Morgunblaðið - 01.09.1991, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNIIMGAR SUNNUUAGUR- L SEPTEMBER 1991
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
frú ÞÓRDÞÍS EGGERTSDÓTTIR,
Kópavogsbraut 64,
andaðist í Borgarspítalanum þannn 30 ágúst.
Björgvin Jónsson,
Oddbjörg Ragnarsdóttir, ' Kristján Hj. Ragnarsson,
Jón Björgvinsson, Jóhanna S. Kristmundsdóttir,
Eggert Björgvinsson, Hulda L. Magnúsdóttir,
Þorgils Björgvinsson, Elma B. Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Jóhann Alexand-
ersson — Minning
t
Ástkær eiginmaður minn og faöir okkar,
VALUR KRISTINN JÓNSSON,
Ásvallagötu 61,
andaðist á heimili sínu 29. ágúst.
Jóna Lóa Sigþórsdóttir,
Kristín Valdóttir,
Felix Valsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og
afi,
PÉTUR TEITSSON
fyrrverandi bóndi á Bergsstöðum,
verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju miðvikuda'ginn 4. sept-
ember kl. 14.
Vilborg Árnadóttir,
Ólöf H. Pétursdóttir,
Danfel B. Pétursson, Sigríður Eðvaldsdóttir,
Vilborg Pétursdóttir, Guðni Steingrimsson,
Páll V. Daníelsson, Guðrún Jónsdóttir,
Guðni Danfelsson, Svava Guðjónsdóttir,
Ingibjörg Daníelsdóttir, Pálmi Jónsson,
Pétur B. Ólason
og fjölskyldur.
Fæddur 4. desember 1933
Dáinn 23. ágúst 1991
Með fáum orðum langar okkur,
starfsfólk sundlauganna í Laugar-
dal, að kveðja vin okkar og sam-
starfsmann, Jóhann Aiexandersson.
Jóhann, eða Jói eins og hann var
kallaður meðal vina, hóf störf í
laugunum árið 1985 við baðvörslu.
Baðvarsla er oft erilsamt starf þar
sem þarf að sýna ákveðni og rögg-
semi. Þar var Jói maður á réttum
stað og gætti hagsmuna gesta jafnt
sem að halda öllu í röð og reglu.
Einkennandi var fyrir Jóa hvað
hann var barngóður og lýsir það
best innra manni, því aldrei þreytt-
ist hann á því að leiðbeina þeim og
hjálpa á allan hátt.
Jói var ákveðinn í skoðunum og
fastur fyrir, gaf sig ekki í samræð-
um ef hann hélt sig hafa á réttu
að standa og stóð alltaf vörð um
lítilmagnann, en stutt var í glettn-
ina og oft var glatt á hjalla í kring-
um hann.
Jói hafði gaman af allskonar
hljómlist og var harmonikuspil þar
efst á blaði, enda var hann dansari
mikill og þá sérstaklega í gömlu
dönsunum, þar sem hann þótt frá-
bær og vann hann til margra verð-
launa á þeim vettvangi.
Síðastliðið vor kenndi Jói sér
meins illlæknanlegum sjúkdómi
sem hann tók með æðruleysi en
festu og kom þá í ljós baráttuvilji
hans og staðfesta. Þessi barátta
stóð í allt sumar og mátti oft ekki
á milli sjá hvor hefði betur, Jói eða
maðurinn með ljáinn. Sá síðar-
nefndi er óvæginn og gerði útslagið
að morgni 23. þessa mánaðar, öllum
að óvörum, en svona starfar hann,
kemur og fer en hvílist aidrei. Við
sjáum á eftir góðum starfsmanni
og góðum dreng sem örlögin hefðu
getað verið aðeins betri við.
Við vottum aldraðri móður,
systkinum og öðrum vandamönnum
okkar dýpstu samúð og sérstaklega
Unni, sambýliskonu hans, sem
studdi hann og hvatti í veikindum
hans sem og alltaf.
Starfsfólk sundlauganna
í Laugardal.
