Morgunblaðið - 15.08.1991, Page 18

Morgunblaðið - 15.08.1991, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. AGUST 1991 Friðun Geysis eftir Guðmund E. Sigvaldason Nú eru Geysisgos seld á eitt hundrað og tuttugu þúsund krónur Þessi ráðstöfun hefur verið gagn- rýnd á þeirri forsendu að verðið sé of lágt, fimm hundruð þúsund væru nær lagi (morgunútvarp Rásar 1, 12. ágúst 1991). Undirritaður var af tilviljun staddur við Geysi einn laugardag í júlí, en þá hafði fyrir- tækið Pepsí Cola keypt Geysisgos af Náttúrverndarráði. Árið 1846 var hér á ferð þýzkur eðlis- og efnafræðingur, Robert Bunsen að nafni. Hann skoðaði Geysi og gerði síðan eftirlíkingu af Geysisgosum á rannsóknastofu sinni. Frá honum er komin skýring á gosum í Geysi. Þegar leið á nítjándu öldina dró mjög af Geysi, en eftir jarðskálftana miklu, 1896 og 1912, óx 'honum ásmegin og gaus oft og fallega fram undir •1930, en þá fór gosum að fækka. Þessu veldur útfelling af kísli í að- færsluæð hversins þannig að ekki berst að nægjanlega heitt vatn til að suða geti orðið á um það bil 20 metra dýpi. Trausti Einarsson, pró- fessor, vissi að til að framkalla gos þyrfti að breyta aðstæðum á þann veg að suða gæti hafist á þessu dýpi við lægra hitastig. Einfalt ráð var að lækka þrýsting í aðfærslu- æð. Það var gert með því að ijúfa hveraskálina og lækk.a vatnsborð í hvernum. Þetta gekk vel um sinn, en þar kom að ekki dugði til. Þá datt Trausta annað ráð í hug. Við suðu vatns myndast gufubólur. Til að bóla myndist þarf að yfirvinna ákveðinn þrýstimörk, en þau eru annars vegar háð hæð vatnssúlunn- ar yfir bólunni, hins vegar eiginleika vatnsins, sem kallast yfirborðs- spenna. Yfirborðsspennan veldur því að á sléttu yfirborði verða vatns- dropar kúlulaga. Ef ögn af sápu er látin snerta dropann fellur hann saman. Það er með öðrum orðum hægt að auðvelda bólumyndun og suðu með því að setja út í það sápu. Nú var byijað að gera hvort tveggja í senn, lækka vatnsborð í hvernum og setja í hann sápu. Þetta hreif og hrífur enn. Náttúruvernd er hugtak, sem eðli sínu samkvæmt hlýtur að fá breytilega merkingu frá einum tíma til annars og einnig getur menn greint á um merkingu þess á hveij- um tíma. Ef skilgreining hugtaks er rúm, er eðlilegt að hver og einn túlki það eftir smekk eða hagsmun- um og þá hafa hugsmunir oftar meira vægi en smekkurinn. Ekki skal dómur lagður á hvemig Nátt- úruverndarráð túlkar hlutverk sitt að annast friðun Geysis, en að gefnu tilefni langar mig að rifja upp hvernig eldra Náttúruvemdarráð, skipað öðram mönnum, túlkaði frið- un Geysis. í nokkur ár á sjöunda áratugnum starfaði ég lítið eitt fyr- ir Náttúravemdarráð, sat fundi þess og hlustaði á umræður. Þá var Birgir Kjaran formaður ráðsins, en Hákon Guðmundsson og Sigurður Þórarinsson voru ásamt formanni einna virkastir þátttakendur í um- ræðum. Þá var Geysir og Geysis- svæðið í umsjá Geysisnefndar og svo hélst þar til á þessu ári. Ef mig misminnir ekki þá hafði Geysis- nefnd sent erindi til Náttúravernd- arráðs þar sem óskað var eftir umsögn ráðsins. Málið snerist um það að óskir höfðu komið fram um að bora í Geysi og hreinsa kísilút- fellingar úr aðfærsluæð. Með þessu móti átti að endurlífga hverinn og ljá svæðinu aukið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Mér er umræðan um þetta mál minnisstæð. Hún fjallaði um skilgreiningu á hugtakinu nátt- úravernd. Ég skal ekki leggja dóm á hvort skilgreining manna, sem nú era allir látnir, sé betri eða smekklegri en þeirra sem nú selja gos í Geysi, en þó er vert að minna á að þar töluðu framkvöðlar nátt- úraverndar á íslandi.