Morgunblaðið - 15.08.1991, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991
25
Bíóhöllin:
Frumsýnir Lífíð er óþverri
BÍÓHÖLLIN hefur tekið til sýn-
ingar myndina „Lífið er óþverri".
Með aðalhlutverk fara Mel Brooks
og Lesley Ann Warren. Leikstjóri
er Mel Brooks.
Goddard Bolt er harðsvíraður
kaupsýslumaður í Los Angeles í
Kalifomíu. Um þær mundir sem sag-
an hefst er svo komið að Bolt er einn
eigandi hálfs þess svæðis í borginni
sem byggt er aumustu hreysum sem
hægt er að hugsa sér. En honum
nægir það ekki og hann fer því ekki
dult með að hann ætli sér að eignast
hinn helminginn að auki. En þá kem-
ur babb í bátinn. Inn á fund hjá
Bolt kemur annar auðmaður,
Crasswell að nafni, og hann tilkynn-
ir að hann eigi hverfi það sem Bolt
renni hýru auga til. Hann lætur einn-
ig í ljós löngun til þess að kaupa
hverfi það sem er í eigu Bolts. Crasw-
ell kemur með tillögu að geti Bolt
lifað auralaus, án lánskorts og allra
venjulega ráða í hverfinu í fulla 30
daga á hann að hljóta hlut Crasw-
ells en geti hann þetta ekki á hann
að afhenda Craswell sinn hlut.
VERÐ Á MATJURTUM, krónur hvert kíló
13. ágúst.
Kartöflur Hvítkál Tómatar Gúrkur Kínakál
Stykkishólmur 50 170 340 318 238
Bíldudalur 105 238 610 368 277
Isafjörður 115 175 529 319 227
Siglufjörður 100 188 562 297 259
Akureyri 83 163 493 297 224
Eqilsstaðir 123 175 551 330 259
Neskaupstaður 147 214 578 349 257
Hvolsvöllur 75 185 547 330 267
Selfoss 95 186 444 297 324
Keflavík 125 155 412 248 197
Grindavík 125 185 536 323 204
Hafnarfiörður 75 112 299 229 115
Reykjavík 167 161 332 199 184
Lægsta verð úr einni eða tveimur helstu verslunum á viðkomandi stað.
FISKVERÐ AUPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
14. ágúst.
FAXAMARKAÐURINN HF. í Reykjavík
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 99,00 75,00 94,49 7,009 662.273
Ýsa 114,00 92,00 108,87 3,962 431.349
Steinbítur 30,00 30,00 30,00 1,123 33.690
Ufsi 50,00 47,00 48,26 1,462 70.559
Skata 16,00 16,00 16,00 0,008 128
Langa 19,00 19,00 19,00 0,505 9.995
Lúða 375,00 200,00 303,26 1,276 386.960
Karfi 32,00 32,00 32,00 0,963 30.816
Skarkoli 73,00 50,00 72,83 4,380 318.981
Undirmál 61,00 61,00 61,00 1,465 89.365
Blandað 5,00 5,00 5,00 0,086 430
Samtals 92,82 22,545 2.092.561
ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar
1.ágúst1991 Mánaðargreiðslur
Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 12.123
’/z hjónalífeyrir 10.911
Full tekjutrygging 26.909
Heimilisuppbót 9.174
Sérstök heimilisuppbót 6.310
Barnalífeyrir v/1 barns 7.425
Meðlag v/1 barns 7.425
Mæðralaun/feðralaun v/ 1 barns 4.653
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna 12.191
Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja barna eða fleiri 21.623
Ekkjubætúr / ekkilsbætur 6 mánaða 15.190
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða 11.389
Fullur ekkjulifeyrir 12.123
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa) 15.190
Fæðingarstyrkur 24.671
Vasapeningarvistmanna 10.000
Vasapeningar v/sjúkratrygginga 10.000 Daggreiðslur
Fullirfæðingardagpeningar 1.034,00
Sjúkradagpeningareinstaklings 517,40
Sjúkradagpeningarfyrir hvert barn á framfæri .. 140,40
Slysadagpeningareinstaklings 654,60
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ... 140,40
21% tekjutryggingarauki, sem greiðist aðeins í ágúst, er inni í upp-
hæðum tekjutryggingar, heimiiisuppbótar og sérstakrar heimilisupp-
| bótar.
