Morgunblaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 44
 3NW0UII& EIMSKIP TVÖFALDUR1. vinningur VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Stjörnuprjón: Sovéskt fyrirtæki kaupir pijónavélar FYRIRTÆKIÐ Stj'örnuprjón hf. í Reykjavík hefur gert ramma- samning við sovéskt fyrirtæki um að selja til Sovétríkjanna vélar til framleiðslu á peysum og treflum. Þá hefur fyrirtækið SG Einingahús á Selfossi kann- að möguleika á stofnun sam- eignarfyrirtækis í Sovétríkjun- um með þarlendum aðilum. Söluandvirði véla Stjörnupijóns nemur um 25-30 milljónum króna. Þá hefur sovéska fyrirtækið lýst áhuga sínum á því að Stjörnupijón verði hluthafi í nýju sameignarfyr- irtæki í pijónaframleiðslu og leggi Arnarfjörður: 40 refir unn- ir á grenjum Bíldudal. GRENJAVINNSLU í Arnarfirði lauk fyrir nokkru. Samtals voru 40 dýr unnin, sem er svipuð tala og undanfarin ár. í samtali við Arnfinn Jónsson, refaskyttu á Þingeyri, var heldur minna af tófu í sumar heldur en í fyrra. Þá náði hann og Valur Richt- er 82 dýrum í Mýrarhreppi og Þing- eyrarhreppi. Nú veiddu þeir félagar einungis 35 dýr í Þingeyrarhreppi. „Það var mikið af tófu hér í fyrra svo ég bjóst við meiru núna. Við höfum ekkert orðið varir við dýrbít í sumar en undanfarið hefur verið töluvert um hlaupadýr hér á svæð- inu, en minna um dýrbíta. Þetta gekk vel fyrir sig, nema með tvö greni, þá þurftum við að liggja í 30 klukkutíma við hvort greni til að vinna þau,“ Sagði Arnfinnur Jóns- son. Hann er búinn að veiða vel á þriðja hundrað refi, en faðir hans, Jón Þ. Sigurðsson, var í 40 ár í grenjavinnslu fyrir Þingeyrarhrepp. R. Schmidt. íslendingarnir þá fram tækniþekk- ingu sína og stjórni verksmiðjunni. Þá hafa Sovétmennirnir einnig áhuga á að kaupa íslenskt hand- pijónaband til framleiðslunnar. Von er á fulltrúum sovéska fyr- irtækisins hingað til lands í september til að- ganga endanlega frá þessum samningi. Sjá frétt í viðskiptablaði 3b. Fjórar bílvelt- ur á Suðurlandi FJÓRAR bílveltur voru á Suður- landsundirlendinu í gær og ein á Snæfellsnesi. Engin slys urðu á fólki en bílar voru í öllum tilvik- um töluvert skemmdir. í ijórum af fimm tilvikum var um útlendinga að ræða sem veltu bílaleigubílum sínum. Allir bílarnir voru töluvert skemmdir. Framkvæmdir á Reykjanesbraut Morgunblaðið/Keli Malbikunarframkvæmdir hafa staðið yfir á Reykjanesbraut undanfarna daga og hefur bílaumferð verið takmörkuð um brautina. Hluta hennar, milli Vogaafleggjara og Kúagerðis, var lokað í nótt en vegfarend- um var að sögn lögregiunnar í Keflavík bent á að fara Vogaafleggjara og gamla Keflavíkurveginn að Kúagerði. Davíð Oddsson forsætisráðherra: Spuming að taka fjármálalega hlutverkið af Byggðastofnun Sé ekki ástæðu til að breyta starfssviði Byggðastofnunar, segir Matthías Bjamason formaður sljómar stofnunarinnar DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra segir að spurning sé hvort ekki sé tímabært að endurskoða hlutverk Byggðastofnunar, taka af henni fjármálalegt hlutverk hennar og færa það til almennra peningastofnana. Ríkisendur- skoðun hefur komizt að þeirri niðurstöðu að við stjórnarskiptin í vor hafi staða Framkvæmda- sjóðs Islands og Byggðastofnun- ar verið mun verri en komi fram í reikningum þessara stofnana og hefði átt að afskrifa lán að upphæð 4,5 milljarðar króna umfram það, sem gert var í reikningunum. „Mér fínnst að þessi skýrsla Ríkisendurskoðunar hljóti að vekja upp spurningar um það hvort ekki sé tímabært að endurskoða hlutverk Byggðastofnunar,“ sagði Davíð Oddsson á blaðamannafundi í gær. Hann sagði að lögum samkvæmt væri hlutverk stofnunarinnar að fylgjast með þróun byggðar í land- inu og gera áætlanir í byggðamál- Háseta af Hamri SH tók út með trollinu en var bjargað