TimothyDean
Moser — Minning
Fæddur 26. október 1968
Dáinn 24. ágúst 1991
Á morgun, 2. september, verður
haldin minningarathöfn um systur-
son minn, Timothy Dean Moser,
sem lést 24. ágúst, langt fyrir aldur
fram.
Timie, eins og við kölluðum hann
fæddist í Travis, Kaliforníu 1968.
ORÐABÆKURNAR
34.MH) cntk oppflcftiorð
Ensk
íslensk
orðabók
I/
Inglish-lcelandit
Dictionary
--
Dönsk
íslensk
íslensk
dönsk
orðabók
Mh w**‘**»4
'S'enslf
ensk
0r*nbók ^
Þýsk
íslensk
íslensk
ensk
orðabók
ENSK
dönsk
lcclondlt*fnglM
DUlionary
orðabók
lilbnlUdi-Oortuli
Doulldi-lilliiwitMb
wtírterbudt
52;«
Wdtoj,
/>
Frönsk
íslensk
íslensk
frönsk j
orðabók
>æA
ItWdflotuliu
íslensk
þýsk
:V
iS' í
ifölsk Spænsk _
,s!ensk I íslensk
islensk II jslensk
spænsk
y
*A 7 *
ílölsk
orðabók
Wilonario "°
l0*X**‘
orðabók
Ódýrar og góðar orðabækur fyrir skólann,
á skrifstofuna og í ferðalagið
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
Foreldrar Timies heita Ingibjörg
Auður Óskarsdóttir og Charles D.
Moser og fluttust þau til íslands
þegar Timie var ársgamall og ólst
hann upp hér til 11 ára aldurs.
Hann var rólyndur og indæll piltur
og skein blíðan úr svip hans. Hann
bar alltaf sterkar taugar til Islands
og kom hann hingað fýrir tveimur
árum og dvaldi hér um tíma. Frá
þeim tíma man ég sérstaklega er
hann kom til mín ásamt móður sinni
í matarboð. Þá gaf hann sér góðan
tíma til að sýna börnum mínum
athygli og horfði hann m.a. á bíó-
mynd með þeim þótt tímabundinn
væri.
Timie eignaðist dóttur þann 29.
júní sl. og var hún skírð Ravin
Mary. Unnusta Timies heitir Tracy.
Timie hafði ætlað að koma til Is-
lands og heimsækja fjölskyldu sína
viku frá þeim degi er hann lést.
Við sjáum Timie ekki meir en hann
verður samt hjá okkur öllum í anda.
Eg bið Guð að gefa móður hans
og okkur öllum styrk í þessari miklu
sorg.
Ó, faðir, gjör mig lítið Ijós
um lífs míns stutta skeið,
til hjálpar hveijum hal og drós,
sem hefur villzt af leið.
Ó, faðir gjör mig blómstur blítt,
sem brosir öllum mót
og kvíðalaut við kalt og hlýtt
er kyrrt á sinni rót.
(MJoch.)
Blessuð sé minning hans.
Dóra og börn
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
EBBA JÓNSDÓTTIR
sem lést 25. ágúst verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 3. september kl. 13.30
Örn Engilbertson, Sigrfður Brynjólfsdóttir,
Dagbjört E. Insland,
Thorvald K. Insland,
Guðrún Erla Engilbertsdóttir,
Ebba Þuríður Engilberstsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
HALLVARÐAR VALGEIRSSONAR,
Hrauntungu 85,
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 2. september kl. 10.30.
Ásta Baldvinsdóttir,
Valgeir Hallvarðsson, Aðalbjörg Kristinsdóttir,
Eva Hallvarðsdóttir, Ásgeir Valdimarsson,
Herdís Hallvarðsdóttir, Gisli Helgason,
Rannveig Hallvarðsdóttir,
Tryggvi Hallvarðsson, GuðnýArndal
og barnabörn.
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúsfega upplýsingar og ráðgjöf
_______um gerð og val legsteina._
18 S.HEL6AS0N HF
ISTEINSMIÐJA
■ !
SKEMMWEGI 48-SlMI 76677