■ HIPPAHLJOMSVEITIN úr
Keflavík, Deep Jimi & The Zep
Creams, skemmtir á veitingastaðn-
um Tveimur vinum í kvöld,
fimmtudag. Hljómsveitin sérhæfir
sig í rokktónlist frá því í kringum
1970 og flytur tónlist Deep Purple,
Jimi Hendrix og fleiri tónlistar-
manna frá því tímabili. í næsta
mánuði leggja þeir í víking í vestur
og ætla að dvelja og kynna tónlist
sína í Bandaríkjum Norður-
Ameríku í nokkra mánuði. Laugar-
dagskvöld skemmtir Sniglabandið
á Tveimur vinum. Sveitin gaf ný-
verið út hljómplötu með „live“-upp-
tökum og mún hún leika lög af
þessari skífu.
(Fréttatilkynning)
Listasafn Sigurjóns:
Ljóðatónleikar
LJÓÐATÓNLEIKAR Jóhönnu
Þórhallsdóttur verða endurtekn-
ir í kvöld, fimmtudaginn 15. ág-
úst, í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar.
Vegna mikillar aðsóknar að Bra-
hms-tónleikum Jóhönnu Þórahalls-
dóttur sl. þriðjudag hefur verið
ákveðið að endurtaka tónleikana í
kvöld og heíjast þeir kl. 20.30.
Þorsteinn Gauti á
útvarpstónleikum
ÞORSTEINN Gauti Sigurðsson
píanóleikari leikur á tónleikum
í Utvarpshúsinu í kvöld. Á efn-
isskránni eru verk eftir
Brahms, Rakhmanínov,
Skrjabín og Liszt.
Þorsteinn Gauti stundaði fram-
haldsnám við Juilliard School of
Music og á Ítalíu eftir að hafa
lokið einleikaraprófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík. Kennari
hans þar var Halldór Haraldsson.
Hann hefur komið fram sem ein-
leikari með hljómsveitum og hald-
ið sjálfstæða tónleika á Norður-
löndum, Þýskalandi og í Rúss-
landi, en þangað er för hans heit-
ið í haust þar sem hann mun koma
fram í Tsjajkovskíjhöllinni í
Moskvu.
Tónleikarnir í kvöld eru í beinni
útsendingu sem fyrri hluti þáttar
„Úr tónlistarlífinu". Verður Þor-
steinn gestur þáttarins, sem er í
umsjá Más Magnússonar, að tón-
leikum loknum.
Öllum er heimill ókeypis að-
Þorsteinn Gauti Sigurðsson,
píanóleikari.
gangur að tónleikunum í Efsta-
leiti 1 á meðan húsrúm leyfir, en
gestir eru beðnir að koma ekki á
síðustu stundu.
(Fréttatilkynning)
Þingflokkur Kvennalistans:
Byggingu álvers mótmælt
Eitt verka Bryndísar.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Samtök-
um um kvennalista um byggingu
álvers á Keilisnesi:
„Kvennalistinn mótmælir harð-
lega þeirri ákvörðun iðnaðarráð-
herra að ganga til samninga um
byggingu álvers á Keilisnesi. Miðað
við heimsmarkaðsverð á áli nú, yrði
orkuverð til hins nýja álvers um 10
mills, sem er aðeins helmingur þess
sem kostar að framleiða orkuna.
Þar fyrir utan færa íslensk stjórn-
völd erlendum eigendum hins nýja
álvers land undir verksmiðjuna og
eitt stsykki höfn á silfurfati.
Kvennalistinn hefur ávallt mót-
mælt byggingu álvers vegna um-
hverfísspjalla sem því fylgja en nú
tekur steininn úr, þegar þar á ofan
er verið að binda komandi kynslóð-
um enn einn skuldabaggann.“
Kynning á leirmunum
HAFIN er kynning í Gallerí 8, Austurstræti 8, á leirmunum eftir
leirlistakonuna Bryndísi Jónsdóttur í sýningargluggum gallerísins
til 18. ágúst nk. Er hér um að ræða leirvasa, skálar og diska, sem
Bryndís hefur unnið nú í sumar.
