Morgunblaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 41
rw rpij
MORGUNBLAÐIÐ
ffatiöTÍ^fÍFMMTUUAGUR 15. ÁGÚ5T l'99'l
41
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
Sex ungmenni á
Eyrarsundsleikana
Sex íslensk ungmenni kepptu í
frjálsíþróttum á Eyrarsunds-
leikunum í Helsingborg 12. til 14.
júlí sl. Leikarnir eru eitt stærsta
fijálsíþróttamót sem haldið er í
Svíþjóð. Keppt er í aldursflokkum
allt frá 10- til 22 ára. Einnig er
keppt í nokkrum greinum karla og
kvenna. í ár voru um 2.500 kepp-
endur frá 12 löndum.
íslensku keppendurnir sex voru
sigurvegarar í skólaþríþraut FRÍ
og Æskunnar. Undankeppni var
haldin í skólum landsins í 60 m
hlaupi, hástökki og boltakasti. Sex
stigahæstu einstaklingarnir í flokk-
um 12, 13 og 14 ára mættu svo á
Laugarvatn 1. júní þar sem úrslita-
keppnin fór fram. Stigahæstu ein-
staklingarnir þar voru verðlaunaðir
með þessari skemmti- og keppnis-
ferð til Svíþjóðar.
íslendingarnir stóðu sig vel á
þessu fjölmenna móti:
Daði Sigurþórsson frá Stykkis-
hólmi sigraði örugglega í hástökki
12 ára stráka er hann stökk 1,53
m. Hann átti síðan góðar tilraunir
við íslandsmetsjöfnun, 1,58 m. Daði
komst einnig í úrslit í 60 m hlaupi
stráka og lenti í fimmta sæti á 8,58
sek.
Ellen Dröfn Bjömsdóttir frá
Laugabakka, V-Húnavatnssýslu,
keppti í flokki 12 ára. Hún hljóp
60 m á 9,06 sek., stökk 4,14 m í
langstökki og hljóp 800 m á 2:49,20
sek.
Jóhanna Ósk Jensdóttir 13 ára
úr Kópavogi fór 1,46 m í hástökki
og 4,62 í langstökki.
Hörður Már Gestsson 13 ára úr
Mosfellsbæ bætti sig í langstökki,
stökk 5,15 m, hljóp 80 m á 10,51
sek og stökk 1,46 m í hástökki.
Aðalheiður Auður Bjarnadóttir
14 ára úr Hafnarfirði kastaði spjóti
24,72 m og stökk 1,41 m í hástökki.
Daníel Pétursson 14 ára frá
Hvammstanga hljóp 80 m á 10,39
sek., kastaði spjóti 28,74 m, varp-
aði kúlu 10,51 m og stökk 5,25 m
í langstökki.
Frjálsar íþróttir unglinga:
Hrafna-Flóki Vest-
Qardameistari
VESTFJARÐAMÓT í frjálsum
íþróttum 16 ára og yngri var
haldiðá Bíldudal laugardaginn
10. ágúst. Þrjú héraðssam-
bönd mættu með lið sín til leiks
með.samtals 120 keppendur.
Vestfjarðamót í fijálsum íþrótt-
um er árlegur viðburður og
hefur Héraðssamband Hrafna-
Flóka sigrað á þremur síðustu mót-
■■•■■■ um. í fyrra vann
Róbert Hrafna-Flóki Vest-
Schmidt fjarðabikarinn til
skrifar eignar. Enn fór á
sama veg að þessu
sinni, þegar Hrafna-Flóki sigraði
með 333 stig. í öðru sæti varð
Héraðssamband Strandamanna
með 216,2 stig og í þriðja og síðasta
sæti varð Héraðssamband Vestur-
ísfírðinga með 174,8 stig.
Það var Valdimar Gunnarsson
íþróttafrömuður á Bíldudal sem
veitti bikarnum viðtöku fyrir hönd
Hrafna-Flóka við mikinn fögnuð
félagsmanna. Gefandi bikarsins að
þessu sinni var Fáfnir hf. á Þing-
eyri.
KNATTSPYRNA
Úrslrta-
keppni 3.
fl. kvenna
Islandsmóti 3. flokks kvenna í
knattspyrnu lýkur um helgina,
er úrslitakeppnin fer fram á KR-
vellinum. Keppni hefst í dag,
fimmtudag 15. ágúst, og lýkur á
sunnudag.
Sex lið eru í úrslitum og er leikið
í tveimur riðlum. í öðrum eru lið
Breiðabliks, IA og Tindastóls en í
hinum KR, Stjarnan og Sindri.
í dag kl. 18 leika UBK og ÍA
og kl. 19 Stjarnan og KR. Á morg-
un leika ÍA og Tindastóll kl. 16.30
og KR-Sindri kl. 17.30. Á laugar-
dag eigast svo við Tindastóll-UBK
kl. 11 og kl. 12 Sindri og Stjarnan.
Á sunnudag verður leikið um sæti;
kl. 11 um 5. sæti, kl. 12 um 3.
sæti og úrslitaleikurinn hefst kl. 13.
Morgunblaðiö/Róbert Schmidt
Valdimar Gunnarsson veitti bik-
arnum viðtöku fyrir hönd Hrafna-
Flóka.
FELGSLIF
íþrótta- og leikjaskóli ÍR
Handknattleiksdeild ÍR gengst fyrir
námskeið í ágúst fyrir stelpur og stráka
á aldrinum 7-11 ára. Kennsla fer fram
í íþróttahúsi Seljaskóla. Boðið er uppá
hálfsmánaðar námskeið og er það fyrra
hafið. Það síðara verður 19. - 23. ágúst
frá kl. 13 - 15.
Handknattleiksdeildin starfrækir
einnig handknattleiksskóla fyrir stelpur
og stráka á aldrinum 11-13 ára. Það
fyrra er haftð en hið síðara verður dag-
ana 19. - 23. ágúst frá kl. 15 - 17.
Kennarar verða Bima Petersen og
Ólafur Gylfason. Upplýsingar í síma
36027 (Óli).
Körfboltanámskeið KR
Körfuknattleiksdeild KR efnir til nám-
skeið fyrir byijendur og lengra komna -
stúlkur og stráka, t Hagaskólanum
23.-25. ágúst. Þáttt' kuskráning er í
KR-heimilinu 19. og 20. ágúst kl.
19-21.30, eða í síma: 12164 og 10820.
Leikmenn meistaraflokks KR sjá um
kennslu, en skólastjóri er Páll Kolbeins-
son.
Firmakeppni ÍK
ÍK heldur firmakeppni í knattspymu á
grasvellinum í Smárahvammi í Kópavogi
sunnudaginn 18. ágúst. 7 leikmenn í
hveiju liði. Nánari upplýsingar og skrán-
ing i síma 40097 eða 40903 (Jón).
Sigurvegarar skólaþríþrautar FRÍ og Æskunnar fyrir utan Leifsstöð. Talið frá vinstri: Hörður, Daði, Daníel, Jó-
hanna, Aðalheiður, Ellen Dröfn og Aðalbjörg fararstjóri.
m
ISLANDSMOTIÐ
SAMSKIPADEILD
KOPAVOG§yOLLUR
- AÐALVÓLLUR
Breiðablik - Víkingur
í kvöld kl. 19
BYKO
Mætum öll!
I tilefni fyrsta leiks Blikanna á ,nýjum*
Kópavogsvelli verða lögin „Áfram, áfram Breiðablik*
og „Þetta er Breiðablik* frumflutt fyrir leikinn.
Snælda með lögunum verður til sölu
meðan á leik stendur. TRYGGIÐ YKKUR EINTAK!