frá drukknun: Mér tókst í þriðju tilraun að skera hann úr trollinu - segir björgunarmaðurinn Gísli Wium Ólafsvík. HÁSETA á Hamri SH frá Rifi, Krislján Þórisson, 24 ára, tók út af skipinu með grandaravír siðastliðinn laugardag, en var bjargað úr sjónum af félaga sínum, Gísla Wium, 33 ára, sem sýndi mikið snarræði er hann kastaði sér í sjóinn á eftir Kristjáni. Þurfti Gísli að skera gat á trollið til þess að ná Kristjáni upp á yfirborðið, en hann lenti inni i trollinu þegar hann fór í sjóinn. Hvorugum varð meint af volkinu, en Kristján hlaut þó höfuðhögg og lítilsháttar skurð í andliti. Hamar var við veiðar í Kolluál þegar atburðurinn átti sér stað, en skipið kom að landi í Rifi í gær. Að sögn Gísla var verið að hífa trollið um borð þegar hemill á spilinu hætti að halda vegna bleytu, og grandaravírinn húrrað- ist út og tók Kristján með sér. Gísli, sem var við spilið, segist þá hafa drifið sig úr úlpu, peysu og skóm, og síðan tekið með sér hníf áður en hann kastaði sér í sjóinn á eftir Kristjáni. „Ég þurfti að taka nokkur sundtök áður en ég náði að hitta á hann þar sem hann var inni í trollinu. Þegar báturinn tók dýfur keyrði það Kristján sífellt niður, og þegar ég kom að honum var hann að örmagnast við það að reyna ná lofti. Ég fór strax að reyna að skera hann úr trollinu, og í þriðju tilraun tókst mér að skera gat og ná hausnum á honum upp úr. Við héngum svo í trollinu á meðan það var híft rólega inn,“ sagði Gísli í samtali við Morgun- blaðið í gær. Um þrjár mínútur liðu frá því Kristján tók út og þar til Gísli fór honum til aðstoðar, en 15 mínútur liðu þar til þeir náðust um borð. Sjórinn var 13 gráðu heitur, og ágætis veður þegar óhappið átti sér stað, en nokkuð þung undir- alda. Guðmundur Matthíasson, skip- stjóri á Hamri, sagði að Gísli hefði sýnt mikið snarræði við björgun- ina og ætti hann mikið hrós skilið fyrir það. Hann sagði að þeir fé- lagar hefðu verið fljótir að ná sér eftir volkið í sjónum, og ekki hafi verið ástæða til að fara með þá í land. Kristján Þórisson hélt í gær áleiðis til Reykjavíkur og tókst ekki að ná tali af honum. Alfons. um, jafnframt því að veita fjármuni til atvinnulífsins, „Það hlýtur að flögra að manni að verulegur þáttur skýringarinnar á því, hvernig farið hefur fyrir þess- um opinberu sjóðum, sé að menn hafi tekið pólitískri leiðsögn, getum við sagt, eða látið undan pólitískum þrýstingi við meðferð þessara fjár- muna. Þess vegna sé staðan eins og hún sé orðin. Það er spurning hvort ekki eigi að breyta um hlut- verk þessarar stofnunar, láta hana hafa mikilvægt hlutverk, sem tekur til þeirra þátta, sem ég rakti fyrst, en huga að því hvort ekki sé eðli- legt að láta hið fjármálalega hlut- verk Byggðastofnunar ganga yfir til þeirra stofnana, sem með slíkt eiga að fara. Þá á ég við almennar fjármálastofnanir," sagði Davíð Oddsson. Matthías Bjarnason, alþingis- maður og formaður stjórnar Byggðastofnunar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann sæi ekki ástæðu til að breyta starfs- sviði Byggðastofnunar með þessum hætti. „Eg er aigerlega ösammála þessum skoðunum og þetta mál hefur ekkert verið rætt í Sjálfstæð- isflokknum,“ sagði Matthías. Hann sagði að þegar menn töluðu um tap sjóðanna, þyrfti líka að líta á tap bankanna. „Þeir hafa ekkert farið varhluta af þessum töpum. Það er rétt að það komi fram áður en menn fara að koma með svona fullyrðingar." Matthías sagðist hvorki hafa lát- ið núverandi né fyrrverandi ríkis- stjóm beita sig pólitískum þrýst- ingi. „Ég hef bara gert það og stað- ið að því sem ég hef talið vera eðli- legt og í samræmi við það hlutverk, sem Byggðastofnun er ætlað sam- kvæmt lögum,“ sagði hann. Sjá miðopnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.