Morgunblaðið - 01.09.1991, Page 12
mmmw Mmmw
eftir Önnu Bjarnadóttur
KRÓATÍSK stjórnvöld hafa
hótað stríðsyfirlýsingu á
hendur Serbum nú um helg-
ina ef þeir leggja ekki niður
vopn og ,júgóslavneski“
herinn snýr ekki í herbúðir
sínar. Það þykir heldur inn-
antóm hótun þar sem Serbar
eru mun betur vígbúnir og
skipulagðir en Króatar. En
stjórnvöld vonast til að
draga athygli alheims að
ófriðarástandinu í ríkinu
með henni og ýta undir er-
lend afskipti af því. Þau von-
ast einnig til að flýta fyrir
viðurkenningu erlendra
ríkja á sjálfstæði Króatíu en
júgóslavneska sambandsrík-
ið lýsti yfir sjálfstæði 25.
júní siðastliðinn. Franjo
Tudjman, forseti Króatíu,
samdi um vopnahlé við leið-
toga hersins nú í vikunni.
Það dró úr átökum í hálfan
sólarhring eftir það en síðan
fór allt í sama horf og eftir
samkomulag um vopnahlé í
byrjun ágúst. Það rann út í
sandinn á örskömmum tíma.
Serbar hafa ráðist
ótrauðir á þorp og borg-
ir í Slavóníu, austur-
hluta Króatíu, og
Banija, svæði sunnan
við Zagreb á landamær-
unum við Bosníu-
Herzegóvínu, undan-
farnar vikur ogmánuði.
„Júgóstavneski" herinn, sem nú er
almennt kallaður serbneski herinn
eða sambandsríkjaherinn, réðst á
borgina Vukovar úr lofti og á landi
í vikunni og getur ekki lengur þóst
vera í Króatíu til að stilla til frið-
ar. Þorpið Kijevo, sem var byggt
Króötum og er skammt frá Knin,
hjarta serbnesku sjálfstæðishreyf-
ingarinnar í Krajina í suðurhluta
Króatíu, féll í hendur Serbum eftir
margra mánaða skæruhernað
Serba og harða varnarbaráttu Kró-
ata. Lögreglustjórinn í Knin hótaði
að hafnarborgin Zadar við Adría-
haf yrði tekin næst. „Hið nýja
serbneska ríki þarf á höfn að
halda,“ er haft eftir honum. Króat-
ar óttast að Serbar séu að gera
alvöru úr yfirlýsingum stóryrtra
þjóðernissinna sem hótuðu að taka
alla Króatíu sunnan við borgirnar
Vukovar, Karlovac og Karlobag
eftir að Króatía lýsti yfir sjálf-
stæði. „Króatar munu sjá til Serbíu
úr dómkirkjuturninum í Zagreb,"
lét einn hafa eftir sér. Herferðir
hafa aukist í kringum Karlovac á
undanförnum dögum og einnig í
nágrenni við iðnaðarborgina Sisak,
sem er nyrst í Banija og tæpa 60
km sunnan við Zagreb.
Serbar halda áfram
þegar vel gengur
Herferðir boða ekkert gott.
Skelfíngin skein úr svip eldri
bóndakonu í þorpinu Komarevo
fyrir sunnan Sisak fyrir nokkru
þegar hún hljóp við fót til að segja
bændunum að hún hefði séð til
hermannajeppa á ferð úti á akri.
„Guð minn góður. Hvað ætlast
þeir fyrir?“ sagði hún með grátstaf-
inn í kverkunum. Bændurnir voru
á fundi í hrörlegu samkomuhúsi
og ræddu af hita hvernig þeir ættu
að veija Komarevo. Serbar voru í
3-5 km fjarlægð og höfðu skotið
10 sprengjum í átt að kaþólsku
kirkjunni 90 mínútum áður. Víga-
legur náungi sem var nýsnúinn
heim í þorpið eftir að hafa starfað
í frönsku útlendingahersveitinni í 7
ár var vondaufur um árangur nema
aðstoð bærist frá Zagreb. „Við sitj-
um hér og bíðum,“ sagði hann.
Aðstoð hefur síðan borist og það
verður hart barist um Komarevo
ef Serbar reyna að taka það. Olíu-
hreinsunarstöð og stálverksmiðja
blasa við í Sisak á sléttunni fyrir
neðan þorpið. „Sisak verður næst
ef Komarevo fellur,“ sagði Miljenko
Stuhne, sjálfskipaður upplýsinga-
fulltrúi í Sisak. „Sagan sýnir að
Serbar halda áfram þegar vel geng-
ur.“ •
Króatar segja að Serbar beiti
alltaf sömu aðferðinni í baráttu
sinni. Þeir hvetja fyrst alla Serba
til að hafa sig á brott úr þorpum
byggðum Serbum og Króötum,
hermenn úr sambandsríkjahernum
fara síðan á stjá og athuga hvern-
ig landið liggur og að lokum sjá
sveitir Serba um vopnaátökin.
Sambandsríkjaherinn blandar sér
af og til í þau og það hefur komið
fyrir að hann snúist gegn Serbum
með sveitum Króata ef Serbar
ganga of langt. Serbar vita því
ekki alltaf hvar þeir hafa herinn
og eru ekki alsælir með hann. Kró-
atar treysta honum engan veginn.