- Niðurstaða umræðnanna var eitthvað á þessa leið: Geysir þróast með eðlilegum hætti frá einu skeiði til annars. Þar skiptast á tímabil Guðmundur E. Sigvaldason „Ef slíkar aðfarir eru leyfðar er jafnframt fallið frá friðun, sam- kvæmt skilningi mínum á hugtakinu náttúru- vernd“. tilkomumikillar virkni og löng hvíldarskeið. Slík er hin náttúralega hegðun þessa frægasta goshvers í heimi og það eiga menn að sætta sig við ef hugur fylgir máli að friða Geysi sém einstætt fyrirbrigði íslenskrar náttúru. Til þess að koma eilítið til móts við óskir ferðamanna um hveragos mætti hins vegar að skaðlausu bora í hver, sem nefnist Strokkur og var goshver um miðja síðustu öld. Ef vel tekst til að end- urlífga Strokk þá ætti ásókn í að fikta við Geysi að linna. Náttúra- vemdarráð Birgis Kjarans leyfði sem sé boran í Strokk til þess að menn hættu að ásælast Geysi sem söluvöra fyrir ferðamenn. Þessi umsögn er væntanlega til í gerðar- bókum ráðsins, en ég tel mig muna þetta nokkuð rétt, enda minnis- stætt. í þessari umsögn var ekki tekin afstaða til sápuausturs í Geysi, enda var sú iðja aflögð að mestu eða öllu á þeim árum. Ég ætla ekki að halda því fram að smekkur minn sé mælistika á rétt og rangt í þeim efnum, en sá smekkur mótaðist mjög af skoðunum þessara fram- kvöðla náttúravemdar. Það kann þess vegna að vera tímaskekkja að láta sér mislíka aðfarir, sem felast í því að þvinga friðað náttúrufyrir- bæri til óeðlilegrar hegðunar í þeim tilgangi einum að þjóna hagsmun- um ferðaþjónustu. Ef slíkar aðfarir era leyfðar et jafnframt fallið frá friðun, samkvæmt skilningi mínum á hugtakinu náttúravernd. Ef Nátt- úraverndarráð gerir hvort teggja í senn að falla frá friðun Geysis og notar hann jafnframt til fjáröflun- ar, þá hefur skilgreining-orðsins náttúravemd breyst meira en ég hugði, og Náttúravemdarráð er með nokkram hætti annað en þegar ég kynntist því fyrst. Höfundur er forstöðumaður Norrænu eldfjallastöðvarinnar. Fjórðung-súrslitin í Brussel: Short tók forystu - ívantsjúk jafnaði Skák Margeir Pétursson” HVÍTU mennirnir voru sigur- sælir í þriðju umferðinni f gær, þrjár skákanna unnust á hvítt og I þeirri fjórðu var Anand með gjörunna stöðu gegn Karpov, en sleppti honum aftur með jafn- tefli. ívantsjúk hristi af sér slen- ið, lagði Júsupov örugglega að velli og jafnaði metin. Short vann Gelfand aftur og tók for- ystuna og sömuleiðis vann Tim- man aðra skákina í röð gegn Kortsjnoi og er kominn með tveggja vinninga forskot. Það er höggvið á báðar hendur í í Brussel og þessi einvígi eiga næsta lítið skylt við þann jafnteflis- þæfing sem sást oft í slíkum keppn- um á áttunda áratugnum, sérstak- lega eftir að Fischer hætti. Tefldar hafa verið tólf skákir og þar af hafa sjö unnist. Flestar jafnteflis- skákimar hafa líka verið söguleg- ar, þótt Karpov og Anand hafi gert allar skákir sínar jafntefli hef- ur það ekki verið sökum friðarvilja, heldur mistaka í vænlegum stöð- um. Þegar