Við gerð leirmunanna hefur
Bryndís þá aðferð að láta leirinn
skreyta sig sjálfan með því að
blanda saman leirtegundum, sem
hafa ólíka eiginleika, ólíka áferð og
lit.
Bryndís stundaði nám við
Leiðrétting
Vettvangsferðin með tjörnum í
Sandgerði sem Náttúrverndarfélag
Suðvesturlands stendur fyrir er í
kvöld, fimmtudaginn 15. ágúst, en
ekki 19. ágúst eins og misritaðist
í fréttatilkynningu frá félaginu.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
keramikdeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands og lauk því
árið 1978. Hún hefur rekið eigið
verkstæði frá 1985 og hefur tekið
þátt í mörgum samsýningum á und-
anförnum árum en hélt fyrstu
einkasýningu sína í FÍM-salnum í
fyrrahaust og fékk góðar móttökur.
■ SÁLINhans Jóns míns heldur
þessa helgina áfram för sinni um
landið. Að þessu sinni heggur
hún strandhögg á Vestfjarða-
kjálkanum og er það jafnframt
í fyrsta og eina skipti á þessu
sumri sem þangað verður haldið.
Á föstudagskvöldið mun sveitin
leika í Félagsheimili Patreks-
fjarðar og á laugardaginn í Sjal-
lanum á Isafirði. Um helgina halda
Sálar-menn áfram að reyna nýjung-
ar frá fjölþjóðafyrirtækinu GONG.
Saxafónleikari sveitarinnar, Jens
Hansson, mun gera tilraunir með
nýja tegund saxafóns.
■ NEÐANHOPP kynnir tónleika
Halldórs Gylfasonar og Heiðu í
hvöld, fimmtudag, 15. ágúst. Hall-
dór Gylfason mun flytja frumsam-
ið efni með kassagítar og söng og
með fylgja í kaupbæti nokkur Ijóð.
Heiða mun flytja frumsamið efni
með gítar og söng. Tónleikarnir
fara fram á Moulin Rouge og hefj-
ast kl. 10 og aðgangur er ókeypis.
Neðanhopp sér um tónlist fyrir,
eftir og milli atriða.
Sönghópurinn Emil ásamt Önnu Siggu á tónleikum.
Emil með tónleika á Púlsinum
SONGHOPURINN Emil heldur
tónleika á Púlsinum fimmtudag-
inn 15. ágúst kl. 22.00. Gestir
Emils að þessu sinni verða Anna
Sigga og ónefndur kvartett.
Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur, 4. júní -13. ágúst, doliarar hvert tonn
BENSÍN ÞOTUELDSNEYTI GASOLÍA SVARTOLÍA
325 325 325 200
oUU 07C 300 300 175
Súper 244/ 9Rn 242 275 275 150
250 OOE 250 125
99Q/ 225 2oo — — 100
Blylaust 227 17r 904 7R i-Í- —-■‘4. ' -1 -'; - ~ •- -n 69/
i'n 184 60 67
150 . III l i I I I 1 | || 150 150 25
7.J 14. 21. 28. 5.J 12. 19. 26. 2.Á 9. 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1— 7.J 14Q21. 28. 5.J 12. 19. 26. 2.Á 9. ■H 1 1 1 1 1 1 1 1 1—1— 7.J 14. 21. 28. 5.J 12. 19. 26. 2Á 9. T_1 1 1 1 1 1 1 1 1 1—f— 7.J 14. 21. 28. 5.J 12. 19. 26. 2Á 9.
Efnisskrá verður af-ýmsum toga:
Ensk og íslensk síðrómantík, madr-
igalar ög swing. Síðast en ekki síst
mun Operustúdíó Emils riða á vað-
ið með „A Little Nightmare Music“,
óperu í einum óafturkallanlegum
þætti eftir P.D.Q. Bach.
(Fréttatilkynning)
■ TRÚBADORINN og myndlist-
armaðurinn Guðmundur Rúnar
verður í Vagninum, Flateyri,
föstudags- og laugardagskvöld.
Hann mun leika af fíngrum fram
íslenska og erlenda alþýðutónlist
ásamt því að raula slagara frá sjálf-
um sér. Einnig fyrirhugar hann að
halda myndlistarsýningu á laugar-
deginum á vatnslitamyndum er
hann mun vinna er hann staldrar
við í þessum víðfræga úgerðar- og
skemmtibæ.