Þeir segja hann stjórnlausan ogþað
fari eftir duttlungum einstakra liðs-
foringja hvað hann tekur sér fyrir
hendur hveiju sinni.
Króatar segia að Serbar beiti
alitaf sömu aðferðinni í bar-
áttu sinni. Þeir hvetja tyrst
alla Serba tll að hafa sig á
brott ór borpum byggöum
Serbum og Króötum, hermenn
ór sambandsrikiahernum fara
síöan á stjá og athuga bvern-
ig landið liggur og að lokum
sjá sveitir Serba um vopnaá-
tökin.
Serbar, sem Króatar kalla nú
almennt „Chetniks“ eftir harð-
skeyttum sveitum Serba sem börð-
ust fyrir kongsríkið Júgóslavíu í
heimsstyijöldinni síðari, hrekja
Króatá á brott úr þorpum með skot-
árásum á nóttunni áður en þeir
halda innreið sína. Hroðalegar sög-
ur eru sagðar af afdrifum þeirra
sem þijóskast við og lenda í hönd-
um Serba. Myndir af limlestum lík-
um hafa verið sýndar í sjónvarpi
og fólk trúir að Chetniks skeri
tær, eyru og kynfæri af karlmönn-
um ef þeir ná þeim lifandi. Kaþólsk-
ur prestur, sem flúði þorpið Cuntic
í byijun júlí áður en Serþar rændu
og eyðilögðu 300 ára kirkju sem
hann þjónaði í, ságðist hafa heyrt
að vopnaðir Serbar hefðu nauðgað
króatískri konu Serba í þorpinu á
meðan eiginmaðurinn bar fram
kaffi fyrir utan húsið. Foringi hóps-
ins sagði piltana unga og kven-
mannsþurfi þegar maðurinn mót-
mælti og hótaði að skera hann á
háls ef hann reyndi að hjálpa konu
sinni.
Glina skal nástaftur -
á 5 dögum eða 5 öldum
Kona á sjötugsaldri í Komarevo
sagðist vera hræddari nú en í
heimsstyijöldinni síðari. „Nágranni
minn lenti í höndunum á Serbum
þegar hann var á söluferð í bílnum
sínum í sumar. Hann var rændur,
berháttaður og klæddur í slitna
larfa. Hann var barinn svo illa að
við þekktum hann varla þegar hann
komst til manna. „Lendið bara ekki
lifandi í höndunum á þeim,“ hvísl-
aði hann.“
Hryllingssögur af berserksgangi
Serba útskýra ótta konunnar sem
sá til hermannajeppans. Varnar-
sveitir Króata hafa hvorki verið
nógu vel vopnum búnar né skipu-
lagðar til að takast á við sveitir
Serba sem hafa sambandsríkjaher-
inn að bakhjarli. Mest allur vopna-
forði Króatíu var gerður upptækur
þegar stefndi í aukið sjálfstæði
sambandsríkisins eftir lýðræðislegu
kosningarnar f fyrravor. Serbar,
sem eru í meirihluta í hernum og
voru í meirihluta í lögregluliði
Króatíu, sáu vopnaáatök fyrir og
gerðu sér leikinn léttari með að
afvopna óvininn. Króatar reyna nú
að verða sér úti um vopn hvar sem
er og vopnaframleiðsla í ríkinu
hefur aukist. Sagt er að vopn be-
rist meðal annars frá Vestur-Evr-
ópu. „Það er auðveldara að fájiau
eftir að gæslan við landamæri Ital-
íu og Austurríkis er alveg í höndum
Slóvena," sagði Stuhne.
Bærinn Glina, um 20 km sunnan
við Sisak, er meðal staða sem hart
var barist um í sumar. Hann er nú
í höndum Serba en Ivan Bobetko,
yfírforingi króatísku sveitanna í
Banija, sagðist ætla að taka bæinn
aftur „hvort sem það tekur 5 daga,
5 vikur, 5 mánuði, 5 ár eða 5 aldir.“
Glina er 8.500 manna bær. Um
80% íbúanna eru Serbar og 20%
Króatar. Langflestir Króatanna eru
farnir en Serbar eru að hefja eðli-
legt líf á nýjan leik. Það er kaþólsk
kirkja og rétttrúnaðarkirkja í bæn-
um. Hin síðamefnda var byggð
1963. Gamla kirkjan var brennd
eftir að Ustasha, grimmar sveitir
Króata í heimsstyijöldinni síðari,
slátruðu yfir 1.000 Serbum á hinn
hroðalegasta hátt í henni árið 1941.
Króatía var þá leppríki Þjóðveija.
Stefna króatískra stjórnvalda var
að þröngva þriðjungi Serba í Kró-
atíu til að taka kaþólska trú, en
þeir eru rétttrúnaðarmenn, hrekja
þriðjung þeirra á brott og drepa
þriðjung þeirra. Ustasha gekk
skörulega til verks og þrælkunar-
búðir þeirra í Jasenovac þóttu með
þeim svakalegri í stríðinu — og er
þá mikið sagt.