þijár af átta umferðum hafa verið tefldar er útlit fyrir æsispennandi og fjöraga keppni í a.m.k. þremur einvígjum, en Korts- jnoi verður að fara að kveða sér hljóðs ef hann ætlar að eiga mögu- leika gegn Timman, sem er kominn með tvo og hálfan af þeim fjórum og hálfum vinningi sem þarf til að sigra. Lagleg sóknarskák Short Það hafa heldur betur orðið umskipti hjá þeim Short og Gelfand eftir að Englendingurinn tapaði fyrstu skákinni í aðeins 25 leikjum með hvítu>. Nú hefur hann unnið tvær skákir í röð og tekið foryst- una. Short hefur tekið þá skynsam- legu stefnu gegn hinum spreng- lærða andstæðingi sínum að sneiða hjá fræðilegri baráttu og í þriðju skákinni beitti hann afbrigði gegn Sikileyjarvörn sem var afar vinsælt á enskum helgarmótum fyrir 10-20 árum. Gelfand hefði mátt reikna með þessu í undirbúningi sínum, en brást samt ekki við á réttan hátt og eftir 20 leiki var hann með lakari stöðu, auk þess sem tínia- hrak vofði yfir honum. Short þving- aði síðan fram vinning mpð lag- legri sóknarlotu. Hvítt: Nigel Short Svart: Boris Gelfand Sikileyjarvöm 1. e4 - c5 2. Rc3 - d6 3. f4 - Rc6 4. Rf3 — g6 5. Bc4 - Bg7 6. 0-0 - e6 7. d3 Á ensku helgarmótunum fóm- uðu menn hér gjaman peði með 7. f5 og það gerði sænski stórmeist- arinn Hellers gegn Gelfand á síðasta Ólympíumóti. Þá skák vann Rússinn öragglega, en hefur nú ekki svar á reiðum höndum gegn rólegri uppbyggingu Short. 7. - Rge7 8. Del - Rd4 9. Rxd4 - cxd4 10. Re2 - 0-0 11. Bb3 - Rc6 12. Bd2 - d5 13. e5 - f6 14. exf6 - Bxf6 15. Khl - a5 16. a4 - Dd6?! Gelfand ætlar út í aðgerðir á drottningarvæng, en þar hefur hvítur ekki neina sláandi veikleika til að sækja að. Betra virðist 16. — Re7 með það fyrir augum að stað- setja riddarann á f5. Reyndar hafði Gelfand þegar tekið á sig fremur þunglamalega stöðu með áttundu og tólftu leikjum sínum 17. Rgl! - Bd7 18. Rf3 - Rb4 19. Df2 - Dc5 20. Bc3 - Rc6 21. Hael - b6 22. Bd2 - Rb4 23. Dg3 - b5 Síðustu tveir leikir svarts eru byggðir á yfirsjón, honum hefur yfirsézt næsti leikur hvíts sem er bæði glæsilegur og óvæntur og tryggir honum vinningsstöðu. 24. f5! - exf5 25. Re5 - Be8 26. axb5 — Dxb5? Ljótur afleikur. Hér fór forgörð- um síðasta tækifærið til að treysta varnimar. Nú vinnur hvítur fljótt: 27. Hxf5 - Kh8 28. Hxf6! - Hxf6 29. Rg4 - Hf5 30. Rh6 - Hh5 31. Df4 og svartur gafst upp. Kortsjnoi er heillum horfinn Þrátt fyrir slæmt tap í annarri skákinni stofnaði Kortsjnoi strax til mikilla sviptinga með svörtu í gær með því að beita hinu svo- nefnda Jánisch-bragði spænska leiksins. Timman tók mjög rólega á móti því, gaf peðið til baka. í miðtaflinu stóð hann örlítið betur að vígi vegna betri peðastöðu. Að venju eyddi Kortsjnoi miklum tíma í leit að færum, en veikti einungis eigin stöðu. Eftir ráðleysislegar hrókatilfærslur í 22.-25. leik var hann Timman auðveld bráð í tíma- hrakinu. Þetta slæma tap Kortsjnois minnir nokkuð á versta kafla hans í heimsmeistaraeinvíginu við Karpov 1981, en þá gróf hann ein- mitt sína eigin gröf í tveimur skák- um. Hvítt: Jan Timman Svart: Viktor Kortsjnoi 1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5 - f5 4. Rc3 — fxe4 5. Rxe4 — Rf6 6. De2 - d5 7. Rxf6+ - gxf6 8. d4 — Bg7 9. dxe5 — 0-0 10. e6 - He8 11. 