gæðingar af Vesturlandi til leiks. Er þetta, að sögn kunnugra, langstærsta hestamannamót sem haldið hefur verið á Vestfjörð- um. Að sögn Braga Björgmundsson- ar, formanns Storms, keyptu um sexhundruð manns sig inn á svæðið en með starfsmönnum og börnum innan tólf ára aldurs, sem fengu frían aðgang, voru um þúsund manns á svæðinu. Aðstaða var til að taka á móti 1.500-2.000 manns. Olli dræm aðsókn mótshöldurum vonbrigðum, einkum þótti þeim sárt til þess að vita að umferðin virtist beinast út af Vestfjarðakjálkanum. Á kvöldin voru kvöldvökur og var dansað fram á nóttu við undirleik Rokkbænda. Var margt gert til skemmtunar á kvöldvökunum, m.a. hestaleikir, söngvarakeppni og auk þess skemmti Ómar Ragnarsson eitt kvöldið. í söngvarakeppninni sigruðu tveir ungir Flateyringar, Valtýr Gíslason og Ivar Kristjáns- son. Á sunnudagskvöldinu var farið í útreiðartúr fram í Meðaldal á 110 hrossum. Þar var áð og lagið var tekið, og sagði Tómas Jónsson gam- ansögur eins og honum er einum lagið. Er komið var aftur að Sönd- um var haldið áfram að syngja og dansað var við varðeld. Bestu hestar af Vesturlandi komu til keppni að Söndum. Voru þeir gæðingar sem stóðu sig best á félagsmótum boðnir til þátttöku. Hópreið er mótið var sett. Stormur borgaði flutning gæðing- anna á svæðið en að sögn Braga var það forsenda fyrir því að hægt væri að halda mótið því að flutn- ingskostnaður er mikill. Undan- keppni fór fram á föstudag og Iaug- ardag en á sunnudeginum hófust úrslitin. Úrslit voru sem hér segir: Gæðingakeppni. A-flokkur: 1. Gjafar (Snæfellingur) - eink. 8,35. Knapi: Halldór Sigurðsson. 2. Amadeus (Faxi) - eink. 8,33. Knapi: Jóhannes Kristleifsson. 3. Myrkvi (Snæfellingur) - eink. 8,21 Knapi: Halldór Sigurðsson. 4. Randver (Faxi) - eink. 8,22 Knapi: Jóhannes Kristleifsson. 5. Freyja (Stormur) - eink. 8,19 Knapi: Sigmundur Þorkelsson. 6. Glaðnir (Dreyri) - eink. 8,08 Knapi: Hermann Ingason. Gæðingakeppni. B-flokkur Klárhestar með tölt 1. Stjarni (Snæfellingur) - eink. 8,39 Knapi: Jóhann Hinriksson. 2. Lýsingur (faxi) - eink. 8,47 Knapi: Jóhannes Kristleifsson. 3. Reykur (Stormur) - eink. 8,21 Knapi: Ragnar Guðmundsson. 4. Gýgjar (dreyri) - eink. 8,13 Knapi: Hermann Ingason. 5. Sómi (Kinnskær) - eink. 8,14 Knapi: Bjarni Jónasson. 6. Hamar (Snæfellingur) - eink. 8,14 Knapi: Sigurður Stefánsson. Töltsýning 1. Tígull (Hrafnhildur Jónsd.) - 86,13 pkt. 2. Gustur (Ámundi Sigurðss.) - 82,67 pkt. 3. Glæsir ( Halldór Sigurðss.) - 76,00 pkt. 4. Ðrífandi (Grettir Guðmundss.) - 80,00 pkt. 5. Stjarni (Jóhann Hinrikss.) - 76,80 pkt. 6. Gýgjar (Hermann Ingas.) - 81,33 pkt. Unglingakeppni - Eldri flokkur 1. Una G. Einarsd. (Stormur) — eink. 8,36 2. Lind Jónsd. (Stormur) - eink. 8,35 3. Sigurður Stefánss. (Snæf.) - eink. 8,33 4. Svandís Sigurðard. (Dreyri) - eink. 8,22 5. Oddur B. Jóhannss. (Faxi) - eink. 8,16 6. Hiidur Jónsd. (Skuggi) - eink. 8,15 Unglingakeppni - yngri flokkur 1. Sigurbjörg Jónsd. (Blakkur) — eink. 8,47 2. Heiða Dís Fjeldsted (Faxi) - eink. 8,57 3. Lísbet Hjörleifsd. (Dreyri) - eink. 8,34 4. íris H. Grettisd. (Glaður) - eink. 8,44 5. Kristín Eva Jónsd. (Glaður) - eink. 8,40 6. Sigurður I. Ámundas. (Skuggi) - eink. 8,23 Kappreiðar fóru einnig fram, en engin met voru slegin. Veðrið var þokkalega hlýtt allan tímann, þó að rignt hafi á köflum. Að sögn lögreglunnar á Isafirði gekk allt vel fyrir sig á mótssvæð- inu og án mikilla afskipta lögregl- unnar, þó að ölvun hafi verið tals- verð. Einn maður var þó færður í fangageymslur lögreglunnar á Isafirði fyrir slagsmái. Þrír voru teknir fyrir ölvunarakstur, einn ökumaður var tekinn réttindalaus og einn réttindalaus á bifhjóli. Bragi Björgmundsson sagðist ánægður með mótshaldið, sérstak- lega hversu áhugasamir allir voru um að þetta mætti allt takast sem best. Og það er hugur í mönnum, því að sögn Braga hefur komið til tals að fá að halda íslandsmót í hestaíþróttum að Söndum árið 1993 enda öll aðstaða, og ekki síst reynsla, fyrir hendi. - Gunnar Eiríkur Tjaldsvæðið á Söndum. t Innilegar þakkir sendum við þeim, er sýndu okkur samúð og hlý- hug við andlát og jarðarför ÓSKARS GUÐMUIMDSSONAR, Melgerði 30, Kópavogi. Jófríður Magnúsdóttir, Kristfn Óskarsdóttir, Eygló Óskarsdóttir, Sigríður Óskarsdóttir, Friðbjörg Óskarsdóttir, Guðmundur Óskarsson, Bjarni Guðbjörnsson, Haukur Ingólfsson, Erlingur Björnsson, Þorsteinn Andrésson, Alice Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t ÞU KEMUR TIL OKKAR í iMÁNAÐARPRÓGRAM 1. Við fitumælum þig og þú færð ítarlega tölvuútskrift sem segir þér í hversu góðu eða slæmu formi þú ert. 2. Þú mætir eins oft og þú vilt í leikfimi og/eða tækjaþjálfun. 3. Komdu svo aftur í fitumælingu að mánuði liðnum og skoðaðu árangurinn. Misstu ekki af þessu frábæra tilboði á síðsumartilboði. Aðeins kr. áBBSBOS fe Býðst aðeins hjá: STÚDiÓ JÓNÍNU & ÁGÚSTU Skeifan 7. 108 Reyk|awk. S. 689868 Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og htýhug við andlát og útför PÁLS JÚNÍUSAR PÁLSSONAR húsvarðar, Hátúni 12. Þórdís Eyjólfsdóttir, Júníus Pálsson, Ingibjörg Eiríksdóttir, Grétar Pálsson, Ásta Sigurðardóttir, Þórdís Pálsdóttir, Erlendur Ragnarsson, Stefanía Pálsdóttir, Valur Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.