0-0 - Bxe6 12. Dd3 - Dd6 13. Be3 - a6 14. Bxc6 - Dxc6 15. Rd4 - Dd7 16. Rxe6 - Dxe6 17. Hadl - Had8 18. Bd4 - Dd6 19. c3 - a5 20. h3 - b6 21. Be3 - c5 22. Hfel - He7 23. He2 - De6 24. Db5 - Hd6 25. Hed2 - Hd8 26. b4 - axb4 27. cxb4 - d4 28. bxc5 - bxc5 29. Dxc5 - Hd5 30. Dc4 - Ha5 31. Dxd4 - Hxa2 32. Dd8+ - Kf7 33. Hxa2 - Dxa2 34. Bc5 - Hb7 35. Hel - Kg6 36. Dd3+ - f5 37. Dg3+ - Kf7 38. Df3 og svartur gafst upp. Nú hélt ívantsjúk ró sinni Skákin í gær minnti talsvert á fyrstu skákina að því leyti að Ivant- sjúk náði strax betri stöðu upp úr byijuninni með nákvæmri tafl- mennsku og vann síðan lið í mið- taflinu. Reynslunni ríkari tókst honum nú að komast hjá tímahraki og hann innbyrti sigurinn öragg- lega. Hvítt: Vasilí Ivantsjúk Svart: Artúr Júsupov Drottningarbragð 1. c4 - e6 2. Rc3 - d5 3. d4 - Rf6 4. cxd5 — exd5 5. Bg5 — Be7 6. e3 - 0-0 7. Bd3 - Rbd7 8. Rge2 - He8 9. 0-0 - Rf8 10. Dc2 - c6 11. f3 - Rh5 12. Bxe7 — Dxe7 13. e4 — dxe4 14. fxe4 - Bg4 15. e5 - Had8 16. Re4! Laglegur leikur sem tryggir hvítum stöðuyfirburði. E.t.v. hefur Júsupov ekki áttað sig á því að hann væri mögulegur, en nú geng- ur 16. — Bxe2 17. Bxe2 — Hxd4? auðvitað ekki vegna 18. Bxh5 og 16. — Re6 er svarað með 17. Rd6. 16. - Rg6 17. Hadl - Hf8 18. h3 - Bxe2 19. Bxe2 - Rhf4 20. Bc4 - Kh8 21. Hf3 Aðstaða svarts er svo erfíð að Júsupov sér sig knúinn til að veikja peðastöðu sína. En það flýtir fyrir óförunum. 21. - f6 22. exf6 - gxf6 23. Rg3 - b5? 24. Bfl - c5 25. Df2 - Dc7 26. Hcl - c4 27. b3 - Hfe8 28. bxc4 — bxc4 29. Hxc4 — Db8 30. h4 - Rd5 31. Rh5 - He4 32. g3 — Rxh4 33. gxh4 — Hg8+ 34. Khl - Hgg4 35. Hc5 - Hxh4+ 36. Hh3 - Hxh3+ 37. Bxh3 - Dbl+ 38. Dgl - Dxgl+ 39. Kxgl - Rb6 40. d5 Hh4 41. d6! og Júsupov gaf, því 41. — Hxh3 er svarað með 42. Hc8+ — Rxc.8 43. d7 - Hxh5 44. dxc8=D+ Kg7 45. Db7+ o.s.frv. Anand var með gjörunnið Anatólí Karpov fyrrum heims- meistari er svo sannarlega luk- kunnar pamfíll í þessu einvígi. Hann rambaði á barmi glötunar í annarri skákinni og í gær var hann svo sannarlega kominn fram af barminum. Eftir fljótfæmisafleiki Indveijans slapp hann með jafn- tefli. Karpov ræður ekki við hraða og snerpu Anands, en virðist hafa níu líf eins og kötturinn. Staða Karpovs eftir byijunina var í góðu lagi, en eftir að honum urðu á mistök í miðtaflinu opnuð- ust allar flóðgáttir. Um tíma hafði Anand tvö peð yfir og þar að auki yfirburðastöðu og betri tíma, en það dugði ekki til. Hvítt: Vyswanathan Anand Svart: Anatólí Karpov Caro-Kann vörn 1. e4 — c6 2. Rf3 — d5 3. Rc3 — Bg4 4. h3 - Bxf3 5. Dxf3 - e6 6. d3 - Rd7 7. Be2 - g6 8. 0-0 - Bg7 9. Dg3 - Db6 10. Khl - Re7 11. f4 - f5 12. e5 - d4 13. Rbl - Rd5 14. Ra3 - Bf8 15. Rc4 - Dc7 16. a4 - R7b6 17. Df2 - Rxc4 18. dxc4 - Rb4 19. Bf3 - Bc5 20. Hdl - De7 21. De2 - a5 22. c3 — dxc3 23. bxc3 — Ra6 24. Be3 — Bxe3 25. Dxe3 — Dc5 26. Dd4 - Kf7 27. Habl - Hab8 28. Hb6 — De7 29. Bxc6 — bxc6 30. Hxa6 - Hhd8 31. Dgl - Hxdl 32. Dxdl - Hd8 33. Df3 - Da3 34. Kh2 - Hd7 35. Dxc6 - He7 36. Ha8 - Dcl 37. Df3 - Kg7 38. Hd8 - Hc7 39. c5 - Da3 40. Da8 - Dxc5 41. Hg8+ - Kh6 42. Dd8 - De7 43. Dd2 - Hc4 44. Dd6 - Df7 45. Hf8?? Eftir 45. Dd8! - Hxf4. 46. g4! verður svartur mát eða tápar drottningunni. 45. - Db7 46. Dd8 - De4 47. Dh4+ — Kg7 og hér var samið Jafntefli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.